Fréttablaðið - 09.10.2001, Side 1

Fréttablaðið - 09.10.2001, Side 1
HERNAÐUR Ekki óskað eftir Nató FRETTABLAÐIÐ þlNBHDLT IJvkTl l "aibd'ooisiT't; soN ” 533-3444 STIÓRNMÁL Friður íflokknum bls 22 UMHVERFI Safha liði og höggva skóg bls 4 118. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Þriðjudagurinn 9. október 2001 ÞRIÐJUDAGUR Alþjóðlegt MBA-nám KYNKWCABHJMPJJR f Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, verður kynn- ingarfundur um al- þjóðlegt MBA-nám kl. 17.15 í dag. Nýr hópur mun hefja þetta nám í byrjun janúar 2002. Deild- arforseti viðskipta- deildar ásamt kenn- urum og núverandi nemendum kynna námið og svara spúrningum. Breyttar áherslur hjá Amnesty MANMRínmBAMALÍslandsdeiId Am- nesty International heldur kynning- ar- og umræðufund í Borgarleik- húsinu kl. 20 í kvöld. Kynntar varða niðurstöður heimsþings sam- takanna en ýmsar áherslubreyting- ar voru samþykktar á þinginu. Allir sem áhuga hafa á mannréttindum eru hvattir til að mæta og kynna sér starfsemi samtakanna. ÍVEÐRIÐ í DAcT REYKJAVÍK Suðvestan 8-13. Skúrir. Hiti 5 til 10 stig. VINDUR ÚRKOMA HITI fsafjörður © 8-13 Skúrir 07 Akureyri © 13-18 Rigning 08 Egilsstaðir © 13-18 Rigning 08 Vestmannaeyjar © 8-13 Skúrír 07 Lokahnykkur í Smáralind smAralind Nú stendur yfir lokaátak- ið hjá þeim mikla fjölda sem hefur undirbúið opnun Smáralindar á morgun. Handtökin verða áreiðan- lega mörg í dag og líklegt er að ein- hver hópur muni standa vaktina til morguns. Hláturinn lengir lífið námskeið í dag kl. 17.30 verður hald- ið hlátursnámskeið í Norræna hús- inu. Þar mun Ásta Valdimarsdóttir kennari og bókasafnsfræðingur kynna hlátursmeðferð indverska læknisins dr. Madan Kataria. 1KVÖLDIÐ í KVÖLP Tónlist 18 Bíó 16 Leikhús 18 Iþróttir 14 Myndlist 18 Sjónvarp 20 Skemmtanir 18 Útvarp 21 Loftárásum hcildið WASHINCTON. KABÚL. ISLAMABAD. LONDON. ap Bandarísk stjórnvöld segja að ekkert lát verði á árásun- um á Afganistan næstu dagana. Fyrstu árásirnar hófust á sunnu- dagskvöld. Fjörutíu breskar og bandarískar herþotur tóku þátt í árásunum á sunnudaginn, auk herskipa og kafbáta sem skutu fimmtíu flugskeytum á skotmörk í Afganistan. Árásirnar á sunnu- daginn voru gerðar í þremur hrin- um og í gær voru bæði árásar- þjóðirnar og talibanar að meta skemmdirnar. Abdul Salam Zaif, sendiherra Afganistans í Pakistan, sagði að tuttugu óbreyttir borgarar hafi látist í Kabúl eftir fyrstu hrinu árásanna, þar á meðal konur, börn og gamalmenni. Hann sagði að fleiri en eitt flugskeyti hafi hæft svæði þar sem óbreyttir borgarar búi, þrátt fyrir að Bandaríkin full- yrði að árásirnar beinist eingöngu gegn her talibana og bækistöðv- um hryðjuverkamanna. Þá sögðu talibanar að þrír hefðu látist í Kandahar. Sprengjum var einkum varpað á flugvelli, bækistöðvar hers tali- bana og bækistöðvar A1 Qaida, hryðjuverkasamtaka Osama bin Ladens. Flugvellir í Kabúl, Kandahar og Jalalabad urðu fyrir sprengjum, birgðageymslur tali- bana í Mazar-al-Sharif, olíu- geymsla við flugvöllin í Herat og herbækistöð talibana í Konduz. Þá var sprengjum varpað á heimili Mohammads Omar, leiðtoga tali- bana, í Kandahar og húsakynni sem Osama bin Laden hefur haft not af, einnig í Kandahar. Alls voru skotmörk árásanna þrjátíu talsins, að sögn breskra stjórn- valda. Þar af voru þrjú skotmörk í Kabúl og fjögur önnur nálægt borgarsvæðum. Sendiherra talibana í Pakistan S: MEÐ BROS A VOR fbúar ( hinni stríðshrjáðu Kabúl sýna hér brot úr sprengjunum sem varpað var á borgina í fyrrinótt. Margir íbúanna virðast hafa látið árás- irnar lítt á sig fá, enda hafa þeir búið við striðsástand meira eða minna undanfarna tvo áratugi. sagði Omar hafa lifað af árásirnar, en ekki kom fram hvort hann hafi verið á heimili sínu þegar árásirnar hófust. Sendiherrann sagði einnig að bin Laden hefði sömuleiðis lifað af árásirnar, en sem fyrr er ekki vitað hvar hann er niðurkominn. Yfirmaður breska herráðsins sagði í gær að margar búðir hryðjuverkamanna gætu hafa verið tómar, en þær yrðu a.m.k. ekki nothæfar í bráðina. Þær væru flestar á afskekktum stöð- um sem erfitt væri að komast til og því enginn hægðarleikur að reisa þær á ný. Talibanar sögðust í gær hafa skotið niður eina af árásarflugvél- unum, en Rumsfeld landvarnaráð- herra Bandaríkjanna sagði það ekki rétt. ■ áfram næstu daga Á þriðja tug óbreyttra borgara féll í fyrstu lotu, svo vitað sé. Sprengjur féllu á flugvelli, bækistöðvar hryðjuverkamanna og hernaðarmannvirki talibana. NOKKRAR STAÐREYNDIR UM FRÉTTABLAÐIÐ Hveru margir á aldrinum 25 til 49 ára fengu dagblað heim til sín í morgun? Þeir sem sögðust fá Fréttablaðið heim til sín og áskrifendur að Morgunblaðinu samkvæmt könnun PriceWaterhouse- Coopers frá september 2001. 94,4% 70.000 eintök 78% fólks les blaðið FJÖLMIÐLAKÖNNUN PRICEWATERHOUSECOOPERS VAR FRAMKVÆMT DACANA 17. TIL 28. SEPTEMBER 2001. Smáralind opnuð á morgun: Telur niður klukkustundirnar viðskipti Verslunarmiðstöðin Smáralind opnar á morgun og eru verslunareigendur og starfsfólk í óða önn að gera verslanir sínar klárar. Eydís Hilmarsdóttir, framkvæmda- stjóri DEA, sagðist nokkurn vegin tilbúin fyrir opnunina en eitthvað smávægilegt eftir. „Ég er full tilhlökkunar og er farin að telja niður klukku- stundirnar þangað til að verð- ur opnað.“ Sagðist Eydís hafa gengið um Smáralindina seint á mánudagskvöldið og sýnst flesta farna að raða inn vörum. Ekki ætti það við um alla því enn mætti sjá GERT KLÁRT Thelma Víglundsdóttir starfsmaður DEA, lét Ijósmyndara Fréttablaðsins ekki trufla sig við vinnuna þegar hann var á ferð í Smáralind í gær. á nokkrum stöðum fólk vera að mála. „Ég hef nú engar sérstakar áhyggjur því það er alkunna hversu íslenskir iðnaðarmenn eru rosalegir á endasprettinum." Eydís sagði verslunina DEA, sem á latnesku þýðir gyðja, bjóða upp á kvenfatn- að þar sem markhópurinn eru konur komnar yfir 25 ára aldurinn. „Ég hef lengi unnið í tískuheiminum og fundist vanta verslun sem brúar bilið milli unglingaverslana og versl- ana sem selja fatnað á eldri kon- ur.“ sagði Eydís. ■ I ÞETTA HELST | Deila er risin milli borgaryfir- valda og Hrafns Gunnlaugs- sonar um skipulagsmál í Laugar- nesi. bls. 2 —♦— Skattabreytingar gagnast síst láglaunafólki í eigin húsnæði. bls. 4 118 fórust í hræðilegu flugslysi á Ítalíu. bls. 8 —♦— Mannanafnanefnd hafnar sum- um nöfnum en sættist á önn- ur. bls. 13.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.