Fréttablaðið - 09.10.2001, Síða 10
10
FRÉTTABLAÐIÐ
9. október 2001 ÞRIÐJUDAGUR
FRÉTTABLAÐIÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðíð ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson
Fréttastjóri: Pétur Cunnarsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Slmbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Dreifing: Póstflutningar ehf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vlsir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila
á höfuðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið
blaðið gegn greiðslu sendingatkostnaðar;
kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins I stafrænu formi og I gagnabönkum
án endurgjalds.
Rangt og rétt - skaðinn er skeður
Tveir þingmenn sátu að spjalli
við Þorfinn Ómarsson í laugar-
dagsþætti á Rás 1 og sögðu margt
af ökuferðum sínum og fundum í
nýju stórkjördæmi. Þar kom að
___^ þeir beindu spjót-
„Það á að Vm sínum aðRíkis-
segja rétt frá. Blöncfal forseti A1.
þingis sagði það
skoðun sína að fjölmiðlar ættu að
segja rétt frá. Hann, gagnrýndi
mjög fréttaflutning RÚV af veið-
um smábáta, og sagði um leið að
hann hefði þá venju að hafna boði
um að koma fram í útvarpi til þess
að leiðrétta rangar fréttir. „Skað-
inn er skeður“, sagði forsetinn,
„Það á að segja rétt frá.“ Varla
hafði hann sleppt því orði, þegar
hann upphófst með skammir út af
því að Rikisútvarpið væri að
skera þjónustu landshlutastöðva
sinna niður við trog, enda þótt það
hefði á sínum tíma fengið sér-
staka fjárveitingu til þess að sinna
henni.
Ekki fannst Markúsi Erni Ant-
onssyni útvarpsstjóra meiri skaði
skeður af þessum staðhæfingum
Halldórs Blöndal en svo, að hann
lagði það á sig að leiðrétta rang-
færslurnar. Hann upplýsti í kvöld-
fréttatíma að útvarpið hefði aldrei
fengið eyrnamerkt fé til þjónustu
landshlutastöðva, heldur varið til
þeirra fjármunum eftir efnum og
ástæðum. Nú stæði þannig á að
auglýsingatekjur hefðu rýrnað
um 100 milljónir og þess vegna
Mál manna
Einar Karl Haraldsson
hlýddi á rangar frásagnir þingmanna
væri niðurskurðarhnífurinn á
lofti. Einar Már Sigurðarson,
þingmaður Samfylkingarinnar,
sagði að þingfréttamenn RÚV
væru hættir að láta sjá sig á Al-
þingi, og ef til vill væri þar um
einhverskonar hefndaraðgerð að
ræða vegna þess að afnotagjöld
hefðu ekki fengist hækkuð nægi-
lega. Einnig það reyndist rangt.
Hið eina rétta sem þingmennirnir
gátu borið á borð var að mynda-
vélum hefði fækkað við útsend-
ingu á stefnuræðu forsætisráð-
herra. Sannast hér hið fornkveðna
að allir þurfa að eiga leiðréttingu
orða sinna. Og að trúverðugleiki
útvarpsins færi fyrst forgörðum
ef það tæki að segja eins „rétt“ frá
og þingmenn gera. ■
Lögmaður Kára Stefánssonar snýst til varnar:
Mörg Skerjafjarðahús
reist í blóra við reglur
skipulacsmál Afgreiðslufrestur
úrskurðarnefndar skipulags- og
byggingarmála vegna fyrirhug-
aðs hús Kára Stefánssonar í
Skeljatanga 9 hefur veirð lengdur
um pánuð.
Úrskurðarnefndin hafi fellt
bráðabirgðaúrskurð um stöðvun
nýhafinna framkvæmda á lóðinni
8. ágúst í sumar. Reglum sam-
kvæmt hefði endanlegur úrskurð-
ur átt að liggja fyrir í gær. Af-
greiðslufresturinn var hins vegar
framlengdur vegna ábendinga
lögmanns Kára um að frá því
deiliskipulagi svæðisins var síð-
ast breytt fyrir um áratug hafi
hús verið reist þar sem ekki upp-
fylli skilmála skipulagsins. Þá
mun lögmaðurinn draga í efa þá
fullyrðingu að húsið standist ekki
skipulagsskilmála, m.a. varðandi
stöllun hússins. Samkvæmt skipu-
laginu má neðri hæð hússins ekki
nema meira en helmingi af grunn-
fleti þess. Gert mun ráð fyrir að
neðri hæðin sé mun stærri en
nemur þeirri skilgreiningu og
húsið þannig fremur munu geta
flokkast sem tveggja hæða hús en
ekki sem einnar hæðar hús eins
og skipulagið mælir fyrir um.
Úrskurðarnefndin mun nú
kanna staðhæfingar um að hús í
nágrenni Skeljatangans hafi verð
byggð á skjön við reglur skipu-
lagsyfirvalda. ■
HÚSCRUNNUR KÁRA
VIÐ SKELJATANGA
Úrskurðarnefnd skipulags- og bygg-
ingarmála tekur mánaðar aukafrest
til að kanna staðhæfingar
oðAl
& /frAmtiðin
www.odal.is
SÍÐUMÚLA 8 • SÍMI 588 9999 / 525 8800
SERBYLI
VATNSSTÍGUR m/aukaíbúð
Fallegt 150 fm. einbýlishús, hæð og ris ásamt
sér aukaíbúð í kjallara. Mikið endurnýjuð eign,
m.a. eldhús, lagnir o.fl. Útg. úr eldhúsi á suður
sólpall. Góður sérgarður. Góð séríbúð. Uppl. á
skrifstofu.
BAKKASEL m/aukaíbúð
Nýkomið í sölu 242 fm. endaraðhús með
frístandandi bílskúr. Húsið er neðarlega í lokuð-
um botnlanga. Á hæðinni eru 2 stofur, garð-
skáli, eldhús, bað og forstofuherbergi. A efri
hæð 3 svh., bað og yfirbyggðar svalir útúr
hjónaherberginu. I kjallara er 3ja herbergja íbúð
með sérinngangi (laus strax). Ahv. hagstæð lán
samt. uþb. 10 millj.
BAKKASTAÐIR
Steinsteypt 175 fm. einbýli á einni hæð með
innb. 39 fm. tvöf. bílskúr. Húsið skiptist í and-
dyri, 3 rúmgóð svh., góðar stofur, glæsilegt eld-
hús, baðherbergi með sturtu og baðkari.
Þvottah. og geymsla með útg. á baklóð. Glæsi-
legar, sérsmíðaðar kirsuberjainnréttingar. Húsið
er klætt utan með viðhaldsfrírri klæðningu og er
að mestu leyti fullbúið. Verð 21,9 millj. Ahv. 8,5
millj. húsbr. 40 ára.
4ra HERBERGJA
STELKSHÓLAR
Björt og fín 4ra herb. 100 fm. íbúð á 1. hæð t.v.
(slétt inn) í litlu fjölbýli. Rúmgott hol, gott eldhús
m/góðum borðkrók, 3 svh. m/innb. skápum og
gott baðherb. m/nýrri innréttingu. Stofan björt
og rúmgóð með útg. á hellulagða sérverönd og
garð. Nýtt eikarparket á holi, stofu, 2 svh. og
eldhúsi. Þvh. á hæðinni. Sameign í góðu ástan-
di m.a. nýmáluð og teppalögð. Verð 11,9 millj.
Áhv. húsbr. og Lsj. samt. 6,8 millj.
FROSTAFOLD
Glæsileg 4ra herb 120 fm. íbúð á 1. hæð í 4ra
íbúða húsi. Húsið stendur innst í botnlanga.
Rúmgott anddyri með fallegum innb. fatask.,
eldh. með vönduðum innr. með granítborðplöt-
um og innf. AEG tækjum. Góð borðst. við út-
byggðan glugga og stór stofa með stórum suð-
ursvölum útaf og góðu útsýni. Á svh. gangi eru
2 rúmg. svh. bæði með innb. fatask., rúmg.
flísalögðu baðherberb. með fallegri innr. og
góðu þvottah. Á teikn. er gert ráð fyrir 3ja svh.
úr holi/stofu. Vandað Merbau parket og granít-
flísar á gólfum. Sameign falleg utan sem innan.
Verð 15,9 millj. Áhv. Byggsj.lán 5,0 millj.
LINDARHVAMMUR - Hfj.
Nýkomin í einkasölu fín tæpl. 80 fm. risíbúð á
Siessum einstaklega góða stað við opið svæði.
búðin er með góðum kvistum og talsverðu út-
sýni. Hol, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi
og góð stofa. Merbau parket á gólfum. Áhv. 5,1
millj. til 40 ára með 5,1 % vöxtum. Verð 8,9 millj.
NYBYGGINGAR
VÍKURHVERFI - GRAFARVOGI - LJÓSAVÍK
Nýkomin í sölu skemmtilega skipulögð raðhúsalengja á góðum stað í hverfi sem óðum er að verða fullbyggt. Húsin eru á einni hæð,
ca. 187 fm. miðjuhús með einföldum bílskúrum og ca. 197 fm. endahús með tvöf. bílskúrum. Þessum húsum verður skilað vand-
lega fullbúnum utan sem innan að undanskildum gólfefnum öðrum en flísal. baðherbergjum. Hér er stutt í alla skóla og þjónustu.
Hafið samband strax og fáið teikningar. Kaupendum sem ákveða sig fljótt,
býðst að hafa áhrif á lita- og innréttingaval. Afh. fyrirhuguð í feb. - marz 2001.
VANTAR - VANTAR - VANTAR
BREIÐHOLT - 2ja herbergja. • GRAFARVOGUR - allar tegundir. • SELÁS - 3ja og 4ra herbergja íbúð.
Helgi U. Hermannsson • helgi@odai.is
Lögg. fasteigna- og skipasali
odal@odal.is
Óli Antonsson • oli@odal.is
Sölustjóri
FISKVINNSLA
Hefur átt undir högg að sækja gagnvart
öðrum atvinnugreinum
Sjávarútvegur:
Einhæf
ímynd og lítil
kynning
atvinnulíf Svo virðist sem al-
menningur og þá einkum ungt
fólk þekki lítt til þess fjölbreyti-
leika sem felst í störfum í sjávar-
útvegi. í skýrslu nefndar um
framtíð fiskvinnslunnar kemur
fram að það sé umhugsunarefni
að lítil markviss kynningarstarf-
semi á sér stað innanlands um
sjávarútveg og mikilvægi hans
fyrir íslenskt þjóðarbú en sjávar-
afurðir voru um 64% af útflutn-
ingi landsmanna í fyrra. Af þeim
sökum m.a. hefur fólk þá ímynd af
greininni að hún mótist af ein-
hæfni í störfum.
í tillögum nefndarinnar er því
lagt til að ráðist verði í átak til
kynningar á sjávarútvegi sem að-
allega verði beint að grunn- og
framhaldsskólastigi þar sem lögð
verði áhersla á þá fjölbreyttni
sem starfsval innan hans getur
falið í sér. f því sambandi er m.a.
bent á að þjóðfélagsbreytingar
síðari ára hafa gert það að verk-
um að sífellt færri eiga þess kost
að kynnast greininni með sama
hætti og áður á sama tíma og
greinin þarf sífellt að hafa gott
vinnuafl. ■