Fréttablaðið - 09.10.2001, Síða 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
9. október 2001 ÞRIÐJUDAGUR
HVERJU MÆLIR ÞÚ MEÐ?
Ingveldur Ýr Jónsdóttir
söngkona
„Ég mæli með söng í hjarta."
Islandsdeild Amnesty:
Niðurstöður
heimsþings
kynntar
kynnincarfundvr íslandsdeild
Amnesty International efnir til
kynningar-og umræöufundar í
Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 20.
Huld Magnúsdóttir, formaður
deildarinnar, mun kynna þær
stefnubreytingar sem sam-
þykktar voru á nýafstöðnu
heimsþingi Amnesty
International. Heimsþing Am-
nesty International eru haldin
annað hvert ár og eru æðsta
ákvörðunarvald samtakanna.
Ýmsar áherslubreytingar í
starfi samtakanna voru sam-
þykktar á síðasta þingi. Allir
sem áhuga hafa á mannréttinda-
starfi Amnesty International
eru hvattir til að mæta. ■
Hádegisfundaröð Sagnfræðingafélagsins:
Þjóð eða óþjóðalýður?
fyrirlestur Gauti Kristmannsson
þýðingafræðingur heldur í dag
fyrirlestur í hádegisfundaröð
Sagnfræðingafélags Islands sem
nefnist
„Þjóð eða óþjóðalýður? Tog-
streitan um Kelta og norræna
menn um 1800“. í fyrirlestrinum
veltir Gauti fyrir sér muninum á
þjóðum og óþjóðalýð. Litið verður
á mótun þjóðernislegrar orðræðu
við upphaf þjóðernishyggju á 18.
öld, og hvernig þjóðir - raunveru-
legar eða ímyndaðar - tóku að skil-
greina sig sem einingar með fag-
urfræðilegum og mannfræðileg-
um meðulum. Skoðað verður
hvernig þjóðir fóru loks að þýða
þá orðræðu inn í bókmenntir sínar
sem við það verða sérstæðar og
einstakar. Dæmi eru tekin af Kelt-
um og „norrænum" Bretum sem á
síðari hluta 18. aldar beittu þess-
um meðulum af miklu kappi til að
átta sig á því hverjir þeir væru og
hverjir ekki. Gauti Kristmanns-
son útskrifaðist með BA-próf í
ensku frá HÍ. Hann lauk meistara-
próf frá Edinborgarháskóla í
skoskum bókmenntum og dokt-
orsprófi í þýðingafræðum frá Jo-
hannes Gutenberg-háskólanum í
Mainz. Doktorsritgerð hans fjall-
ar um áhrif
þýðinga á tilurð þjóðarbók-
mennta í Bretlandi og Þýskalandi
1750-1830. Hann hefur starfað
sem þýðandi um langt skeið og er
nú forstöðumaður Þýðingaseturs
Hugvísindastofnunar HÍ. Fundur-
inn fer fram í stóra sal Norræna
hússins, hann hefst kl. 12:05 og
lýkur stundvíslega kl. 13:00.
Fundurinn er opinn öllu áhuga-
fólki um sögu og er aðgangur
ókeypis. ■
ÞRIÐJUDAGURINN
9. OKTÓBER
FUNDIR____________________________
20.00 íslandsdeild Amnesty
International efnir til kynningar-
og umræðufundar í Borgarleik-
húsinu.
20.30 Vinstrihreyfingin - grænt fram-
boð í Kópavogi heldur félags-
fund í veitingahúsinu Catalína
Hamraborg 11. Á dagskrá eru
komandi bæjarstjórnarkosningar
og framboð vegna þeirra. Allir
félagsmenn VG og stuðnings-
menn eru velkomnir.
NÁMSKEIÐ_________________________
17.30 Hlátursnámskeið í Norræna hús-
inu. Ásta Valdimarsdóttir kenn-
ari og bókasafnsfræðingur kynnir
hlátursmeðferð indverska læknis-
ins dr. Madan Kataria. Aðgangs-
eyrir kr. 1000. Hluta af ágóða
verður varið til líknarmála.
FYRIRLESTRAR______________________
12.05 Gauti Kristmannsson þýðinga-
fræðingur heldur fyrirlestur á há-
degisfundi Sagnfræðingafélags
fslands í Norræna húsinu. Fyrir-
lesturinn er öllum opinn.
Tjón af völdum hryðjuverkaárásanna:
Verðmæti listaverka
áætlað 10 milljarðar
WORLD TRADE CENTER Frá því að
hryðjuverkaárásirnar voru gerð-
ar á World Trade Center bygging-
arnar, 11. september s.l., hefur
verið reynt að henda reiður á
efnahagslegtu tjón skemmdar-
verkanna. Samkvæmt mati sér-
fræðinga tryggingafélagsins
AXA Art, sem sérhæfir sig í
tryggingum á listaverkum, er
talið að verðmæti listaverka, sem
glötuðust í árásunum, nemi allt að
10 milljörðum íslenskra króna.
Axa Art hefur þegar lagt til hliðar
um 20 milljónir Bandaríkjadoll-
ara vegna hugsanlegra trygginga-
bóta. Bent hefur verið á að tjónið
gæti verið mun meira þegar tekið
er með í reikninginn nærliggjandi
byggingar sem einnig urðu fyrir
skakkaföllum. „Spurningin er
hversu umfangsmikið tjónið er í
öðrum byggingum eða vegna
hreinsunaraðgerðanna," segir
forstjóri AXA, Dr. Dietrich von
Frank, í samtali við hið banda-
ríska tímaritið Art Newspaper. Á
meðal helstu viðskiptavina AXA í
WTC er verðbréfafyrirtækið
Cantor Fitzgerald en á skrifstof-
um þess voru 300 höggmyndir
eftir Rodin auka annarra verka. ■
GRÍÐARLEGT TJÓN
Á meðal helstu viðskiptavina tryggingafé-
lagsins AXA i WTC var verðbréfafyrirtæki
sem státaði af 300 höggmyndum eftir
Rodin auka annara verka. Talið er að
tjóníð sé mun meira ef nærliggjandi
byggingar eru teknar með í reikninginn.
Fáðu meira út úr sjónvarpinu þínu
Pantaðu áskrift núna í síma 515 6100
Einn, tveir og elda Miðvikudaga kl. 19:30
Og þú hélst að
keppnisíþróttir
og matreiðsla
ættu enga samleið
Nýr þáttur þar sem tvö lið mætast
og elda til sigurs.
Frumsvning 24. október
F
Góða skemmtun!