Fréttablaðið - 09.10.2001, Page 19
ÞRIÐJUDAGUR 9. október 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
Printemps de Septembre:
Islendingur vekur athygli
mynplist Verk Bjargeyjar Ólafs-
dóttur myndlistarkonu sem sýnt
er á listasýningunni Printemps
de Septembre (vor í september)
í Toulouse hefur vakið athygli
þarlendra. Gagnrýnandi franska
stórblaðsins Le Monde minnist
sérstaklega á verk hennar í
gagnrýni um sýninguna og er
því hælt mjög. Fjölmargir lista-
menn, frá Evrópu og Bandaríkj-
unum, taka þátt í sýningunni
sem sett var saman af Val Willi-
ams. „Þetta skiptir auðvitað máli
fyrir mig þegar kemur að því að
koma sér áfram í listaheimin-
um,“ segir Bjargey. Hún sýnir
stuttmyndina Falskar tennur á
sýningunni í Toulouse. Sýningin
Vor í september hefur verið
haldin í fjölmörg ár í Frakk-
landi. Þetta er hins vegar í fyrs-
ta skipti sem hún er haldin í Tou-
louse, áður var hún haldin í bæn-
um Cahor. Þar er Bjargey reynd-
ar einnig með verk á sýningu.
„Það heitir Bedlam, sem þýðir
bæði óreiða og geðsjúkrahús.
Verkið er samansett úr 14 risa-
stórum ljósmyndum." ■
BJARGEY ÓLAFSDÓTTIR
Sýnir í Frakklandi og Finnlandi um þessar
mundir.
MYNPLIST___________________________
Hugleikur Dagsson listamaður og kvik-
myndagagnrýnandi sýnir verk í Gallerí
Nema Hvað, Skóavörðustíg 22c Sýning-
in stendur yfir dagana 6.-11. október og
er opið frá klukkan 14-18.
Vera Sörensen listamaður opnaði síð-
astliðinn laugardag málverkasýningu (
sýningarsal Gallerí Reykjavík. Sýningin
er opin virka daga frá kl 13.00 til 18.00
og laugardaga frá 11.00 til 16.00.
Kristín Reynisdóttir hefur opnað sýn-
ingu á verkum sínum í Þjóðarbókhlöð-
unní. Þetta er fjórða sýningin í sýninga-
röðinni Fellingar sem er samstarfsverk-
efni Kvennasögusafnsins, Landsbóka-
safns Islands - Háskólabókasafns og 13
starfandi myndlistarkvenna. Opnunar-
tími Kvennasögusafnsins er milli klukk-
an 9 og 17 virka daga og eru allir vel-
komnir.
Jón Valgard Jörgensen myndlistarmað-
ur sýnir verk sín í Félagsstarfi Gerðu-
bergs. Sýndar eru landslagsmyndir,
fantasíur, portrait teikningar og dýra-
myndir. Sýningin stendur til 9. nóvem-
ber. Opnunartímar sýningarinnar: mán. -
fös. kl. 10-17 og um helgar kl. 13-16.
Linda Oddsdóttir hefur opnað sína
fyrstu einkasýningu á Cafe Presto Hlíða-
smára 15. Á sýningunni eru eingöngu
olíumálverk sem eru unnin á þessu ári.
Myndefnið er aðallega sótt í náttúru
landsins. Opnunartfmar virka daga frá
10 til 23 og um helgar frá 12 til 18. Sýn-
ingin stendur til 19 október.
Sýning á verkum Hjörleifs Sigurðssonar
listmálara stendur yfir í Listasafni Kópa-
vogs. Sýndar eru vatnslitamyndir sem
hvíla að mestu leyti á sérkennum japön-
sku pappírsarkanna. Sýningin er opin
daglega nema mánudaga milli 11-17.
Kristján Guðmundsson hefur opnað
einkasýningu í Listasafni Reykjavíkur,
Kjarvalsstöðum. Sýningin er opin 10 -
17 alla daga nema miðvikudaga 10 - 19.
í Listhúsinu í Laugardal stendur yfir
málverkasýning Elisabetar Stacy
Hurley. Elisabet er af íslenskum ættum
en er búsett í Bandaríkjunum. Sýningin
stendur til 31. október.
Sýningin Sjálfbær þróun stendur nú í
Nýlistasafninu. Sýningin er liður í
átaksverkefni Nýlistasafnsins sem
kennt er við Grasrót og hefur að mark-
miði að kynna verk efnilegra lista-
manna sem eru að stíga sín fyrstu
sjálfbæru þróunarskref á sviði listarinn-
ar. Sýningin er opin milli kl. 12 og 17
alla daga nema mánudaga.
Björg Örvar sýnir náttúrulífsmyndir í
sýningarsal verslunarinnar Álafoss,
Álafosshvos í Mosfellsbæ. Opið er
virka daga kl. 9 til 18 og laugardaga kl.
9 til 16 og stendur sýningin til 27.
október.
Þóra Sigurþórsdóttir leirlistarkona sýnir
í Gullsmiðju Hansínu Jens að lauga-
vegi 20b.
Yfirlitssýning Errósafnsins stendur í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Sýn-
ingin er opin alla daga kl. 10 til 17 en til
kl. 19 á miðvikudögum. Hún stendur til
7. október.
Svipir lands og sagna er yfirskrift sýn-
ingar á verkum Ásmundar Sveinssonar
I Listasafni Reykjavíkur, Ásmundar-
safni. Á sýningunni eru verk sem span-
na allan feril listamannsins. Safnið er
opið daglega kl. 10 til 16 og stendur til
10. febrúar á næsta ári.
Fáðu meira út úr sjónvarpinu þínu
Pantaðu áskrift núna í síma 515 6100
ísland í dag Daglega kt. 19:00
Bætir eftirtekt
- takist einu sinni
á dag
Guðrún Gunnarsdóttir og
Snorri IVlár Skúlason eru
sannkallaðir heimilisvinir
íslensku þjóðarinnar og taka
púlsinn á mannlífinu
í fslandi í dag.
¥4
Góða skemmtun!