Fréttablaðið - 09.10.2001, Blaðsíða 22
22
FRÉTTABLAÐIÐ
9. október 2001 ÞRIÐJUDAGUR
HRAÐSOÐIÐ
EIRÍKUR TÓMASSON
aðstoðaryfirlögregluþjónn
Leiðir
merktar að
Smáralind
HVERNIG sér Lögreglan í Kópavogi
fyrír sér umferðina við Smáralind á morgun?
Opnunarhátíðinni er dreift á fimm
daga og við bindum vonir við að um-
ferðarálagið dreifist á þá alla. Það
verður talsvert fjölmenn löggæsla
þama og umferðarmannvirkin í kring
em öflug og flytja mikið. Við munum
fyrst og fremst reyna að tryggja að
þegar bílastæði fyllast, eða tappar
myndast þar sem ekið er inn stæði,
muni það ekki skila sér út í umferðar-
æðarnar í kring. Það verður gert með
því að beina umferðinni fram hjá.
HVE mörgu fólki er búist við á opnunarhá-
tfð Smáralíndar?
Það er erfitt að segja. Menn hafa horft
á að 50.000 manns komu í Kringluna
þegar hún opnaði. Það er búist við tölu-
vert fleiri í Smáralind en á móti kemur
að opnunarhátíðin dreifist á fimm
daga.
HVERSU margir lögreglumenn verða í
kríngum Smáralind næstu daga?
Á þriðja tug lögreglumanna verður við
Smáralind þessa fimm daga sem opn-
unarhátíðin stendur.
HVAÐA aðrar ráðstafanir hafa veríð
gerðar?
Við verðum með stjómstöð í húsinu.
Þannig að auk lögreglumannanna
verða um 40 starfsmenn á bílastæðum
með aðsetur þar. Umferðarráð verður
einnig í stjómstöðinni og kemur upp-
lýsingum í Útvarp umferðarráðs ef
þörf krefur.
HVERJU viftu koma á framfærí við þá
sem ætla í Smáralind á morgun?
Aðkomuleiðimar em byggðar upp þan-
nig að það er best að koma Reykjanes-
brautina og Hafnarfjarðarveginn en
ekki keyra í gegnum Kópavog. Teng-
ingar em góðar af Hafnarfjarðarvegin-
um um Amarnesveginn. Af Reykjanes-
brautinni em fráreinar við Ak-Inn og á
móts við Elkó. Þetta em bestu leióimar
að Smáralind og þær verða merktar. Ef
bílastæðin fyllast verður þeim lokað og
þá þýðir ekkert annað en að reyna aft-
ur seinna. Þetta stendur í fimm daga
og húsið verður opið áfram. Menn era
ekki að missa af neinu. Þeir sem búa í
nágrenninu gætu fengið sér gönguferð
frekar en að taka bílinn og svo er alltaf
möguleiki að taka strætó.
Eiríkur Tómasson er aðstoðaryfirlögregluþjónn í
Kópavogi og hefur lagt nótt við dag síðustu sól-
arhringa við að undirbúa stjómun umferðar við
Smáralind á morgun og næstu daga.
Desmond Tutu fagnar sjötugsafmæli:
Gagnrýnir afskipta-
leysi afHIV
höfðaborg.ap. Desmond Tdtu, erki-
biskup, friðarverðlaunahafi
Nóbels og þjóðardýrlingur í Suður-
Afríku, fagnaði á sunnudag sjö-
tugsafmæli sínu með hvatningará-
varpi til samlanda sinna.
Hann minnti landsmenn á að
þeim hefðu tekist að sigrast á kyn-
þáttaaðskilnaðarstefnunni og hvat-
ti þá til að takast af hugrekki á við
þau brýnu verkefni sem barátta
gegn eyðni, fátækt, glæpum og
spillingu hafa fært þjóðinni í fang.
„Okkur tókst að gera það sem
enginn hélt að gæti gerst. Allir
bjuggust við að þetta land yrði
vettvangur blóðbaðs," sagði T\itu í
sjónvarpsviðtali. Tútu varð tákn-
mynd sáttastefnunnar milli hvíta
minnihlutans og svarta meirihlut-
ans í kjölfar þess að aðskilnaðar-
stefnunni var steypt og sat í for-
sæti Sannleiks- og sáttanefndar-
innar í landinu.
í viðtalinu gagnrýndi Tútu jafn-
framt óbeint tregðu núverandi
stjórnvalda í landinu til að takast á
við þann vanda sem að steðjar
SAMEININGARTÁKN
Tutu gagnrýndu afstöðu Mbeki, forseta Suður-Afríku, sem hefur efast um að rekja megi
eyðni til HlV-smits og fer sér hægt í að takast á við vandann.
vegna eyðni, en 4,7 milljónir krabbameini í blöðruhálskirtli en
manna í landinu ganga með HIV- sagði í viðtalinu að líðan sín væri
veiruna í blóði sínu. Tbtu þjáist af góð. ■
FRÉTTIR AF FÓLKI
Aannað þúsund sjálfstæðismenn
koma saman til landsfundar í
Laugardagshöll á fimmtudag. Ekki
er búist við mikl-
um átökum; helsta
spennuefnið er
hvort Davíð Odds-
son fái undir eða
yfir 95% atkvæða í
formannskjöri.
Landsfundurinn er
skrautsýning þess-
arar miklu valda-
stofnunar og jafnframt verður
tækifærið notað til að ýta úr vör
baráttu flokksmanna á hinum póli-
tíska vetri. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir og félagar hennar í R-listan-
um verða því sjálfsagt í áberandi
aukahlutverki og má búast við að í
ályktunum verði beint að Reykja-
víkurborg þungum skotum fyrir
mál eins og hlut sveitarfélaga í
þenslu hins opinbera, Línu.Net og
lóðaframboð í borginni til að undir-
byggja kosningabaráttuna næsta
vor.
Olafur F. Magnússon, borgarfull-
trúi og virkjanaandstæðingur,
hefur boðað að hann ætli að láta til
sín taka á fundin-
um og láta reyna á
afstöðu flokks-
manna til virkjana
á hálendinu norðan
Vatnajökuls. Ljóst
þykir að hann
muni tala mjög
fyrir daufum eyr-
um. Helst að kolle-
ga hans úr læknastétt, Katrín
Fjeldsted, muni taka undir. Virkj-
anaandstæðingar eru á bekk með
sérvirtingum í Sjálfstæðisflokkn-
um en vegna þeirra vinsælda sem
sérviskan sú á að fagna meðal fólks
á höfuðborgarsvæðinu er talió lík-
legt að lögð verði áhersla á að gera
út um málið í bakherbergjum og
forðast að hleypa af stað miklum
deilum um það á gólfi Laugardals-
hallarinnar fyrir augum allra
landsfundarfulltrúa og fjölmiðla.
Kemur Árni Johnsen á lands-
fundinn? Hann hefur ekki
misst af fundi áratugum saman og
oftar en ekki
stjórnað fjöldasöng
í lokahófi fundar-
ins. Árna var fagn-
að heitt og innilega
þegar hann söng
brekkusönginn á
þjóðhátíð um versl-
unarmannahelgi.
Það verður fróð-
legt að fylgjast með móttökunum
sem hann fær hjá flokkssystkinum
sínum á landsfundinum.
Friður í flokknum
Kjartan Gunnarsson hefur verið framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks-
ins í 21 ár. Hann hefur yfirumsjón með landsfundi flokksins sem
hefst á fimmtudag. Þar mætir þverskurður þjóðarinnar.
KJARTAN GUNNARSSON
„Áður fyrr dró kalda stríðið mjög öflugar víglínur á milli manna og sú barátta hreif
mjög ungt fólk," segir Kjartan sem segir að í breyttri heimsmynd hafi baráttumál ungs
fólks i flokknum breyst, en áhugi þess á stjórnmálum ekki.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN 34. Lands-
fundur Sjálfstæðisflokksins
hefst á fimmtudag. Þá koma yfir
1000 sjálfstæðismenn saman til
að „móta stefnu flokksins og
kjósa sér forystu," eins og
Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri flokksins orðar
það. Kjartan hefur verið fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins í 21 ár. Einn hluti star-
fa framkvæmdastjórans er að
hafa yfirumsjón með undirbún-
ingi landsfundarins. „Starf
fundarins er í tiltölulegu föstum
skorðum. Hann er haldinn á
tveggja ára fresti og undirbúinn
með góðum fyrirvara,“ segir
Kjartan sem bendir á að ýmis-
legt er varðar verklag hafi
breyst í framkvæmdastjóratíð
hans. „Það hefur til dæmis verið
gripið til þess nú að kynna
ályktanir sem teknar verða til
umfjöllunar á heimasíðu flokk-
ins.“
Flokksmenn alls staðar af
landinu hittast á fundarstað
Sjálfstæðisflokksins, Laugar-
dalshöll, á fimmtudag. „Ég tel
að af öllum mögulegum funda-
höldum á landinu sé þarna ör-
uggasti þverskurður lands-
manna saman kominn," segir
Kjartan sem segir þátttakendur
í landsfundinum hafa mikil
áhrif á stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins. „Ef menn myndu skoða
ályktanir landsfundarins síðast-
liðin ár og stefnu þeirra ríkis-
stjórna sem Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur átt aðild að á sama
tíma þá myndu menn sjá að
mjög mörgum þeirra hefur ver-
ið hrint í framkvæmd.“
í framkvæmdastjóratíð sinni
hefur Kjartan starfað með
þremur formönnum Sjálfstæð-
isflokksins, Geir Hallgrímssyni,
Þorsteini Pálssyni og Davíð
Oddssyni. „Þeir eru mjög ólíkir
menn en aílir miklir sómamenn
sem hafa lagt sig alla fram við
að vinna hugsjónum Sjálfstæð-
isflokksins brautargengi," segir
Kjartan sem segir samtarf for-
manns og framkvæmdastjóra
þurfi „að vera mikið og náið“ til
að það beri árangur.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
setið í rúmlega tíu ár í ríkis-
stjórn undir forsæti Davíðs
Oddssonar og hefur tíminn í rík-
isstjórn haft mikil og góð áhrif á
Sjálfstæðisflokkinn að mati
Kjartans. „Sjálfstraust Sjálf-
stæðismanna hefur aukist mjög
og stjórnarsetan hefur einnig
treyst mjög friðinn í flokknum.
Þetta hefur verið friðsamlegur
tími,“ segir Kjartan sem hefur
ekki annað í hyggju en að halda
áfram störfum fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn. „Það hefur að minns-
ta kosti enginn sagt mér upp og
ekki hef ég lagt inn uppsagnar-
bréf.“
sigridur@frettabladid.is
Alþjóðlegt MBA nám P
G M Opinn kynningarfundur u im MBA nám
Nánari upplýsingar ueitir: María Kristin Gylfadóttir, uerkefnastjóri MBA náms, í Háskólanum í Reykjauík, í dag, kl. 17.15 V
í síma 510 G2G2 eða rnba@ru.is. Námið hefst í janúar 2002 HASKOLINN í REYKJAVIK RLYKJAVIK UNIVERSITY