Fréttablaðið - 15.11.2001, Side 1
MENNING
Litir nýja
stílsins
bls 18
FÓLK
I lœri hjá
Jóni Gnarr
bls 17
SJÁVARÚTVEGUR
Misnotkunin
vandamálið en ekki
kerfið sjálft
bls 10
FASTEIGNASALA
• Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin)
• Sími 533 4300 • Gsm 895 8248
FRETTABLAÐIÐ
145. tölublað - 1. árgangur
FlfVlMTUDAGUR
Sjúkraliðar
í þinghúsið
■ VERKFflLi Fulltrúar
Sjúkraliðafélags
íslands mæta til
viðræðu um kjara-
mál sín á fund heil
brigðis- og trygg-
inganefndar Al-
þingis klukkan
8.1S. Sáttafundur í deilunni hefst
svo síðdegis.
Aðskilnaður
ríkis og kirkju
alþinci Á Alþingi í dag fer fram
fyrsta umræða um frumvarp Guð-
jóns A. Kristjánssonar, Árna Stein-
ars Jóhannssonar og Sverris Her-
mannssonar sem gerir ráð fyrir að
fullum aðskilnaði ríkis og hinnar
evangelisku lútersku kirkju skuli
náð innan fimm ára.
IVEÐRIÐ í DAG|
REYKJAVÍK Sunnan
8-15 m/s, súld eða rigning.
Híti 7 til 12 stig.
ísafjörður VINDUR ÚRKOMA (JJ8-13 Rigning HITI 06
Akureyri ©8-13 Súld ©13
Egilsstaðir 08-10 Súld O 9
Vestmannaeyjar Q 10-15 Súld O 10
Reykjavík
2001-2024
skipulag Lokatillaga að aðalskipu-
lagi Reykjavíkur 2001-2024 verður
kynnt og lögð fyrir borgarstjórnar-
fund í dag. Þar er t.d. að finna bann
við rekstri nektardansstaða, tillög-
ur um lestarsamgöngur, breytingar
á Viðey og á hinu umdeilda flug-
vallarsvæði í Vatnsmýrinni.
Rafsegulsvið
og líkaminn
alþingi Drífa Hjartardóttir og fleiri
þingmenn flytja í dag þingsályktun-
artillögu um að heilbrigðisráðherra
standi fyrir rannsókn á mögulegum
áhrifum háspennulína og slíkra
mannvirkja á mannslíkamann.
~7KV<rLPIÐ | KVÖLd]
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 íþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Fimmtudagurinn 15. nóvember 2001
Sjúkraliðar ganga til fundar við heilbrigðisnefnd Alþingis vegna kjaradeilu sinnar:
Ríkið ræðir um 30 þúsund
króna hækkun launa
| ÞETTA HELST |
Dótturfyrirtæki Landsvirkjun-
ar ætlar ásamt Norðurorku
að leggja ljósleiðaranet innan-
bæjar á Akureyri á sambærileg-
an hátt og Lína.Net er að gera í
Reykjavík.
bls. 4.
Hart barist við tali-
bana í Kandahar
Ættarhöfðingjar á heimaslóðum talibana gera uppreisn. Bandaríkin herða leitina að Osama bin
Laden, sem talinn er í grennd við Kandahar. Flóttamenn snúa aftur heim til þorpa sinna í norðri.
KflBÚL, KHOJfl GHflflR. ISLAIVIABflD. AP
Bardagar geisuðu einkum í suður-
hluta Afganistans í gær, þar sem
talibanar eru enn með öflugan her
og þar sem Osama bin Laden er
talinn vera í felum. Fréttir bárust
af því að margir ættarhöfðingjar í
suðurhluta landsins hefðu gert
uppreisn gegn talibönum, sem
flestir eru ættaðir af sömu slóð-
um.
Bandarískir sérsveitarmenn
voru bæði komnir til Kabúl, höfuð-
borgar landsins sem talibanar yf-
irgáfu aðfararnótt þriðjudags, og
til suðurhéraðanna þar sem þeir
reyndu að hvetja ættarhöfðingja
til að gera uppreisn gegn talibön-
um og veittu þeim aðstoð til þess.
„Á næstunni beinum við athygli
okkar fyrst og fremst að því að ná
bin Laden og leiðtogum talibana,"
sagði Donald H. Rumsfeld, varn-
armálaráðherra Bandaríkjanna.
Barist var í borginni Kandahar,
þar sem talibanar hafa jafnan haft
höfuðstöðvar sínar. Um 200
manna her uppreisnarmanna
hafði tekið flugvöllinn á sitt vald,
og börðust þar við talibana. Norð-
urbandalagið fullyrti að talibanar
væru á flótta upp í fjöllin norður
af borginni.
Á þriðjudag fóru talibanar frá
borginni Jalalabad í austurhluta
landsins eftir að hafa samið við
leiðtoga íbúa um að komast óhultir
á brott með vopn sín og hafurtask.
Bandaríkin gerðu hins vegar loft-
árásir á bækistöðvar talibana og
hryðjuverkasamtakanna A1 Kaída
í fjöllunum suður af Jalalabad.
í norðurhluta Afganistans eru
NAUÐSYNJAVÖRUR TIL AFGANISTAN Afganir bera hveitipoka upp úr flutningapramma í norðurhluta Afganistan. Hjálparstofnanir
sendu í gær fyrsta farminn af ýmsum nauðsynjavörum frá Úsbekistan til Afganistan.
flóttamenn strax farnir að snúa
aftur heim til þorpa sinna, sem
Norðurbandalagið hefur náð á sitt
vald úr hendi talibana. Víða eru
það rústir einar sem mæta fólki á
heimaslóðum þess, og a.m.k. tveir
létust af völdum jarðsprengju í
þorpinu Khoja Ghaar.
Sumir flóttamannanna sökuðu
talibana um að hafa viljandi skilið
eftir sig sem mesta eyðileggingu.
Húsin höfðu verið brotin niður,
gróður eyðilagður og áveitur
skemmdar.
Á hinn bóginn hafa margir látið
greipar sópa um birgðageymslur
og annað verðmætt sem talibanar
skildu eftir í Kabúl, Mazar-e-
Sharif og víðar. Þannig var öllu
stolið úr birgðageymslu flótta-
mannastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna í Kabúl eftir að Norður-
bandalagið náði þar völdum á
þriðjudag. ■
Hvað les fólk
á aldrinum
25 til 29 ára?
Meðallestur 25 til 29
ára á virkum dögum
samkvæmt könnun
PriceWaterhouse-
Coopers frá
september 2001
70.000 eintök
78% íóús ies biaðið
| FJÖLMIÐLAKÖNNUN PRICEWATERHOUSECOOPERS VÁRÍ
| FRAMKVÆMD DAGANA 17. TIL 28. SEPTEMBER 2001. |
kjaramál Kristín Á. Guðmunds-
dóttir formaður Sjúkraliðafélags
íslands segir að það geti brugðið
til beggja vona hvort einhver ár-
angur geti orðið á þeim sátta-
fundi sem boðað hefur verið með
samninganefnd ríkisins í dag,
fimmtudag. Hún vill hins vegar
ekki tjá sig um það hvort eitthvað
sé hæft í því að ríkið hafi viðrað
þann möguleika að hækka heild-
arlaun sjúkraliða um 30 þúsund
krónur á mánuði þannig að þau
færu í rúmlega 160 þúsund krón-
ur á mánuði. Samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins er í þeirri hug-
myndafræði rætt um að laun
sjúkraliða verði ákveðið hlutfall
af launum hjúkrunarfræðinga.
KRISTfN Á. GUÐMUNDSDÓTTIR
Segist fagna afstöðubreytingu hjá heil-
brigðisnefnd Alþingis
Hafi ekki samist á næstu tólf
dögum skellur aftur á þriggja
daga verkfall sjúkraliða í lok
mánaðarins.
Forysta Sjúkraliðafélagsins
hefur verið boðuð á fund hjá heil-
brigðisnefnd Alþingis í dag til að
ræða ástand heilbrigðismála með
tilliti til sjúkraliðastarfsins.
„Hvað ætlar heilbrigðiskerfið að
gera varðandi þessa stétt í fram-
tíðinni? Á að gera eitthvað til að
hún verði til áfram og þá hvað?“
ætlar Kristín að spyrja nefndar-
menn. „Við komum til með að
sýna aldursdreifingu innan fé-
lagsins, hversu mikill skortur er
á sjúkraliðum og hvernig nýlið-
unin er, sem er nánast engin.“
Sjúkraliðar báðu um þennan
fund í maí en af honum varð ekki
þar sem Alþingi var þá ekki sam-
an. ■
Guðmundur Árni Stefánsson
ætlar ekki að sækjast eftir
formennsku í Samfylkingunni á
flokksþingi sem haldið verður
um helgina. Hann vill hins vegar
breyta nafni flokksins.
bls. 2.
Fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Sólheima segir stjórnar-
formann sitja beggja vegna borðs
í málefnum staðarins og hafa ít-
rekað vanefnt tnalfvið starfs-
menn og fatlaða. Stjórn Sólheima
segir ítrekaðar kvartanir um
samstarfserfiðleika ástæðu upp-
sagnar framkvæmdastjórans.
bls. 2.