Fréttablaðið - 15.11.2001, Side 8

Fréttablaðið - 15.11.2001, Side 8
8 nmfcm ; te m m m r ;p»-:^dn^Qn-ci- fHJQftaMfMWi fbf nóvemfier iOul FlivilvliuOAt DAGUR Lægsta verð frá 16.990 kr. Fornleifar á horni Aðalstrætis ogTúngötu: Landnámsbær í hótelkjallara skipulagsmál Ólafur F. Magnús- son, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokks, flytur, í borgarstjórn í dag, tillögu um að verja fornminjar á horni Aðalstrætis og Túngötu í Reykjavík. Á svæðinu er ráðgert að rísi hótel. Ólafur vill að deiliskipulag suðausturhiuta Grjótaþorps verði endurskoðað. Hann segir fornminjarnar vera taldar bæjarstæði Ingólfs Arnar- sonar og Hallveigar Fróðadóttur og vill menningar- og sögusetur á svæðinu. Þá segir hann að þótt áformin með hótelbyggingunni séu metnaðarfull geti hann ekki fallist á að þrengt verði að forn- minjunum vegna þeirra. Orri Vésteinsson, fornleifa- fræðingur, segir að fornminjarn- ar séu ekki bæjarstæði Ingólfs og Hallveigar. „Það munar alveg upp undir hundrað árum. Engu að síð- ur eru rústirnar ágætis dæmi um húsagerð á þessum tíma og ef til vill ekki mikill munur á þeim og einhverju sem Ingólfur hefði get- að byggt sér.“ Orri sagði þó að á svæðinu gætu verið fleiri rústir og jafnvel eldri. „Það kann að vera ástæða til að kalla eftir heild- stæðri stefnu í hvernig standa á að framkvæmdum á svæðinu öllu. [...] Það getur vel verið að elsti skálinn sé þarna einhvers staðar," sagði hann, en bætti við að hótel- byggingin sjálf væri góð út frá sjónarmiði minjaverndar því þar stæði til að endurbyggja húsið Að- alstræti 16 sem væri að stofni til eitt elsta hús bæjarins. ■ ÓLAFUR F. MAGNÚSSON Ólafur vill tryggja að varðveisla og aðgengi að fornminjunum í Aðalstræti verði aðalat- riði deiliskipulags og ekki þrengt að þeim vegna fyrri skipulagsáforma. FIMMTUDAG • FOSTUDAG • UAUGARDAG ALLT AÐ AÐEINS í ÞRJÁ DAGA! ONGUSKOR Nauðsynlegt að rétt sé gefíð Fjárhagsvandi framhaldsskóla hefur verið til umræðu að undanförnu, meðal annars á Alþingi. Ljóst er að nokkrir skólar standa illa og sumir mjög illa. Fé til framhaldsskóla er úthlutað eftir svokölluðu reiknilíkani en í því eru viðmiðanir sem mæla Qárþörfina meðal annars samkvæmt þeim áherslum sem menntamálaráðuneytið vill leggja í ráðstöfun íjár. BLANDAÐ NÁM KEMUR ILLA ÚT Fjölbrautaskólinn I Breiðholti er einn þeirra skóla sem hvað verst stendur en þar er hægt að leggja stund á bæði bóknám og verknám, auk þess sem kvöldskóli er rekinn við skólann. framhaldsskólar Fjármagni til framhaldsskóla er úthlutað sam- kvæmt sérstöku reiknilíkani. Far- ið er eftir fjölda nemenda í fullu námi, miðað við þá sem þreyta próf í lok annar. Einnig er miðað við tilteknar hópstærðir eftir eðli kennslunnar, frá litlum hópum verklegra greina til stærri hópa bóklegra greina. í endurskoðuðu reiknilíkani munu fjárveitingar væntanlega, meira en hingað til, miðast við aðstöðu og búnað sem til kennslu hverrar greinar þarf. Stefnt er að því að sú breyting komi til framkvæmda eigi síðar en 2003 enda telur menntamála- ráðuneytið nauðsynlegt að fjár- veitingar fylgi uppbyggingu þess tölvukosts sem hröð þróun upp- lýsingasamfélagsins krefst ekki síður en starfsmenntunar al- mennt. Fjárhagsstaða franthaldsskól- anna er mismunandi en sumir hafa staðið illa allt frá árinu 1992 þegar skólarnir fóru að taka halla fyrra árs með inn á nýtt fjárhags- ár. í öðrum skólum fór að ganga illa eftir að farið var að nota reiknilíkanið árið 1998. Blandaðir bók- og verknámsskólar koma sumir illa út. Flestir bóklegir bekkjaskólar standa vel og einnig t.d. Iðnskólinn í Reykjavík. Einn þeirra skóla sem stendur illa er Fjölbrautaskólinn í Breið- holti. Að sögn Kristínar Arnalds skólameistara liggur það fyrst og fremst í kennslukostnaðinum. „Kennararnir hjá mér eru að eld- ast og kjarasamningar kveða á um að þegar menn eru komnir á ákveðinn aldur þá kenna þeir minna. Árið 2000 munaði þarna 24 milljónum,“ segir Kristín. Hún er einnig ósátt við að fjárveitingar skuli miðast við þá nemendur sem þreyta próf. Frá sjónarhóli menntamálaráðuneytisins er sú krafa hins vegar hugsuð sem hvatning fyrir skólana til að koma nemendum í próf og vinna gegn brottfalli að sögn Aðalsteins Ei- ríkssonar í ráðuneytinu. Kristín segir kvöldskólann vanreiknaðan í líkaninu. „Þar er bara miðað við kennsluna en ekki stjórnun eða rekstur. Við erum til dæmis með háan rafmagnskostn- að vegna þess að vélarnar eru í gangi fram á kvöld.“ Kristín segir brýnt að breytingar á reiknilíkan- inu komist til framkvæmda sem fyrst. „Það er sjálfsagt að vera með aðhald og reiknilíkan en það verður að vera rétt gefið og það er það ekki í dag.“ steinunn@frettabladid.is Fyrsta foreldrafélagið við framhaldsskóla stofnað: Opið öllum áhugasömum fqreldrastarf Foreldrar og for- ráðamenn nemenda við Fjöl- brautaskólann í Garðabæ hafa, í samvinnu við nemendafélagið, skólastjórnendur og kennara, stofnað foreldrafélag. Tilgangur félagsins er að stuðla að auknum gæðum Fjölbrautaskólans í Garðabæ og bæta almenn skilyrði og aðstæður einstakra nemenda til menntunar og þroska. Foreldrar og aðrir forráðamenn nemenda skólans eru sjálfkrafa félagar í foreldrafélaginu en það er jafn- framt opið öðrum velunnurum skólans sem óska eftir aðild. Á stofnfundinum sem haldinn var 13. nóvember voru sjö foreldr- ar kosnir í stjórnina og tveir full- trúar nemenda. Formaður for- eldrafélagsins er Kristín S. Kvar- an sem hefur ásamt hópi foreldra unnið stofnun félagsins síðan í vor. „Þetta hefur verið víðtæk undir- búningsvinna og það var svo skemmtilegt að nemendurnir voru mjög áhugasamir um þetta og ver- ið þátttakendur í undirbúningn- um,“ segir Kristín. „Sömuleiðis hafa stjórnendur og kennarar ver- ið mjög áhugasamir." Kristín seg- ir skyldur foreldra nemenda í framhaldsskólum hafa aukist AUKNAR SKYLDUR FORELDRA Foreldrafélag Fjölbrautaskólans í Garðabæ er samráðs- og samstarfsvettvangur for- eldra og nemenda skólans. mjög með hækkuðum sjálfræðis- aldri og stofnun foreldrafélags sé í takti við það. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.