Fréttablaðið - 26.11.2001, Blaðsíða 4
4
FRETTABLAÐIÐ
26. nóvember 2001 MÁNUDACUR
SVONA ERUM VIÐ
13.500 TONNUM MINNA EN f FYRRA
Fiskaflinn i október var 92.314 tonn en
það er 13.533 tonnum minna en í október
á sfðasta árið þegar heildaraflinn nam
105.847 tonnum. Helsta ástæðan er að
síldarveiðin 21.000 tonni minni en í októ-
ber í fyrra
Mesta veiði eftir tegundum
Sakamál í Malasíu:
Nærbuxna-
gengi eftirlýst
af lögreglu
KUALA LUMPUR.MALASÍU.AP Yfirvöld
í Malasíu hafa efnt til umfangs-
mikillar leitar að meðlimum þjófa-
gengis sem ku framkvæma inn-
brot sín og rán klæddir nærbuxum
sínum einum saman. Um fjóra
menn er að ræða og ganga þeir nú
undir nafninu „nærbuxnagengið,"
hjá lögreglunni. Segir hún menn-
ina hafa staðið á bak við hrynu
rána í þremur ríkjum í Malasíu.
Hafa þeir m.a. brotist inn í fimm
íbúðarhús og rænt tvær bensín-
stöðvar og er ránsfengurinn met-
inn á tæpar 5 milljónir króna. Að
sögn Zuber Shariff, lögregluvarð-
stjóra, er ekki vitað hvers vegna
mennirnir séu haldnir þeirri árát-
tu að klæðast nærbuxum einum
fata við glæpi sína. ■
1 INNLENT~|
Krabbameinsfélagi íslands
hefur verið afhentur ágóði af
sölu á hönskum í tengslum við
átak í október gegn brjósta-
krabbameini að upphæð 746 þús-
und krónur. Segir í tilkynningu
frá félaginu að salan hér á landi
hafi gengið hlutfallslega betur en
í nálægum löndum. Öllum ágóða
af sölunni verði varið til brýnna
verkefna sem valin verði í sam-
ráði við Krabbameinsfélagið og
Samhjálp kvenna.
—♦—
Miklu magni af víni og tóbaki
var stolið þegar brotist var
inn í veitingahúsið Glaumbæ á
Ólafsfirði. Hafði þjófurinn kom-
ist inn með því að brjóta tvær
rúður í húsinu. Að sögn lögreglu
er málið í rannsókn.
Þrjátíu og fjórir hafa verið
teknir vegna ölvun við akstur
á Seyðisfirði það sem af er árinu.
Að sögn lögreglunnar á Seyðis-
firði þykir þetta ansi hátt hlutfall
miðað við íbúatölu.
Skipulagsbreytingar í Heilsugæslunni:
Ný miðstöð
heimahjúkrunar
heilbricðismál Stjórn heimahjúkr-
unar í höfuðborginni færist öll á
eina hendi 1. febrúar nk. og verða
höfuðstöðvarnar á Grensásvegi 8 í
Reykjavík. Heilsugæslustöðvarnar
hafa fram til þessa séð um starf-
semina á sínu svæði. í dag er opið
hús á Grensásveginum fyrir starfs-
fólk í heimahjúkrun til að þeim gef-
ist kostur á að kynna sér aðstæður.
Guðmundur Einarsson, forstjóri
Heilsugæslunnar í Reykjavík, seg-
ir heimahjúkrun hafa verið vax-
andi þjónustu í borginni. „Það hef-
ur verið erfitt að halda utan um
hana með þessu dreifða skipulagi
og jafnframt hafa samskiptin við
samstarfsstofnanir, eins og sjúkra-
húsin, verið þyngri fyrir vikið. Við
höldum að við náum betur utan um
þetta með þessum hætti og þjón-
ustan verði betri,“ sagði hann og
bætti við að miðstöðina ætti engu
að síður að vera í nánu sambandi
við heilsugæslustöðvarnar í hverju
hverfi.
HEILSUVERNDARSTOÐ REYKJAVIKUR
Heilsugæslan starfrækir 7 heilsugæslustöðvar i Reykjavík, Heilsuverndarstöðina og sér um
rekstur heilsugæslustöðvanna á Seltjarnarnesi, í Mosfellsumdæmi og Kópavogi. Þá er Heilsu-
gæslan Lágmúla 4 starfrækt samkvæmt sérstökum samningi við Heilsugæsluna í Reykjavik.
Kristbjörg Þórðardóttir verður
yfir heimahjúkrunarmiðstöðinni
nýju og hefur unnið að undirbún-
ingi hennar. Hún segir að öllum
starfsmönnum hafi verið kynntar
breytingarnar með viðtölum við
hvern og einn, en þeim lauk á föstu-
daginn fyrir helgi. „Allar breyting-
ar eru samt erfiðar og ekki skrítið
að hlutirnir geti staðið í einhverj-
um starfsmönnum sem starfað
hafa lengi á einhverri heilsugæslu-
stöðinni, alla vega svona fyrst í
stað,“ sagði hún og bætti við að
vinnan sjálf og skipulag þar að lút-
andi yrði óbreytt. ■
Lóðum úthlutað í Úlf-
arsfelli fyrir kosningar
Rammaskipulag Halla, Hamrahlíðarlanda og suðurhlíða Ulfarsfells var kynnt fyrir skömmu
sem byggingarland 20.000 manna byggðar. Stefnt er að fyrstu lóðaúthlutunum á næsta ári en
lóðirnar verða ekki byggingarhæfar fyrr en síðar.
Suðurhlíðarn-
ar í Úlfarsfelli
eru gríðarlega
skjólsælt og
gott land,
nánast eins
og Fossvogs-
dalurinn, segir
Steinunn V.
Óskarsdóttir.
BORCARSKIPULAC Stefnt er að því að
úthluta fyrstu lóðunum í nýju
borgarhverfi undir hlíðum Ulf-
—4.— arsfells á næsta
ári. Nýja hverfið
verður ígildi ann-
ars Breiðholts,
með um 20.000
manna byggð og á
um helmingur þess
að byggjast upp á
næstu tuttugu
árum samkvæmt
nýju borgarskipu-
lagi. Undanfarna
daga hefur verið í
Kringlunni í Reykjavík sýning á
hugmyndum að rammaskipulagi
svæðisins og verður hún uppi
næstu daga.
„Við erum að reyna að setja
okkur tímaplan í þá veru að
deiliskipulag fyrsta hverfisins
verði tilbúið þannig að hægt verði
að úthluta á næsta
ári. Þá erum við
að tala um bygg-
ingarhæfar lóðir
kannski, tveimur
til þremur árum
síðar.“ sagði
Steinunn V. Ósk-
arsdóttir, borgar-
fulltrúi, en hún er
ÁRNI þór s«c- forntaður rýni-
urðsson hops sem farið
Formaður skipu- hefur yfir hug-
lags- og bygging- myndir arkitekta
arnefndar Reykja- að nýja hverfinu.
víkur segir stefnt steinunn er bjart-
að því að úthluta sýn á framtíð nýja
byggingarlandi svæðisins. i>Suð.
urhlíðarnar í Úlf-
arsfelli eru gríð-
arlega skjólsælt
og gott land, nánast eins og Foss-
vogsdalurinn. Þetta lofar allt
fyrir 600 til 700
nýjar íbúðir á
næsta ári.
HUGMYND AÐ NÝRRI BYGGÐ
Svona gæti loftmynd nýja hverfisins litið út, en þetta er ein hugmyndanna sem eru til sýnis í Kringlunni þessa dagana.
mjög góðu,“ sagði hún.
Arni Þór Sigurðsson, formaður
skipulags- og byggingarnefndar
Reykjavíkur segir að jafnvel
verði úthlutað byggingarlandi
fyrir 6-700 íbúðir á næsta ári. Þá
horfir hann til fleiri hverfa en í
hlíðum Úlfarsfells og nefnir Graf-
arholt þar sem verði um 400 íbúð-
ir til úthlutunar á næsta ári. „Síð-
an eru náttúrulega fleiri hverfi,
t.a.m. á Gufuneslandi Landsímans
er 300 til 400 íbúða svæði. Þannig
að það getur heilmikið verið að
koma inn á næsta ári og þarf svo-
lítið að velta fyrir sér hversu
miklu verður dembt út í einu.
Þetta gæti komið í einhverjum
áföngum á árinu 2002.“
Þórarinn Þórarinsson, arkitekt
hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur
segir að áfram verði unnið að
hönnun og skipuþagningu nýja
hverfisins undir Úlfarsfelli, en
vinnunni hagað á þann veg að
hægt verði að úthluta lóðum sem
fyrst. „Þegar byrjað er á að gera
rammaskipulag er komin heildar-
mynd sem má svo taka út úr hluta
og skipuleggja og vitum að þeir
koma til með að passa inn í heild-
ina.“
oli@frettabladid.is
Lægsta verð frá 27*995 kr.
Sunnanmenn ábyrgir fyrir vanþekkingu verkfallsvarðar á Dalvík:
Olögleg bamatónlist
ekki hindruð framar
VERKFALL Steinunn Birna Ragnars-
dóttir í verkfallsnefnd tónlistar-
kennara segir verkfallsvörðinn
sem hindrað tónlistarflutning í
grunnskólanum á Dalvík á dögun-
um hafa gert það í góðri trú. Hann
hafi hins vegar ekki vitað að til-
högun hefði verið breytt þannig
að nemendur úr tónlistarskólan-
um áttu ekki að koma fram.
„Við tökum að hluta til á okkur
sökina fyrir að hafa ekki haft tök
á að uppfræða alla lansdbyggðina
um hvernig þeir eiga að haga sér í
sambandi við verkfallsvörslu,"
segir Steinunn.
Steinnun segir verkfallsvörð-
inn ekki hafa unnið starf sitt í
samráði við verkfallsstjórnina
fyrir sunnan eins og honum hafi
borið að gera. „Það er betra að
láta brotið eiga sér stað og skrá
það og fjalla um það á eftir heldur
en að til aðgerða komi fyrir fram-
an börn og nemendur. Við erum
búin að koma því á framfæri alls-
staðar á landinu núna að slíkt má j
ekki eiga sér stað vegna þess að
börn hafi ekki þann félagsþroska
að átta sig á hvað er gerast.“ ■