Fréttablaðið - 26.11.2001, Síða 6
6
FRETTABLAÐIÐ
26. nóvember 2001 MÁNUDAGUR
SPURNING DAGSINS
Ertu byrjaður að kaupa
jólagjafir?
„Nei ég er ekki byrjaður á því. Ætli ég
geri það bara ekki daginn fyrir þ.e. á
Þorláksmessu."
Cuðmundur Oddur Magnússon
VG á Akranesi:
Framboð í
eigin nafni
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR „Eins Og
staðan er í dag hefur enginn óskað
eftir samstarfi við okkur og við
stefnum því á að bjóða fram í eig-
in nafni“, segir Hermann Gunn-
arsson, formaður Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns framboðs á
Akranesi um undirbúning flokks-
ins fyrir næstu sveitarstjórnar-
kosningar.
Engar viðræður hafa átt sér
stað við Akraneslistann sem er í
meirihlutasamstarfi í bæjarstjórn
um sameiginlegt framboð og Her-
mann telur ekki líkur á að af því
verði. VG sé að mynda vinnuhópa
í stefnumótun fyrir sveitarstjórn-
arkosningar en ekki hafi verið
sett tímamörk fyrir hvenær
stefnuskrá og framboðslistar
liggi fyrir. ■
—♦—
Samtök fatlaðra erlendis:
Segja Flugleiðir
brjóta á mann-
réttindum
flugferðir Ákvörðun Flugleiða
sem mælir fyrir um að einstak-
lingar í hjólastól hafi með sér
fylgdarmann hefur víða vakið at-
hygli. Hefur t.a.m. Frank
Mulchay, ritari Alþjóðasamband
fatlaðra, sent frá sér yfirlýsingu
þar sem hann harmar ákvörðun
Flugleiða og segir hana brot á
mannréttindum. Poul Erik H. Pet-
ersen, framkvæmdastjóri Ör-
yrkjabandalags Danmerkur, tek-
ur í sama streng og segir Flugleið-
ir eina flugfélagið sem gerir upp á
milli fatlaða og ófatlaðra einstak-
linga. Fara framkvæmdastjórar
beggja félaganna fram á að Flug-
leiðir dragi þessa ákvörðun til
baka. ■
Saklaus í gæsluvarðhald:
Ríkissaksóknari skoðar málið
dómsmál „Það á náttúrulega að
leggja fram öll gögn sem að málið
skiptir þegar svona mál eru tekin
fyrir,“ sagði Bogi Nilsson, ríkis-
saksóknari, um dóm Hæstaréttar
að mikilsverð gögn sem ekki
höfðu verið lögð fram í héraðs-
dómi þegar skipverji á Goðafossi
var úrskurðarður í gæsluvarð-
hald, ásamt öðrum skipverjum, í
tengslum við rannsókn á smygli,
hefðu varpað þannig ljósi á málið
að alls óvíst væri að maðurinn
hefði verið úrskurðarður í varð-
hald hefðu þau komið fram.
Dæmdi Hæstiréttur ríkissjóð til
að greiða skipverjanum skaða-
bætur vegna gæsluvarðhaldsins.
Bogi var spurður að því hvort
hann teldi þá opinberu starfs-
menn sem komið hefðu að málinu
hafa brotið lög með því að leggja
ekki fram gögnin. Sagðist hann
ekki geta svarað því að svo stöd-
HÆSTIRÉTTUR
Ríkissjóður dæmdur til að greiða skipverja
á Goðafossi skaðabætur.
du. „Við munum að sjálfsögðu
skoða þennan dóm og spyrjast
fyrir hvaða gögn þetta voru.“ ■
Bresk skoðanakönnun:
Jólateiti valda
sálarangist
veisluhöld Jólateiti á vinnustöð-
um valda starfsmönnum oft á tíð-
um miklum kvíða og það ekki að
ósekju. í slíkum teitum hafa 6%
viðstaddra séð samstarfsfélaga
sinn rekinn og 8% hafa ákveðið að
segja upp störfum eftir að hafa
lent þar í slæmum málum. Þetta
kemur fram í nýlegri breskri
könnun sem birtist á fréttavef
Sky. Einn af hverjum tíu starfs-
mönnum hefur hafið ástarsam-
band í kjölfar slíkra veislna. Álíka
margir viðurkennndu að hafa
daðrað við yfirmann sinn og fjórð-
ungur sagðist hafa hitt þar fram-
tíðar lífsförunaut sinn. ■
Borgin í botnlanga í
Bröndukvíslarmáli
Óljóst að borgarstjórn hafi haft heimild til að afturkalla fyrri ákvörðun sína um niðurrif skýlis við
Bröndukvísl. Vandséð er hvernig hægt verður að veita nauðsynleg leyfi fyrir skýlinu sem stang-
ast á við deiliskipulag.
stjórnsýsla Óljóst er hvort borg-
arstjórn hafi haft heimild til þess
að afstýra niðurrifi umdeilda
___4— skýlisins við húsið
í Bröndukvísl 22.
Borgarstjórn
staðfesti í maí
1999 þá ákvörðun
byggingarnefndar
að skýlið skyldi
rifið. Nefndin
sagði skýlið brjóta
í bága við skipu-
lagsskilmála en
auk þess var það
byggt án leyfis.
Málið barst síð-
Borgarlög-
maður segir
að stjórnvald
megi aftur-
kalla stjórn-
valdsákvörðun
að eigin frum-
kvæði þegar
það sé ekki til
tjóns fyrir að-
ila.
—4----
ar fyrir borgarráð þar sem sam-
þykkt var að hlífa skýlinu. Sú
ákvörðun var kærð til úrskurðar-
nefndar skipulags- og byggingar-
mála sem sagði skýlið stangast á
við deiliskipulag og að borgarráð
hefði auk þess ekki haft heimild
til að hnekkja samþykkt borgar-
stjórnar.
Málið kom að nýju fyrir borg-
arráð í haust sem vísaði því til
borgarstjórnar og þar var það
samþykkt 1. nóvember sl. að skýl-
inu skyldi hlíft. Þar með breytti
borgarstjórn fyrri stjórnvaldsá-
kvörðun sinni en samkvæmt lög-
um eru ströng skilyrði fyrir slíku
og virðist ekkert þeirra eiga við í
þessu máli. Þá er vandséð hvernig
gefið verður út leyfi fyrir skýlinu
umdeilda þar sem lög banna að
deiliskipulagi sé breytt eftir á til
samræmis við óleyfisfram-
BRÖNDUKVÍSL 11
Skýlið sem borgarstjórn vill láta standa óhreyft þó það brjóti í bága við deiliskipulag borgarinnar.
kvæmdir.
Fréttablaðið leitaði svara við
því hjá embætti borgarlögmanns
hvaða heimildir borgarstjórn get-
ur hafa haft til að breyta ákvörð-
un sinni og hvernig mögulegt
verður að haga málum þannig að
skýlið falli að ákvæðum laga.
Anton Björn Markússon, full-
trúi hjá borgarlögmanni, vísaði í
umsögn embættisins sem lögð var
fyrir úrskurðanefnd skipulags- og
byggingarmála í sumar.
Anton Björn sagði að úrskurð-
arnefndin hefði í úrskurði sínum
fjallað um „form ákvarðanatöku
nefnda borgarinnar en ekki efnis-
sjónarmið þeirra sem gáfu um-
sagnir um kæruefnið." í niður-
stöðu úrskurðarnefndarinnar seg-
ir hins vegar að ákvarðanir bygg-
ingarnefndar um að rífa skýlið
hafi verið í fullu samræmi skipu-
lags- og byggingarlög „og ber
borgaryfirvöldum að hlutast til
um að ákvörðuninni verði fram-
fylgt þar sem um er að tefla óleyf-
isframkvæmd, sem fer í bága við
gildandi deiliskipulag á svæðinu,“
sagði í niðurstöðunni.
í áðurnefndri umsögn borgar-
lögmanns segir að 25. grein
stjórnsýslulaga heimili afturköll-
un stjórnvaldsákvörðunar í þessu
tilfelli. í greininni segir að stjórn-
vald megi afturkalla stjórnvaldsá-
kvörðun þegar það sé ekki til
tjóns fyrir aðila. Fyrir liggur að
þeir íbúarnar við Bröndukvísl
sem kærðu skýlið og eru aðilar
málsins telja hina nýju ákvörðun
vera sér til tjóns enda ætla þeir að
leita til Skipulagsstofnunar vegna
hennar.
gar@frettabladid.is
W
FYRIRTÆKJASALA
ICI A kir\C SÍÐUMÚLA 15
IOLAINLfO SÍMI: 588 5160
rYHIRTÆKI TIL SOLU
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
Gissur V. Krístjánsson hdl. og
lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali
SÖLUSTJÓRI
GUNNAR JÓN YNGVASON
HEILDSALA MEÐ BYSSUR OG FL mjög
þekkt umboð, miklir framtíðarmöguleikar
LYFTARASALA 0G ÞJÓNUSTA eitt þekk-
tasta fyrirtækið í sinni grein.
HÁRGREIÐSLUSTQFA gott að gera, góð-
ar innréttingar, selst vegna veikinda.
VIDEQSJOPPA MEÐ SÉRSTÖÐU mjög
góð afkoma , auðveldur rekstur.
HEILSUSTUDIÓ í góðum rekstri, mjög vel
þekkt og vel búið tækjum.
WINK HÁR OG SÓL í Kópavogi gott fyrir-
tæki í góðum rekstri, góðu búnaður.
KVENFATAVERSLUN með eigin innflutn-
ing á vönduðum merkjum, gott verð
FRAMLEIÐSLA Á SALLÖTUM OFL rót-
gróinn rekstur, 70 milj ársvelta, þekkt merki,
traustir viðskiptavinir. Góð framlegð.
BAKARÍ FLOTT AÐSTAÐA velta 50 millj,
mikil sala á staðnum, fín afkoma.
SÖLUTURN MEÐ GÓÐA AFKOMU selst á
góðu verði ca 4,5 ef samið er strax.
EFNALAUG með topp búnað og góða
stöðuga veltu, traust fjölskyldufyrirtæki.
SOLUTURN.VIDEO OG GRILL 80millj árs-
velta, bílalúga, framhaldsskóli beint á móti
FRAMLEIÐSLA Á VESTURLANDI hag-
kvæm verksmiðja, góð framlegð, góð sala.
MIKILL FJÖLDI ANNARRA FYRIR-
TÆKJA Á SKRÁ - MIKIL SALA
VANTAR STÓRA HEILDSÖLU
FYRIR FJÁRSTERKAN AÐILA
í DAGVÖRU
Atvinnuhúsnæði
sýnishorn
SKÚTUVOGUR til leigu eða sölu 440 fm
ESJUMELAR sala 132 fm verð 6,2millj
SMIÐSHÖFÐI276 fm á 1h innkeyrslubil
AKRALIND 300 fm 120/180 2 innkeyrluh
STÓRHÖFÐI 80 fm innkeyrslubil
DALVEGUR 280 fm blandað húsnæði
HYRJARHÖFÐ11100 fm iðnaðarhúsnæði
KAPLAHRAUN 351 fm íðnaðarhús
SKÚTUVOGUR 200 fm innkb. 6 m lofth.
Framsóknarflokkurinn í Hafnarfirði:
Aðferðafræðin rædd
á aðalfundi
framboðsmál Hildur Helga Gísla-
dóttir formaður fulltrúaráðs
framsóknarfélagana í Hafnarfirði
segir að það muni væntanlega
ráðast á aðalfundi ráðsins 3 .des-
ember n.k. hvaða aðferð verður
notuð við uppröðun á frambjóð-
endum flokksins vegna sveitar-
stjórnakosningana í vor. í þeim
efnum kemur m.a. til greina að
hafa uppstillingarnefnd sem ræð-
ir við þá sem voru síðast í fram-
boði og hugsanlega nýja fram-
bjóðendur, skoðanakönnun og
jafnvel prófkjör svo nokkuð sé
nefnt af þeim möguleikum sem
geta komið til álita.
Þótt engar ákvarðanir liggi
fyrir um hverjir munu gefa kost á
sér er talið líklegt að Þorsteinn
Njálsson bæjarfulltrúi flokksins
muni gefa kost á sér til endur-
kjörs, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. Guðrún Hjörleifs-
dóttir sem skipaði annað sæti list-
ans í síðustu kosningum sagðist
ekki vera búin að taka ákvörðun
hvað hún ætlaði að gera í þeim
efnum. í síðustu kosningum fékk
flokkurinn einn fulltrúa kjörinn
og myndaði meirihluta í bæjar-
stjórn með sjálfstæðismönnum.
Hildur Helga segir að þetta sam-
starf hafi gengið vel og m.a. hefði
verið tekið á fjármálum bæjarins
í samræmi við áherslur flokksins
í síðustu kosningum. ■