Fréttablaðið - 26.11.2001, Síða 12

Fréttablaðið - 26.11.2001, Síða 12
12 FRÉTTABLAÐIÐ 26. nóvember 2001 MÁNUDAGUR Lægsta verð frá 5.395 kr. í\ Halldóra Jónsdóttir hefur hafið störf hjá okkur tVEH SALON HÚSI VERSIUNARINNAR SlMI 568 7305 saionveheislðndia.is MÁLÞING Alþjóðamálastofnun Háskóla íslands efnir til mál- þings þriðjudaginn 27. nóvember n.k. um efnið: Baráttan gegn hryðjuverkamönnum og stríðið í Afganistan. Málþingið verður haldið í Hátíðarsal Háskólans og hefst kl. 16.30. Það er öllum opið. Frummælandi á málþinginu verður sendiherra Bandaríkjanna á íslandi, frú Barbara J. Griffiths. Að loknu erindi hennar fara fram pallborðsumræður með þátttöku ráðstefnugesta. Þátttakendur í pallborðsumræðum verða: Ambassador Bandaríkjanna, Barbara J. Griffiths. Ambassador Bretlands, John Culver Ambassador Frakklands, Louis Bardollet Ambassador Þýskalands, dr. Hendrik Dane Ambassador Finnlands, Timo Koponen, talsmaður Evr- ópubandalagsins. Stjórnandi pallborðsumræðna verður dr. Gunnar G. Schram, formaður stjórnar Alþjóðamálastofnunar. LÖGREGLUFRÉTTIR Lögreglan á Húsavík hafði afskipti af ökumanni sem grunaður var um ölvun við akstur í fyrrinótt. Kom í ljós að hann hafði ekki aldur til að keyra bílinn og einnig að bif- reiðinni hafði verið stolið. Haft var samband við foreldra drengsins sem brugðu skjótt við og komu og sóttu hann á lögreglustöðina. —#— Brotist var inn í videóleigu í Grafarvogi í Reykjavík um níuleytið í gærmorgun. Hafði þjófurinn með sér ýmsan varn- ing en ekki er vitað um andvirði þess. Lífeyrissjóður Hlífar: Ekkert bendir til fjár- hagslegs tjóns iviisferli Stjórn Lífeyrissjóðs Hlífar segir ekkert benda til að sjóðurinn hafi orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna máls sjóðsstjóra Kaupþings en vegna þess var framkvæmda- stjóra Hlífar, föður starfsmanns Kaupþings vikið frá störfum. Stjórnin hefur ráðið endurskoð- endur frá Price Waterhou- seCoopers til að fara yfir starfsemi lífeyrissjóðsins tvö ár aftur í tím- ann sem muni að lokinni rannsókn skila ítarlegri skýrslu til stjórnar- innar. Verði þá opinberlega gert grein fyrir niðurstöðum. ■ Kátir kra vetur Mikill snjór var kominn í Reykjavík í gærmorgun ungum höfuðborgarbúum til ómældrar ánægju. Börnin voru ekki lengi að draga fram snjósleðana og mátti sjá víða um borgina káta krakka vera að renna sér á alls- konar tólum og tækjum. Búast má við áframhaldandi snjókomu í dag samkvæmt upp- lýsingum frá Veðurstofu og því engin hætta á að þetta verði skammvin sæla hjá krökkunum. Ástæða er þó til að biðja þau um að sýna aðgát og ekki vera að renna sér nálægt umferðargöt- um. ■ Þeir sitja uppi með skað- ann sem ekki eiga veð Framkvæmdastjóri Kjötumboðsins segir mikinn kostnað fylgja uppgjöri fyrirtækisins, en býst við að nauðasamningar takist. Mikil óvissa ríkir um verðmæti hlutabréfa sem nota á til að greiða skuldir. viðskipti Mikill kostnaður fellur til þegar fyrirtæki á borð við Kjöt- umboðið hf. (áður Goði hf.) er gert upp, að sögn Kristins Þórs Geirs- sonar, framkvæmdastjóra fyrir- tækisins. Hann segir eignir fyrir- tækisins hafa rýrnað verulega og ......4... skuldir aukist frá Kristinn segir Því s,taðan, var kynnt krofuhofum í ágúst. „Bæði er mikill kostnaður við að loka og svo verðum við að gera mikla fyrir- vara við viðskipta- kröfur fyrirtækis- ins eins og staðan er í dag,“ sagði —♦— hann og bætti við að dráttarvextir og annar kostn- aður bætist svo við. „Það er ótrú- legt fyrirbæri að ganga í gegnum svona uppgjör, það sem gerist er að skuldir halda áfram að vaxa meðan mjög erfitt er að innleysa verðmætið sem skráð er í eignun- um.“ að tekist hafi að lágmarka kostnað við uppgjör Kjöt- umboðsins, t.d. þann sem til fellur vegna starfsmanna- mála. Kröfuhafar fá að hluta greitt í bréfum í Norðlenska matborðinu og segir Kristinn mikla óvissu ríkja um verðmæti þeirra. „Þetta er vonarpeningur fyrir menn, við fengum þetta fyrir rekstrarein- ingar sem voru að skaða okkur mikið. Þetta telur óþægilega hátt,“ sagði hann og taldi það ligg- ja í eðli uppgjöra af þessu tagi að þeir sem ekki ættu veð sætu uppi með skaðann. Skipaður eftirlitsmaður með nauðasamningaferlinu er Helgi Jóhannesson hrl. „Hann kallar inn kröfur og hefur svo hálfan mánuð til að fara í gegnum, sannreyna og KJÖTUMBOÐIÐ HF. Kostnaður við að loka og breyta starfsemi Kjötumboðsins nam, að sögn framkvæmda- stjórans, um 150 milljónum króna. Þá hafa skuldir fyrirtækisins aukist vegna dráttarvaxta og annars slíks. KRISTINN ÞÓR GEIRSSON Kristinn segir mikla óvissu ríkja um verðmæti hluta- bréfanna í Norð- lenska matborðinu en kröfuhafar í Kjötumboðinu fá 25 prósent krafna sinna greiddar í þeim. samþykkja þær. Að kröfulýsing- arferlinu loknu verður svo hald- inn fundur fyrir lánadrottna," sagði Kristinn og taldi gjaldþrota- skipti blasa við tækjust ekki samningar. „Ég geri ráð fyrir að menn séu raun- sæir og rökréttir þegar kemur að svona hagsmun- um. Við leggjum það til að greiða út allt það sem til útgreiðslu er í fé- laginu og ætlum í sjálfu sér engu að halda eftir. í frumvarpinu er ákveðið uppbótarákvæði, en við setjum í pott allar eignir sem við þorum ekki að lofa í útgreiðslu, sem eru vafasamar kröfur upp á 120 milljónir auk nokkurra ann- arra liða. Þar gæti þess vegna orð- ið til uppbót sem næmi um 10 pró- sentum af kröfum. Þannig að lána- drottnar eru að fá allt út úr þessu sem er til skiptanna. Fari þetta aftur á móti í þrot eiga menn á hættu að kröfurnar hækki veru- lega. Ef sláturhúsin fara á uppboð eru engar líkur á að fáist fyrir veðkröfunum sem myndu þá fær- ast yfir í almennar kröfur og minna yrði til skiptanna. Mér finnst því lítil skynsemi í öðru en að ganga að samningunum hvort sem menn eru svo aftur sáttir við stöðuna eða ekki,“ sagði Kristinn. oli@frettabladid.is Þingmenn! Sjálfsvirðing þings og þjóðar veltur á ykkur Hundruð manna með fötlun og fjölskyldur þeirra, sem búa við afar erfið LífsskiLyrði, eru á biðListum eftir Lögbundinni þjónustu. Nái fyrirLiggjandi fjáriagafrumvarp fram aö ganga Lengjast þeir bióListar og aLLar áætLanir stjórnvaLda um Lausn máLa þar með að engu gerðar. Standið vörö um gerðar áætLanir svo LífsgrundvöLLur fóLksins verði öryggi í stað óvissu. Við styðjum mannréttindabaráttu fatlaðra. B5RB

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.