Fréttablaðið - 26.11.2001, Page 22

Fréttablaðið - 26.11.2001, Page 22
HRAÐSOÐIÐ JÓNAS Þ. ÞÓRISSON framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar Mannréttinda- vakt í ísrael og Gasa HVERS VEGNA er Hjálpar- stofnun kirkjunnar að blanda sér í mannrétt- indavakt i Palestínu? „Það er vegna þess að við blöndum okkur alls staðar í þar sem við teljum að mannréttindi séu brotin og órétt- læti ríkir. Við lítum fyrst og fremst á þetta sem þátt í almennri samstöðu með þeim sem líða og skiptir þá ekki máli hvort það séu ísraelsmenn eða Palestínumenn. Þetta getur líka von- andi verið eitthvað fælandi að hafa fulltrúa þarna, en þetta eru nýmæli hjá okkur að taka beinan þátt í þessu. Þá hef ég ekki heyrt neina gagnrýni vegna þessa þótt eflaust séu skiptar skoðanir um þetta verkefni okkar.“ HVAR vetður þessi vakt staðsett? „Það er fyrirhugað að senda þangað tvo tíu manna flokka þar sem einn ís- iendingur verður í hvorum hópi. Það er þó ekki alveg frágengið. Þessir hóp- ar verða annars vegar í Jerúsalem og hins vegar á Gasasvæðinu eða einum af þessum sjálfsstjórnarsvæðum. Við verðum þarna í samstarfi við aðrar norrænar þjóðir þar sem Hjálpar- stofnun dönsku kirkjunnar er leiðandi í þessu og einnig Lútherska heims- sambandið." HVENÆR fer fyrsti hópurinn? „Það ér stefnt að því að fyrsti hópur- inn fari út í mars á næsta ári og áætl- að að hinn hópurinn fari sex mánuðum seinna." HVERSKONAR fó.k-, eru >ið að leita eftir? „Við erum helst að leita að fólki sem hefur einhverja reynslu af hjúkrunar- eða læknisstörfum og slysavakt. Þá erum við líka að leita að fólki sem hef- ur reynslu af upplýsinga- og félags- störfum, þ.e. af skipulagningu og þess háttar málum." HVERT verður verksvið þeirra? „Það verður aðallega fólgið í því að hjálpa til og aðstoða á heilsugæslu- stöðum og vera með í sjúkrabílum þegar þeir fara að ná í slasað eða sjúkt fólk. Það verður einnig að vinna í félagsmiðstöðvum þar sem það mun m.a. stappa stálinu í fólk, skipuleggja og takast á við hin daglegu vandamái." HVAÐ kostar þetta? „Þetta verður fyrst og fremst sjálf- boðastarf og þess vegna er ætlast til þess að menn geti farið þarna út fyrir lítinn pening. Við leggjum um eina milljón króna í þetta en heildarverk- efnið er upp á 3 - 4 milljónir danskar krónur. Þá er ekki reiknað með því að starfsmenn fái laun heldur vasapen- inga.“ Jónas Þ. Þórisson er framkvæmdastjóri istjori Hjálparstarfs kirkjunnar og hefur starfað á þeim vettvangi um árabil. Lægsta veró frá 19.990 kr. 22 FRETTABLAÐIÐ 26. nóvember 2001 MÁNUDACUR Hreinskrifuð útgáfa af Ódysseiíi brot á höfundarréttarlögum: Löguðu stafsetningu og kommusetningu bókmenntir Hæstiréttur Lund- úna hefur úrskuröað í máli er varðar „hreinskrifaða" útgáfu af Ódysseifi eftir írska skáldið James Joyce. Telur rétturinn söguna brot á höfundarréttarlög- um. Macmillan útgáfufyrirtækið lét prenta lesendavæna útgáfu bókarinnar þar sem farið var frjálslega með texta meistarans. Lagfæringar voru gerðar á staf- setningu og greinamerkjasetn- ingu samkvæmt lögum þar um auk þess sem útgáfan inniheldur kafla sem ekki hafa birst áður opinberlega. Samkvæmt tilkynn- ingu frá talsmanni dánarbús höf- undar er litið svo á að textann eigi að varðveita samkvæmt höf- undarréttarlögum og að útgáfa hans sé brot á þeim lögum. Var útgefanda gert að afhenda 1000 eintök af bókinni sem ekki höfðu farið í dreifingu. Ódysseifur vakti á sínum tíma mikla hneykslan og fékkst ekki útgefin í Bretlandi fyrr en árið 1937. Bókin lýsir degi í lífi þriggja ein- staklinga og er notast við svo- kallað hugsanaflæði við skrifin sem gerir hana torskilda. ■ JAMES JOYCE Ódysseifur vakti hneykslan á sínum tíma. FRÉTTIR AF FÓLKI Kristinn Þór Geirsson, sem læt- ur af starfi framkvæmdastjóra Kjötumboðsins hf. um áramót, hef- ur hafið störf á nýjum stað sem framkvæmdastjóri Skjás eins. Hann hefur í mánuðinum verið að setja sig inn í aðstæður á nýja staðnum. Kristinn var ráðinn til Goða hf. til að stýra fyrirtækinu út úr miklum fjárhagskröggum og gripið var til aðhaldsaðgerða sem hafa verið til umtals og vakið mikla athygli um margra mánaða skeið. Skammt er síðan Skjár einn stóð fyrir umfangsmikilli fjársöfn- un meðal almennings til styrktar sjónvarpsstöðinni. Spurning er hvort ráðning Kristins til félagsins sé til marks um að taka eigi ærlega til í rekstrinum. Kjötumboðið hef- ur leitað eftir nauðasamningum við lánadrottna sína. Björn Bjarnason menntamála- ráðherra hefur skipað Magnús Skúlason í embætti forstöðumanns húsafriðunarnefndar til fimm ára frá 1. desember 2001 að því er greinir frá í fréttatilkynningu. ADeiglunni.com eru þeir ekki hrifnir af fíkniefnastefnu Sam- fylkingarinnar, „eftir því sem þeir sjálfir segja eru Samfylkingar- menn þeir einu sem hafa stefnu í fíkniefnamálum sem vit er í... Lúð- vík Bergvinsson talaði þar [í Kast- ljósinuj fyrir þeir- ri hugmynd að smærri fíkniefna- brot ættu ekki að koma fram á saka- skrá. í stjórnmála- ályktun Samfylk- ingarinnar segir nefnilega: „Lands- fundurinn beinir því til þingmanna flokksins að þeir flytji frumvarp sem tryggir að minniháttar fíkni- efnabrot verði ekki færð á saka- skrá eða tekin út eftir skamman tíma.““ Þetta þykir greinarhöfundi undarlegt að gera að aðalmáli Sam- fylkingarinnar. Alaugardag var „Kaupum ekk- ert“ dagurinn sem samtök fólks sem misbýður ofneysla í samfélaginu víða um heim. Ekki var Vef-Þjóðviljinn sáttur við allt sem sá hópur gerði athugasemd við. Hann „hefur því góðan skiln- ing á þessu átaki gegn gerviþörf- Samfyikingarmenn munu margir hverjir vera nokkuð svekktir yfir því að Hervar Gunnarsson, verkalýðsforkólfur og fyrrum bæjar- stjórnarmaður, skuli ekki hafa náð kjöri í fram- kvæmdastjórn Samfylkingar, hvorki sem aðal- né varamaður. Einhverjir vilja meina að Inga Sig- urðardóttir, sem var í uppstilling- arnefnd á þinginu, hafi ekki staðið sig í stykkinu og jafnvel grafið undan Hervari. Hafa menn þar viljað meina að eimi eftir af harðri baráttu Hervars og Sigurðar H. Einarssonar, eiginmanns Ingu, um völdin í Verkalýðsfélagi Akraness. Sigurður hefur verið einn harðasti gagnrýnandi Hervars en ekki haft árangur sem erfiði. Segja sumir að nú hafi verið hefnt fyrir ófarirnar á þeim vettvangi. „Samkennarar mínir gerðu mig að reykingamanni‘ ‘ Reykingafólk má ekki standa undir gluggum Odda þar sem reykur- inn truflar starfsfólk byggingarinnar. Hannes Hólmsteinn Gissurar- son hefur orðið fyrir barðinu á reykingafólkinu. Hann kennir sam- starfsfólki sínu um. reykingar Við aðalinngang Odda, þar sem félagsvísindadeild Há- skóla íslands hefur aðsetur, hanga uppi miðar þar sem reyk- ingafólk er beðið að standa ekki undir gluggum byggingarinnar þar sem lyktin og reykurinn sem fylgir athöfninni læðist inn um glugga á skrifstofum og truflar fólk við störf sín. í einni af þess- um skrifstofum hefur Hannes Hólmsteinn Gissurarson aðsetur en hann hefur um árabil verið einn helsti boðberi einstaklings- frelsis. „Hér safnast fólk saman til reykinga vegna þess að þeim er úthýst úr Odda. Reykinn lagði síðan inn á skrifstofu mína þan- nig að ég er það sem er kallað óbeinn reykingamaður í krafti ákvarðana samkennara minna,“ sagði Hannes Hólmsteinn þegar Fréttablaðið hitti hann að máli. „Þeir hafa ákveðið það í sinni miklu visku að gera mig að reyk- ingamanni.“ HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON Kennari við Háskóla (slands segir samkennara sína hafa gert sig að reykingamanni. BANNAÐ AÐ REYKJA Miðinn sem hangir uppi við aðalinngang Odda. Hannes Hólmsteinn segist aldrei hafa reykt en hann fær sér stöku sinnum í glas. „Munurinn á þessum tveimur fíkniefnum sem ríkið selur, um leið og það bannar öll önnur fíkniefni, er að annað er hættu- legt en hitt er hollt. Níkótínið er hættulegt og mjög ávanabind- andi en alkóhólið er hollt, í hófi. Enda hef ég margsinnis hneykslast á því opinberlega hver- su ríkið okrar á þessum holla drykk sem áfeng- ið er.“ Aðspurður hvort ekki væri verið að vega að frelsi reykinga- fólksins með banninu og hvort það skaraðist ekki á við hugmyndir hans sagði Hannes. „Menn eiga að hafa frelsi til að reykja en ég er ekki viss um að þeir eigi að hafa frelsi til að reykja ofan í aðra. Valda öðrum spjöllum. Þannig að frelsi er frelsi til að gera það sem þú vilt svo framarlega sem það skaði ekki aðra. Það má skaða sjálj'a þig en má ekki skaða aðra. Ég held að reykingar inni í húsum geti skaðað aðra- óbeinar reyk- ingar. Þar sem ég er alveg ofan í reykingafólkinu hefur það gerst að þau skaði mig þótt þau séu fyrir utan.“ Hannes Hólmsteinn segist þó ekki hafa orðið fyrir frá- hvarfseinkennum eftir að reyk- ingafólkið færði sig frá gluggan- um og segir óþægindin sem fylg- ja reykingum ekki hafa verið það mikil. „Þetta voru óþægindi en þau voru ekkert veruleg og ég er ekkert vanur að láta mér fyrir bi’jósti brenna svona smávægi- leg óþægindi. Þetta er nú ekki það versta sem ég hef séð á æv- inni.“ kristjan@frettabladid.isis um og þvingaðri neyslu. Hann á hins vegar bágt með að skilja andúð aðstandenda „kaupum ekk- ert“ á því að sumir hafi meiri að eta í heiminum en aðrir. Þótt við ætum minna hér á Vesturlöndum kæmi ekki meira í hlut annarra. Þvert á móti. Vesturlandabúar eta ekki meira en aðrir vegna þess að þeir eti frá öðrum heldur vegna þess að það er auðveldara að elda ofan í sig í frjálsu markaðshag- kerfi en í miðstýrðum áætlanabú- skap. Það er eitt helsta vandamál fátækra ríkja að þau eiga lítil við- skipti við önnur lönd og njóta ekki alþjóðlegrar samkeppni og verka- skiptingar sem hefur fyllt ísskápa Vesturlandabúa af kræsingum. Ýmsar fátækar þjóðir ganga ein- mitt hraðar á gæði jarðar en rík- ustu þjóðir Vesturlanda vegna þess að þær njóta ekki þessa hagræðis. Við þurfum að kaupa meira af þessum þjóðum ogþær af okkur,“ segir í pistíi. „Mamma! Úrið hans pabba - það er alveg vatnshelf!" -t M Hl

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.