Fréttablaðið - 27.11.2001, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 27. nóvember 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
9
Meint misferli:
Arni enn
í rannsókn
löcreglurannsókn „Rannsókn er
ekki lokið,“ segir Jón H. Snorra-
son, yfirmaður efnahagsbrota-
deildar Ríkislögreglustjóra, um
rannsókn á meintum auðgunar-
brotum Árna Johnsens í opinberu
starfi. Ekki er séð fyrir endann á
rannsókninni og gat Jón ekki áætl-
að hve langan tíma hún tæki.
Ríkisendurskoðun ákvað 16. júlí
í sumar að taka til skoðunar alla
fjármálaumsýslu Árna Johnsens,
sem honum voru falin af ríkinu. I
lok júlí sendi ríkissaksóknari efna-
hagsbrotadeild ríkislögreglustjóra
beiðni um að annast lögreglurann-
sókn málsins. Árni sagði af sér
þingmennsku 2. ágúst. ■
Meðal skilyrðana sem kjölfestufjárfestir
þarf að uppfylla er að hann hafi a.m.k.
milljón notendur á bak við sig og stundi
ekki sfmarekstur hér á landi.
Þrír fá að bjóða í Símann:
Skilafrestur
framlengdur
einkavæðing Framkvæmdanefnd
um einkavæðingu hefur ákveðið
að framlengja frest kjölfestufjár-
festis til að skila bindandi tilboð-
um í Landssímann. í kjölfar þess
að sjö óbindandi tilboð bárust í lok
síðasta mánaðar ákvað fram-
kvæmdanefnd um einkavæðingu,
að fengnum tillögum Pricewater-
houseCoopers, að bjóða þremur
þeirra að halda áfram og skila inn
bindandi lokatilboði. í tilkynningu
framkvæmdanefndar segir að
fyrirtækin hafi lagt mikla vinnu í
að kynna sér fyrirtækið og að
þeirra ósk sé frestur framlengdur
til 7. desember.
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
starfsmaður einkavæðingar-
nefndar, segir ágætar horfur á að
fram komi bindandi tilboð í Sím-
ann að afloknum frestinum. „En
það er samt auðvitað ekkert hægt
að segja til um það. Þetta hefur
gengið ágætlega." Hann segir
alltaf hafa legið fyrir að fyrir-
tækjunum myndi fækka í útboðs-
ferlinu. „Sautján fyrirtæki skil-
uðu inn í upphafi, og svo er ferill-
inn þannig upp byggður að hann
þrengist þangað til að einn stend-
ur eftir,“ sagði hann og bætti að-
spurður við að ekki yrði gefið upp
hvaða fyrirtæki tækju þátt í út-
boðsferlinu. „Við höfum heitið
þeim trúnaði, en það getur af ýms-
um ástæðum verið mjög við-
kvæmt fyrir fyrirtæki að taka
þátt í svona löguðu. Bæði vegna
fjárfesta og rekstrarumhverfis
þeirra og svo kunna þau að vera
skráð einhvers staðar á verð-
bréfaþing," sagði hann. ■
—♦— .
Alblóðugur á gangi:
Réðist að lækn-
um á slysadeild
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Reykja-
vík fékk tilkynningu um helgina
um að blóðugur og mjög ölvaður
maður væri á gangi í miðborginni.
Fann lögreglan umræddan mann
á Klapparstíg ásamt tveimur öðr-
um mönnum. Þegar lögregla var
að huga að þeim blóðuga höfðu
hinir tveir sig í frammi og trufl-
uðu störf lögreglunnar að því virt-
ist í þeim tilgangi að æsa upp hinn
slasaða. Til átaka kom sem lyktaði
þannig að einn mannanna fékk
skrámu fyrir ofan auga.
Sá blóðugi var fluttur á slysa-
deild en þar upphófust önnur læti
og veittist hann bæði að læknum
og öðru starfsfólki svo ekki
reyndist unnt að gera að sárum
hans. Var því ákveðið að flytja
manninn í fangageymslu. ■
Fyrrverandi eiginmanni spilafíkils vísað frá dómi:
Ovíst að spilaflkn
hafi valdið tióni
dómsmál Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur vísað frá kröfu 65 ára
gamals manns sem vildi 18,5
milljóna króna bætur vegna tjóns
sem hann taldi sig hafa orðið fyr-
ir vegna áralangrar fíknar fyrr-
verandi eiginkonu sinnar í að
spila upp á peninga í spilakössum.
Maðurinn vildi að ríkið og ís-
lenskir söfnunarkassar sf. fyrir
hönd Rauða krossins, greiddu 3,5
milljóna króna skaðabætur fyrir
fjárhagslegt tjón og 15 milljónir
fyrir ófjárhagslegt tjón, miska-
bætur og röskun á stöðu og hög-
um. Meðal tilgreinds skaða var
hrunið ævistarf, brostið hjóna-
band og skuldir í vanskilum.
Héraðsdómur sagði slíka ann-
marka á málatilbúnaði stefnanda
að óhjákvæmilegt væri að vísa
málinu frá dómi. M.a. hafi mað-
urinn ekki lagt fram gögn sem
styðji að eiginkonan hafi verið
haldin spilafíkn eða að fíknin
hafi valdið honum umræddu
tjóni. Þá væri ekkert fyrirliggj-
andi um það að kona hans hafi
lagt fé í söfnunarkassa um-
ræddra aðila. ■
SPILAKASSAR
Maður sem sagði ævistarf sitt hafa hrunið
vegna spilafíknar eiginkonu fær engar
bætur.
lögreglufréttir!
rettán ára drengur féll af
vinnupalli við Kirkjustétt síð-
degis á sunnudag. Féll drengur-
inn niður sem samsvarar hæð
tveggja hæða húss. Vinir drengs-
ins studdu hann inn í sófa og ætl-
uðu að láta sem ekkert væri en
hann kvartaði sáran vegna eym-
sla í baki og var þá hringt á
sjúkrabifreið sem flutti drenginn
á slysadeild.
......
Lögreglunni í Reykjavík var
tilkynnt um að skotið hefði
verið í framrúðu bifreiðar. Við
nánari athugun komst lögreglan
að þeirri niðurstöðu að skotið
hefði verið úr loftbyssu. Talið er
að þetta hafi gerst á Reykjanes-
braut við hesthúsin við Leirdals-
veg. Lögreglan rannsakar málið.
FRITTABLADIÐ
SECJUM FRÉJTÍR. ' •
leiðin
norour
Skagamenn, Borgfirðingar og Norðlendingar!
Fréttablaðið ykkar liggur nú frammi á völdum stöðum
á Vestur- og Norðurlandi.
Grípið eintakið ykkar um leið og þið kaupið inn
eða setjið bensín á bílinn.
Sauðárkrókur
Shell
Olís
Blönduós
Blönduskálinn
Esso
Hvammstangi
Esso
Shell
Olís
Varmahlíð
Esso
Borgarnes
Shell
Olís
Flyrnan
Laugabakki
Olís
Hrútafjörður
Brú
Staðarskáli
Borgarfjörður
Baula
Húsavik
Úrval
Strax
Shell
Olís
Akureyri
Hagkaup
Nettó
Úrval
Strax
Esso Veganesti
Esso Tryggvabraut
Esso Leiruvegi
Shell Mýrarvegi
Shell Hörgárbraut
Olís Tryggvabraut
Akranes
Shell
Olís
Skútan
Nettó