Fréttablaðið - 27.11.2001, Síða 14
*. i «•’ )li> • » l 1 iM.t Ji
CiG/ JtI/vTT3JR
FÓTBOLTI
Hvað er að klikka hjá Fabien
Barthez?
Unnustan ósátt
„Því er erfitt að svara. Þegar svona gerist
oft hjá svo góðum leikmanni hlýtur ástæð-
an að vera persónuleg. Sagt er að unnusta
hans sé ósátt i Manchester og vilji flytja um
set Það truflar einbeitinguna. En þetta er
ekki búið, hann hefur klikkað áður og bætt
fyrir það."
Guðmundur Hreiðarsson,
aðstoðarmaður landsliðsþjálfara
Toyota bikarinn:
Bayern
mætir Boca
í kvöld
fótbolti Bayern Miinchen á ekki
auöveldan leik fyrir höndum í
Tokyo í kvöld. Þar mætir liðið
hinu argentíska Boca Juniors í
Toyota bik-
arnum, líkt og
sigurvegarar
M e i s t a r a -
deildar Evr-
ópu og
Libertadores
bikar Suður-
Ameríku gera
árlega.
B a y e r n
vann bikarinn
síðast árið
1976 með
sigri á brasil-
íska liðinu
MARKASKORARI
Framherji Boca Juniors,
Cuillermo Barros
Schelotto, hoppar upp
í skalla á æfingu í
Tókýó.
Belo Horizonte. Boca vonast hins-
vegar til að endurtaka leikinn frá
fyrra ári, þegar það vann Real
Madrid 2-1. Nokkrir lykilleik-
menn Bayern eru meiddir, þ.á.m.
fyrirliðinn Stefan Effenberg og
framherjinn Alexander Zickler.
Þá kom Bayern ekki til Tókýó fyrr
en í gær á meðan Boca kom fyrir
helgi og hefur æft stíft. „Þeir eru
númer eitt í Evrópu, mjög gott lið,
þannig að það skiptir litlu máli
hvenær þeir komu að æfa,“ sagði
Carlos Bianchi, þjálfari Boca, sem
vann Palmeiras frá Brasilíu í júní.
Bayern vann Valencia frá Spáni í
maí. ■
Heimsbikarmótið á snjó-
bretti:
Tveimur
keppnum
lokið
snjóbretti Önnur keppni í heims-
bikarmótinu á snjóbrettum var
haldin í Tignes í Frakklandi í síð-
ustu viku. Þar bar hæst keppni í
brekkuröri (e. halfpipe) og var
það ungur og
upprennandi
snjóbretta-
maður, Finn-
inn Markku
Koski, sem
vann hana.
Spánverj-
inn Iker
Fernandez
var í öðru
sæti á eftir
Koski og
F i n n i n n
Risto Mattila
FINNINN A GÓÐUM
DEGI
Markku Koski vann
keppnina í brekkuröri.
í því þriðja. í samanlagðri stiga-
keppni heimsbikarsins er Fern-
andez í fyrsta sæti eftir tvær
keppnir, Koski í öðru og Svíinn
Markus Jonsson, sem var í 23.
sæti, í því þriðja.
í kvennaflokki var Nicola
Pederzolli frá Austurríki í fyrsta
sæti og Frakkarnir Dorfane Vidal
og Cicile Alzina í öðru og þriðja. ■
14
FRÉTTABLAÐIÐ
27. nóvember 2001 ÞRIÐJUDAGUR
NBA deildin:
Sigurganga Sixers stöðvuð
körfubolti Það var margt um að
vera í NBA-deildinni í körfubolta
um helgina. Fimm leikir fóru
fram á sunnudaginn. Toronto
Raptors vann Philadelphia 76ers.
Liðin höfðu ekki mæst síðan í úr-
slitakeppninni í júní. Þá töpuðu
Raptors naumt. Liðið fékk að
hefna sín með 107-88 sigri. Þar
með var sjö leikja sigurganga Six-
ers, með Aaron McKie og Allen
Iverson í stafni, stöðvuð.
Einnig mættust Los Angeles
Lakers og Denver Nuggets.
Meistararnir lentu í nokkrum
vandræðum með Denver en bak-
vörðurinn Derke Fisher, sem var
að spila sinn fyrsta leik hjá
Lakers á tímabilinu, kom sterkur
inn í síðasta leikhluta með 11 stig.
Nick van Exel skoraði 34 stig og
gaf átta stoðsendingar fyrir Den-
ver. í öðrum leikjum vann L.A.
Clippers Houston 90-83, Seattle
Indiana 99-88 og Golden State
New Jersey 101-85.
Á laugardaginn náðu Michael
Jordan og félagar hans í Was-
hington Wizards að vinna í annað
skipti á tímabilinu. Þeir unnu
Boston á heimavelli með 88 stig-
um gegn 84. Það sem einkenndi
leik Wizards var að fleiri leik-
menn tóku þátt í að skora körfur
en Jordan, fimm þeirra voru með
tveggja stafa stigatölu í leiknum.
New Jersey Nets biðu lægri hlut
fyrir Kings í Sacramento, töpuðu
95-94. í öðrum leikjum dagsins
vann New York Chicago78-71,
Charlotte Orlando 103-101,
Cleveland Miami 100-96, Detroit
Memphis 91-84, Minnesota San
Antonio 99-94, Dallas Phoenix
119-104 og Milwaukee Atlanta 95-
88. ■
KAFFÆRÐUR
Varnarjaxlar Toronto sáu um að halda
Allen Iverson niðri í 107-88 sigri liðsins á
Philadelphia 76ers.
„Þetta er bara svo gaman“
Sigfús Sigurðsson er nýbúinn að gera samning við þýsku meistarana í Magdeburg. Hann var
kominn í óreglu en reif sig upp og snéri aftur á völlinn. Hann segir handboltann skemmtilegan
og sér ekki eftir því að hafa snúið aftur.
handbolti Handknattleiksmaður-
inn Sigfús Sigurðsson hefur farið
mikinn á línunni með hinu unga
liði Vals í vetur. Hann er kominn í
landsliðið að nýju eftir langt hlé
og er búinn að gera samning við
þýska stórliðið Magdeburg, sem
Alfreð Gíslason þjálfar. Sigfús fer
ekki út fyrr en á næsta ári en
Essen var einnig á höttunum eftir
honum og skoðaði hann aðstæður
hjá báðum liðum.
„Það er frábær aðstaða hjá
báðum liðum en mér fannst and-
inn í liði Magdeburgar og and-
rúmsloftið í borginni vera miklu
afslappaðra og þægilegra. Svona
svipað og er hérna heima. Það var
eiginlega það sem skipti sköpum.
Það er líka munur að vera í borg
þar sem búa 250.000 - 300.000
manns heldur en á svæði þar sem
búa 25 milljónir."
Ólafur Stefánsson spilar með
Magdeburg en hann og Sigfús eru
gamlir samherjar úr Valsliðinu.
Sigfús segir það einnig hafa haft
sitt að segja.
„Ólafur er gamall félagi og
mjög góður vinur og ég hlakka
mikið til að fara spila með hon-
um.“
Sigfús hefur áður reynt fyrir
sér í atvinnumennsku, með Caja
frá Santander - gamla Teka liðinu
sem Kristján Arason spilaði með.
Sú tilraun gekk ekki sem skyldi og
í kjölfarið virtist sem jörðin væri
búin að gleypa línumanninn stóra.
„Áður en ég fór til Spánar var
ég búinn að vera í óreglu og rugli
og var eiginlega kominn á botninn
í því. Að fara út virtist vera síð-
asta hálmstráið að bjarga andlit-
inu en það eina sem gerðist var að
ég sökk dýpra. Á miðju tímabili
kom ég heim og fór í meðferð. Síð-
an reyndi ég að koma lagi á hlut-
ina í kringum mig og þá aðallega
SIGFÚS SIGURÐSSON
Segist ekki þekkja neitt annað en að stefna að titli og hlakkar til að spila með landsliðinu á Evrópumótinu. Hann segir það heiður að
koma aftur inn í landsliðið . „Við vinnum þessa dollu," segir línumaðurinn sterki.
að koma andlegu hliðinni í lag-
sem var alveg í molum.“
Sigfús segir að fyrsta árið eftir
meðferðina hafi verið erfiðast.
„Ég var ekki alveg tilbúinn að
höndla það sem menn voru að
segja við mig. Ég fór í fýlu út í
Geira þjálfara, hætti að æfa og lét
ekki sjá mig fyrr en í nóvember á
síðasta ári. Það þurfti margar til-
raunir til að byrja aftur en það
tókst loksins.
„Ég held það séu mjög fá lið
eða fáir þjálfarar sem hefðu haft
slíkt umburðalyndi. Ég var alltaf
að byrja og hætta, aftur og aftur.
Þetta var samt rosalega gott og
mikill skóli. Það var enginn til að
benda manni á mistökin sem mað-
ur var að gera. Maður þurfti að
komast að því sjálfur, t.d. að það
sé rugl að hætt að æfa og vitleysa
að fara í fýlu út í Geira, því betri
mann finnur maður varla.“
Sigfús segist hafa fengið áhug-
ann á handbolta aftur þegar hann
var að horfa á sjónvarpið.
„Ég var að horfa á sjónvarpið
þegar Ólympíuleikarnir í Sydney
voru og sá handbolta. Þá fékk ég
algjöra bakteríu en það tók mig
tvær til þrjár vikur að tala við
Geira aftur. Þegar það kom var
ekki aftur snúið. Ég fékk svona
tilfinningu eins og ég væri strák-
ur að leika mér í fótbolta með fé-
lögunum. Þetta er bara svo gaman
og ég sé ekki eftir því.“
kristjan@frettabladid.is
Stoke City:
Gamlir skólafélagar
spila saman á ný
fótbolti Pétur H. Marteinsson og
Ríkharður Daðason, leikmenn
Stoke City, eru báðir að jafna sig
af meiðslum og verða lík-
lega klárir í slaginn eftir
áramót. Þeir eru gamlir
skólafélagar sem léku
með Fram á sínum yngri
árum og svo gæti farið að
þeir snúi aftur á völlinn á
sama tíma. Ríkharður er
að jafna sig af hnémeiðsl-
um en Pétur Hafliði af
ristarbroti. Á heimasíðu
liðinu og A-landsliðinu. Ég elti
hann meira segja til Noregs og
nú elti ég hann til Stoke.“
í Noregi spilaði Rík-
harður með Viking
Stavangri en Pétur Hafliði
með Stabæk og mættust
þeir nokkrum sinnum í
deildinni.
„Við áttumst nokkrum
sinnum við í Noregi. Þið
verðið að spyrja hann en
ég man ekki eftir því að
þeir hafi unnið okkur oft
sem
feril
Stoke er viðtal við Pétur p^T^,í!;JSjI*RT- og ég man bara eftir einu
skipti þar sem hann skor-
aði hjá okkur.
„Við höfum lengi verið
vinir og ég talaði við hann
og Brynjar [Björn Gunn-
arsson] áður en ég ákvað að
ganga til liðs við Stoke.“ ■
Marteinsson, þar
hann rifjar upp
þeirra.
„Rikki og ég spiluðum
meó sama liðinu sem
unglingar á íslandi, síðan spiluð-
um við báðir með U-21 árs lands-
EINSSON
Fer til Stoke eftir
áramót. Þar hittir
hann fyrir samher-
ja úr landsliðinu.
Geir Sveinsson um Sigfús Sigurðsson:
Hefur alla burði
til að ná langt
hanbolti Geir Sveinsson er gam-
alreyndur línumaður sem þekk-
ir flestar hliðar handboltans.
Hann stýrir liði
Valsmanna, sem
er taplaust í
Esso-deildinni
en lék um ára-
bil sem at-
vinnumaður í
Þýskalandi og
á Spáni. Hann
telur að læri-
sveinn sinn, Sigfús Sigurðsson,
geti náð langt í greininni.
„Sigfús hefur alla burði til að
ná mjög langt. Hann hefur flest
allt það sem línumaður þarf að
hafa. Hann er stór og sterkur og
nýtir líkamsburði sína vel.
Hann er einnig fljótur miðað við
hvað hann er stór.“
Geir telur Sigfús eiga erindi í
atvinnumennskuna enda sé um
besta línumann íslands að ræða.
Hann telur einnig að Sigfús eigi
eftir að spila stórt hlutverk með
landsliðinu.
„Það veit engin hvað framtíð-
in ber í skauti sér en ef rétt er
haldið á spilunum, hann fyrst og
fremst sjálfur, þá hefur hann
alla burði til að ná langt. Það býr
mikið í honum og hann getur
bætt heilan helling við sig og á
eftir að gera það. Hann þarf
kannski fyrst og fremst að bæta
sig varnarlega." ■