Fréttablaðið - 27.11.2001, Síða 18
18
FRETTABLAÐIÐ
27. nóvember 2001 ÞRICJUDACUR
HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA?
„Ég er að klára fyrstu bókina um Harry
Potter. Konan mín var búin að lesa allar og
sagði þær frábærar. Þetta er ferlega
skemmtileg bók og heimur. Það er vonandi
að biómyndin nái að skila honum á tjaldið."
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson tónlistarmaður
| METSÖLUBÆKURNAR |
AÐALLISTINN í EYMUNDSSON.
BYCGTÁ SÖLU VIKUNA 19.-25. NÓV.
0 Ólafur Jóhann Ólafsson:
HÖLL MINNINGANNA
(Q J.K. Rowling:
HARRY POTTER OG ELDBIKARINN
d
o
©
0
©
©
o
©
Arnaldur Indriðason:
GRAFARÞÖGN
J.K. Rowling:
HARRY POTTER OG VISKUSTEINNINN
.Margrét Þóra Þorláksdóttir:
AF BESTU LYST II
Waris Dirie:
EYÐIMERKURBLÓMID
J.K. Rowling:
HARRY PÖTTER OG LEYNIKLEFINN
Spathelf & Szesny:
FARÐU NÚ AÐ SOFA
Gylfi Gröndal:
STEINN STEINARR II
Jack Higgins:
SKULDASKIL í VÍTI
Metsölulistarnir:
Ólafur Jó-
hann efstur
bækur Ólafur Jóhann Ólafsson
trónir á toppnum á aðallista Ey-
mundsson þessa vikuna en bækur
J.K. Rowling um Harry Potter eru
sem fyi’r áberandi, þrjár af fjór-
um er að finna á topp tíu listanum
yfir mest seldu bækurnar í Ey-
mundsson.
Á skáldsagnalistanum er Ólaf-
ur vitaskuld efstui’. Af tíu höfund-
um eru sex íslenskir og fjórir er-
lendir. í þriðja og fjórða sæti eru
gamalkunnir höfundar, spennu-
sagnahöfundurinn Jack Higgins
og ástarsagnahöfundurinn Bodil
Fosberg. íslensk spennusaga er í
öðru sæti listans, þar er Arnaldur
Indriðason á ferð sem líkt og í síð-
ustu viku á tvær bækur á lista
,eins og Ólafur Jóhann reyndar. ■
~ METSÖLUBÆKURNAR |
SKÁLDSAGNALISTI EYMUNDSSON.
BYGGTÁ SÖLU 19.-25 NÓVEMBER.
Ólafur Jóhann Ólafsson:
HÖLL MINNINGANNA
dþ Arnaldur Indriðason:
GRAFARÞÖGN
Jack Higgins:
SKULDASKIL f VÍTI
© Bodil Forsberg:
GEF MÉR STJÖRNURNAR
0 Matthías Johannessen:
HANN NÆRIST A GÓÐUM
MINNINGUM
0 Arnaldur Indriðason:
MÝRIN
0 Ólafur Jóhann Ólafsson:
SLÓÐ FIÐRILDANNA
Jaroslav Hasek:
ÆVINTÝRI GÓÐA DÁTANS
SVEJKS
0 Isabel Allende:
MYND ÖRLAGANNA
Kristín Maria Baldursdóttir:
W KVÖLDUÓSIN ERU KVEIKT
Ný íslensk barnaópera frumsýnd:
Skuggaleikhús Ofelíu
ópera Barnaóperan Skuggaleikhús
Ófelíu verður frumsýnd í íslensku
óperunni í dag. Óperan er byggð á
sögunni Skuggaleikhús Ófelíu eft-
ir þýska rithöfundinn Michael
Ende. í henni segir frá Ófelíu sem
er gömul kona sem alla sína ævi
hefur verið hvíslari í leikhúsi. For-
eldrar hennar vildu að hún yrði
mikil leikkona. En Ófelía var
lágróma og þess vegna gat hún
ekki orðið leikkona. En hún gat
orðið hvíslari! Það æxlast þannig,
að Ófelía fer að taka að sér heimil-
islausa skugga. Hún kennir þeim
leikbókmenntirnar og saman stof-
na þau Skuggaleikhús Ófelíu. Einn
daginn biður stór skuggi um hæli.
Það er Dauðinn. Ófelía býður hann
velkominn og heimurinn hverfur.
Þegar Ófelía vaknar til vitundar
aftur er hún í Himnaríki.
Uppsetningin er samstarfs-
verkefni íslensku óperunnar og
Strengjaleikhússins. Sýningin er
fyrst og fremst ætluð börnum í
leikskólum og yngstu bekkjum
grunnskólans (á aldrinum 3-9
ára) og verður samið við skólana
fyrirfram. Sýningar verða í Óp-
erunni fyrir hádegi virka daga
fram til 9. desember og hefjast
aftur í janúar 2002. Einnig verða
nokkrar almennar sýningar um
helgar, þær fyrstu sunnudagana
2. og 9. desember kl. 15.00. Sýn-
ingin tekur um 45 mínútur og er
ekkert hlé.
í sýningunni eru fimm flytj-
endui’, sem leika fjölda hlutverka.
Notaðar eru grímur og í sýning-
unni verða tvær leikbrúður fyrir
Ófelíu. Söngvararnir stjórna brúð-
um og eru jafnframt sögumenn.
Lárus H. Grímsson semur tónlist-
ina, Messíana Tómasdóttir skrifar
óperutextann og gerir leikmynd,
búninga, brúður og grímur. Hún
annast einnig leikstjórn ásamt
Auði Bjarnadóttui’, sem er dans-
höfundur, og Jóhann Bjarni
Pálmason hannar lýsingu. ■
ÖPERA FYRIR BÖRNIN
Börnum sem koma á sýninguna gefst
kostur á að taka þátt í framvindu óperunn-
ar, með því að taka undir í ákveðnum
söngvum í sýningunni og því verða nótur
og textar send tímanlega til þeirra skóla
sem ætla að sjá óperuna.
ÞRIÐJUDAGURINN
27. NÖVEMBER
FUNPIR_____________________________
08.20 Morgunverðarfundur um Örugg-
ara verklag opinberra fyrir-
tækja í Iðnó. Á fundinum verður
fjallað um innleiðingu gæðakerfa
frá fimm mismunandi sjónar-
hornum. Þór G. Þórarinsson,
forstöðumaður Svæðisskrifstofu
fatlaðra í Reykjanesi, Guðmund-
ur Pálsson söíustjóri, Rannveig
Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfja-
stofnunar, Örn Arason, öryggis-
stjóri Landsvirkjunar og Hörður
Olavson, framkvæmdastjóri flytja
erindi. Fundarstjóri er Gisli Mart-
einn Baldursson.
08.15 Frá nýsköpun að góðum
rekstri. Nýsköpunarsjóður og
Háskólinn í Reykjavík efna til
morgunfundar um nýsköpun og
rekstur fyrirtækja. Markmið fund-
arins er að lýsa þeim aðstæðum
og erfiðleikum sem fyrirtæki
lenda í við vöxt af frumkvöðla-
stigi til fyrirtækis í fullum rekstri.
Á fundinum verður fjallað um
breytingarferli í rekstri fyrirtækja
auk þess sem fjallað verður um
viðhorf og viðbrögð við áföllum í
rekstri. Fundurinn er haldinn á 3.
hæð Háskólans í Reykjavík og
er öllum opinn á meðan húsrúm
leyfír.
12.00 Einkafjármögnun stórfram-
kvæmda. Hádegisverðarfundur
Félags viðskipta- og hagfræð-
inga, Verkfræðíngafélags ís-
lands og Tæknifræðingafélags
íslands f Súlnasal Radisson SAS
Hótel Sögu.
UPPLESTUR__________________________
20.30 Skáldið lýsir listamanninum.
Matthías Johannessen skáld og
fyrrum ritstjóri fjallar um Gunn-
laug Scheving í Listasafni Islands-
Mattthías mun lesa upp úr við-
talsbók sinni um Gunnlaug og
spjalla við gesti um listamanninn
og verk hans.
TÓNLEIKAR__________________________
20.00: Píanótónleikar í Salnum, Tón-
listarhúsi Kópavogs. Edda Er-
lendsdóttir leikur.
21.00 Hilmar Jensson gítarleikari,
Andrew DíAngelo sax og
bassaklarinettuleikari og Jim
Black trommuleikari leika frum-
saminn djass í Vesturporti Vest-
urgötu. Auk hefðbundinna hljóð-
færa sinna munu þeir einnig
leika á tölvur og ýmsa elektróník.
Miðaverð kr. 800. Forsala að-
göngumiða er í versluninni Tólf
tónum.
Munkurinn og stríðs-
maðurinn í Gunnlaugi
Matthías Johannessen skáld mun í kvöld kl. 20.30 lesa upp úr viðtals-
bók sinni um Gunnlaug Scheving listamálara í Listasafni Islands.
Matthías þekkti Gunnlaug vel og mun spjalla við gesti um kynni hans
af listamanninum auk þess sem hann les úr bókinni.
Gunnlaugur skreytti tvær Ijóðabækur eftir Matthías; Jörð úr Ægi sem kom út árið 1961
og Vor úr vetri frá 1963. i eintaki af Jörð úr Ægi sem hann færði Matthíasi þakkar hann
honum sérstaklega fyrir Ijóðin. Matthías segir að þetta lýsi honum vel, hann hafi jafnan
farið eigin leiðir og þótti enda dálítið sérstakt að slíkur forvígismaður í listum skyldi
vilja skreyta tvær Ijóðabækur eftir ungt Ijóðskáld. Við hlið Matthíasar hanga teikningar
eftir Gunnlaug úr Jörð úr Ægi.
mynplist „Gunnlaugur var ákaf-
lega merkur maður og eins og
oft vill verða um góða listamenn
bera listavei’k hans honum sjálf-
um fagurt vitni. Hann var fálát-
ur og fáskiptinn en þegar hann
tók mönnum gat hann leikið á
alls oddi. Hann var sögumaður í
sérflokki," segir Matthías Jo-
hannessen skáld. Matthías mun í
kvöld lesa upp úr viðtalsbók
sinni um Gunnlaug Scheving
listmálara í Listasafni íslands en
um þessar mundir stendur yfir
yfirlitssýning á verkum hans í
öllum sölum safnsins. Bók
Matthíasar kom út árið 1974 að
listamanninum látnum. Kynni
hans og Gunnlaugs ná langt aft-
ur og Matthías nefnir að hann
hafi fyrir tilstilli Ragnars í
Smára tekið að sér að skrá sam-
tal við listamanninn sem birt var
í Nýja Helgafélli á sínum tíma.
Með þeim tókst góður vinskapur
og þeir félagar ákváðu fljótlega
að Matthías myndi síðar meir
skrifa bók um ævi Gunnlaugs
sem yrði í samtals- og frásagnar-
formi. Vinna við bókina var haf-
in og Matthías staddur út í Kaup-
mannahöfn þegar honum bárust
fregnir af því að Gunnlaugur
hefði látist 68 ára að aldri.
„Ég var aldrei sáttur við um-
fjöllun Morgunblaðsins um
Gunnlaug eftir að hann lést. Ég
var staðráðinn í að ljúka verk-
inu og bæta með einhverju móti
fyrir umfjöllun blaðsins,“ segir
Matthías. Hann bendir á að jafn
merkur listamaður og Gunn-
laugur hafi átt skilið veglegri og
vandaðri umfjöllun en raun
varð á.
Sagt hefur verið um stíl
Gunnlaugs að hann sé stórfelld-
ur, einfaldur og einlægur.
Matthías er sammála þessari
túlkun.
„Þetta passar mjög vel við
hann. Gunnlaugur sagði ekki
mikið nema hann væri í vinahópi
þar sem honum leið vel. En hann
sagði það sem hann meinti og
hafði mjög persónulega afstöðu
til listar. Ég held að hann hafi
verið sjálfur það sem hann sagði
um Spánverjana: Að þeir væru
munkar og stríðsmenn. Munkur-
inn í Gunnlaugi naut sín mjög vel
og hann kunni að búa um sig í
þeirri kyrrð sem hann sóttist eft-
ir sem listamaðui’. Á sama tíma
hafði hann mikinn slagki’aft ef
honum mislíkaði."
kristjang@frettabladid.is
BÆKUR
Tilbrigdi við Sturlungu
ÓVINAFAGNAÐUR
SÝNINGAR_________________________
Maður, lærðu að skapa sjálfan þig
heitir sýning um sögu Bjargar C. Þor-
láksson sem stendur yfir í Þjóðarbók-
hlöðunni. Það er Kvennasögusafnið
sem setur sýninguna upp.
Kaffitár sýnir glænýja textillínu fyrir
árið 2002 sem kallast Hör, Perlur og
Kaffi. Það er listakonan Arnþrúður
Ösp Karlsdóttir sem að þessu sinni
hannar og setur upp sýningu á þessari
glæsilegu textíllinu fyrir Kaffitár. Sýning-
in er á l.hæð Kringlunnar og stendur
yfir dagana 22.nóvember-2.desember
2000.
MYNDLIST________________________
Þrjár sýningar eru nú í Listasafni Kópa-
vogs. Margrét Jóelsdóttir og Stephen
Fairbairn sýna nýleg þrívíddarverk í
austursal Listasafns Kópavogs. f Vest-
ursal safnsins sýnir Aðalheiður Val-
geirsdóttir málverk. Sýningin ber yfir-
skriftina Lífsmynstur. Á neðri hæð
safnsins sýnir Hrafnhildur Sigurðar-
dóttir lágmyndir og kallar sýningu sína
Skoðun.
Glerlistakonann Ebba Júliana Lárus-
dóttir hefur opnað stuttsýningu í Gall-
erí Reykjavík, Skólavörðustíg 16. Verk
Ebbu eru aðallega unnin úrflotgleri en
hún hefur lagt stund á glerlist frá 1988.
Stuttsýningin stendur til 1. desember
2001.
Fimm ungir listamenn sýna nú í List-
húsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5. Haf-
steinn Michael Guðmundsson, Helgi
Snær Sigurðsson, Karl Emil Guð-
mundsson, Sírnir H. Einarsson og
Stella Sigurgeirsdóttir sýna verk sem
unnin eru í ólíka miðla og eru við-
fangsefnin margbreytileg. Öll eiga þau
það sameiginlegt að hafa numið við
Myndlista- og handíðaskólann og eða
Listaháskóla Islands. Sýningin stendur
til 12. desember og er opin virka daga
frá kl. 10 til 18 en einnig verður opið
um helgar desembermánuði.
Eyþór Árnason sýnir Ijósmyndir í Gall-
erí Geysi. Sýningin heitir „Mynd f
myrkri" vegna stemningarinnar sem
listamaðurinn einsetti sér að búa til í
myndunum. Á sýningunni verða um 19
myndir og mun þær hanga uppi út
desembermánuð.
Ovinafagnaður eftir Einar
Kárason fjallar um Þórð
Kakala, kappa mikinn sem rífur
sig upp úr drykkjurugli í Noregi
og heldur út til íslands eftir að
honum berast fregnir af falli
föður síns og bræðra. Af hálfum
huga hyggst hann leita hefnda,
og flækist meira nauðugur en
viljugur inn í ævintýralega at-
burðarás. Óvinafagnaður er
skemmtilega skrifuð bók. Að
nota nútímalegt orðfæri hóflega
blandað fornyrðum er vel
heppnað stílbragð. Einari tekst
furðulega vel að sýna hve hjört-
um mannanna gæti svipað sam-
an á Sturlungaöld og gervi-
hnattaöld. Groddalegur húmor
hentar söguefninu vel og lesand-
Emar Kárason
Mál og menning 2001
inn fylgist spenntur með afdrif-
um Þórðar, sem framan af er í
vonlausri stöðu en vinnur óvæn-
ta sigra þegar á líður. Hvergi er
dregið úr ofbeldinu, og er
skemmtanagildi þess gert nokk-
uð hátt undir höfði, líkt og
tíðkast í bíómyndum. Ekki er
mér samt ljóst hvort Óvinafagn-
aður býr yfir einhverjum hald-
betri verðmætum en afþreying-
argildinu. En þessi ágæta bók á
vafalaust eftir að opna mörgum,
jafnt yngri sem eldri, býsna
greiðfæra leið inn í Sturlungu.
Guðsteinn Bjarnason