Fréttablaðið - 15.12.2001, Síða 1
FRETTABLAÐIÐ
lólabakstur íþróttamannsins
Prestarnir
verða sýnilegri
Helga Soffía Konráðsdóttir segir aðvent-
una vera mikinn annatíma hjá prestunum.
Mér finnst starf mitt yndis-
legt á þessum árstíma og nýt
aðventunnar í gegnum það,“
segir séra Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir. „Ég reyni að taka
þátt með börnunum mínum í
því sem að þeim snýr á að-
ventunni, en ég hef ekki kom-
ið mér upp föstum hefðum
vegna þess hve annasamur
þessi tími er hjá okkur prest-
unum.“
Helga Soffía segir að þátttaka
í dagskrá kirkjunnar á að-
ventunni fari sífellt vaxandi
og aðventukvöld sem haldin
eru í kirkjum landsins séu
f jölsótt. „Einhver sagði að á
aðventunni kviknaði á prest-
unum, eins og hverjum öðrum jólaundirbúningi með börnum sínum en hef-
jólaljósum. Ég varð hálf ur ekki komið sér upp ,östum hefðum-
móðguð þegar ég heyrði þetta þar sem við erum auðvitað að störfum
allan ársins hring. Við verðum hins vegar sýnilegri á þessum árstíma
sem er auðvitað guðs þakkarvert." Hún segist skynja að aðventan
skipi sífellt stærri sess í lífi fólks.
Helga Soffía segir að auk jólahugvekja á stofnunum og hjá félagasam-
tökum fari meiri tíma í sálusorgun á þessum árstíma. „Þetta er tími
samveru f jölskyldna og því oft afar erfiður þeim sem missa sína nán-
ustu. Slíkur missir er alltaf erfiður, en hlutverk sálusorgarans er sér-
lega mikilvægt og vandasamt á þessum tíma árs.“ ■
HEFUR EKKI KOMIÐ UPP JÓLAHEFÐUM
Séra Helga Soffía Konráðsdóttir tekur þátt í
J ólasveinninn
hringdi dyrabjöllunni
Nú þegar allar verslanir eru yfirfullar af jóladóti er gaman að velta fyrir
sér hvernig jólin voru þegar fátt eitt var til í búðunum.
JÓL í MEIRA EN 50 ÁR
Bergur Jónsson og Erla Eyjólfsdóttir laga jólaundirbúninginn að aldri barna og barnabarna.
Jólahald okkar íslendinga hefur
breyst á hálfri öld. Hjónin Berg-
ur Jónsson og Erla Eyjólfsdóttir
hafa lifað þessar breytingar í heim-
ilishaldi sínu en þau hófu búskap
upp úr seinna stríði þannig að á
fyrstu árunum var skömmtun á
ýmsum vörum enn við lýði. Þau
bjuggu því til ýmislegt fyrir jólin úr
litlum efniviði. Eitt af því sem ekki
fékkst voru rafmagnsjólaseríur.
„Við bjuggum til seríu úr bílaper-
um, lituðum þær og tengdum saman
með vírurn," segir Bergur sem
alltaf hefur haft gaman að ýmsum
tæknibrellum.
Þau Ei-la og Bergur eiga í fórum
sínum ýmislegt jóladót sem hefur
fylgt þeim gegnum árin. Það elsta
er líklega fyrsta jólatréð sem þau
áttu og notuðu í allmörg ár eða
þangað til þau fóru að hafa lifandi
jólatré. „Nú erum við komin aftur
með gervitré," segir Bergur en
bætir við að það sé býsna ólíkt
gamla trénu. Úrvalið af jólaskrauti
var ekki fjölbreytt á fyrstu bú-
skaparárum Bergs og Erlu og þau
rifja upp músastigagerð barn-
anna, fána á bandi og heimatil-
búna jólapoka. „Krakkarnir
límdu þetta saman og ég setti
sælgæti í þá,“ segir Erla.
Eitt af því sem Bergur
hefur útbúið er lítið jólahús.
„Það gekk hérna yfir alda,
menn voru að búa til
svona lítil hús, lcirkjur og
ýmislegt," segir Bergur.
Oft voru einnig höfð
kerti inni í þessum hús-
um. „Mér fannst eitthvað
merkilegra að hafa eitt-
hvað sem hreyfðist í
þessu," heldur Bergur áfram.
Hann varð sér því úti um
gamlan plötuspilara og notaði
hann til að láta börnin í húsinu snú-
ast, enda eru þau að dansa £ kring-
FYRSTA JÓLATRÉÐ
Þetta jólatré var í notkun hjá Bergi
og Erlu I mörg ár. Skrautið sem þau
notuðu þá er þó glatað.
um jólatré. Um árabil setti
Bergur alltaf upp gamla
járnbrautarlest
niðri £ kjallara
um jólin. Nú er
hins vegar
hvorki barna-
börn né
barnabarna-
börn á réttum
aldri fyrir
þannig að í ár hef-
ur jólahúsið verið
tekið fram að nýju en það hefur ver-
ið í hvíld í nokkur ár.
Ein jólin ætlaði að Bergur inn-
sigla trúna á jólasveina hjá krökk-
unum sínum. Hann tengdi því dyra-
bjölluna inn á baðherbergi með vír
og hringdi henni þaðan. Börnin
hlupu til dyra og þá var þar ekkert
nema stór poki með öll-
jólagjöfunum.
Yngri börnin trúðu
þessu eins og nýju
neti en elsti sonur-
inn fór að rann-
saka málið og
kom upp um
pabba sinn. ■
JÓLAHÚSIÐ
Þetta jólahús bjó Bergur til úr gömlum plötu-
spilara þannig að fólkið sem dansar í kring-
um jólatréð inni í húsinu snerist.
GuimundurJ.
9*
ISHERRANN
Leiðangur Vilhjálms Stefánssonar
Árið 1913 stóð Vilhjálmur Stefánsson
landkönnuður fyrir metnaðarfullum
leiðangri norður í íshaf, 17. júní það ár
lagði skipið Karluk upp frá Kanada. Sex
vikum síðar var heimsskautsveturinn
skollinn á, skipið teppt í ís og
eiðangursstjórinn á bak og burt.
Með því að nýta sér dagbækur skipbrots-
mannanna hefur Jennifer Niven tekist að
endurskapa atburðarás þessa afdrifaríka
leiðangurs og örvæntingarfullar tilraunir
skipbrotsmanna til að komast heim úr
auðnum norðursins. Þeir sem komust lífs
af urðu aldrei samir. Þessi kynngimagnaða
mannraunasaga lætur engan ósnortinn.
JamieOliveramyndbandi PP FORLAG