Fréttablaðið - 17.12.2001, Qupperneq 8
FRÉTTABLAÐIÐ
17. desember 2001 MÁNUDACUR
Verð frá kr. 19.900 stgr.
Umboðsmenn um allt land
- Fást í helstu útivistarverslunum
m
R.SIGMUNDSSON
Fiskislóð 16 -101 Reykjavík • Sími 520 0000
www.rs.is • r.sigmundsson@rs.is
Raf-
geyma
þjónusta
Vagnhöföi 21 • 110 Reykjavik
Sími: 577 4500
velaland@velaland.is
VELALAND
UÉLASALA • TÚRBIfUUR
VARAHLUTIR • VIÐGERÐIR
Stalskapar
fyrir
vinnustadi
Stærð:
D: 50 cm B: 30/40 cm
H: 180
Verð frá *
UMBOÐS- OG HBLDVERSLUN
Strazsnzzsr
AUÐBREKKA 1 200 KÓPAVOGUR
SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335
| www.straumur.is |
Leitið upplýsinga
Dressmann verslanirnar:
LÖGRECLUFRÉTTIR
Kxeditkortanotkun mun minni í ár
verslun „Fólk veltir mun meira fyr-
ir sér hvað hlutirnir kosta nú held-
ur en áður,“ sagði Áróra Gústafs-
dóttir, svæðisstjóri Dressmann á
íslandi, en Dressmann rekur fjórar
verslanir á öllum helstu verslunar-
stöðunum á landinu. Hún segir fólk
í mun ríkari mæli gera verðsaman-
burð og kaupi jafnan þar sem hag-
stæðast er. „Það sem hefur komið
mér á óvart er hvað kreditkorta-
notkun í verslunum okkar er lítil í
ár miðað við áður. Mér finnst á fólki
eins og það sé búið að setja sér
ákveðin mörk hvað það ætli að eyða
í jólagjafir." Áróra segir jólavertíð-
ina hafa farið fyrr af stað núna sé
tekið mið af sömu viku í fyrra. Seg-
ir hún veðrið spila þar stórt hlut-
verk, sérstaklega á Laugaveginum
en sala þar hafi verið mjög mikil í
síðustu viku. Áróra segir verslunar-
miðstöðina Glerártorg á Akureyri
koma mjög sterkt inn í ár en þar
hafi verslun verið mjög lífleg. Að-
spurð hvaða Dressmann verslun
væri að sýna hæstu sölutölurnar
segir hún verslunina í Kringlunni
hafa vinninginn, Smáralind komi í
humátt á eftir, þá Laugavegurinn
og Glerártorg á Ákureyri fylgi fast
áeftir. ■
FRÁ KRINGLUNNI
Sölutölur Dressmann á íslandi sýna
að verslun þeirra í Kringlunni sé sú
söluhæsta af þeim fjórum sem reknar
eru en hinar eru staðsettar í Smára-
lind, Laugaveginum og á Akureyri.
Bifreið var ekið á ljósastaur í
Keflavík aðfaranótt sunnu-
dagsins með þeim afleiðingum að
ljósastaurinn féll til jarðar. Að
sögn lögreglu varð bifreiðin
óökufær eftir áreksturinn en
engin slasaðist Þá hafði lögreglan
afskipti af þremur ökumönnum á
Reykjanesbraut vegna hraðakst-
urs.
...♦..■'
Tii slagsmála kom á veitinga-
stað í Keflavík í fyrrinótt.
Lögreglan aðstoðaði einn sem í
átökunum lenti og ók honum á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
þar sem gert var að sárum hans.
Kærð fyrir kynferðislega
misnotkun á ungri stúlku
Gloria Trevi, ein frægasta poppstjarna Mexíkó varð ófrísk í fangelsi. Grunur um að hún hafi átt í
ástarsambandi við lögreglumann.
brasilía/mexíkó Söngkonan Gloria
Trevi, sem oft hefur verið nefnd
„Madonna Mexíkó", hefur nú setið
í fangelsi í 19 mánuði í Brasilíu
þar sem hún bíður ákvörðunar yf-
irvalda um hvort hún verði fram-
seld til Mexíkó. Þar er hún eftir-
lýst af yfirvöldum, en kæra bíður
hennar þar fyrir að spilla ungri
stúlku. Hún var handtekin í Rio de
Janeiro í janúar á síðasta ári
ásamt umboðsmanni hennar,
Sergio Andrade, og þau kærð fyr-
ir að hlekkja 17 ára gamla stúlku
inn í kynlífsþrælahald. Þau flúðu
Mexíkó um leið og þau voru ákærð
og höfðu lögregluvöld leitað þeir-
ra í tvo mánuði
áður en þau fund-
ust í Brasilíu þann
14.janúar 2000. Tal-
að var um að þau
hefðu alið stúlkuna
upp í því að verða
poppstjarna og
misnotað hana
kynferðislega, sem
hluta af „poppupp-
eldi“ hennar.
Gloria Tlrevi hefur
ávallt verið þekkt
fyrir að ögra bæði
stjórnmálamönnum
með skírskotum í kynlíf.
En nú eru málin enn flóknari,
því Trevi er nú komin að því að ala
barn. Hún hélt því upphaflega
fram að henni hefði verið nauðgað
af einum fangavarðanna, en nú
þykir það sannað að hún hafi átt í
ástarsambandi við lögreglumann
sem starfar innan veggja fangels-
isins. Upphaflega var talað urn
það í fjölmiðlum að Trevi hefði
stuðst við gervifrjóvgun í þeirri
von að ólétta sín myndi tryggja
það að hún yrði ekki framseld til
Mexíkó. Úrelt lög í Brasilíu tryg-
gðu flóttamönnum eitt sinn veru í
landinu ef það eignaðist barn með
ríkisborgara. Söngkonan hefur
þegar fengið synjun frá stjórn-
völdum um politískt hæli t landinu
og er talið að ákvörðun verði tek-
in í málinu tveimur mánuðum eft-
ir að barnið fæðist. Hvað verður
GLORIA TREVI
Hélt þvi fram að fangavörður hafi nauðgað sér.
svo um barnið er gjörsamlega
óráðið. ■
—♦—
Talað var um
að þau hefðu
aiið stúlkuna
upp í því að
verða popp-
stjarna og
misnotað
hana kynferð-
islega, sem
hluta af
„poppuppeldi"
hennar.
Þingið komið í jólafrí:
15 frumvörp að lögum
SÉÐ Á BAK ÞINGMÖNNUM
Þingmenn stinga saman nefjum á síðasta þingfundi ársins í gær.
alþingi Alþingi lauk störfum sín-
um fyrir jólafrí á fimmta tíman-
um í föstudag eftir stíf fundahöld
undanfarna daga sem stóðu oft
yfir frá morgni fram á kvöld. Að
venju varð mikill fjöldi frum-
varpa að lögum síðustu dagana og
ein fimmtán á tveimur þingfund-
um í gær.
Meðal helstu frumvarpa sem
urðu að lögum í gær má nefna
bandorminn margfræga um ráð-
stafanir í ríkisfjármálum og
frumvarp um stjórn fiskveiða
krókabáta en bæði málin gagn-
rýndu stjórnarandstæðingar
harðlega fram á síðustu stundu.
Sömu sögu var að segja um frum-
vörp um leigubifreiðar annars
vegar og fólksflutninga, vöru- og
efnisflutninga. Önnur frumvörp,
s.s. um Heyrnar- og talmeinastöð
og Náttúruverndarráð runnu í
gegn án mikillar andstöðu. Þá var
tíu einstaklingum veittur íslensk-
ur ríkisborgararéttur og kosið var
í stjórnir og nefndir á vegum
þingsins.
Þingmenn eru því komnir í
jólafrí frá þingstörfum en næsti
þingfundur verður haldinn 22.
janúar næst komandi. ■
Lenti útbyrðis af Elliða
GK-445:
Komst með
naumindum
í bjarghring
sjóslys Skipverji bjargaðist með
naumindum þegar hann lenti út-
byrðis af Elliða GK-445 á laugar-
dagsmorgun. Manninn tók út þeg-
ar skipverjar voru að reyna að
koma nýjum trollpoka upp á trom-
lu.
Maðurinn náði með naumind-
um í bjarghring með ljósbauju
sem félögum hans tókst að kasta í
átt til hans. Annar stýrimaðurinn á
bátnum, sem var í flotgalla, komst
til hans og synti með hann að skip-
inu aftur. Maðurinn var orðinn
mjög þrekaður þegar honum var
bjargað en sagði snarræði félaga
sinna hafa bjargað lífi sínu. ■