Fréttablaðið - 17.12.2001, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 17. desember 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
13
Finnskt nautakjöt flutt hingað þrátt fyrir að riða hafi fundist þar:
Tvö tonn seld á veitingastöðum
landbúnaður Riðuveiki hefui’
greinst í nautgrip á Finnlandi en
hingað til lands hafa verið flutt
inn tvö tonn af finnsku naut-
gripakjöti sem aðallega hafa
verið seld til veitingastaða. Hall-
dór Runólfsson, yfirdýralæknir,
segir engar sérstakar ráðstafan-
ir gerðar hér á landi varðandi
áframhaldandi innflutning og
vísar til þess að verið sé að selja
nautakjöt frá Finnlandi í frjálsri
verslun í löndunum í kring. „Það
fylgdu öll vottorð með þessu
kjöti sem við gerðum kröfu um
og tel ég að það þurfi einhverjar
sérstakar ástæður til þess að
hætta þessum innflutningi.“
Halldór segir að ein-
ungis sé um eitt riðutil-
felli að ræða sem fund-
ist hefði í sex ára gömlu
nauti að undangenginni
umfangsmikillar sýna-
töku úr sinum naut-
gripa. Hann segir
finnsk yfirvöld ætla að
halda því eftirliti áfram
Halldór segir kjötið
sem flutt hefur verið til
landsins vera hágæða-
nautalundir og veitinga-
hús aðallega sóst eftir
því. Hafði hann engar
upplýsingar um hvaða
veitingastaðir það
HALLDÓR
RUNÓLFSSON
Halldór hvetur islenska
neytendur til að spyrj-
ast fyrir á veitingastöð-
um hvaða kjöt þeir séu
að fara að leggja sér til
munns.
væru. Halldór var innt-
ur eftir því hvað ís-
lenskir neytendur
gætu gert til þess að
fylgjast með því hvað
þeir létu sér í munn.
„Ég hvet alla þá sem
hafa einhverjar
áhyggjur að spyrjast
fyrir um það á veit-
ingastöðum hvaðan
kjötið komi. Fólk hefur
fullan rétt á að fá þær
upplýsingar." Segir
hann að héðan verði
fylgst grannt með
framvindu mála í Finn-
landi. ■
Kaup Goða á sláturhúsum
ETíB ganga til baka fyrir jól
Lögfræðingar Kjötumboðsins og Kaupfélags Héraðsbúa ræða hvernig
leita megi sátta í deilum um hvort staðið hafi verið við kaupsamning
Goða á þremur sláturhúsum KHB. Mestar líkur eru á að kaupin gangi
viðskipti Talsverðar líkur eru á því
að Kaupfélag Héraðsbúa muni taka
til baka sláturhúsin þrjú sem það
seldi Goða, nú Kjötumboðinu, í des-
ember á síðasta ári. Stjórnendur
kaupfélagsins hafa haldið því fram
að Goði hafi ekki staðið við kaup-
samning að öllu leyti og hafa kraf-
ist þess að Kjötumboðið standi við
kaupsamninginn eða að honum
verði rift að öðrum kosti. Málið
hefur verið í höndum lögfræðinga
fyrirtækjanna sem hafa fundað um
það að undanförnu. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins eru
mestar líkur á því að niðurstaðan
verði sú að kaupin gangi til baka og
Kaupfélag Héraðsbúa taki aftur
til baka á næstu dögum.
við sláturhúsunum þremur sem
eru á Hvolsvelli, Egilsstöðum og
Breiðdalsvík og er ekki útilokað að
það verði frágengið fyrir jól.
Þegar gengið var frá kaupunum
á sínum tíma var samið á þann veg
að Goði greiddi fyrir sláturhúsin
með hlutafé í fyrirtækinu, yfirtöku
skulda á sláturhúsunum auk útgáfu
víxils fyrir kaupverði. Deilan um
vanefndir stendur um yfirtöku
skulda en stjórnendur Kaupfélags
Héraðsbúa telja að yfirtakan á
skuldum húsanna hafi ekki gengið
eftir þar sem veðhafar hafi hafnað
yfirtöku Goða/Kjötumboðsins á
skuldunum.
Ingi Már Aðalsteinsson, kaupfé-
lagsstjóri Kaupfélags Héraðsbúa,
staðfestir að viðræður hafi átt sér
stað milli lögfræðinga fyrirtækj-
anna. „Líklega fer þetta á þann
háttinn að kaupin gangi til baka.
Við viljum með þessu reyna að
hafa tapið eins lítið og hægt er. Við
færum ekki í þetta öðruvísi en við
teldum okkur vera að bjarga ein-
hverjum hagsmunum.11 Ingi Már
segir að niðurstaðan liggi ekki fyr-
ir en telur að það kunni að skýrast
á næstu dögum þó ekki sé útilokað
að eitthvað komi upp á sem verði
til þess að tef ja fyrir lausn málsins.
Málið sé komið í gang og það sé
fyrir öllu.
binni@frettabladid.is
N°7
Frí kennsla, afsláttur
oq kaupaukar á morgun.
Skipholts Apótek
kl. 14-18 Jólagjalatiitioð
Lægsta verð frá
KeiiiimshUiiirUaSiian
RukaStttWrir;n,«u,iaKk
íráKr.3.TM-5-9aa-
KaðiarKr. 6.900
Lotldælur trá Kr. 3.585,-
IVI/ve-LITE
yasaiióssemliolaaiH-
íástímísmunandi j
stærðum, stæroUGÆ
sKmtirmáii!
Sími 590 2000 • www.benni.is