Fréttablaðið - 17.12.2001, Blaðsíða 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
17. desember 2001 MÁNUDAGUR
Hannes Pétursson fagnar sjötugsafmæli:
Ljóða- og söngdagskrá
skáldinu til neiðurs
LISTAKLÚBBUR LEIKHÚSKJflLLflRANS í til-
efni af sjötugsafmæli Hannesar
Péturssonar skálds, er efnt til
veglegrar ljóða- og söngdagskrár
í kvöld í Listaklúbbi Leikhús-
kjallarans. Hannes er ljóðaunn-
endum að góðu kunnur. Hann
vakti fyrst á sér almenna athygli
með sjö kvæðum í bókinni Ljóð
ungra skálda sem út kom árið
1954. í áranna rás hefur hann sent
frá sér fjölda Ijóðabóka og ann-
arra bókmenntaverka. í kvöld
munu Hjörtur Pálsson, cand mag
og ljóðskáld, fjalla um skáldskap
Hannesar. Sölvi Sveinsson skóla-
stjóri segir frá manninum Hann-
esi, sveitunga sínum úr Skaga-
firði. Söngkonurnar Signý Sæ-
mundsdóttir og Björk Jónsdóttir
flytja lög eftir tónskáldin Hjálm-
ar H. Ragnarsson, Selmu Kalda-
lóns, Skúla Halldórsson og Þorkel
Sigurbjörnsson við ljóð Hannesar.
Undirleikari er Richard Simm.
Leikarar og Ijóðskáld munu ann-
ast flutning ljóða Hannesar. Upp-
lesararnir eru: Arnar Jónsson,
Gyrðir Elíasson, Helga E. Jóns-
dóttir, Hjalti Rögnvaldsson, Ingi-
björg Haraldsdóttir, Ragnheiður
Steindórsdóttir og Sigurður Páls-
son. Dagskráin hefst kl. 20.30.
Húsið opnað 19.30. ■
Undir rúminu
Gæludýrin
lynr
Höfundur: Bragi Olafsson
Emil heitir maður sem finnst
lífið vera nokkuð erfitt. Hann
er nýbúinn að vinna milljón í
happdrætti. Hávarður heitir gam-
all félagi hans sem ákveður að
banka upp á hjá Emil. Hávarður er
hins vegar enginn aufúsugestur
hjá Emil. Satt best að segja vill
hann ekki hitta Hávarð aftur enda
skildu þeir með í lítilli sátt eftir
sumardvöl í London nokkrum
árum fyrr, þar sem þeir gættu
gæludýra. Emil skríður því undir
rúm en Hávarður inn um glugg-
ann. Hann kemur sér fyrir og
hleypir gestum (sem voru á leið-
inni að hitta Emil) inn í íbúðina. Úr
þessari prísund fylgist Emil með
atburðum. Bókin er mjög vel
Bjartur 2001, 256 bls.
skrifuð og kippir lesandanum inn í
hugarheim Emils. Maður fær
mikla samúð með pirring hans á j
Hávarði sem er hrikalega óþol-
andi týpa. Emil er hins vegar ekki
sérlega spennandi karakter, hann
er dæmigerður einstaklingur sem
á erfitt með að horfast í augu við
hlutina og kunnugleg týpa þannig
séð. Gæludýrin er bók sem veltir
sér upp úr pínlegum hversdags-
leikanum og fær lesendann til að
gera slíkt hið sama. Meiriháttar
bók fyrir alla sem hafa taugar í
það.
Sigríður B. Tómasdóttír
r
V
Laugavegi 26 • Kringlunni • Smáralind
rudD sRáifi fi
eHyktaf^íeypirinn hretniegá^
A ir sponge allt ani
r~
Málarar ■ Múrarar ■ Píparar ■ Smiðir
Dúkarar ■ Rafvirkjar ■ Ræstitæknar
0
Eitt númer-5111707
Tii þjónustu reiðubúnír!
Handlaginn
www.handlaginn.is
handlaginn@handlaginn.is
Lagersala - Lagersala
Lagersalan við hliðina á Rafha húsinu, Lækjargötu 30.Hafnarfirði heldur áfram.
Mikið úrval af gjafa- og jólavörum.
Erum að taka upp mikið magn af nýjum vörum
Fatnaður frá kr 300.- Jólaskraut frá kr. 50.- Skór frá kr 400.-
Fallegar úlpur kr. 1.900.- Skyrtur kr. 300.- Snyrtivörur kr. 50.-
Skartgripir frá kr. 50,- til kr. 300.- Vídíóspólur nýjar og notaðar eitt verð
kr. 300.- Fallegar handtöskur og seðlaveski frá kr 400,- til kr. 1.500,-
Opið alla daga i desember frá kl. 11.00 - 18.00 fram að jólum
og 11.00 - 18.00 milli jóla og nýárs
íslensk mynd-
list í 100 ár
38 listamenn eiga verk á nýrri yfirlitssýningu
í Listasafni Islands. Sýningin spannar ís-
lenska myndlistarsögu á 20. öld.
mynplist Um helgina var opnuð
yfirlitssýning í Listasafni ís-
lands sem ber heitið „íslensk
myndlist á 20. öld“. Sýnd eru
verk í eigu safnsins eftir 38 ís-
lenska listamenn. Sá elsti, Þór-
arinn B. Þorláksson, er fæddur
1869 en sá yngsti, Sigurður Árni
Sigurðsson, er fæddur 1963.
Sýningin gefur gestum yfirlit
yfir það helsta í íslenskri mynd-
list um 100 ára skeið og í sýning-
arskrá er gerð grein fyrir stefn-
um og straumum sem höfðu
áhrif á myndlistarmennina og
verk þeirra sett 1 innlent og er-
lent samhengi.
Sýningunni er skipt í fimm
hluta. í hluta sýningarinnar sem
nefnist: „Brautryðjendur í upp-
hafi 20. aldar eru verk eftir tvo
fyrstu atvinnulistamennina,
Þórarinn B. Þorláksson og Ás-
grím Jónsson. í „Upphafi ís-
lensks módernisma" eru verk
þeirra sem settu mestan svip á
íslenska myndlist á fyrri hluta
GOS
Málverk
eftir Nlnu
Tryggva-
dóttur frá
1964.
SKÓGARHÖLLIN
Skógarhöllin eftir Jóhannes Kjarval frá
1918.
aldarinnar. í „Abstraktlist" eru
verk sem endurspegla umbrota-
tíma síðari heimsstyrjaldar og
aukin tengsl íslenskra lista-
manna við umheiminn að henni
lokinni. í „Nýraunsæi áttunda
áratugarins" sjást straumar í ís-
lenskri myndlist sem komu
fram á sjöunda áratugnum undir
áhrifum frá popplist, konseptlist
og flúxushreyfingunni. í hlutan-
um „Þrír fulltrúar Nýja mál-
verksins" eru verk frá fulltrú-
um hlutbundna málverksins sem
fram kom upp úr 1980.
Þess má geta að gagnagrunn-
ur Listasafnsins verður opinn
gestum í tölvum safnsins á með-
an á sýningu stendur. í honum er
þegar hægt að skoða tæplega
1000 verk Gunnlaugs Scheving.
Listasafn íslands er opið alla
daga nema mánudaga frá 11-17.
MÁNUDAGURINN
17. DESEMBER
SKEMMTUN___________________________
20.30: Ljóða- og söngdagskrá í Lista-
klúbbi Leikhúskjallarans í tilefni
af sjötugsafmæli Hannesar Pét-
urssonar skálds. Þau Arnar Jóns-
son, Gyrðir Eiíasson, Helga E.
Jónsdóttir, Hjaiti Rögnvaldsson,
Ingibjörg Haraldsdíttir, Ragn-
heiður Steindórsdóttir og Sig-
urður Pálsson lesa úr Ijóðum
hans. Hjörtur Pálsson, cand mag
og Ijóðskáld, fjallar um skáldskap
Hannesar. Sölvi Sveinsson skóla-
stjóri segir frá manninum Hann-
esi, sveitunga sínum úr Skagafirði.
Söngkonurnar Signý Sæmunds-
dóttir og Björk Jónsdóttir flytja
lög eftir tónskáldin Hjálmar H.
Ragnarsson, Selmu Kaldalóns,
Skúla Halldórsson og Þorkel
Sigurbjörnsson við Ijóð Hannes-
ar. Undirleikari er Richard Simm.
20.00: Frönsk Ijóð og klassík í Hafnar-
borg. Flytjendur eru Guðrún S.
Birgisdóttir og Elíabet Waage,
Flutt verður tónlist eftir Debussy,
Fauré, Tournier, Ravel, Bizet og
Ibert. Jóhann Sigurðarson leikari
les frönsk Ijóð.
TÓNLEIKAR__________________________
22.00: Jólarokk á Gauknum á vegum
Logsýru. Hljómsveitirnar Albert,
Graveslime og Saktmóðigur
spila.
MYNDLIST___________________________
í Listasafni íslands stendur nú yfir yfir-
litssýning sem ber heitið "íslensk
myndlist á 20. öld". Sýnd eru verk í
eigu safnsins eftir 38 íslenska listamenn.
Sá elsti er Þórarinn B. Þorláksson en
sá yngsti Sigurður Árni Sigurðsson.
Sýningin veitir gestum gott tækifæri til
að fá yfirlit yfir margt það helsta í ís-
lenskri myndlist um 100 ára skeið. í sýn-
ingarskrá er gerð grein fyrir stefnum og
straumum sem höfðu áhrif á íslenska
myndlistarmenn og verk þeirra sett í
innlent og erlent samhengi.
Stuttsýning: Árný Björk myndlistarkona
og Óttar Hrafn tónlistarmaður sýna í
Gallerí Reykjavík, Skólavörðustíg 16.
i Ófeigi, Skólavörðustíg 5, sýna lísta-
menn sem reka gallerí Meistara Jakob í
sama húsi, til janúarloka. Listamennirnir
eru Aðalheiður Ólöf Skarphéðinsdótt-
ir, grafík, Auður Vésteinsdóttir, listvefn-
aður, Elísabet Haraldsdóttir, leirlist
Guðný Hafsteinsdóttir, leirlist Kristín
Sigfríður Garðarsdóttir, leirlíst Kristín
Geirsdóttir, málverk, Margrét Guð-
mundsdóttir, grafík Sigríður Ágústs-
dóttir, leirlist Þorbjörg Þórðardóttir,
listvefnaður Þórður Hall, málverk.
Lovísa Lóa Sigurðardóttir sýnir olíu-
myndir í vinnustofu sinni að Bergstaða-
stræti 33b. Sýningin verður opin 12.00-
20.00 til 18. desember.
Gjörningaklúbburinn sýnir ný verk í gall-
erí@hlemmur.ís, Þverholti 5.
Gjörningaklúbbinn skipa þær Eirún
Sigurðardóttir, Jóní Jónsdóttir og
Sigrún Hrólfsdóttir. Galleríið er opið
fimmtudaga til sunnudaga. Sýningin
stendur til 6. janúar 2002.
Jónína Guðnadóttir, myndlistarmaður,
sýnir keramlkverk í Gallerí Reykjavik.
Sýningin stendur til 17. desember.
Benedikt S. Lafleur sýnir verk í Gallerí
Reykjvík. Sýningin stendur til 31.des.
Hulda Vilhjálmsdóttir sýnir málverk á
Kaffi IVIokka við Skólavörðustíg.
Nú stendur yfir sýning á 27
olíumálverkum eftir Helga
Hálfdánarson í Listacafé og
Veislugallery i Listhúsinu í Laugardai.
Myndirnar eru á tilboðsverði út desem-
bermánuð. Helgi hefur stundað nám í
olíumálun í Myndlistarskóla Reykjavíkur
'84 - 87 og á ýmsum námskeiðum þar, í
Myndlista- og handíðaskólanum og í
T.H. Aachen í Þýskalandi.
Þjóðleikhúsið:
Leitað eftir drengjum
leikhús í febrúarlok er stefnt að
því að setja upp leikrit um tví-
burabræðurna Jón Odd og Jón
Bjarna sem hafa verið í uppáhaldi
hjá þjóðinni síðan bækur Guðrún-
ar Helgadóttur komu fyrst út á
áttunda áratugnum. Þjóðleikhúsið
setur sýninguna upp og leitar nú
eftir drengjum á aldrinum átta til
ellefu ára, gjarnan tvíburum eða
bræðrum, til að fara með hlutverk
Jóns Odds og Jóns Bjarna. í dag
og á morgun verða leikprufur í
æfingasal Þjóðleikhússins, Lind-
argötu 7. Þjóðleikhúsið hefur af
og til haldið opnar prufur á borð
við þessa þegar stendur til að
setja upp barnaleikrit, síðast var
JÓN ODDUR OG JÓN BJARNI
Voru eitt sinn kvikmyndaðir en nú á að
færa drengina upp á svið.
minn ljónshjarta var settur á svið.
Drengir með leikara í maganum
eru beðnir um að skrá sig hjá
Steinunni á skrifstofu Þjóðleik-
hússins í síma 5851200. Leikstjóri
sýnjngarinnar veröur Þórhaílur
sí-'- '
Steinþór Marinó Gunnarsson listmálari
sýnir nú röð smámynda í
Verksmiðjusölunni á Álafossi, Álafos-
svegi 23, Mosfellsbæ. Þetta er jólasýn-
ing. Flest verkin eru unnin á árunum
1980 - 1998. Hér er um að ræða alls 25
verk unnin í pastell og myndir með
blandaðri tækni. Sýningin er opin á ven-
julegum verslunartíma kl. 10.00 - 18.00,
og laugardaga kl. 10.00 - 14.00.
Sýningin er opin til 31. desember.
I versluninni Dýrinu sýnir Sigurdís
Harpa Arnardóttir. Hún sýnir verk sem
hún kallar Stillimyndir. Verkið og fram-
setning þess hefur verið lengi að gerjast
í listamanninnum og er í beinu samhen-
gi og framhaldi af málverkum hennar og
Ijósmyndaverkum. Stillimyndir er þrívítt
verk sem byggist á stuttum frásögnum,
eins og atriði i kvikmynd, þó án eigin-
legs upphafs né endis.