Fréttablaðið - 23.01.2002, Side 4

Fréttablaðið - 23.01.2002, Side 4
4 FRETTABLAÐIÐ 23. janúar 2002 MIÐVIKUDACUR SVONA ERUM VID ATVINNULEYSI EYKST Á súluritinu er atvinnulausum skipt eftir lengd atvinnuleysis á tveimur tímapunkt- um. Þeir sem voru atvinnulausir í lok októ- ber sl. höfðu að meðaltali verið án vinnu lengur en þeir sem voru atvinnulausir i ágústlok. Samkvæmt Hagstofunni hefur at- vinnuleysi aukist meira á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. NÚPUR BA Skipalyftan átti lægsta tilboð í fullnaðarvið- gerð á Núpi BA, sem strandaði við Patreks- fjörð í nóvember. Skipalyftan í Vestmanna- eyjum: Verðaaf verkinu tak- ist ekki að þétta skipið skipaviðgerðir „Við hefðum ekki boðið í verkið, ef við ætluðum okkur ekki að fá það,“ segir Ólaf- ur Friðriksson, framkvæmda- stjóri Skipalyftunnar í Vest- mannaeyjum. Skipalyftan átti lægsta tilboð í fullnaðarviðgerð á Núpi BA, sem strandaði við Pat- reksfjörð í nóvember. VÍS, trygg- ingafélag skipsins, hefur séð um að þétta bátinn og hefur verkið verið í höndum skipasmíðastöðv- arinnar, Þorgeirs og Ellerts, á Akranesi. Takist ekki að þétta skipið verður fullnaðarviðgerð á því unnin á Akranesi. „Það er ver- ið að vinna í þessu máli,“- segir Ólafur. „Ég get ekki merkt annað en að menn séu að vinna að þessu máli. Það mun væntanlega skýr- ast í vikulokin." ■ —♦— Umferðarráð: Þarf að skoða hlut jeppa í slysum umferð Til umræðu er hjá Um- ferðarráði að athuga sérstaklega hlut jeppa í umferðarslysum.- Að sögn Arnar Þ. Þorvarðarsonar, deildarsérfræðings hjá Um- ferðarráði, hefur, fram að þessu, ekki verið skoðað sérstaklega hvort breyttir eða upphækkaðir bílar lendi fremur í umferðaslys- um en aðrir bílar. „Við höfum heyrt um þau atvik þar sem jepp- ar lenda í slysum og fylgst með þeirri umræðu,“ segir Orn. Ljóst sé, að ef bíll er óstöðugur vegna dekkjastærðar þurfi ökumaður að hafa alla einbeitingu við akstur- inn til þess að stjórna bílnum. „Það er ómögulegt að segja hvort breyttir jeppar séu hættulegri í umferðinni en aðrir bílar. Það þarf þó að skoða með því að gera úttekt á slysum þar sem jeppar eiga í hlut.“ Ekki hafi verið ákveð- ið hvenær úttektin fari fram. Örn sagðist þó eiga von á að það yrði á þessu ári. ■ Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga: Allt að 33,3% hækkun á gjaldskrá verðlag Margar heilbrigðis- nefndir sveitarfélaga hækkuðu gjaldskrár sínar í síðasta mán- uði. Af einstökum sveitarfélög- um var hækkunin einna hlut- fallslega mest hjá heilbrigðis- nefnd Kjósarsvæðis, Mosfells- bæjar og Seltjarnarnesbæjar, eða ,um 33,3%. Á Norðurlandi vestra hækkaði gjaldskráin um 20% og um 10% í Reykjavík. Sig- urður Jónsson framkvæmda- stjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að allur kostnað- ur sem atvinnulífið verður að taka á sig fari fyrr eða síðar út í verðlagið. Hann segir að þessar hækkanir hjá borginni séu at- hyglisverðar í ljósi þess að borg- aryfirvöld hafa staðhæft að borgin hefði ekki átt þátt í þeim verðhækkunum sem hafa átt sér stað að undanförnu. Hrannar B. Arnarson formað- ur Umhverfis- og heilbrigðis- nefndar Reykjavíkurborgar seg- ir að þessi gjaldskrárhækkun hjá heilbrigðiseftirlitinu sé af aðallega af tvennum toga. Fyrir það fyrsta sé það að hluta til vegna launahækkana sem orðið hafa hjá starfsmönnum og ein- nig vegna almennra verðlags- breytinga. Hann segir ekki stan- da til að draga þessa hækkun að einhverju leyti til baka vegna þess að þá þyrfti að hækka skat- ta á móti. Þorsteinn Narfason heilbrigð- isfulltrúi í Mosfellsbæ segir að þetta sé uppsöfnuð hækkun hjá þeim. Hann segir að hækkunin hefði orðið meiri ef alfarið hefði verið farið eftir reiknilíkani um- hverfisráðuneytisins. Það hefði hins vegar verið pólitísk ákvörð- un bæjaryfirvalda að gera það ekki. ■ SIGURÐUR JÓNSSON Segir að allur kostnaðarauki atvinnu- lífsins fari fyrr eða síðar í verðlagið. Garðabær fær 10 millj - ónir á ári vegna Marels Forstjóri Marels sagði að fyrirtækinu hefði ekki boðist nægilega stór lóð í Reykjavík. Bæjaryfir- völd í Garðabæ breyttu skipulagi í Molduhrauni fyrir Marel. Fyrirtækið ílytur í nýtt 15 þúsund fermetra húsnæði í júlí. sveitarfélög Bæjaryfirvöld í Garðabæ breyttu skipulagi til þess að hægt væri að útvega Marel lóð undir starfsemi sína í Molduhrauni. Ásdís Halla Braga- dóttir, bæjarstjóri Garðabæjar, sagði að vissulega væri það ákveðin tekjulind að fá stórfyrir- tæki í bæinn. Bæjarsjóður myndi fá árlega um 10 milljónir króna frá Marel í formi fasteignagjalda og „Við skoðuð- lððarleigu. Hörður um lóðafrarn- Arnarson, forstjóri boð bæði í Marel, sagði að Reykjavík, fyrir um þremur Kópavogi, árum þegar fyrir- Mosfellsbæ og tækið hefði verið Garðabæ" að leita að lóð hefði -V- lóðaframboð stór- Reykjavíkursvæðinu verið skoð- að. „Við skoðuðum lóðaframboð bæði í Reykjavík, Kópavogi, Mos- fellsbæ og Garðabæ," sagði Hörð- ur. „Við enduðum síðan með því að velja Garðabæ. Það sem réði úrslitum var að við þurftum mjög stóra lóð og hana gátum við ekki fengið í Reykjavík. Lóðin sem við fengum er i.mjög vel staðsett og á jafnsléttu. Við lögðum mikla áherslu á það þvi fram- leiðsludeildin þarf að vera á einu gólfi, það er mjög hag- kvæmt." að fyrir HÖRÐUR ARNARSON „Það sem réði úrslitum var að við þurft- um mjög stóra lóð og hana gátum við ekki fengið í Reykja- vík." Hörður sagði Marel hefði ekki skipt höf- uðmáli að vera áfram í Reykjavík. Aðspurður sagði hann að Marel hefði í raun aldrei farið fram á það að borgar- ÁSDfS HALLA Tekjulind að fá stórfyrirtæki í bæinn. yfirvöld í Reykjavík breyt- ta skipulagi sínu til þess að fyrirtækið gæti byggt þar. Það hefðu í raun aldrei lóðir komið til greina í höfuðborginni. Eina lóðin sem þeir hefðu getað fengið hefði ekki hentað þar sem þar væri hallandi landslag. Fyrir okkur er þetta eitt at- vinnusvæði og það skiptir ekki miklu máli fyrir okkur þó við séum með reksturinn í einhverju nágrannasveitarfélagi Reykja- víkur.“ Hörður sagði að Marel myndi flytja starfsemi sína í nýtt 15.000 fermetra svæði í Garðabæ í júlí. Flutningurinn myndi breyta miklu fyrir fyrirtækið því hús- næðið upp á Ártúnshöfða, þar FLUTNINGAR FRAMUNDAN Um 30 manns störfuðu hjá A/larel þegar það hóf starfsemi. Nú eru þeir 300 og því þarf fyrirtækið. að flytja í stærra húsnæði. sem Marel hefur verið í 15 ár, hentaði ekki lengur fyrir rekst- urinn. Til marks um það hefðu 30 manns starfað hjá fyrirtækinu fyrir 15 árum en nú væru starfs- mennirnir orðnir 300. trausti@frettabladid.is Enron í Bandaríkjunum: Sakað um að hafa eytt fleiri skjölum . WASHINGTON.AP Enron, bandaríska orkusölufyrirtækið sem varð gjaldþrota á dögunum, var í gær sakað um að hafa eytt skjölum í höfuðstöðum sínum í Houston í Texas, nókkrum vikum eftir að al- ríkislögreglan hóf opinbera rann- sókn á starfsemi fyrirtækisins. Þetta segja lögfræðingar aðila sem áttu hlut í fyrirtækinu. „Þeir eyddu meira að segja skjölum á jóladag,“ sagði William Lerach, sem hefur höfðað mál gegn fyrir- tækinu. Að sögn lögfræðings En- ron, er málið í rannsókn. Maureen Castaneda, fyrrverandi deildar- stjóri hjá fyrirtækinu, segir að eyðing skjalanna hafi hafist í síð- ari hluta nóvember og hafi haldið áfram þar til um miðjan janúar- mánuð. Kom hún fram í viðtali á ABC-sjónvarpsstöðinni og sýndi þar kassa með tættum skjölum sem talið er að starfsmenn Enron SÝNIR TÆTT SKJÖL Á þessu myndbandi ABC-fréttastofunnar, sést fyrrverandi deildarstjóri hjá Enron, Maureen Castaneda, skoða skjöl sem talið er að Enron hafi eytt á höfuðstöðvum sínum í Houston, eftir að opinber rannsókn á starfsemi fyrirtækisins hófst. hafi eytt til aðlosa sig við sönnun- afar viðfangsmikil og alræmd," argögn. „Eftir því sem við vitum sagði Lerach í samtali við AP- var eyðileggíþg sönnunargagna fréttastofuna á mánudagskvöld. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.