Fréttablaðið - 23.01.2002, Síða 7
MIÐVIKUDflGUR 25. janúar 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
7
ísraelsmenn drápu fjóra Hamas-menn 1 Nablus og ellefu ísraelar skotnir í hefndarskyni í Jerúsalem:
Hamas hótar,, allsherj ar str íði*(
NABLUS.VESTURBAKKANUM.flP Allt að 11
manns létust þegar byssumaður hóf
skothríð á gangandi vegfarendur í
Jerúsalem í gær. Var hann skotinn
til bana af lögreglu nokkrum minút-
um eftir að skothríðin hófst. Talið er
að Palestínumaður háfi verið að
verki og að hann hafi viljað hefna
dráps fjögurra Hamas-manna í
Nablus.
Hamas-samtök palestínskra upp-
reisnarmanna hótuðu því í gær að
heyja „allsherjarstríð" gegn ísrael-
um í hefndarskyni fyrir morð ísra-
elshers á fjórum meðlimum sam-
takanna í gærmorgun. Mennirnir
voru myrtir eftir að ísraelar óku
með skriðdreka sína inn í borgina
Nablus á Vesturbakkanum. Réðust
hersveitir þeirra inn í byggingu þar
sem grunur lék á að meðlimir Ham-
as-samtakanna héldu sig og létust
fjórir Hamas-liðar eftir skothríð við
ísraela. Mikið af sprengiefni fannst
í byggingunni. Níu grunaðir hryðju-
verkamenn voru handteknir.
Á sama tíma drógu hersveitir
ísraela sig til baka frá Túlkarem,
sem er skammt frá Nablus, eftir 30
daga hersetu. Talið er að hersveit-
irnar muni þó umkringja bæinn enn
um sinn, eftir „vel heppnaða að-
BYGGING HAMAS-UÐA
Palestínumenn söfnuðust saman fyrir utan
bygginguna þar sem meðlimir Hamas-
samtakanna voru handteknir í bænum
Nablus á Vesturbakkanum.
gerð,“ gegn palestínskum hryðju-
verkamönnum. 11 menn grunaðir
um hryðjuverk eru nú í haldi þeirra
eftir að hafa verið handteknir í
bænum.
Hamas-samtökin hétu því í síð-
asta mánuði að hlýða að hluta til
kalli Yasser Arafat, leiðtoga Palest-
ínumanna, um vopnahlé við ísraela.
„Röð fjöldamorða, þar á meðal það
sem átti sér stað í dag [í gær] í
Nablus, opnar dyrnar fyrir allsherj-
arstríði gegn her síonista og land-
nemunum, fyrir alla muni og á öll-
um stöðum," sagði í fréttabréfi sem
Hamas-samtökin dreifðu í gær. ■
LÖGREGLUFRÉTT
Amazon.com kom Wall Street í
opna skjöldu í gær með því að
tilkynna rekstrarafgang á síðasta
ársf jórðungi. Velta fyrirtækisins á
tímabilinu var rúmur milljarður
bandaríkjadala og fór vel yfir spár
fjármálasérfræðinga. Rúmt ár er
síðan Amazon hóf að lofa fjárfest-
um hagnaði. Bréf félagsins fóru í
12,40 dollara sem er 20% hækkun.
Bandaríska verslunarkeðjan
Kmart sótti um greiðslustöðv-
un í gær eftir slakt gengi á síðasta
ári. Verði beiðnin samþykkt mun
félagið fá tímabundna vernd frá
lánadrottnum og birgjum. Kmart
hefur aflað sér fjármagns til að
halda starfsemi óbreyttri um sinn,
en það hefur átt erfitt með að fóta
sig í samkeppni við WalMart.
SUÐURLANDSBRAUT 14
Verið er að leita að nýju húsnæði fyrir
þessa nýju stofnun sem er einnig til húsa
að Skúlatúni 2.
Umhverfis- op heilbrigð-
isstoía:
Arleg velta
vel á annan
milljarð
borgin Um áramótin tók til star-
fa Umhverfis -og heilbrigðis-
stofa Reykjavíkur. Forstöðu-
maður hennar er Ellý K.J. Guð-
mundsdóttir sem flytur hingað
til lands frá Bandaríkjunum. Ár-
leg velta þessarar nýju stofnun-
ar er áætluð vel á annan milljarð
króna. Örn Sigurðsson skrif-
stofustjóri segir að verið sé að
leita' að nýju húsnæði fyrir
stofnunina því ætlunin sé að
hafa alla starfsemi hennar undir
sama þaki. Hann segir að verið
sé að skoða sjö möguleika fyrir
nýju húsnæði.
Markmiðið með þessari nýju
stofnun er að efla stjórnsýslu
borgarinnar á sviði umhverfis-
mála og auka vægi málaflokks-
ins í stjórnkerfi hennar. Þessi
nýja stofnun skiptist í fimm fag-
deildir. Það eru garðyrkjudeild,
hreinsunardeild, hollustuþætti,
mengunarvarnir, matvælaeftir-
lit og eina stoðdeild, Staðardag-
skrá 21 - Umhverfisáætlun
Reykjavíkur. Auk þess heyrir
Vinnuskóli Reykjavíkur undir
svið stofnunarinnar en verður
áfram undir sérstakri stjórn. ■
LÖGREGLUFRÉTT |
Menn á þrítugsaldri voru
handteknir í gærmorgun
þegar þeir voru að brjótast inn í
söluturn á Ártúnshöfða. Þegar
leitað var í fórum þeirra fundust
verkfæri sem kom í ljós að voru
í eigu verktaka í Hafnarfirði.
Verktakarnir voru með aðstöðu í
Áslandi, nýju hverfi í Hafnar-
firði. Voru þetta bæði loftpress-
ur og rafmagnsverkfæri. Tækj-
unum hefur verið komið til sinna
fyrri eigenda. Mennirnir voru
yfirheyrðir í gær og málið telst
að fullu upþlýst.
8 bitar, stór franskar og Pepsi
Kr. 1.999
• Reykjavík • Hafnarfirdi
Selfossi • Kópavogi • Mosfellsbæ
• Opiö alla daga frá kl: 11.00 - 22.00
savaiio krónur. ■ áiiugajiíifa a malaímn