Fréttablaðið - 23.01.2002, Page 11
IVIIÐVIKUDACUR 23. janúar 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
11
Faðir myrti dóttur sína:
Hún dó fyrir
svíþjóð Fadima, 26 ára Kúrdi,
sem búsett hefur verið í Svíþjóð í
fjölmörg ár var í fyrrakvöld
myrt af föður sínum. Ástæðan
morðsins er ást hennar á sænsk-
um manni. Hún braut í bága við
vilja föðursins sem vildi að hún
færi til Tyrklands og giftist
kúrdískum frænda sínum. Málið
hefur vakið gífurlega athygli í
Svíþjóð.
Faðirinn játaði þegar í gær að
hafa myrt dóttur sína. Hann hef-
ur, rétt eins og bróðir hennar,
hótað því í fjölmörg ár að láta til
skarar skríða gegn dótturinni.
Hinn sænski kærasti Fadimu lést
í bílslysi í ársbyrjun 1998, sköm-
mu áður en hún ætlaði að hefja
með honum sambúð. Viku síðar
misþyrmti bróðir. hennar henni
hrottalega. Hann hlaut fimm
mánaða fangelsi fyrir. Fadima
sagði í viðtali við sænsk blöð að
hún væri ekki í vafa um að morð-
hótanir feðgana væru raunveru-
legar.
Það var dóttirin sem kærði
feðgana á sínum tíma til lögregl-
unnar og sagðist hún gera það til
að vekja athygli á vandamálinu.
Kæran gæti einnig varpað ljósi á
iaaa»rjarjM»1
ástina
vanda annarra innflytjenda í
svipuðum sporum.
Þegar hún var myrt var
Fadima á leið til systur sinnar.
Hún hugðist kveðja hana áður en
hún færi úr landi til að sinna
lokaverkefni sínu í háskólanum.
Móðir hennár var einnig á staðn-
um þegar faðir henriár birtist
með byssu í hendi og skaut dóttur
sína til bana. ■
FADIMA
Öll fjölskylda hennar snerist
gegn henni þegar-hún varð
ástfangin af sænskum manni.
INNLENT
Lögreglurannsókn á Skerjafjarð-
arslysinu um verslunarmanna-
helgina 2000 er lokið. Rannsóknin
fór fram að ósk feðra tveggja pilta
sem létust í slysinu. Málinu verður
líklega vísað fljótlega til ríkissak-
sóknara sem tekur ákvörðun um
hvort ákæra verður gefin út. RÚV
. greindi frá.
Halldór Ásgrímsson átti í gær
fund með utanríkisráðherra
Spánar, þar sem rædd var staða
EES-samningsins, málefni SÞ, bar-
áttan gegn hryðjuverkum o.fl. Ráð-
herrarnir undirrituðu á fundinum
samning milli íslands og Spánar til
að komast hjá tvísköttun og til að
koma í veg fyrir undanskot á
skattlagningu á tekjur og eignir.
R AÐAUCLÝSINCAR
Verslunar- iðnaðar-
og skrifstofuhúsnæði
500 til 1500 fm til leigu á fyrstu hæð að Faxafeni 8.
(næsta hús við Hagkaup í Skeifunni 15)
Hægt er að skipta húsnæðinu niður í smærri einingar.
Einnig er til leigu 200 - 600 fm. á annari hæð.
Vinsamlega hafið samhand í síma
5872640 eða 5672121
Tillaga að Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001- 2024
I samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, er hér með auglýst til kynningar tillaga að
Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024.
Skipulagstillagan er sett fram í greinargerð á þéttbýlisuppdrætti sem'
sýnir þróun byggðar, landnotkun og helstu umferðaræðar í Reykjavik
og á sveitarfélagsuppdrætti sem sýnir landnotkun utan þéttbýlis í lög-
sagnarumdæmi Reykjavíkur. Greinargerð er skipt i þrjá hluta:
■ Stefnumörkun
■ Lýsing aðstæðna, forsendur, skýringar og rökstuðningur
með stefnumörkun
■ Þróunaráætlun miðborgar, landnotkun.
Umhverfismat aðalskipulagsins og þemaheftin Umhverfi og útivist og
Húsvernd í Reykjavík munu liggja frammi með tillögunni. Umsögn Skipu-
lagsstofnunar um tillöguna og athugasemdir Skipulags- og byggingar-
sviðs við hana munu jafnframt liggja frammi.
Tillaga að Aðalskipulagi Reykjavikur 2001-2024 liggur frammi
á eftirtöldum stöðum, frá 23. janúar 2002 til 6. mars 2002:
■ Kynningarsal Skipulags- og byggingarsviðs að Borgartúni 3
■ Ráðhúsi Reykjavíkur
■ Borgarbókasafni Reykjavikur við Grófartorg
■ Þjóðarbókhlöðu við Arngrimsgötu
■ Menningarmiöstöðinni Gerðubergi, Breiðholti
■ Miðgarði, fjölskylduþjónustu í Grafarvogi
Þéttbýlisuppdráttur tillögunnar verður til sýnis víða um borgina á
upplýsingaskiltum Reykjavíkurborgar frá 28. janúar til 16. febrúar •
2002. Einnig er hægt að kynná sér efni tillögunnar á www.revkiavik.is
Athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til Skipulags- og
byggingarsviðs Reykjavikurborgar, Borgartúni 3, 105 Reykjavik,
merkt Aðalskipulag Réykjavíkur 2001-2024, eigi síðar en 6. mars
2002.
Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna innan tilskilins
tima teljast samþykkir tillögunni.
FRÉTTABLAÐIÐ
Holl og vellaunuð morgunhreyfing
Við óskum eftir blaðberum til að bera
út Fréttablaðið í eftirtalin hverfi:
Vesturbæ
Fossvog,
Garðabæ,
Vesturbæ Kópavogs
Þeir sem áhuga hafa geta hringt
í síma 515 7520
Virka daga kl. 10:00-16:00
Lágafellsskóli
í Mosfellsbæ
Má bjóða þér að taka þátt i öflugri liðsheild
í nýjum skóla með
jákvæðu, áhugasömu og dugmiklu starfsfólki ?
Auglýst er starf stuðningsfulltrúa fjóra daga vikunnar fyrir
hádegi. Um er að ræða 40 til 50% starf.
Umsóknarfrestur er til 5. febrúar næstkomandi og umsókn-
um ber að skila í Lágafellsskóla fyrir þann tíma á eyðublöð-
um sem fást í afgreiðslu Bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar á
fyrstu hæð í Kjarna, eða á skrifstofu skólans.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags
Mosfellsbæjar við Launanefnd sveitarfélaga.
Upplýsingar um starfið eru veittar í síma 525 92 00 af Birgi
Einarssyni, Sigríði Johnsen eða Jóhönnu Magnúsdóttur.
Skólastjórnendur Lágafellsskóla
V- J
Diskótek
Sigvalda Búa
allar græjur - öll tónlist
upplýsingar í síma
898 6070
Húsasmíðameistari getur bætt við
sig inni og úti verkefnum svo sem
glerísetningum, glugga og hurða-
smíði, utanhússklæðningar milli-
veggir og fleira. Tilboð og tima-
vinna. Upplýsingar í sima
895 3430 og 897 0941.
Aug
lysinga
sími
FRETTABLAÐIÐ
RAÐAU GLÝSINGAR
515 7522