Fréttablaðið - 23.01.2002, Page 17
IVilÐVIKUDAGUR 23. janúar 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
n
FRÉTTIR AF FÓLKI
[ÉNÍGMA kl. 5.40,8 og 10.20 ffHJ]
|THE PLEDGE kl. 8 og 10.2Öin
| ATLANTIS m/ ensku tali ZÆD
i obbie Williams hefur veriö
i.duglegur að mæta á AA fundi
í Los Angeles, þar
sem hann dvelur
nú. Hann segist
hafa verið edrú í
eitt ár og að fund-
irnir séu það eina
sem haldi honum
gangandi. Hann
segir það mun
auðveldara að
vera edrú í Los Angeles en
London og að hver dagur sé bar-
átta. Söngvarinn er í sex mánaða
fríi frá iðju sinni.
Utgáfufyrirtækið London náði
að gera sex plötu samning
við Dannii Minogue, lítlu systur
Kylie. Fimrn fyrirtæki voru víst
að berjast um söngkonuna. Stúlk-
an komst í annað sæti breska list-
ans í nóvember þegar hún söng
lagið „Who do you love now?“.
Talsmenn fyrirtækisins segjast
ætla að gefa út fyrstu smáskíf-
una í sumar og fylgja henni eftir
með breiðskifu í haust.
Kvikmyndin Amélie er orðinn
aðsóknamesta,franska kvik-
mynd í Bandaríkjunum frá upp-
hafi. Myndin er orðuð við Óskar-
stilnefningu og eru menn bjart-
sýnir um að ef hún fái hana hljóti
hún einnig verðlaunin. Myndin
hefur þegar tekið 20,9 milljónir
dollara í kassan og er leikstjórinn
Jean Pierra-Jeunet líklegast í
skýjunum yfir velgengninni.
X-FILES
jENIGMA M.3.4ÍT5.40. Fög 10.2o[|^
jOCEAN'S 11 kLlo|j^
jATLANTIS m/lsltali kl. 5,45jl^TTj
1HARRY POITER m/ ísL tali kLsjj^
LMUOMVfctil 94, SIMI 551 6500
[THE MAN WHO WASN'T- kl. 530,8 og 103o]
jSHALLQW HAL kl. 5.45,8 og 10.20 j
ZOOLANDER
kl. 6 Og 8;
REGílBOGinn
x- i 1?.L-„V. „ v •. BisntsJ;Va»L 's.tn ivCr ihic.
Hak
j Sýnd kÍ. 5.30, 8 og 10.30
|JALLA jalla ki. 6, 8 og 10|
(SERENDIPnY kl. 6. 8 og lof
[bandits kl. 10.30 j
LEGALLY BLONDE kl. 6 og 8 [
fc- - - —4
1 QGDolby ÍDÐ/.. TRx
Hljómsveitin Trabant:
Eiga smáskífu mánaðar-
ins hjá Muzik Magazine
tónlist Tónlist hljómsveitarinnar
Trabant, sem gaf út frumraun sína
„Moment of truth“ fyrir síðust jól,
hefur verið að fá afbragðsdóma í
erlendum tónlistartímaritum. Smá-
skífa þeirra „Enter Spacebar" var
t.d. valin smáskífa mánaðarins hjá
breska tímaritinu Muzik Magazine.
Blaðamenn hjá New York Times
nefndu sveitina einnig þá áhuga-
verðustu sem þeir sáu í heimsókn
sinni til landsins á síðustu Iceland
Airwaves tónleikahátíð. Erlendu
blöðin líkja tónlist Trabants jafnan
við Jimi Tenor, Kraftwerk, Ster-
eolab og Air.
Þó svo að hljómsveitin sé nokk-
uð ný af nálinni hafa liðsmenn
hennar verið afar áberandi í tón-
listarlífinu hér á landi um árabil.
Trabant er samstarfsverkefni Við-
ars Hákonar Gíslasonar og Þor-
valdar Gröndal. Þeir hafa starfað
saman áður í hinum ýmsu hljóm-
sveitum, s.s. Púff og The Funerals.
Á tónleikum eru liðsmenn þó tölu-
vert fleiri en þá bætast jafnan við í
aftursæti Trabantsins þeir Úlfur
Eldjárn, Ragnar Kjartansson,
Hlynur Aðils, Egill Sæbjörns, Ólaf-
ur Jónsson og Samúel J. Samúels-
son. Plata þeirra var gefin út af
TMT Entertainment, sem er undir-
fyrirtæki Thule Musik, hér á landi
en plötunni verður dreift erlendis í
febrúar. ■
Pcggy Lee:
Djassstúlka kveður
Þættirnir eru ekki eins vinsælir og áður og
framleiðslu verður hætt í vor.
Vinsæll þáttur deyr:
Síðasta Ráð-
gátan í vor
sjónvarp Ákveðið hefur verið að
hætta að framleiða sjónvarpsþætt-
ina um X-Files (Ráðgátur) þar sem
alríkislögreglumenn leita að og
finna geimverur og óhugnanleg
samsæri hvert sem litið er. Þáttun-
um hefur verið sjónvarpað í níu ár
en nú er Fox-sjónvarpsstöðin búin
að lýsa því yfir að í vor verði hætt
við þáttinn. Maðurinn á bak við X-
Files heitir Chris Carter og hann
segir við blaðamenn að aðstandend-
ur þáttanna hafi viljað hætta á
toppnum. Helsta stjarna þáttanna,
Gillian Anderson sem leikur Scully,
var líka búin að lýsa því yfir að hún
vildi fara að snúa sér að öðrum
hlutum. Flestir telja þó að það sé
nokkuð síðan X-Files voru á toppn-
um enda hafa kannanir gefið til
kynna að stór hluti aðdáenda hafi
snúið baki við þáttunum eftir að
David Duchovny hætti að leika
Mulder. Margir hafa engu að síður
haldið tryggð við þættina og að
meðaltali horfa um 8,7 milljónir
Bandaríkjamanna á þá í hverri
viku. Verið er að kanna möguleik-
arja á að'Mulder snúi aftur ogjjgimi
frkm i einlivCTjmir'lok'aþá'itáTngry
tónlist Djass söngkonan og
Grammy verðlaunhafinn Peggy
Lee, sem m.a. gerði lögin
„Fever“ og „Is That All There
Is?“, lést á heimili sínu í Bel Air
Los Angeles á mánudag. Hún
hafði átt við veikindi að stríða í
langan tíma og gaf hjarta hennar
sig á endanum. Söngkonan var
81 árs gömul.
Peggy Lee kom fyrst fram í
sviðsljósið árið 1941 er hún var
ráðin til þess að syngja með
hljómsveit Benny Goodmans.
Síðar giftist hún David Barbour,
gítarleikara sveitarinnar. Söng-
ur hennar heillaði einnig kvik-
myndaframleiðendur upp úr
skónum og fór hún með hlutverk
í nokkrum kvikmyndum. Þar á
meðal The Jazz Singer og
Midnight Serenade. Frægasta
hlutverk hennar var þó í mynd-
inni Pete Kelly’s Blues og hlaut
hún tilnefningu til Óskarsverð-
launanna fyrir. Hún samdi ein-
nig lög og söng fyrir Disney
teiknimyndina The Lady is a
lYamp sem kom út árið 1955.
Lee fékk þó ekki krónu í höfund-
J aj-laun fyrif teikn^myndina' fyr^j
PEGGY LEE
Fékk um 2,3 milljónir dollara greidda i
skaðabætur árið '91 eftir langa og harða
lagabaráttu við Disney fyrirtækið.
langa og harða baráttu við Disn-
ey fyrirtækið. Peggy Lee vann
Grammy verðlaunin fyrir besta
djasslagið árið 1969.
Árið 1999 fékk hún hjartaá-
fall auk þess sem hún greindist
með sykursýki. Hún fór í hjarta-
aðgerð fyrr á árinu en jafnaði
sig aldrei að fullu. Það var dóttir
Peggy Lee sem gaf út dánartil-
kynningu móður sinnar á heima-
síðu söngkonunnar nokkrum
klukkustundum eftir andlátið.
Hún sagði að móðir sín hefði alla
tíð fundið fyrir miklum stuðn-
ingi og.jþakklæti í sipn garö frá
æðdáeifdum. ■ ---- ---------
Á GEISLANUM
Fínt en ekkifrábœrt
Með síðustu plötu sinni skipti
hljómsveitin Pulp um lit og
losaði sig viljandi undan þeim
óskrifuðu skyldum sem almenn-
ingur leggur á poppsveitir. Plat-
an „This is hardcore" var allt
það sem titillinn lofaði, nýþung
úthugsuð niðursveifla, og eðli-
lega voru gagnrýnendur því
hrifnir þó að meginstraumurinn
hafi klórað sér í hausnum og
snúi við þeirn baki.
Enginn gat því vitað í hvorn
fótinn Pulp-liðar myndu stíga
næst, popp eða flopp?
Sem betur fer er bjartara
yfir nýju Pulp plötunni en þeirri
sem á undan var. Ekki það að sú
plata hafi ekki verið fín, heldur
að persónulega finnst mér upp-
sveiflu Pulp skemmtilegri en
Pulp á bömmer. Pulp sönnuðu
það á plötunum „His’n Hers“ og
„Different Class“ að innanborðs
eru afbragðs poppsmíðarar.
Það kveður þó við nýjan tón á
nýju plötunni. Menn orðnir af-
slappaðri og greinilega jarð-
bundnari, ef eitthvað má marka
lagaheiti á við „Weeds“, „Trees“
og „Birds in your garden". Ní-
unda áratugar áhrifin eru nán-
ast alveg .-horön j)g vió tekin
FU
PULR
WE LOVE UFE
sveitakassagítarsblær. Vandað
er til verka og lögin mörg nokk-
uð skemmtileg, en því miður er
ekkert þeirra eins eftirminni-
legt og „Do you remember the
first time?“ eða „Common
People". Þannig að niðurstaðan
er að þó að maður sé ánægður að
heyra gott nýtt og uppörvandi
efni frá þessari afbragðss ..:i,
saknar maður enn þeirra skot-
heldu popplagasmíða sem 1.
uðu mann upphaflega að sveit-
inni. Hinn lúðalegi og stressaði
Jarvis stórborgarinnar var
skemmtilegri og fyndnari er.
heiðarlegi sveitalubbinn sem
hann er orðinn að.
Birgir Örn Steinarsson