Fréttablaðið - 23.01.2002, Page 22
FRÉTTABLAÐIÐ
FRÉTTIR AF FÓLKI
Innan raða Samfylkingar og
Framsóknarflokks ágerast nú
þær raddir sem telja líkur á því
að VG komi til með að setja sam-
starf flokkanna um R-lista í
voða. í dag kemur saman samn-
inganefnd flokkanna til að ræða
niðurstöðu vitringaráðsins sem
gert hefur tillögu að skiptingu
sæta á framboðslista milli flokk-
anna. Sigríður Stefánsdóttir, full-
trúi VG, hefur sagst vita af óá-
nægju með tilhögunina og hefur
blaðið heimildir fyrir því að
Samfylkingarfólk og Framsókn-
armenn óttist að VG heimti
meira út úr samstarfinu. Sagt er
að innan raða VG sé horft til
sterkrar stöðu hreyfingarinnar í
skoðanakönnunum og að í krafti
þeirrar stöðu vilji menn fara
fram á aukið vægi á framboðs-
listanum í vor.
FRÉTTIR AF FÓLKI |
Utspil Ingu Jónu Þórðardóttur
hefur aldeilis breytt miklu.
Margir eru
þeirrar skoðun-
ar að hún hafi
leikið afar
sterkan leik.
Löngu er ljóst
að hún átti ekki
mikla mögu-
leika í keppni
við Björn
Bjarnason.
Með ákvörðun sinni, um að ætla
ekki að sækjast eftir oddvitasæt-
ir.u en frekar því áttunda trygg-
ir hún að Björn á enga kosti.
Hann verður
að bjóða sig
fram. Það er
slæmt fyrir
Björn að hafa
ekki orðið fyrri
það
var
Inga Jóna sem
tók af skarið.
Vék af sviðinu og bauð honum að
g a svo vel. Nú er það Björns
ív . aka slaginn við Ingibjörgu
S...,unu Gísladóttur.
T /Tikil vinna bíður Björns
iVXBjarnasonar. Hann á eftir að
revna að endurheimta meirihluta
í borginni. Á
þeirri leið mun
hann þurfa að
eyða talvserðri
orku í að skýra
hvers vegna
hann tók svo
langan tíma í að
ákveða hvort
sæktist eftir
borgarstjóra-
sætinu eða ekki. Eflaust verður
hann sakaður um kjarkleysi og að
vera seinn til ákvarðana. Björn
geldur þess að í raun var það ekki
hann sem tók af skarið heldur var
það Inga Jóna Þórðardóttir.
Ekki er víst hvernig mál þróast
í væntanlegum átökum Geirs
H. Haarde og Björns Bjarnason-
ar. Takist Birni ekki að vinna
borgina er ljóst að hann verður í
afar vondum málum og á ekki
miklar vonir
um glæsta
sigra. Takist
honum að
I vinna borgina
verður það
ekki bara hans
- heldur einnig
Ingu Jónu
Þórðardóttur
sem skóp frið-
inn innan flokksins. Þess vegna
er áhætta þeirra hjóna, Geirs og
Ingu Jónu, lítil sem engin. Sigur-
möguleikar þeirra eru hins vegar
miklir. Eins og staðan er í dag er
allt sem bendir til að Geir hafi
styrkst í baráttunni um næsta
formann flokksins - en Björn eigi
á brattann að sækja.
Jafnframt er ljóst að Björn
Bjarnason er kominn í þá
stöðu að þurfa að leggja gjörvall-
an sinn pólitíska feril að veði í
borgarstjórnarkosningunum.
Sjálfsagt hefði verið þægilegast
fyrir hann að setjast í 8. sæti list-
22
George Harrison:
Aftur á toppnum
tónlist Endurútgáfa smáskífu hlé-
dræga Bítilsins George Harrison,
„My Sweet Lord“, fór beint í efsta
sæti breska sölulistans á útgáfudegi
sínum. Smáskífan kom upphaflega
út árið 71 og fór þá sömu leið. Ut-
gáfufyrirtæki Harrisons, EMI, gaf
út lagið eftir að poppstjörnur á borð
við Bono, fjölmiðlar og aðrir Bítlaað-
dáendur hvöttu ráðamenn til þess
skömmu eftir fráfall hans þann 29.
nóvember á síðasta ári. Allur ágóði
plötusölunnar rennur óskiptur til
góðgerðasamtaka sem I-Iarrison
stofnaði sjálfur árið 1973.
Lagið var upphaflega að finna á
þriðju breiðskífu Harrisons, All
Things Must Pass, sem er oftar en
ekki talin vera hans besta heildar-
verk. Á henni safnaði hann saman
þeim lögum úr lagabanka sínum sem
félagar hans í Bítlunum höfðu neitað
á starfsárum þeirra. Það er svo kald-
hæðni örlaganna að Harrison var á
sínum tíma sakaður um að hafa
stolið laginu af The Chiffons en lag
þeirra „She So Fine“ þykir afar
keimlíkt. Harrison var dreginn fyrir
rétt vegna þessa og tapaði öllum höf-
undarréttindum sínum af laginu til
ákærendanna.
Það vakti einnig athygli að vikuna
áður en lag Harrisons fór á toppinn
sat þar lag söngkonunnar Aaliyah en
hún lést einnig á síðasta ári. Þetta
var því aðra vikuna í röð sem minn-
ing látins listamanns skaut hinum
lifandi ref fyrir rass.
SOÐLAR UM EFTIR 35 AR
Gunnlaugur Sigurðsson var skólastjóri í Garðabæ frá 1966 til ársloka á síðasta ári þeg-
ar hann tók við starfi ráðgjafa um samskipti heímila og skóla. Hann segist I starfi sínu
sem skólastjóri hafa lagt mikla áherslu á gott samstarf við foreldra.
Foreldrar eru
sterkustu banda-
menn skólanna
Gunnlaugur Sigurðsson ráðgjafi um sam-
skipti heimila og skóla á Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur leggur áherslu á að beina sjón-
um að líðan barnsins við lausn ágreinings
milli heimila og skóla.
skólamál „Starfið er hugsað til
þess að foreldrar, fyrir hönd
barna sinna, geti átt sérstakan
málsvara innan vébanda yfir-
stjórnar skólanna," segir Gunn-
laugur Sigurðsson. „Foreldrar
geta leitað til Fræðslumiðstöðv-
ar og fengið upplýsingar um
hugsanlega réttarstöðu sína,
þjónustu skólanna og leiðir til
að leysa mál sem hafa stundum
orðið alvarleg vegna þess að
fólk hefur ekki haft nægan tíma
til að tala saman.“
Gunnlaugur sinnir einnig
kvörtunum og vinnur að lausn
ágreiningsmála sem upp koma
milli barna og foreldra þeirra,
annars vegar, og starfsmanna
skóla hins vegar. „Þá þarf að
leiða saman menn og finna far-
sæla lausn fyrir barnið. Við get-
um átt lagalegan rétt en eigum
að beina sjónum okkar fyrst og
fremst að barninu og liðan þess.
Ekkert ágreiningsefni er svo
stórt að ekki sé hægt að leysa
það ef allir leggja sig fram og
gera sitt besta.“
Gunnlaugur segist í skóla-
stjórastarfinu hafa skynjað að
sterkustu bandamenn hans við
að bæta skólastarfið væru for-
eldrarnir. „Hlutverk skólanna
er að styðja við bakið á foreldr-
um sem eru að ala upp börnin
sín og koma þeim til mennta og
manns. Stjórnendur og starfs-
menn skólanna hafa enga betri
stuðningsaðila en foreldrana
sem njóta þjónustunnar. Þess
vegna er gríðarlega mikilvægt
að eiga gott samstarf við for-
eldra og samtök þeirra, SAM-
FOK, sem eru öflug og skipu-
lögð og vinna frábært starf.“
Rannsóknir sýna að því betur
sem foreldrar sinna skólagöngu
barna sinna því betur vegnar
þeim í skóla. Að mati Gunnlaugs
er því afar mikilvægt að for-
eldrar sýni áhuga á því sem
börnin eru að fást við í skólan-
um og komi í heimsókn þangað,
líka utan formlegra viðtalstíma.
„Foreldrar sinna skólagöngu
barna sinna ákaflega vel fyrstu
skólaárin," segir Gunnlaugur en
hætta getur verið á að þeir fjar-
lægist skólana þegar líður á
skólagöngu barnsins.
steinunnnfrettabladid.is
ans og vera laus mála mistakist
sjálfstæðismönnum að ná meiri-
hluta í borginni. Eftir útspil Ingu
Jónu er sá möguleiki illfær.
Þannig blasir við Birni að hann á
um tvennt að velja; annars vegar
að endurheimta borgina fyrir
flokkinn sinn, ýta Geir H. Haarde
til hliðar og verða þar með sjálf-
kjörinn arftaki Davíðs Oddsson-
ar. Tapist kosningarnar bíður
hans hins vegar að hafa sagt af
sér ráðherradómi til þess að
verða oddviti minnihluta sjálf-
stæðismanna í borgarstjórn, en
það starf er orðin einhver ömur-
legasta endastöð fyrir pólitískan
feril sem um getur.
s í ,
Spá- og
læknamiðill
Eru tilfinningarnar eða fjár-
málin í ólagi eða ert þú bara
forvitin um framtíðina?
Tek fólk í einkatíma
Sími 905-7010
í spásímanum 9086116 er
spákonan Sirrý og spáir í
ástir og örlög framtíðar.
Einnig tímapantanir fyrir
einkatíma í sama síma.
Tarotlínan sími 908 5050
tarotlestur, miðlun, draumráðningar.
Fínsvör um hjónabandið, ástina,
heilsuna, fjármálin, símatími 18-24
Spámiðillinn Yrsa
Beint samband
S. 908-6414
149.90 mín.
Ástarmálin - Fjármálin
Vinnan - Heilsan
www. tarot. is
Tarotnámskeið:
Áhugavert - Öflugt - Allt árið
Fjarnám - Bréfaskóli
Uppi. og skráning á www. tarot. is
og í síma 553-8822
Spámiðlun
- miðlun
Lífssporin úr fortíð í
nútíð og framtíð.
Tímapantanir í síma:
561 5756 og 821 5756.
Einnig er ég við á kvöldin
í síma: 568 2338
og svara fyrirbænum.
Andleg leiðsögn, miðlun, tarot, spilaspá,
draumaráðningar og huglækningar.
Leitum lausna við vandamáium.
Verð við frá kl.15-2
/' síma 908-6040. Hanna
SPÁMIÐLUN - MIÐLUN.
Lífssporin úr fortíð í framtíð og nútíð.
Upplýsingar og tímapantanir í simum
5682338 og 8725756
Iðnaður
Móta og kranaleigan
Til leigu byggingamót og kranar
Sími 565 49 66
Iðnaður
Ath. gegnheilt parket
frá 1470 krónur fm.
Gölfi
stan
Júlíus Júiíusson GSM 847 1481
Fagmennska í fyrirúmi
Ábyrgjumst öll okkar verk
ÞUSUND
ÞJALASMIÐIR
Tökum að okkur ýmis verkefni í
tengslum við íbúða-, húsa- og
fyrirteekjahúsnæði.
- raflagnir - parketlagnir - flísa-
lagnir - almenn smíðavinna
Tilboð eða tímavinna
Vönduð vinnubrögð
Uppl. gefnar í
s. 8673727 / 8653131
alla virka daga milli 10-18.
A+ verktakar
Bílabólstmn
Bílaklæðning
JKG
Mýhýlavegi 32 S
Sími 555 3344 & 694 4772
Hvort sem bíllinn er nýr eða
gamall, beyglaður eða bilaður,
þá getum við lagað hann.
Bílanes,
bifreiðaverkstæði
Bygggörðum 8,
s. 561 1190 og 899 2190
BÓNSTÖÐ
Reykjavíkur
Alþrif • Þvottur • Mössun
Lakkvörn • Umfelgun
Djúphreisun
Borgartún 21 b-
sími 551 7740
Gæðabón
Ármúla 17a
Önnumst alhliðaþrif
á bílum og lakkvið-
gerðir látið fagmenn
vinna verkið.
Sími 568 4310
Til sölu
Þessi glæsilegi Ford Thunderbird 1959,
allur sem nýr. Einnig 13 feta viking felli-
hýsi með útdraganlegri hlið árg 2000 og
Ford Focus high series árg 99.
Uppl í síma 5640090 eða 8205207