Fréttablaðið - 08.02.2002, Qupperneq 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KJÖRKASSINN
ÁFRAM HALLDÓR
Kjósendur á visi.is styð-
ja þá ákvörðun Hall-
dórs Blöndal að þagga
niður í Ögmundi
Jónassyni með vítum
fyrir að kalla fram í að
Halldór kynni skil á
háttvísinni.
Var rétt af Halldóri Blöndal, for-
seta Alþingis, að víta Ögmund
Jónasson fyrir að grípa fram í?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Heldur þú að afnám tolla og upptaka
beingreiðslna tii garðyrkjubænda skili
sér í lægra verði til neytenda?
Farðu inn á vísi.is og segðu 1
þína skoðun —
_____________
Kjaradeila flugum-
ferðarstjóra:
Rætt um
gerðardóm
flucið Áformuð lagasetning á eftir-
vinnubann flugumferðarstjóra er
talin verða í formi gerðardóms til
að höggva á þann hnút sem er í
kjaradeilu þeirra við ríkið. Sett
verði lög sem banni yfirvinnubann-
ið og feli gerðardómi að kveða á um
launakjör flugumferðarstjóra. Mik-
ið er rætt um þetta væntanlega út-
spil ríkisstjórnarinnar meðal þing-
manna. í gær fengu sumir þeirra að
kynnast þeim truflunum sem að-
gerðir flugumferðarstjóra höfðu á
flugið. Þá var m.a. ekki hægt að
fljúga til Akureyrar fyrr en eftir
klukkan 15. Fyrir vikið urðu þing-
menn Norðurlandskjördæmis
eystra að fljúga til Húsavíkur og
aka þaðan til Akureyrar að komast
á fund um atvinnu- og byggðamál
sem Samtök fyrirtækja á Norður-
landi stóðu fyrir. ■
—-♦—
Kveiktu óvart í
einbýlishúsi:
íkveikja frá
1998 upplýst
eldur Tveir ungir drengir báru
ábyrgð á því að fokhelt einbýlishús
að Esjugrund 1 á Kjalarnesi brann
til grunna í mars árið 1998. Hverf-
islögreglumaður í Mosfellsbæ og
Kjalarnesi upplýsti málið fyrir
skömmu.
Þegar málið var rannsakað
skömmu eftir að húsið brann kom í
ljós að kveikt hafði verið í því. Eng-
ar vísbendingar komu hins vegar
fram um það hverjir hefðu gert
það. Nýlega fékk lögreglan nýjar
upplýsingar um málið. Þær leiddu
til þess að grunur féll á tvo unga
drengi, sem játuðu verknaðinn.
Sögðu þeir að um óviljaverk hefði
verið að ræða. Þeir hefðu verið að
fikta með eld og eldfim efni og
óvart kveikt í húsinu.
Á sínum tíma voru sögusagnir
um að eigandi hússins hefði átt hlut
að máli og því þykir lögreglu sér-
stakt ánægjuefni að málið skuli nú
vera upplýst. ■
2
8. febrúar 2002 FÖSTUDAGUR
Enron-hneykslið hefur óbein áhrif á íslandi:
Aukið gegnsæi í
fjármálum fyrirtækja
Bush hittir Sharon
Slítur ekki
sambandi
við Arafat
washincton. ap Georg W. Bush,
Bandaríkjaforseti, ætlaði sér ekki
að samþykkja kröfu Ayiels Shar-
ons, forsætisráðherra fsrael, sem
fer fram á að Bandaríkjamenn
slíti stjórnmálasambandi við
Yasser Arafat, leiðtoga Palestínu-
manna. „Forsetinn mun lýsa því
yfir að Bandaríkjamenn ætla sér
að hafa áfram afskipti á svæðinu
og halda áfram að ræða við palest-
ínsk stjórnvöld,“ sagði Ari Fleis-
ARAFAT
HUGSI
Fundar með
stuðnings-
mönnum á
Vesturbakkan-
um en þar
hefur honum
verið haldið í
stofufangelsi
af fsraelum.
her, talsmaður Hvíta hússins.
Þessi fjórða heimsókn Sharons í
Hvíta húsið á innan við ári miðaði
einkum að því að tryggja áfram-
haldandi stuðning Bandaríkja-
manna við ísreala. Varnarmálráð-
herra ísrael, Ben-Eliezer, sagði
ísraelskum blaðamönnum að
Condolezza Rice, öryggisráðgjafi,
og Dick Cheney, varaforseti,
hefðu sagt sér að „ekkert þýddi“
að ræða við Arafat. ■
fjármál Evrópuþingið samþykkti
á þriðjudaginn breytingar á lög-
um um fjármálaþjónustu og
reikningsskil fyrirtækja. Breyt-
ingunum er ætlað að auka gegn-
sæi og koma í veg fyrir að í Evr-
ópu komi upp svipað hneyksli og
varð í Bandaríkjunum í kjölfar
gjaldþrots Enron. Stefán Svavars-
son, dósent við Háskóla íslands,
sagðist að búast mætti við því að
þessar reglur myndu taka gildi
hérlendis.
„Ástæðan fyrir því er einfald-
lega sú að reglur um reikningsskil
og íslensku ársreikningalögin byg-
gja á tilskipunum frá Evrópusam-
bandinu og við höfum skyldum að
gegna vegna aðildar okkar að Evr-
ópska efnahagssvæðinu," sagði
Stefán. „Við munum því þurfa að
lögleiða þær reglur sem lúta að
gegnsæi verðbréfamarkaðarins
eða hlutabréfamarkaðarins."
Stefán sagði það hans mat að
Alþjóðlega reikningskilanefndin
ætti frekar að hafa það hlutverk
að setja reglur á sviði reiknings-
kila, en Evrópusambandið. Það
hlutverk væri betur komið hjá
fagmönnum en opinberum emb-
ættismönnum. ■
Ráðherra sakað-
ur um valdníðslu
Stjórnarandstaðan gagnrýndi samgönguráðherra harkalega í gær. Rætt
var um stjórnsýslu ráðherra í máli trúnaðarlæknis Flugmálastjórnar.
alþingi Hörð gagnrýni kom fram á
störf Sturlu Böðvarssonar, sam-
gönguráðherra í utandagskrárum-
ræðum á Alþingi í gærmorgun.
Fjallað var um stjórnsýslu sam-
gönguráðherra í máli trúnaðar-
læknis Flugmálastjórnar. Margir
stjórnarandstöðu þingmenn not-
___t___ uðu tækifærið til
að segja málið
mikið klúður og
óeðlilegt að sam-
gönguráðherra
skipi sjálfur nefnd
til að fara yfir eig-
in embættisfærsl-
ur.
Lúðvík Berg-
vinsson, þingmað-
ur Samfylkingar-
innar, sem var
málshefjandi í um-
ræðunni, sakaði
valdníðslu þegar
Sturla Böðv-
arsson, sam-
gönguráð-
herra, sagði
að málflutn-
ingur Lúðvíks
Bergvinssonar,
þingmanns
Samfylkingar,
væri ómerki-
legur og
ósannur.
—♦—
ráðherra um
Sturla hafi tekið það upp hjá sjálf-
um sér að segja trúnaðarlækni
Flugmálastjórnar fyrir verkum.
Þá sagði hann nefnd sem ráðherra
skipaði til að fara yfir málið ótrú-
verðuga vegna tengsla við ráð-
herrann og nefndi að formaður
hennar væri lögmaður Símans til
langs tíma. Þannig hefði hann hag
af því að ganga ekki gegn hags-
munum handhafa eina hlutabréfs-
ins í Símanum.
Sturla sagði á móti að málflutn-
ingur Lúðvíks væri ómerkilegur
og ósannur. Hann sagði niður-
stöðu nefndar sem hann skipaði til
að fara yfir málið hafa hreinsað
ráðuneytið af öllum ásökunum um
óeðlilega stjórnsýsluhætti. Jafn-
framt sagði hann illa vegið að
mætum mönnum þegar vegið
væri að trúverðugleika nefndar-
innar og taldi óeðlilegt að tala
þannig um fjarstadda menn. „Það
er niðurstaða úttektarnefndarinn-
ar að stjórnsýsluúrskurður ráðu-
neytisins sé í samræmi við stjórn-
LÚÐVÍK BERGVINSSON
Lúðvík var málshefjandi í
utandagskrárumræðum á
Alþingi í gær um stjórn-
sýslu samgönguráðherra.
STURLA BÖÐVARSSON
Sturla sagði að nefnd sem
hann skipaði til að fara
yfir stjórnsýslu ráðuneytis-
ins (máli trúnaðarlæknis-
ins hafa hreinsað ráðu-
neytið af ásökunum.
ÁSTA R. JÓHANNES-
DÓTTIR
Ásta taldi að landið kynni
að einangrast og flugrek-
endur neyðast til að hafa
reksturinn í útlöndum ef
ekki væri að fullu fylgt al-
þjóðareglum um flugör-
yggi-
sýslureglur og hafi ekki falið í sér
neins konar afskipti af efni heil-
brigðisvottorðs eða af læknis-
fræðilegum atriðum," sagði hann.
Ásta R. Jóhannesdóttir, þing-
maður Samfylkingar undraðist að
lögfræðingar og fagfélög væru til
umsagnar um hver fengi heil-
brigðisvottorð og hvað í þeim
stæði. Hún taldi flugöryggi ógnað
þar sem hætta væri á að landið
félli úr samfélagi þjóða í flug-
rekstri. „Ég trúi því ekki að náin
frændsemi umrædds flugstjóra
við framkvæmdastjóra Sjálfstæð-
isflokksins ráði hér ferð eins og
hvíslað hefur verið,“ sagði hún.
Árni G. Sigurðsson, flugstjóri,
staðfesti í samtali við Fréttablaðið
að hann og Kjartan Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokks væru skyldir. „Við erum
náfrændur, þremenningar, en eft-
ir að við urðum fullorðnir höfum
við, þannig lagað, haft lítil sam-
skipti," sagði hann og bætti við að
hann hafi ekki leitað liðsinnis
Kjartans vegna sinna mála. „Mér
hefði kannski betur dottið í hug að
gera það,“ bætti hann við á léttu
nótunum.
oligJfrettabladid.is
EINN MAÐUR LÉST
Einn maður lést og ellefu slösuðust þegar
ökmaðurinn, sem Hæstiréttur dæmdi í
gær sekan, ók útaf brúnni yfir Hólsselskil
sumarið 2000.
Rútuslysið við
Hólsselskíl:
Sekur um
manndráp
af gáleysi
dómsmál Hæstiréttur dæmdi í
gær ökumann hópbifreiðar í 30
daga skilorðsbundið fangelsi fyrir
manndráp af gáleysi og til svipt-
ingar almenns ökuréttar í hálft ár
vegna brots á umferðarlögum.
Ökumaðurinn var einnig dæmdur
til að greiða allan sakar- og áfrýj-
unarkostnað. Héraðsdómur Vest-
urlands hafði áður sýknað mann-
inn.
Ökumaðurinn ók bifreiðinni
útaf brúnni yfir ána Hólsselskil á
Hólsfjöllum sumarið 2000 með 30
farþega innanborð. Einn maður
lést og ellefu slösuðust. Hæsti-
réttur telur sannað að maðurinn
hafi ekið of hratt og ógætilega
miðað við aðstæður. Talið var að
hann hafi verið á 43 til 54 km
hraða þegar hann fór inn á brúna.
Bifreiðin kom skökk inn á hana og
lenti hægri afturhjólbarðinn á
brúarstólpa þannig að bifreiðin
kastaðist til og valt út af brúnni.
í dómnum var litið til þess að
vegurinn að brúnni var nýheflað-
ur og laus í sér og hefði því þurft
að gæta sérstakrar varúðar vegna
þess. Þá kom fram í málinu að
ökumaðurinn hafði ekki mikla
reynslu í akstri hópferðabifreiða
þegar slysið varð og þekkti ekki
veginn eða umrædda brú. Var lit-
ið svo á að þetta hefði kallað á
aukna aðgæslu af hans hálfu. ■
Opið í Austurveri
frá 8:00 á morgnana
fil miðnæffis
Lyf&heilsa
í stað tolla verður grænmeti niðurgreitt um fasta krónutölu á hverja tegund:
Greiddar 190 kr/kg fyrir papriku
áður en komið er að búðarkassa
landbúnaður Þrjár grænmetisteg-
undir eru teknar sérstaklega út í
nýjum tillögum landbúnaðarráð-
herra um framtíð garðyrkjuræktar
á íslandi. Gúrkur, paprikur og
tómatar verða ekki vemdaðar með
magn- og verðtollum. Þess í stað fá
framleiðendur þessara tegunda
beingreiðslur úr ríkissjóði. Þær
nema 195 milljónum á ári. Niður-
greiðslurnar jafngilda því að áður
en neytendur koma að búðarkass-
anum verði búið að greiða 190 krón-
ur fyir hvert kíló af papriku, 82
kr/kg af tómötum og 73 kr/kg af
gúrkum.
Samkvæmt tillögum nefndar-
innar fer föst krónutala á ári í nið-
urgreiðslur á þessum tegundum
(sjá töflu). Sú krónutala deilist nið-
ur á framleitt magn hverrar teg-
undar. Greiðslur í ár miðast við
framleitt magn á þessu ári. Þeir
sem framleiddu þessar tegundir
árið 2001 eru þeir einu sem eiga
rétt á greiðslum á þessu og næsta
ári. Eftir það verður öllum frjálst
að framleiða þessar tegundir. Þessi
tvö ár eru hugsuð sem aðlögunar-
tími fyrir þá sem fyrir eru í grein-
inni.
Aukist selt magn innan ársins
lækka beingreiðslur hlutfallslega á
hvert kíló sem selt er. Minnki hins
BEINGREIÐSLUR TIL
FRAMLEIÐENDA
Heildargreiðslur Niðurgreiðsla
TÓMATAR 81 milljón 82 kr/kg
GÚRKUR 74 milljónir 73 kr/kg
PAPRIKA 40 milljónir 190 kr/kg
vegar selt magn hækkar greiðslan
fyrir hvert kíló.
Beingreiðslur til hvers framleið-
enda verða greiddar út mánaðar-
lega gegn framvísun reikninga sem
áritaðir eru af löggildum endur-
skoðanda. Aðeins er greitt fyrir selt
magn. Því er hagkvæmt fyrir fram-
leiðendur að framleiða ekki meira
en þeir sjá fram á að geta selt. ■