Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.02.2002, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 08.02.2002, Qupperneq 6
SPURNING DAGSINS Tekur þú mark á skoðanar- könnunum? Nei það geri ég yfirleitt ekki, burtséð frá þvi hver gerir þær. Hinrik Auðunsson verslunarmaður Frjálslyndi flokkurinn: Skiptar skodanir um efsta sætið FRAMBOÐSMÁL Skiptar skoðanir eru innan Frjálslynda flokksins í Reykjavík um þau áform að hafa Ólaf F. Magnússon fyrrverandi borgarfulltrúa sjálfstæðismanna í efsta sæti list- ans við komandi kosningar til borgarstjórnar. Það eru einkum stuðningsmenn Margrétar Sverr- isdóttir fram- kvæmdastjóra flokksins sem hafa gagnrýnt vegsauka Ólafs innan flokksins. Þeir hinir sömu vilja að hún skipi efsta sætið. Búist er við að fram- boðslisti flokksins verði tilbúinn um næstu mánaðamót og jafnvel fyrr. Margrét Sverrisdóttir segir að það séu einkum dyggir flokksmenn sem hafa haft í frammi þessa skoðun frá upp- hafi. Hún telur þó að þetta sé ekkert hitamál innan flokksins. Sjálf segist hún vera þakklát yfir því að flokksmenn skuli bera það mikið traust til hennar að vilja að hún leiði listann. Hún telur þó líklegra að hún muni skipa annað sæti listans, eða baráttusætið. Það yrði þá eins og hjá bæði D- og R-lista með Ingu Jónu og borgarstjóra í baráttu- sætunum. ■ MARGRÉT SVERRISDÓTTIR Segir að þetta sé ekkert hitamál í flokknum. FRETTABLAÐIÐ 8. febrúar 2002 FÖSTUDAGUR Stórfjölgun ferðamanna í hvalaskoðunarferðir: Flestir koma til Islands ferðaþjónusta Ásbjörn Björgvins- son, forstöðumaður Hvalamið- stöðvarinnar á Húsavík, segir marga ekki átta sig á mikilvægi hvalaskoðunar fyrir ferðaþjón- ustu á íslandi. Greinin hafi vaxið gríðarlega undanfarin ár og nú sé Húsavík stærsti einstaki staður- inn í Evrópu þar sem ferðamenn skoði hvali á sjó. „Það er töluverð- ur fjöldi ferðamanna sem kemur til landsins fyrst og fremst til að fara í hvalaskoðun," segir Ás- björn. Fólk sé vilji síður sjá hvali í stórum görðum heldur komi til íslands að sjá þá í sínu náttúru- lega umhverfi. Hann segir það ekki fara sam- an að sýna hvalina og skjóta þá um leið. „Við erum fullviss um, ef hrefnuveiðar hefjast hér við land, þá verða gæfustu dýrin skotin fyrst.“ Ásbjörn segir að mörg dýr- in séu farin að þekkja bátana, koma upp að þeim og leiki sér við þá, sem vekji óskipta athygli inn- lendra og erlendra ferðamanna. ímynd íslands myndi einnig stór- skaðast ef við veiddum hvali gegn samþykki okkar helstu viðskipta- þjóða. „Þessi grein er að skapa gríðar- leg verðmæti sem kæmu ekki til nema vegna þess að við höfum þessa hvalastofna við landið," seg- ir Ásbjörn. Hvalaskoðunarfyrir- tæki hafi náð að nýta þessa auðlind og skapa tekjur fyrir landsmenn. ■ FERÐAMANNAFJÖLDI I HVALASKOÐU NARFERÐUM 1995-2001 Fjölgun ferðamanna I hvalaskoðunar- ferðir hefur verið mun meiri hér á landi en annars staðar ( Evrópu. Nú koma flestir ferðamenn hingað til lands til að skoða hvali en áður hafði Noregur for- ystu. Tímabilið sem boðið er upp á þessar ferðir hefur líka lengst og nær nú frá apríl og fram í nóvember. Jaðartím- inn er bundinn við suðvestur hornið. Iðnaðar-og viðskiptaráð- herra: BHM náði sínu fram hugverkaréttindi Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og við- skiptaráðherra hefur ákveðið að skipa fulltrúa frá Bandalagi há- skólamanna, BHM í nefnd sem ætlað er að móta löggjöf um hug- verkaréttindi. Þetta var ákveðið á fundi sem ráðherra átti með for- ustu bandalagsins í vikunni. Upp- haflega átti BHM ekki að eiga neinn fulltrúa í nefndinni og var það harðlega gagnrýnt. Björk Vil- helmsdóttir formaður BHM seg- ist vera mjög ánægð með þessa ákvörðun ráðherrans. ■ Segja ekki nauðsyn á vothreinsibúnaði Rafskautaverksmiðju Reyðaráls nægir þurrhreinsibúnaður að mati Hollustuverndar. Andstæðingar álvers hafa krafist vothreinsibúnaðar. HOUU5TUVERND Hollustuvernd rík- isins telur að vothreinsibúnaður sé ekki nauðsynlegur við raf- skautaverksmiðju Reyðaráls. í greinargerð með tillögu stofnun- arinnar fyrir starfsleyfi álversins kemur m.a. fram að það sé vegna þess að það magn af brennisteins- oxíði sem kemur frá verksmiðj- unni sé ekki mjög mikið. Þá hafa tjöruefni sem koma frá verk- smiðjunni ekki áhrif á stærð þynningarsvæðisins með tilliti til loftmengunar. Bent er þó á að ef einhver hluti þeirra færi út í sjó gæti það haft áhrif á flokkun sjávar. Því er valið að nota ein- göngu þurrhreinsun á rafskauta- verksmiðjuna. Þetta kom m.a. fram á kynn- ingarfundi Hollustuverndar rík- isins og Fjarðabyggðar á Reyðar- firði í fyrrakvöld og greint er frá á heimasíðu Reyðaráls. Þar er vakin athygli á því að andstæð- ingar álversins hafa krafist þess að vothreinsibúnaður verði við rafskautaverksmiðjuna á sama hátt og við álverið. Á fundinum kom einnig fram að strangari kröfur verði gerðar um mengun- arvarnir álversins en t.d. hjá ísal og Norðuráli. Það sé einkum ÁLVER f REYÐARFIRÐ! Hollustuvernd rlkisins telur að þurrhreinsibúnaður sé nægjanlegur fyrir rafskautaverk- smiðju álversins. vegna sérákvæða um rafskauta- verksmiðjuna en slík starfsemi er ekki til staðar í hinum álver- um landsins. Þá verða gerðar strangari kröfur vegna útblást- urs á flúor og brennisteinsefn- um. í tillögum Hollustuverndar er lagt til að álverið fái starfs- leyfi til ársins 2020 fyrir 420 þús- und tonna ársframleiðslu. Öflugt eftirlit verður um alla þætti starfsleyfisins og allur mengun- arvarnarbúnaður verður vand- lega vaktaður. ■ Tilboð á þvottavélum Tricity Bendix 52.990 kr. þvottavél 1000sn. tekur 4,5 kg Verð áður: 65.990 kr. HÚSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is Landspítalinn og heilbrigðisráðherra styðja byggingu spítala í Malaví: Búnaður frá Land- spítala endurnýttur DÐ vinnustofnun Islands er að bygg- ja heilsugæslustöð og spítala í Malaví, búa stofnunina tækjum og búnaði og þjálfa starfsfólk. Spítalinn þjónar héraði með um 170 þúsund íbúa en á svæðinu var fyrir lítil heilsu- gæslustöð sem verður lögð niður um leið og nýja stöðin verður opnuð. Bygging- arnar ná yfir um 5 hektara lands- svæði. Þar verður heilsu- gæsla, ungbarna- SENDIR GÁM TIL MALAVf Sighvatur Björgvinsson er forstöðumaður Þróunarsamvinnu ajmenn stofnunar. og mæðraeftirlit, lyfjaafgreiðsla, legudeildir fyrir 80 sjúklinga, fæðingarstofnun, skurðstofa og líkhús. Einnig er gert ráð fyrir byggingu fyrir stjórnsýslu og starfsmannabústöðum. Heilsugæslustöðin og spítal- inn rísa við Malavívatn, þar sem fátækt er einna mest í Malaví. Fyrra áfanga bygginganna, heilsugæslustöðinni, er nú lokið og hefur verið afhent. Verið er að afla búnaðar og tækja í heilsu- gæslustöðina sem verður tekin í notkun síðar á þessu ári Hafist verður handa við síðari bygging- aráfangann, sjúkrahússhlutann, á árinu 2003. I gær var lokið við að hlaða gám með ýmsum konar búnaði svo sem sjúkrahúslíni, skoðunarbekkjum, barnarúmum, hjólastólum og einföldum tækj- um svo sem svæfingavélum, hjartalínuriturum og fleiru. Þetta er búnaður sem hefur ver- ið endurnýjaður á Landspítalan- um og kemur að góðum notum í Malaví. Þá hafa apótek Landspít- alans og lyfjafyrirtækið DELTA gefið umtalsvert magn lyfja til nota á hinni nýju heilbrigðis- stofnun. í gáminn fara einnig skólamunir og fleira sem börn í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi hafa safnið auk tölvubúnaðar sem Kennaraháskóli íslands gef- ur og nýtist skólum á ymsum stigum í Malaví. ■ Ný skoðunarkönnun Gallup Meirihluti hlynntur hraðaeftir- litsvélum umferðamAl Nær þrír af hverjum fjórum, eða 74% landsmanna eru hlynntir því að lögreglan auki notk- un hraðamyndavéla við umferðar- eftirlit, en ríflega helmingur telur sig sjaldan verða varan við eftirlit lögreglu á þjóðvegum. Þetta kom fram í könnun sem IMG- Gallup gerði fyrir Ríkislögreglustjórann, Umferðarráð og Vegagerðina í nóv- ember/desember árið 2001. Á blaðamannafundi sem dómsmál- ráðherra boðaði til í vikunni voru niðurstöðurnar kynntar. Á fundin- um kom einnig fram að í könnun tveggja nemenda í félagsfræði, í janúar 1999 reyndust 72% að- spurðra vera hlynntir notkun hraðamyndavéla og í könnun Gallup í október árið 2000 reyndust 81% svarenda vera hlynntir notkun löggæslumyndavéla við umferðar- eftirlit, bæði hraða- og rauðljósa- myndavéla. Liðlega 9 af hverjum 10 telja að sektir fyrir umferðarlaga- brot eigi að renna að einhverju eða öllu leyti til aukins umferðar- eftrlitss. ■ Afkoma Össurar: Hagnadur tvöfaldast UPPGJÖR Össur hagnaðist um 285 milljónir króna á fjórða ársfjórð- ungi sem færir hagnað ársins upp í 844 milljónir. Hagnaður ársins á undan var 409 milljónir króna. Veltan var 6.750 milljónir og jókst um 87% á milli ára. Þó lækkaði gengi bréfa fé- lagsins um 13% á árinu. Jón Sig- urðsson, forstjóri Össurar, segir uppgjörið vera til marks um að fé- laginu hafi tekist að ná utan ört stækkandi starfsemi. Starfsemin er meðal annars í Bandaríkjunum, Svíþjóð, Luxemborg og Hollandi. Framvegis mun Össur skila uppgjörum í Bandaríkjadollurum. Jón segir að markmiði laganna sem heimila slíkt sé hætta búin af frumvarpi sem nú liggur fyrir þingi. Samkvæmt því verður skatt- ur reiknaður í krónum. „Þetta myndi til dæmis setja okkur í erf- iða stöðu gagnvart erlendum fjár- festum. Ef krónan lækkar þá borg- um við minni skatt, en ef krónan styrkist þá borgum við meiri skatt.“ Mikilvægt sé fyrir almenn- ingshlutafélag að hafa stöðuga skattprósentu, því þyrfti 18% tekjuskatturinn að reiknast af hagnaði í dollurum talið. ■ JÓN SIGURÐSSON Afkomumæling I dollurum krefst skattlagningar i dollurum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.