Fréttablaðið - 08.02.2002, Qupperneq 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
8. febrúar 2002 FÖSTUDAGUR
Verslunarmannafélag Húsavíkur:
Krefur bæinn um
lækkun gjaldskráa
INNLENT
Allt að þriggja metra háir snjó-
ruðningar eru við götur á Ak-
ureyri. Einnig eru djúp hjólför á
götum og hálka. Nokkuð var um
árekstra í gærmorgun vegna þess,
án þess þó að nokkur slasaðist. Að
sögn lögreglunnar á Akureyri
hamla snjóruðningarnir útsýni
ökumanna. Þeir þyrftu því að aka
með meiri gát en ella. Starfsmenn
á vegum bæjarins, hafa varla und-
an að ryðja götur bæjarins og fjar-
lægja ruðningana.
A' tta árekstrar höfðu orðið í
Reykjavík í gærmorgun. Engin
slys urðu á fólki. Að sögn lögregl-
unnar má rekja flesta þeirra til
hálku á götum. Ökumenn kunni
ekki lengur að keyra í hálku og
snjó, því færð sé sjaldan með því
móti sem nú er.
verðlag Verslunarmannafélag
Húsavíkur hefur farið fram á það
við bæjarstjórnina að hún aftur-
kalli að öllu leyti eða að stórum
hluta hækkun leikskólagjalda,
orkuveitu og sundlaugar. I bréfi
félagsins til Tryggva Jóhanns-
sonar forseta bæjarstjórnar er
þess vænst að Húsavíkurkaup-
staður taki á þennan hátt þátt í
átaki til að berjast gegn hækkun
verðlags. Þegar síðast fréttist
hafði félaginu ekki borist nein
svör við þessu erindi sínu.
í bréfi félagsins er m.a. bent á
að samkvæmt upplýsingum frá
bænum hafa ýmsar gjaldskrár
verið hækkaðir frá og með síð-
ustu áramótum. Af einstökum
hækkunum bendir félagið á að
gjaldskrá leikskóla hefur hækk-
að um 7%, um 10% í tónlistar-
skólanum, 7% hækkun hjá bóka-
safni bæjarins, verð í sundlaug-
ina hefur hækkað um 20%, raf-
magn um 4% og gjaldskrá á heitu
vatni hefur hækkað um 14%.
Verslunarmannafélagið leggur
HÚSAVÍK
Verslunarfólk skorar á bæinn að leggja sitt
af mörkum til að verja stöðugleikann og
lífskjörin.
áherslu á að sá ábati sem bæjar-
sjóður mun fá, ef markmið um
lækkun verðbólgu, vaxta og
hækkun gengis ganga eftir, sé
margfaldur á við þann tekjuauka
sem verður við þessar gjald-
skrárhækkanir. ■
Versnandi efnahagur:
Hryðjuverka
hætta eykst
washington - ap Versnandi efna-
hagsástand og fólksfjölgun benda
til aukinnar hættu á hryðjuverk-
um í framtíðinni. Yfirmenn leyni-
þjónustu Bandaríkjanna vara við
því að fleiri hryðjuverkamenn
muni vaxa úr grasi, vegna versn-
andi efnahagsástands í sumum
löndum mið austurlanda og Afr-
íku. Mestur fjöldi ungs fólks búi í
þessum hluta heimsins. Þau alist
upp við versnandi efnahagsástand
og mikla fólksfjölgun. Þær að-
stæður leiði til fátæktar, fyrring-
ar og spennu milil þjóðarbrota,
sem sé kjörlendi þeirra sem ala
hryðjuverkamenn. ■
VESTMANNAEYJAR
Framsóknarmenn telja að þingmenn
flokksins hafi fyllt það skarð sem Árni
Johnsen skildi eftir í hugum Eyjamanna.
Framsókn í
Vestmannaeyjum:
Kann að
kljúfa sig
frá V-lista
framboðsmál Framsóknarmenn í
Vestmannaeyjum hafa skipað þrig-
gja manna nefnd til að kanna það og
meta hvort ástæða sé til þess að
flokkurinn bjóði fram sinn eigin
lista í komandi kosningum til sveit-
arstjórna. Flokkurinn hefur til
skamms tíma verið í samstarfi við
V-listann, þ.e. Bæjarmálafélag Vest-
mannaeyja. Þá hefur flokkurinn
ekki átt bæjarfulltrúa síðan 1990,
eða í 12 ár.
Andrés Sigmundsson bakara-
meistari og fyrrverandi bæjarfull-
trúi Framsóknarflokksins í Eyjum
segir að það sé mikill hugur í flokks-
mönnum. Af þeim sökum sé kanns-
ki ástæða til að kanna hvaða fylgi
flokkurinn hefur meðal bæjarbúa í
kosningunum. Hann bendir m.a. á
að þingmenn flokksins í gamla Suð-
urlandskjördæminu séu búnir að
vera mjög iðnir við að sækja Eyja-
menn heim og funda með þeim um
hin ýmsu málefni. Það kunni heima-
menn að meta. Sjálfur telur hann að
V-listinn sé ekki líklegur til að ná
meirihluta í kosningunum í vor að
öllu óbreyttu. ■
VIÐSKIPTI
Haraldur Böðvarsson hf. sýndi
batamerki á síðasta ári þrátt
fyrir tæplega 200 milljóna króna
tap. Árið áður var tapið 666 milljón-
ir. Velta félagsins jókst um 15% á
árinu, var 4.500 milljónir og hagnað-
ur fyrir afskriftir og fjármagnsliði
nærri tvöfaldaðist. Gengistap var
hinsvegar verulegt og niðurstaða
ársins því neikvæð. Tölurnar eru í
samræmi við afkomuspár greining-
areilda bankanna.
Mannréttindi að
lifa af starfinu sínu
Leigubílstjórar eru uggandi vegna minnkandi vinnu. Nú hafa nokkrir
þeirra sagt sig úr Frama til að reyna að þrýsta félagið um að koma í
veg fyrir að fleiri en einn geti ekið sama bílnum um helgar þegar vin-
nuvon er mest.
leigubílstjórar Nokkrar félagar í
Bifreiðastjórafélaginu Frama
sögðu sig úr félaginu á þriðjudag.
„Þetta var í mótmælaskyni," seg-
ir Sigurjón Tracey leigubílstjóri
og tekur fram að hann vonast til
þess að sjá sér fært að ganga aft-
ur í Frama sem fyrst. „Við erum
að mótmæla aðgerðarleysi vegna
minnkandi vinnu. Það eru tvísett-
ir bílarnir hjá okkur um helgar og
þá er helst vinnuvon." Sigurjón
segist ekki vita hversu margir
hafi gengið úr félaginu, menn
hafi gert þetta á einstaklings-
grunni.
Sigurjón segir leigubílstjóra
fljótt finna fyrir samdrætti í
þjóðfélaginu á minni vinnu hjá
sér. Bílstjórarnir óska eftir því að
Frami hætti að gefa út passa fyr-
ir aukabílstjóra á bílana þannig
að ekki verði lengur hægt að gera
sama bílinn út allan sólarhring-
inn. Með því móti séu allt of
margir um hituna, einnig um
helgar þegar þó sé mest að gera.
Hann segir passana á sínum
tíma eingöngu hafa verið hugs-
aða til manna bílana í vondum
veðrum enda hafi margir eldri
bílstjórar ekki treyst sér í akst-
urinn þegar færð var slæm.
„Ekkert fyrirtæki bætir við sig
starfsfólki í minnkandi vinnu,“
segir Sigurjón.
Bílstjórum þykir orðið
nokkuð erfitt að lifa á akstrin-
um og einhverjir hafa gefist
upp og misst bOa sína. Sem
stendur eru 570 leyfi á höfuð-
borgarsvæðinu. Margir bílstjórar
vilja fækka leigubílum á höfuð-
borgarsvæðinu með því að endur-
úthluta ekki leyfum þeirra sem
hætta akstri. Frami Tefur ekki
með útgáfu atvinnuleyfa að gera.
Hún er í höndum samgönguráðu-
neytisins.
„Við vildum að sjálfsögðu sjá
fækkun því það er samdráttur í,
vinnu,“ segir Ástgeir Þorsteins-
son formaður Frama. „Það erfl
ekki neinar hópúrsagnir'úr félag-
inu,“ segir Ástgeir. Hann kannað-
ist þó við óánægju einstakra bíl-
stjóra vegna útgáfu umræddra
passa. Útgáfa passanna er í skoð-
un en Ástgeir segir enga hreyf-
ingu muni verða á næstu vikum
eða þangað til lokið hefur verið
við samningu reglugerðar um
leigubílaakstur. Um 475 félagar
eru í Frama en talsvert margir
bílstjÖrar eru utan félaga og
nokkrir eru í félögunum Andvara
og Átaki.
steinunn@frettabladid.is
FB-MYND RÓBERT
PRÝSTIR Á FRAMA
Sigurjóni Tracey leigubílstjóra finnst ótækt
að fjölga bílstjórum um leið og vinna
dregst saman.
WIM DUISENBERG
Bankastjórinn ætlar að hætta á 68 ára af-
mælisdegi sínum í júlí á næsta ári.
Wim Duisenberg ónæm-
ur fyrir þrýstingi:
„Eg hlusta
en heyri
ekki“
evrópubankinn Hollendingurinn
Wim Duisenberg, yfirmaður Evr-
ópubankans, hefur tilkynnt að
hann muni hætta í júlí næsta ári.
Ummæli hans, „Ég hlusta en heyri
ekki,“ eru talin lýsa vel einangrun
hans gagnvart þeim fjölmörgu
stjórnmálamönnum evrusvæðis-
ins sem krafist hafa vaxtalækk-
ana og annarra tilslakana til að
efla efnahag í löndum sínum. Frá
árinu 1998, þegar Duisenberg tók
við starfinu, hefur Evrópubank-
inn ákveðið stýrivexti í ríkjunum
tólf.
Bankastjórinn hefur metið það
svo að miklar vaxtalækkanir
stefndu því meginmarkmiði bank-
ans í voða að halda verðbólgu í
skefjum. Með langtímastöðug-
leika að leiðarljósi hefur hann
unnið að því að koma verðbólgu á
ársgrundvelli undir 2% sem
margir telja að muni takast innan
þessa árs. Það er einnig talið
Duisenberg til tekna að mynt-
breyting síðstu áramóta olli ekki
glundroða eins og sumir óttuðust.
Bágar efnhagshorfur í Þýska-
landi þar sem atvinnuleysi hefur
slegið fyrri met draga hinsvegar
úr hróðri Duisenberg. Einnig er
það nefnt að undir hans stjórn
hefur evran fallið um 30% gagn-
vart Bandaríkjadollar frá því hún
fór á markað árið 1999.
Jean-Claude Trichet, Seðla-
bankastjóri Frakklands, er enn
talinn líklegasti eftirmaður
Duisenberg. Hann sætir nú lög-
reglurannsóknar vegna þátts í
meintu fjármálamisferli bankans
Credit Lyonnaise. ■
Samkvæmt kjarasamningi VR og SA eiga
félagsmenn VR að fá 3% launahækkun
1. janúar 2002.
Sími 510 1700 • Netfang www.vr.is
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Banaslysið á Hólasandi:
Pcillbíll rásaði
á blindhæð
lögregla Talið er víst að pallbíll,
sem lenti í árekstri við fólksbíl á
Hólasandi 11. janúar með þeim af-
leiðingum að 26 ára maður í fólks-
bílnum lést, hafi rásað yfir á rangan
vegarhelming.
Að sögn lögreglunnar á Húsavík
er rannsókn banaslyssins að ljúka.
Rannsóknin hefur leitt í ljós að pall-
bíllinn rásaði til á veginum og fór
yfir öfugan vegarhelmingi rétt áður
en bílarnir mættust á blindhæð um
20 kOómetrm norðan Mývatns.
Ekki hefur tekist að skera úr
hvers vegna pallbíllinn rásaði. Veg-
urinn var auður en dimmt yfir. Ilelst
mun vera talið að ökumaður pallbíls-
ins hafi fipast þegar bílljós fólks-
bOsins birtust skyndilega handan
blindhæðarinnar. Hann man hins
vegar ekki hvernig áreksturinn at-
vikaðist.
Auk mannsins sem lést slasaðist
tveggja ára sonur hans illa í árekstr-
inum. Hann er kominn heim spítala
en er ekki gróinn sára sinna.
Móðir litla drengsins slapp með
litla áverka. Það sama gildir um öku-
mann pallbílsins og hund hans sem
var með honum á ferð. ■