Fréttablaðið - 08.02.2002, Page 14
ÓLYMPÍULEIKAR
FRÉTTABLAÐIÐ
8. febrúar 2002 FÖSTUDACUR
VIÐBURÐARfK FERÐ ELDSINS
Ótal kyndilberar eru búnir að bera
Ólympíueldinn þvertyfir Bandaríkin. f
gær var farið með hann yfir The Great
Salt Lake. í kvöld er ferð hans loks lokið
þegar kveikt verður f Ólympíueldinum í
Salt Lake City. Þar verður hann þar til
leikunum lýkur 24. febrúar.
HEINZ-HARALD
Til að ráða hann ráku Arrows Jos Ver-
stappen.
Frentzen til Arrows:
Verst-
appen úti í
kuldanum
formúla i Eigandi Arrows liðsins í
Formúlu 1 kappakstrinum til-
kynnti í gær að Þjóðverjinn
Heinz-Harald Frentzen mun aka
fyrir Iiðið ásamt Brasilíubúanum
Enrique Bernoldi í ár. Frentzen og
Hollendingurinn Jos Verstappen
eru búnir að bítast um stöðuna
upp á síðkastið. Frentzen hékk í
lausu lofti þegar Prost liðið lýsti
yfir gjaldþroti nýlega. Til að
koma honum að var Verstappen
sagt upp hjá Arrows eftir að hafa
keyrt fyrir liðið í tvö ár.
„Við erum hæstánægðir með
að hafa fengið Heinz-Harald í lið-
ið,“ sagði Walkinshaw. „Hann er
viðurkenndur toppökumaður.
Hann hefur þrisvar sinnum unnið
kappakstur.“
Verstappen er væntanlega ekki
ánægður með þetta. í síðustu viku
staðfesti umboðsmaður hans að
þeir hefðu engar áhyggjur af
næsta tímabili. Jos væri með
samning við Arrows og það kæmi
ekkert annað til greina en að virða
samninginn. ■
Eítirvænting í Salt Lake City:
Leikarnir settir í nótt
ólympíuleikar Klukkan eitt í nótt
hefst setningarathöfn Vetrar-
ólympíuleikanna í Salt Lake City.
Mikil eftirvænting er í borginni
en þangað hafa undanfarna daga
streymt fjölmargir íþróttamenn
af hinum ýmsu þjóðernum.
Opinber móttökuathöfn fyrir
íslenska ólympíuliðið fór fram í
Ólympíuþorpinu í Salt Lake í fyrr-
inótt. Skólakór grunnskóla í Salt
Lake söng lag til heiðurs liðinu.
Borgarstjóri Ölympíuþorpsins af-
henti Stefáni Konráðssyni farar-
stjóra gjafir til ÍSÍ í tilefni mótt-
tökunar. Stefán afhenti borgar-
stjóranum gjafir frá ÍSÍ á móti.
Þjóðsöngur Islands var leikinn og
ungir indíánar dönsuðu friðar-
dans fyrir íslenska liðið.
Kristinn Björnsson er eini ís-
lendingurinn sem er ekki kominn
Salt Lake. Hann er við æfingar í
Evrópu og er að undirbúa sig fyr-
ir þáttöku á leikunum. Kristinn
keppir á þremur Evrópubikar-
mótum í svigi á Ítalíu áður en
hann heldur til Bandaríkjanna. Á
sunnudaginn keppir hann á sterku
móti í Sappada á Ítalíu. Hann
keppir síðan aftur á sama stað á
mánudaginp. Þriðja mótið er í
Zoldo á þriðjudag. Að því búnu
halda Kristinn og Haukur Bjarna-
son landsliðsþjálfari af stað.
Kristni hefur áður gengið vel í
Park City. Hann hefur fjórum
sinnum keppt þar, lenti m.a. í öðru
sæti á heimsbikarmóti 1998. Þetta
eru fjórðu Ólympíuleikar Krist-
ins. Hann keppir í svigi 23. febrú-
ar.
Fyrstu íslendingarnir til að
fSLENDINGAR VELKOMNIR
fslenska liðið sést hér við hlið hollenska
liðsins á móttökuhátíð á miðvikudag.
spreyta sig á leikunum eru Emma
Furuvik og Dagný Linda Krist-
jánsdóttir. Þær keppa í bruni á
mánudaginn. ■
Gaman hefði verið að
bakka aftur til fyrri tíma
Geir Hallgrímsson fylgdist með EM í handbolta og hefði gjarnan viljað vera með. Hann þjálfar
yngri flokkana hjá FH og segir börn á öllum aldri streyma á æfingar þessa dagana.
handbolti Geir Hallsteinsson
fyrrum landliðsmaður í hand-
bolta er mörgum minnisstæður
fyrir feikilega skemmtilega takta
á vellinum. Leitun var að öðrum
eins listamanni með boltann og
gladdi hann auga þeirra sem
fylgdust með á árunum áður.
Geir er íþróttakennari við Flens-
borgarskóla auk þess sem hann
þjálfar yngstu aldurflokkana hjá
FH. „Það hefur geysilega mikil
áhrif þegar landsliðið í handbolta
nær góðum árangri á stórmótum
úti í heimi. Við höfum svo sannar-
lega fundið fyrir því síðustu daga
því til okkar hafa streymt börn á
öllum aldri til æfinga," segir
Geir þegar hann er inntur eftir
hvort hann finni fyrir auknum
áhuga á íþróttinni. „Það hefur
gerst í hvert sinn en ég minnist
þess ekki áhuginn hafi verið eins
mikill áður.“ Geir segir FH-inga
ekki vera í vandræðum með að
mæta þessari aukningu og eigi
þeir lausa tíma fyrir þessa krak-
ka. „Börnin eru allt niður í fimm
ára gömul sem eru að koma í
fyrsta sinn þessa dagana. Reynsl-
an hefur sýnt að mjög mörg þeir-
ra hverfa til baka en það er alltaf
nokkur sem sitja eftir og verða
handboltamenn framtíðarinnar,"
segir Geir. Hann er þeirrar skoð-
unnar að handboltinn sé í mikilli
sókn burt séð frá góðum árangri
landliðsins í síðustu viku. „Ég
býst við að í yngri flokkunum hjá
okkur í FH séu um það bil 400
krakkar að æfa að staðaldri. Við
reynum að hafa æfingarnar fjöl-
LANDLIÐSMENN FRAMTÍÐARINNAR
Þau eru ekki há í loftinu þegar þau koma á fyrstu æfinguna sína. Það er aldrei að vita nema í þessum hópi leynist landliðsmenn
framtíðarinnar.
breyttar og skemmtilegar til að
koma í veg fyrir að krakkarnir
verði leiðir og finni hjá sér fram-
farir.“
Aðspurður um hvort handbolt-
inn hafi breyst mikið frá því
hann var uppá sitt besta svarar
Geir að erfitt sé að bera það sam-
an. „Ég get samt ekki neitað því
að ég hefði viljað bakka aftur til
fyrri ára í síðustu viku. Það eru
margir geysilega góðir leikmenn
í liðinu og það væri gaman að fá
að spila með þeim. Ekki það að
þeir leikmenn sem ég spilaði með
hafi ekki verið flinkir. Á hinn
bóginn eru svo margir núorðið í
atvinnumennsku og gera ekki
annað en spila. Það skilar sér í
betri handbolta einkum og sér í
lagi er tæknin betri. Ég veitti því
líka sérstaklega athygli í þesari
keppni að brot leikmanna eru
grófari. Það er auðveldara að sjá
í gegnum sjónvarpsvélarnar og
þær eru nær en í gamla daga. Ég
held að dómarar verði að fara að
taka betur á brotum til að koma í
veg fyrir of mikla hörku í fram-
tíðinni." Geir segist hafa haft
mikla ánægju af að fylgjast með
strákunum. „Ég er ekki í vafa að
handboltin er á hraðri uppleið og
það verður gaman að fylgjast
með í framtíðinni,"
bergljot@frettabladid.is
Skíði og skíðafatnaður
• Bretti og brettafatnaður
• Sportfatnaður og skór
adidas
s A "
PflíflU
Taylor yMade
h;ppo
GALVIN GREEN
SALOMON
• Þrek- og æfingatæki
• Aerobic fatnaður
Reiðhjól
• Golf og golffatnaður
• ísskautar - línuskautar
Þúfærðmikið
fyrirlítið!
Iferslunin
fsláttur AMRKIÐ
Ármúla 40 • Sími: 553 5320
www.markid.is