Fréttablaðið - 11.02.2002, Page 2
KJÖRKASSINN
FRÉTTABLAÐIÐ
EKKI TRÚLEGT
Meirihluti kjósenda á
Vísi.is telur að breyting-
ar rikisstjómar muni
ekki skila lægra græn-
metisverði.
Samfylkingin í Reykjavík:
Stefnir í harða baráttu
Heldur þú að afnám tolla og
upptaka beingreiðslna til garð-
yrkjubænda skili sér i lægra
verði til neytenda?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Já
Nei
Spurning dagsins í dag:
Eru bakaðar bolludagsbollur heima
hjá þér?
Farðu inn á vísi.is og segðu I
þlna skoðun —
___________CQH3
prófkjör Átta keppast um þrjú
sæti Samfylkingarinnar á fram-
boðslista R-listans í borgarstjórn-
arkosningunum í vor. Frestur til
að gefa kost á sér í prófkjöri rann
út nú um helgina. Kosið verður í
vikunni.
í prófkjörinu gefa kost á sér
sitjandi borgarfulltrúar, Helgi
Hjörvar, Hrannar Björn Arnars-
son og Steinunn Valdís Óskars-
dóttir í 1. eða 2.
sæti. Þá gefa kost á sér vara-
borgarfulltrúarnir Sigrún Elsa
Smáradóttir, í 2. sæti og Pétur
Jónsson í 1. til 3. sæti. Þá gefa ein-
nig kost á sér Tryggvi Þórhalls-
son, rafverktaki, Stefán Jóhann
Stefánsson, formaður Samfylk-
ingarfélagsins í Reykjavík, sem
stefnir á 5. sæti, og Stefán Jón
Hafstein, formaður fram-
kvæmdastjórnar Samfylkingar-
innar sem sækist eftir 1. sæti list-
ans.
Prófkjörið, sem hefst á mið-
vikudag og stendur fram á sunnu-
dag, er nokkuð opið en þó ekki al-
veg. „Þrír hópar geta kosið. Félag-
ar úr félögum Samfylkingarinnar
í Reykjavík. Þeir sem gerast fé-
lagsmenn áður en kjörfundi lýkur
og þeir sem eru óflokksbundir og
lýsa yfir stuðningi við Samfylk-
inguna og borgar 500 króna þátt-
tökugjald," sagði Katrín Theó-
dórsdóttir, formaður kjörnefndar
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
„Þetta er bindandi prófkjör.
Það verður kosið í þrjú efstu sæti
Samfylkingarinnar, en síðan raðar
uppstillingarnefnd hugsanlega í
hin sætin,“ bætti Katrín við og
sagði að við það val yrði tekið mið
af ýmsum þáttum, m.a. stefnuna
varðandi þátttöku kynjanna.
Katrín sagði mikla þátttöku í próf-
kjörinu í raun hafa komið sér á
óvart, en fagnaði henni og kvað
meiri þátttöku líklegri til að skila
sér í sterkum framboðslista. ■
Breytt valdajafnvægi
innan ESB:
Sífellt erfið-
arameð
okkar mál
utanríkismál „Eins og er virðist
Evrópusambandið vera að loka á
aðrar leiðir en fulla aðild að sam-
bandinu, ætli ríki að koma að
ákvarðanatökunni þar,“ segir Bald-
ur Þórhallsson,
dósent í stjórn-
málafræði við Há-
skóla íslands.
Hann segir sífellt
verða erfiðara að
vinna að okkar
málum á vettvangi
ESB og að for-
gangsröðunin þar
innan dyra snúist
um allt annað en
samninginn um
Evrópska efna-
hagssvæðið.
„Þeirra forgagns-
röðun er Austur-
Evrópa,“ sagði
hann og taldi sambandið eiga nóg
með það verkefni að koma inn ríkj-
unum 10 sem sótt hafa um aðild.
Baldur sagði helst tvennt veikja
samninginn um Evrópska efna-
hagssvæðið. „Ef áfram heldur sem
horfir versnar markaðsaðgangur
að ríkjum Austur-Evrópu. Hitt sem
er kannski ekki síður alvarlegt eru
þessar breytingar á valdajafnvægi
stofnana Evrópusambandsins,“
sagði hann og vísaði til þess að
dregið hafi úr áhrifum fram-
kvæmdastjórnar ESB. „Hún er í
rauninni okkar leið að ákvarðana-
töku Evrópusambandsins. Þar höf-
um við seturétt í nefndum og ráð-
um og hún á að hlusta á okkar sjón-
armið og koma þeim á framfæri,"
sagði hann. ■
BALDUR
ÞÓRHALLSSON
Óljóst er hver
okkar aðgangur
er að nefndum
sem fjalla um þá
löggjöf Evrópu-
sambandsins sem
áhrif hefur hér á
landi.
♦
Höfum árið til að
semja við ESB
Utanríkisráðherra vill reyna enn frekar að fá fram breytingar á samn-
ingnum um Evrópska efnahagssvæðið þrátt fyrir tregðu innan Evrópu-
bandalagsins. Hann segir bagalegt að eiga eftir að hafna eða samþykkja
stækkun ESB í óvissu stöðu þjóðarinnar á EES-svæðinu.
UTflNRÍKlSMÁL Halldór Ásgrímsson,
utanríkisráðherra, hafnar því að
útséð sé með breytingar á samn-
ingnum um Evrópska efnahags-
svæðið þrátt fyrir yfirlýsingar
Loyola de Palcio,
~ . . . varaforseta fram-
Hafni Alpingi kvæmdastjórnar
stækkun Evr- Evrópusambands-
ópusam- jns þar ag lútandi í
bandsins sé Ósló fyrir helgi.
um leið verið Hún sagði tækni-
að hafna aðild legar uppfærslur
að Evrópska samningsins í fyrs-
efnahags- ta lagi mögulegar
svæðinu. eftir stækkun sam-
__+ .... bandsins. Halldór
sagðist ekki telja
fullreynt að fá fram breytingar á
samningnum og því ótímabært að
taka ákvarðanir um hvort láta eigi
reyna á fulla aðild að Evrópusam-
bandinu. „Það hefur enginn neitað
að ræða þessi mál við okkur og ég
tel að það sé ekki fullreynt," sagði
hann og bætti við að þótt komið
hafi fram ákveðin tregða innan
Evrópusambandsins varðandi
breytingar á EES-samningnum
yrði áfram verði unnið að málinu,
jafnt innan framkvæmdastjórnar
ESB sem á pólitískum vettvangi.
Halldór vildi ekki tjá sig frekar
EVROPUSAMBANDIÐ
(slendingar þurfa jafnt og aðrar þjóðir að staðfesta stækkun þess.
um okkar stöðu
gagnvart Evrópu-
sambandinu með-
an samningaum-
halldór leitanir væru í
ÁSGRlMSSON gangj „En
Hí"d^að tímaramminn er
ópska^efnahags- samt . að «úk»
svæðisins verða samnmgum a
að samþykkja þessu ári því gert
stækkun Evrópu- er ráð fyrir að
bandalagsins. þeir [ESB] ljúki
samningum við umsóknarríkin á
árinu og staðfestingarferlið taki
við á því næsta.“ Halldór segir lig-
gja fyrir að Alþingi þurfi að stað-
festa stækkun Evrópusambands-
ins að stækkunarferlinu loknu.
„Við þurfum að staðfesta það eins
og aðrar þjóðir til að stækkun Evr-
ópska efnahagssvæðisins eigi sér
stað jafnhliða. Það er mjög slæm
staða fyrir ísland að standa fram-
mi fyrir að leggja það fyrir Alþingi
án þess að hafa nokkur svör um
hvernig okkar mikilvægu málum
verður fyrir komið.“ Halldór segir
að hafni Alþingi stækkun Evrópu-
sambandsins sé um leið verið að
hafna aðild að Evrópska efnahags-
svæðinu.
oli@frettabladid.is
Afbrýðisamur byssumaður gekk berserksgang:
Fjórir slegnir í andlit fyrir
vestan:
Hjón slegin
á Suðureyri
lögregla Ráðist var á hjón og þau
slegin í andlit á Suðureyri við Súg-
andafjörð í fyrrinótt.
Fólkið, sem er um fertugt, var
statt í heimahúsi, þegar atburður-
inn varð. Maðurinn var sleginn með
glasi og þurfti að sauma tíu spor í
andlit hans. Fólkið mun þekkja
árásarmanninn en mun ekki ætla að
leggja fram kæru að sögn lögreglu.
Engar kærur hafa heldur verið
lagðar fram í tveimur öðrum lík-
amsárásarmálum á starfssvæði
lögreglunnar á ísafirði í fyrrinótt.
Hálffertugur maður á Flateyri
leitaði sér læknisaðstoðar klukkan
sjö um morguninn. Hann var bólg-
inn í andliti og með skurð ofan við
augabrún. Hann var of ölvaður til
að geta gert sér grein fyrir hvað
hafði hent. Talið er að hann hafi
verið sleginn.
Á þorrablóti í félagsheimilinu í
Hnífsdal lenti tveimur hálfsextug-
um mönnum saman. Annar sló hinn
í andlit svo blæddi undan. ■
Myrti tíu manns og
svipti sig svo lífi
HÖFÐABORG. flp Tæplega þrítugur
Suður-Afríkumaður, Bulelani
Vukwana, myrti fyrrverandi kær-
ustu sína og níu manns að auki í
Suður-Afríku á laugardagskvöld.
Sjö manns í viðbót særðust alvar-
lega. Að því búnu batt Vukwana
enda á líf sitt.
Hann hafði lent í rifrildi við
kærustuna sína á laugardaginn.
Lauk viðskiptum þeirra með því
að hún sagði honum upp.
Vitni sögðu að Vukwana hefði
farið heim til hennar og reynt að
fá hana til að taka sig í sátt. Þegar
það bar ekki árángur dró hann
upp byssu og skaut hana í höfuðið
af stuttu færi.
Að því búnu hélt Vukwana inn
á knæpu í næsta húsi. Þar skaut
hann á tvo menn. Annar þeirra
lést en hinn særðist illa.
Vukwana fór síðan aftur út á
götu. Þar rakst hann á mann sem
hafði komið á vettvang til þess að
aðstoða. Hann skaut hann í hnakk-
FANNST LÁTINN
Suður-afrískir lögreglumenn standa þarna umhverfis lík byssumannsins, sem myrti kær-
ustu sína og níu manns að auki áður en hann framdi sjálfsvíg.
ann og ók síðan á brott. Skömmu
síðar sneri hann þó aftur heim til
kærustunnar og skaut þar föður
hennar til bana.
„Eftir það gekk hann berserks-
gang og skaut alla sem hann kom
auga á,“ sagði Stephen Marais,
talsmaður lögreglunnar. ■
11. febrúar 2002 MÁNUDAGUR
SAMFYLKINGIN f REYKJAVÍK
Stefán Jón Hafstein stefnir á 1. sæti líkt og
sitjandi borgarfulltrúi Helgi Hjörvar. Þá
gefa kost á sér í 1. og 2. sæti borgarfull-
trúarnir Steinunn V. Óskarsdóttir, sem set-
ið hefur I borgarstjórn í 8 ár, og Hrannar
B. Arnarsson.
Stefán Jón Hafstein:
Gaman á
stórmótum
prófkjör „Það er gaman að spila á
stórmótum," sagði Stefán Jón Haf-
stein, um þátttöku sína í prófkjör
hjá Samfylkingunni í Reykja-
vík.“Ég held að þetta verði mikil úr-
slitaorusta í vor. Mjög mikilvægt er
fyrir jafnaðarfólk og félagshyggju-
menn að halda sínum vettvangi til
að koma sínum skoðunum og hug-
myndum í framkvæmd og sýna að
þær virki í reynd.“
Stefán segist hafa vilja leggja
sitt af mörkum til að fá fram breidd
í prófkjöri flokksins, en hann hafi
fengið meldingar um að fólk vildi
sjá meira úrval á listanum. „Það er
nauðsynlegt fyrir Reykjavíkurlist-
ann sem nú er búinn að vera 8 ár
við völd, með afskaplega lélega
stjórnarandstöðu sem hefur ekkert
fram að færa, að endurnýjunin
komi innan frá,“ sagði hann og
kvaðst fyllilega reiðubúinn að
koma nú fram og vera í forystu. Að-
spurður játti Stefán því einnig að
væri með sinni aðkomu að bregðast
við gagnrýni sem komið hafi fram á
Reykjavíkurlistann. „Best hefði
verið að alsæla væri með það sem
til staðar er, en það er víst ekki al-
veg svo.“ ■
——
Banaslys í Hamarsfirði:
Eskfirsk
móðir fórst
banaslys Konan sem lést í bílslysi í
Hamarsfirði á föstudag hét Ágústa
Egilsdóttir. Ágústa, sem var hálf-
fimmtug að aldri, var Eskifirðingur
og búsett þar í bænum. Hún lætur
eftir sig eiginmann og fjögur börn.
Ágústa var á suðurleið ásamt
eiginmanni sínum þegar bíll þeirra
fór út af veginum skammt frá
Djúpavogi um klukkan þrjú. Bíllinn
endaði í urð í fjörunni neðan við
veginn. Talið er að Ágústa hafi lát-
ist samstundis. Maðurinn hennar
slapp hins vegar án teljandi meiðs-
la.
Ágústa ók bílnum og talið er að
hún hafi misst stjórn á honum
vegna hálku. Tildrög slyssins eru
þó ekki fullkunn. ■
—♦—
Beinafundurinn á Höfn:
Skipverjinn
af Ófeigi
fundinn
sjóslys Líkamsleifar sem fundust
skammt frá Höfn í Hornafirði í lok
janúar eru af Rune Verner Sigurðs-
syni, skipverja sem fórst með tog-
bátnum Ófeigi II VE undan Vík í
Mýrdal aðfaranótt 5. desember.
Átta skipsfélagar Rune komust af.
Beinin fundust þegar fólk af
Höfn var á göngu í fjörunni undan
bænum Hraunkot í Lóni.
Rune var fertugur að aldri, bú-
settur í Vestmannaeyjum. Hann var
kvæntur og tveggja barna faðir. ■