Fréttablaðið - 11.02.2002, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 11.02.2002, Blaðsíða 14
14 FRÉTTABLAÐIÐ 11. febrúar 2002 MÁNUDAGUK HANDBOLTI Byrjaður á ný 14. UMFERÐ Haukar- KA Stjarnan - ÍBV UMFA - Fram ÍR-Víkingur Selfoss-Valur HK-FH Þór A. - Grótta KR ESSQ PEILPIN 30-30 21-21 23- 23 24- 24 27-31 24-30 29-28 Lið Leikir U J T Mörk Stig Haukar 14 12 2 O 393:341 26 Valur 14 10 1 3 388:348 21 ÍR 14 9 2 3 354:331 20 UMFA 14 7 3 4 340:328 17 Þór A. 14 6 2 6 392:386 14 FH 14 5 4 5 360:354 13 KA 14 5 3 6 357:348 13 ÍBV 13 5 3 5 348:364 13 Grótta KR 14 6 O 8 357:364 12 Fram 14 3 5 6 337:331 ii ; HK 14 4 3 7 391:399 n Selfoss 14 5 1 8 368:385 11 Stjarnan 14 3 3 8 331:363 9 Víkingur 13 O 1 11 282:356 1 íbróttir áSýn 11.-18. februar ll Heklusport kl. 22.30 fim NBA - tilþrif kl. 18.30 Golfmót i Bandaríkjunum kl. 20.00 fös íþróttir um allan heim kl. 18.30 Gillette-sportpakkinn kl. 19.30 lau Spænski boltinn kl. 20.00 sun ítalski boltinn kl. 13.45 Chelsea - Preston Enski boltinn kl. 15.55 Newcastle - Man. City Enskl boltinn kl. 18.55 1 Portland - LA Lakers j§ NBAkl. 21.30 HM 2002 Tfujggóu Þ£fí MUndLUKIL STfífíX £&& ¥ Ffl'flu mc/Bfl úr úfl sjónvanpinu pínu Jókertölur laugardags 113 2 4 o \ OR\ Alltaf á Zy T_y miðvikudögum Jókertölur mlðvlkudags JPji 8 13 9 7 Stjörnuhelgi NBA deildarinnar: Helgi þeirra bestu körfubolti Allir færustu leikmenn NBA tóku þátt í Stjörnuhelgi í Philadelphia um helgina. Á laug- ardaginn kepptu nýliðar og eldri leikmenn. Þá var einnig keppt í þriggja stiga keppni og troðslu- keppni. í gærkvöldi fór síðan fram sjálfur stjörnuleikurinn. Nýliðarnir höfðu betur á móti eldri mönnum. Þeir unnu leikinn 103-97. Jason Richardson skoraði 26 stig, þ.á.m. með glæsilegum troðslum, og var kosinn maður leiksins. „Þetta er bara upphitun fyrir troðslukeppnina," sagði Ric- hardson. Það var ekki fjarri lagi. Troðslukeppnin fór fram seinna um daginn og Richardson vann hana. Aðeins fjórir leikmenn tóku þátt í keppninni, Richardson, Ger- ald Wallace hjá Sacramento, Steve Francis hjá Houston og Desmond Mason hjá Seatlle. Ma- son vann keppnina í fyrra. Seinna um daginn var Peja Stojakovic hjá Sacramento krýnd- ur þriggja stiga kóngur. Hann atti kappi við Wesley Person hjá Cleveland í úrslitum. Person var að taka þátt í fyrsta skipti. „Mér líður miklu betur en í fyrra,“ sagði Stojakovic. í fyrra var hann í öðru sæti á eftir Ray Allen hjá Milwaukee. „Foreldrar mínir sögðu að ef ég myndi ekki vinna keppnina í ár mætti ég ekki koma BESTA TROÐSLAN Jason Richardson hjá Golden State vakti mikla lukku í troðslukeppninni á laugar- daginn. aftur heim til Júgóslavíu.“ Stoja- kovic tók þátt í Stjörnuleik NBA í fyrsta skipti í gærkvöldi. ■ Doritos bikarinn: KR og Njard- vík meistarar körfubolti Það var tvöfaldur slag- ur milli KR og Njarðvíkur í Laugar- dalshöll á laugardaginn. Liðin kepp- tu um bikarmeistaratitil í bæði karla- og kvennaflokki. Kvennalið KR og karlalið Njarð- víkur urðu bikarmeistarar. Leikur kvennaliðanna var framlengdur en staðan í lok venjulegs leiktíma var 68:68. Lokatölur urðu 81:74. Leikur karlaliðanna var einnig æsispenn- andi. KR hafði yfirhöndina mest allan leikinn, var yfir í hálfleik, 48:39. Það var síðan í síðasta fjórð- ungi sem Njarðvík hrökk í gang og sneri leiknum við. Lokastaða varð 86:79. ■ Fyrsta helgin til fyrirmyndar Fyrsta helgi Olympíuleikanna gekk snurðulaust fyrir sig. Gullverðlaunin skiptast jafnt meðal þjóða og heimsmet var sett í tvígang í 5000 metra skautahlaupi. ólympíuleikar Vetrarólympíuleik- arnir voru settir með pompi og prakt í Salt Lake City í Bandaríkj- unum á föstudaginn. Setningarat- höfin var íburðamikil en þó fannst mörgum erlendum blaðamönnum hún einum of lituð bandarískri ætt- jarðarást. Umsjónarmenn leikanna segja opnunarhelgina hafa gengið vonum framar. Dagný Linda Kristjánsdóttir er fyrst Islendinga til að keppa á leik- unum. Hún tekur þátt í brunkeppni í dag. Emma Furuvik verður ekki á meðal keppenda þar sem hné- meiðsli tóku sig upp á æfingu um helgina. Emma ætlar að einbeita sér að svigi kvenna, sem fer fram eftir tíu daga. ’Austurríkismaðurinn Stefan Eberharter, sem búist var við að myndi sópa að sér gullum alpa- greinanna, þurfti að sætta sig við brons þegar landi hans Fritz Strobl sigraði í bruni karla í gær. Norð- mennirnir Lasse Kjus og Kjetil Aamodt lentu í öðru og fjórða sæti. Svisslendingurinn Simon Ammann kom á óvart þegar hann bar sigur úr býtum í skíðastökki af 90 metra palli í gær. Þjóðverjinn Sven Hannawald, sem var talinn sigurstranglegastur, varð annar og Pólverjinn Adam Malysz þriðji. Finninn Samppa Lajunen vann sam- anlagða keppni karla í skíðagöngu og stökki. Landi hans Jakku Tallus var í öðru sæti. Fjögur lönd fengu gullverðlaun á laugardaginn. ítalinn Stefania Belmondo vann gullverðlaun fyrir 15 km göngu kvenna. í ár eru ein- mitt 10 ár liðin síðan hún vann gull- verðlaun í 30 km göngu í Albert- ville. „Ég er mjög ánægð því ég var búin að ákveða að þetta eru mínir síðustu leikar,“ sagði Belmondo. Fyrir nokkrum mánuðum var hún beðin um að koma á bæjarhátíð í ítalska bænum Stelvio með gullið frá Albertville. Þegar hún tók það f k* %' V ~ j . /;.. j. %l ” il & ■% SLÖKKNAÐI NÆSTUM ÞVÍ Þegar kveikt var í Ólympíueldinum á föstu- daginn brá mörgum þegar loginn dofnaði allverulega rétt áður en hann komst alla leið (milli þriðju og fjórðu myndar). Ástæðan var vindhviða. Aðstandendur leik- anna önduðu léttar þegar bálið kviknaði örugglega. ið fyrir Þýskaland,“ sagði þýski gönguþjálfarinn Jochen Behle. Heimsmetið var slegið í tvígang í 5000 metra skautahlaupi. Banda- ríkjamaðurinn Derek Parra var bú- inn að bæta gamla metið um 74 sek- úndubrot þegar Hollendingurinn Jochem Uytdehaage bætti það um 3,32 sekúndur. Parra varð að sætta sig við silfur. Norðmenn fengu einnig gull á laugardag. Kari ’fraa vann í hóla- svigi kvenna. Hún fékk silfur í greininni í Nagano. ■ STÖKK LENGST Svisslendingurinn Simon Ammann vann gullverðlaun í skíðstökki af 90 metra háum palli. Hann stökk 98 og 98,5 metra. upp úr töskunni brotnaði það í spón. „Þá ákvað ég að ég yrði að vinna annað hér.“ f 30 km göngu karla fagnaði Spánverjinn Johann Muehlegg ör- uggum sigri. Muehlegg er fæddur í Þýskalandi. Hann skipti um ríkis- borgararétt eftir rifrildi við þýsku þjálfarana fyrir nokkrum árum. Þrátt fyrir það voru Þjóðverjarnir í Salt Lake ekki fúlir út í týnda son- inn. „Við erum ánægðir fyrir Jo- hanns hönd, þó hann hafi ekki unn- FLJÓTASTUR Austurríkismaðurinn Fritz Strobl kom, sá og sigraði í bruni karla í gær. Enska úrvalsdeildin: STAÐA EFSTU LIÐA Manchester á toppinn fótbolti Tveir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gær. Charlton tók á móti Manchester United. Norðmaðurinn Ole Gunn- ar Solskjær tryggði sínu liði sigur með því að skora tvö mörk. Þannig komst United yfir Liver- pool í stigum og aftur í toppsæti deildarinnar. Solskjær er búinn að skora 12 mörk í deildinni í vetur. Frakkinn Fabien Barthez stóð ekki í marki United. Það vakti at- hygli þar sem félagið var sagt hafa refsað honum í síðustu viku fyrir að vera á klúbbarölti í London daginn fyrir æfingu. Everton tók á móti Arsenal í gær. Arsenal vann 1-0, þökk sé klaufalegu marki Sylvain Wiltord. David Ginola spilaði sinn fyrsta leik fyrir Everton. Átta leikir fóru fram á laugar- daginn. Liverpool vann stórsigur á Ipswich. Það var meistarabrag- ur á liðinu þegar það vann leikinn með sex mörkum gegn engu. Fyrstur til að skora var varnar- maðurinn Abel Xavier, sem gekk til liðs við félagið fyrir skömmu síðan. Bæði Michael Owen og Emile Heskey skoruðu tvö mörk og Finninn Sami Hyypia bætti því sjötta við með skalla. Ipswich var í góðu stuði fyrir leikinn, búið að vinna sjö af síðustu átta leikjum og vinna sig upp úr botni deildar- innar. Hermann Hreiðarsson náði ekki að breyta þessum úrslitum þó hann spilaði allan leikinn. Chelsea gerði 1-1 jafntefli við Aston Villa. Fyrirliði Villa, Paul Merson, skoraði fyrra mark leiks- ins. Frank Lampard jafnaði eftir sendingu frá Jimmy Floyd Hasselbaink. Eiður Smári Guðjohnsen byrjaði inn á fyrir Lið Leikir U J T Mörk Stig Man. Utd. 27 17 3 7 66:35 54 Liverpool 27 15 7 5 44:24 52 Newcastle 26 16 4 6 51:33 52 Arsenal 26 14 9 3 51:30 51 Chelsea 26 ii 11 4 46:26 44 Leeds 26 11 10 5 37:29 43 Aston Villa 26 9 11 6 32:29 38 Tottenham26 10 5 11 37:35 35 Fulham 25 8 11 6 25:23 35 Charlton 26 8 9 9 30:31 33 TAP A HEIMAVELLI Kevin Lisbie hjá Charlton berst hér við Mikael Silvestre hjá Manchester United ( leiknum á Valley í gær. United vann með tveimur mörkum gegn engu. Chelsea. Honum var skipt út af fyrir Mikael Forssell á 63. mínútu. Danski landsliðsmaðurinn Stig Tofting spilaði sinn fyrsta leik með Guðna Bergssyni og félögum í Bolton í 1-0 sigri á West Ham. Þetta var fyrsti sigur Bolton í 13 leikjum. Alan Shearer tryggði Newcastle 3-1 sigur á Sout- hampton með því að skora tvö mörk. Robbie Fowler var á skot- skónum þegar Leeds gerði 2-2 jafntefli við Middlesbrough. Tottenham vann Leicester 2-1, Sunderland Derby 1-0 og Fulham vann Blackburn 2-0. Þórður Guðjónsson lék í fyrsta sinn með Preston í ensku 1. deild í gær. Liðið tapaði 3-2 fyrir Manchester City og er í níunda sæti. Stoke tók á móti Port Vale fyr- ir framan 23 þúsund manns í ensku 2. deiidinni í gær. Ef liðið hefði sigrað hefði það komist upp í annað sæti deildarinnar. Port Vale var hinsvegar með yfirhönd- ina allan leikinn og vann 1-0. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.