Fréttablaðið - 11.02.2002, Síða 4
FRÉTTABLAÐIÐ
SVONA ERUM VIÐ
RAUNVERÐ HÚSNÆÐIS Á
HÖFUÐBORCARSVÆÐINU
Samkvæmt tölum frá Hagstofunni hefur
raunverð íbúðarhúsnæðis hækkað um
25% frá árinu 1990. Hámarki var náð í
febrúar árið 2001. Síðan þá hefur vísi-
talan lækkað um 10%.
1999
2000
2001
KAUPÞING
Stefnt er að skráningu í Svíþjóð.
Kaupþing:
yfirtaka Síðdegis á föstudag var
undirritaður samningur um
kaup Kaupþings á um 97% hlut í
sænska fjárfestingabankanum
Aragon AB. Eigendur hlutarins
fá greitt með 180 milljónum
hluta í Kaupþingi. Markaðsverð-
mæti viðskiptanna er um 2,3
milljarðar samkvæmt núverandi
gengi Kaupþings.
Kaupþing ábyrgist sölu á 30%
þeirra hluta sem seljendurnir
eignast. Félagið verður rekið
sem sjálfstætt dótturfélag
Kaupþings.
Tap Aragon á árinu 2001 var
jafnvirði 200 milljóna íslenskra
krória. Eignir í stýringu voru
rúmir 6 milljarðar sænskra
króna í árslok 2001 og hlutdeild í
viðskiptum í Kauphöllinni í
Stokkhólmi 2,6%. Samtals verða
starfsmenn Kaupþings og dótt-
urfélaga um 500 við kaupin. í til-
kynningu segir að könnuð verði
skráning Kaupþings á sænskan
hlutabréfamarkað samhliða ís-
lenskum. ■
Vísinda- ogtækniráð:
Ráð sérfræð-
inga og ráð-
herra marki
stefnuna
rIkisstiórn Ríkisstjórnin stefnir
að nýrri tilhögun varðandi stefnu-
mörkun í rannsóknum á sviði vís-
inda og tækni. í síðustu viku voru
lögð fyrir ríkisstjórn þrjú frum-
vörp þar að lútandi. Meðal þess
sem lagt er til er að „Vísinda- og
tækniráð" sem lúti stjórn forsæt-
isráðherra marki framvegis
stefnuna í vísindarannsóknum og
tækniþróun. í ráðinu eiga einnig
að sitja fjármálaráðherra,
menntamálaráðherra og iðnaðar-
ráðherra, ásamt fjórtán öðrum
fulltrúum. Þeir verði tilnefndir af
ráðherrum ráðsins og af öðrum
ráðherrum, sem og af aðilum
vinnumarkaðarins og háskólanna
í landinu. ■
11. febrúar 2002 MÁNUDAGUR
Afgerandi niðurstaða í Mosfellsbæ:
„Fram úr björtustu vonum“
,Ég fór út í þetta með
mikinn metnað og gerði mér vonir
um eitt af efstu sætunum, en bjóst
ekki við svona afgerandi kosn-
ingu,“ segir Ragnheiður Ríkharðs-
dóttir, skólastjóri, sem hlaut 85%
atkvæða í prófkjöri sjálfstæðis-
manna í Mosfellsbæ vegna kom-
andi bæjarstjórnarkosninga. Hún
kemur ný inn í bæjarmálin. Þar af
fékk Ragnheiður tæp 60% atkvæða
í fyrsta sætið og er því óumdeilan-
lega leiðtogi listans. Næsti fram-
bjóðandi fékk innan við 20% at-
kvæða í fyrsta sætið. Alls voru 867
gild atkvæði sem er fjölgun um 300
frá síðasta prófkjöri árið 1998.
Sameiginlegur listi Samfylking-
ar og Framsóknarflokks hefur ver-
ið í meirihluta með fjóra fulltrúa á
móti þremur frá D-listanum undan-
farin tvö kjörtímabil. Sjálfstæðis-
menn fóru með völd í tuttugu ár þar
á undan. Þengill Oddsson, núver-
andi trúnaðarlæknir flugmála-
stjórnar, fór fyrir sjálfstæðismönn-
um þegar þeir unnu síðast afger-
andi árið 1990.
Næstu þrjú sætin á eftir Ragn-
heiði skipa Haraldur Sverrisson,
varabæjarfulltrúi, Herdís Sigur-
jónsdóttir, bæjarfulltrúi, og Haf-
steinn Pálsson, fyrrum bæjarfull-
trúi. ■
RAGNHEIÐUR RfKHARÐSDÓTTIR
Fyrsta skrefið að því að endurheimta meiri-
hluta í bæjarstjórn, segir nýr leiðtogi D-list-
ans í Mosó.
Herdís Siaruriónsdóttir:
Öflug
samstaða
mosfellsbær „Við sem vorum í fjór-
um efstu sætunum hlutum öll bind-
andi kosningu. Ég man ekki eftir að
slík samstaða hafi náðst í prófkjöri
hér,“ segir Herdís Sigurjónsdóttir,
bæjarfulltrúi, sem hlaut þriðja sæti
á lista sjálfstæðismanna í Mosfells-
bæ. „Við eigum eftir að móta stefn-
una. Þó liggur fyrir að taka fjármál-
um bæjarins, en bærinn hefur
fengið viðvörun tvö ár í röð frá eft-
irlitsnefnd Sambands íslenskra
sveitarfélaga." Herdís segir að
fræðslu- og skipulagsmál verði of-
arlega á blaði, enda mikið af barna-
fólki í bænum og aukning hlutfalls
yngri íbúa hröð. ■
Frakkar vilja
Palestínuríki strax
Hubert Vedrine, utanríkisráðherra Frakklands, kynnti þessar hug-
myndir. Ariel Sharon hefur verið eitt ár í embætti forsætisráðherra Isra-
els. Sagt er að honum hafi ekki tekist að efna kosningaloforð sín.
beersheba. ap Hubert Vedrine, ut-
anríkisráðherra Frakklands, kyn-
nti um helgina hugmyndir sínar
um stofnun sjálfstæðs ríkis
Palestínumanna. Hann vill að
Palestínuríki verði stofnað þegar
í stað og efnt til kosninga, jafnvel
þótt ekki hafi nást
samningar um frið
Mennirnir við ísrael.
myrtu tvær Vedrine kynnti
konur og áætlunina á fundi
særðu fimm utanríkisráðherra
manns alvar- Evrópusambands-
lega. ríkjanna á Spáni.
^ Áætlunin gengur
þvert á hugmynd-
ir bæði ísraelsmanna og Banda-
ríkjamanna um að fyrst verði að
semja um frið áður en sjálfstætt
ríki Palestínumanna geti orðið
til.
Ariel Sharon, forsætisráð-
herra ísraels, kom í gær heim úr
nokkura daga opinberri heimsókn
til Bandaríkjanna. Sharon hefur
lagt mikla áherslu á að einangra
Jasser Arafat, Ieiðtoga Palestínu-
manna. Hann segist vonast til
þess að þrýstingur á Arafat verði
til þess að Palestínumenn fái sér
aðra forystusveit.
Shimon Peres, utanríkisráð-
herra í ríkisstjórn Ariels Sharons,
fagnaði í gær ákvörðun Banda-
ríkjaforseta um að verða ekki að
ósk Sharons um að slíta tengsl við
Arafat. Peres sagði að þessi
stöðugi þrýstingur á Arafat geri
ekki annað en þjappa Palestínu-
mönnum saman að baki honum.
í gær skýrðu ísraelskir fjöl-
miðlar jafnframt frá því að Shar-
on hafi beðið Bandaríkjaforseta
um 800 milljónir dala í viðbótar-
aðstoð. Hann fékk það svar, að
Bandaríkin muni hugsa málið.
Sharon hefur setið eitt ár í
UNGIR PALESTlNUMENN
Þessir piltar flúðu undan ísraelskum skriðdrekum í flóttamannabúðunum Askar ( gær. Þeir
höfðu lent ( átökum við Israelska hermenn, vopnaðir grjóti.
embætti. í franska dagblaðinu Le
Monde segir að honum hafi engan
veginn tekist að efna kosningalof-
orð sín um „frið og öryggi" til
handa ísrael. Átök milli lsraels-
manna og Palestínumanna hafa
verið nánast stöðug.
í gær hófu tveir Palestínu-
menn skothríð úti á fjölfarinni
götu rétt við stóra ísraelska her-
stöð í borginni Beersheba. Menn-
irnir myrtu tvær konur og særðu
fimm manns alvarlega. Þeir voru
síðan skotnir til bana.
Mennirnir eru sagðir hafa
stokkið út úr bifreið í hádeginu í
gær og byrjað að skjóta á fólk
með sjálfvirkum byssum. Fjöl-
margir ísraelskir hermenn voru
staddir á götunni og réðu þeir nið-
urlögum mannanna tv.eggja innan
fárra mínútna. Annar mannanna
hafði sprengjur bundnar um sig.
Hann lést áður en honum tókst að
sprengja sprengjurnar.
Hamas, samtök herskárra
strangtrúarmúslima, lýstu
ábyrgð sinni á árásinni. ■
ERLENT
Mohammad Khatami, hinn
hófsami forseti írans, hvat-
ti í gær landa sína til þess að
fjölmenna á mótmælafundi í
dag gegn Bandaríkjunum. Hann
sagði það nauðsynlegt vegna
hótana Bandaríkjanna í garð
írans undanfarið. Khatami hef-
ur barist fyrir umbótum í átt til
hófsamari stjórnarhátta í íran.
Hann hefur vegna þessa átt í
töluverðu stríði við hina strang-
trúuðu klerka, sem fara í raun
með flest völd í landinu.
Norskir stjórnarerindrekar
hafa lokið við drög að frið-
arsamkomulagi milli stríðandi
fylkinga á Sri Lanka, þar sem
borgarastríð hefur geisað í 18
ár. Ný stjórn komst til valda í
byrjun desember og hefur hún
lagt mikla áherslu á að semja
við uppreisnarmenn. í friðar-
samkomulaginu er m.a. gert ráð
fyrir friðargæsluliðum frá
Skandinavíu.
Alþjóðlegri ráðstefnu um
mannréttindi í Norður-
Kóreu lauk í Japan í gær.
Stjórnvöld í Rússlandi og Kína
voru hvött til þess að hleypa
eftirlitsfólki inn fyrir landa-
mæri sín. Þangað hafa streymt
flóttamenn frá Norður-Kóreu og
eiga þar erfitt uppdráttar.
INNLENT
Ríkissáttasemjari leggur
fram miðlunartillögu í
kjaradeilu flugumferðarstjóra
og ríkisins klukkan eitt í dag.
Tillagan verður kynnt félags-
mönnum Félags íslenskra flug-
umferðarstjóra síðdegis. At-
kvæðagreiðsla fer fram að af-
loknum kynningarfundi og ein-
nig á morgun. Að sögn Þóris
Einarssonar, ríkissáttasemjara,
ætti niðurstaða að liggja fyrir
að kvöldi þriðjudags eða á mið-
vikudagsmorgun. Af hálfu ríkis-
ins greiðir fjármálaráðherra at-
kvæði um tillöguna.
Hulduhöfundar skrifa greinar í virt læknatímarit:
Faglegt vændi vísindamanna
LYFJAIÐNAÐUR StÖÖUgt færist í
vöxt að vísindamenn séu skrifað-
ir fyrir rannsóknum í lyfjaiðnaði
sem þeir eiga engan þátt í eða
hafa að minnsta kosti ekki séð
frumgögnin sem liggja til grund-
vallar rannsóknunum. Þetta mun
einkum vera útbreitt í geirum
læknisfræðinnar þar sem lyf
gegna lykilhlutverki í meðferð
sjúklinga, svo sem í hjartalækn-
ingum og geðlækningum.
Greinar í vísindatímarit þar
sem rannsóknirnar eru kynntar
eru ritaðar af hulduhöfundum á
vegum lyfjafyrirtækjanna. Vís-
indamennirnir sem skrifaðir eru
fyrir greinunum eru til dæmis
læknar á eftirlaunum. Þeir þigg-
EKKI ALLT SEM SYNIST
Lyfjafyrirtæki verja gríðarlegu fjármagni til auglýsinga og kynninga.
ja háar greiðslur fyrir að leggja
nöfn sín við rannsóknirnar. í
upphafi tíðkuðust þessi huldu-
skrif eingöngu í tímaritum sem
kostuð eru af lyfjaframleiðend-
um en nú munu vera dæmi þessa
í öllum helstu^ læknisfræðitíma-
ritum heims. í sumum tilvikum
láta læknarnir sér ekki nægja að
vera skrifaðir fyrir greinunum
heldur flytja þeir einnig fyrir-
lestra á læknaþingum á vegum
lyfjafyrirtækja þar sem rann-
sóknirnar eru kynntar. Þóknun
læknanna er gríðarleg og eru
nefndar upphæðir allt að einni
milljón íslenskra króna fyrir að
halda eitt slíkt erindi, auk ferða
og kostnaðar. ■