Fréttablaðið - 11.02.2002, Page 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
II. febrúar 2002 MÁNUDACUR
9,48 prósenta hlutur í
Síldarvinnslunni skiptir
um hendur:
Samherji
keypti
HLUTABRÉFAVlÐSKlPTl Samherji hef-
ur keypt 9,48 prósenta hlut í Síld-
arvinnslunni hf. Fyrirtækið átti
ekki fyrir hlutabréf í Síldarvinnsl-
unni. Þorsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja, er stjórnar-
maður í Síldarvinnslunni. Sam-
herji á helmings hlut í Snæfugli
ehf. Snæfugl á tuttugu prósenta
hlut í Síldarvinnslunni. Lífeyris-
sjóður Norðurlands seldi 9,48 pró-
senta hlut sinn skömmu áður en að
Samherji keypti. Eftir söluna er
hlutur lífeyrissjóðsins enginn. ■
Valgerður H. Bjarnadóttir á Akureyri:
Vill bregðast við
aukinni mismunun
bæjarstiórnarmál „Mér finnst
þróunin í samfélaginu vera í átt til
mismununar," sagði Valgerður H.
Bjarnadóttir, framkvæmdastýra
Jafnréttisstofu. Hún leiðir fram-
boðslista Vinstrihreyfingarinnar,
græns framboðs (VG) til bæjar-
stjórnarkosninganna á Akureyri
vor og er jafnframt bæjarstjóra-
efni listans. Valgerður segir að
taka megi á aukinni mismunun á
vettvangi bæjarmála því eitt hlut-
verka sveitarfélaga sé að stuðla
að auknum jöfnuði. „Ef eitt kerfi
hefur áhrif í átt til ójöfnuðar, á
sveitarfélagið að koma með að-
gerðir á móti,“ sagði hún og nefn-
di einnig aukna áherslu á um-
hverfismál, menntun og menn-
ingu. „Ég myndi vilja gera mitt til
að hafa áhrif í þá átt að hér gæti
smám saman vaxið upp menning-
arsamfélag þar sem horft væri á
samspil fólks, náttúru og fram-
fara sem eina heild.“
Valgerður segist hafa fundið
fyrir miklum og breiðum stuðn-
ingi við framboð VG á Akureyri
VALGERÐUR H. BJARNADÓTTIR
Valgerður segist vita að hverju hún gengur í bæjarmálunum og vera
með raunsæjar væntingar. Hún var bæjarfulltrúi og um skeið forseti
bæjarstjórnar fyrir Kvennaframboðið kjörtímabilið 1982 til 1986.
og jafnvel svo mik-
ið að það hafi komið henni á óvart.
„En eitt er væntingar fólks og
annað hvernig okkur tekst að
mæta þessum væntingum í kosn-
ingabaráttunni. Þ.e. að vera með
málefnagrundvöll og málflutning
sem fólk er ánægt með.“ ■
GYLFI ARNBJÖRNSSON
Segist fagna ákvörðun íslandsbanka að
lækka þjónustugjöld um 100 milljónir
króna.
Atak gegn verðbólgu:
ASI segir
menn skynja
sína ábyrgð
efnahagsmál Gylfi Arnbjörnsson
framkvæmdastjóri ASÍ segir að
forsvarsmenn fyrirtækja séu
mjög jákvæðir fyrir því að leggja
sitt af mörkum til að verja efna-
hagsmarkmið kjai’asamninga með
lækkun verðbólgunnar. Það sé
einfaldlega vegna þess að þarna
sé um sameiginlega hagsmuni að
ræða hvort sem í hlut eiga sveit-
arfélög, bankar eða verslunarfyr-
irtæki. Enda sé framtíð þessara
fyrirtækja háð því að það takist að
tryggja stöðugleika í verðlags-
málum sem og í öðrum þáttum
efnahagslífsins. Hann segir að á
þeim fundum sem fulltrúar ASÍ
hafa átt við hina ýmsu aðila hafi
kom fram að menn skynja ábyrgð
sína í því að vera þátttakendur í
þessu starfi.
Fulltrúar ASÍ funduðu m.a.
með stjórnendum íslandsbanka
og Sjóvá -Almennum o geinnig
voru þessi mál rædd við stjórn-
endur Seðlabanka. Á næstunni
verður þessari fundaherferð
haldið áfram og m.a. með fulltrú-
um annarra banka og fjármála-
fyrirtækja, tryggingafélaga og
Sparisjóði Reykjavíkur og ná-
grennis. ■
Réttarhöldin yfir Milosevic hefjast á morgun:
Vitnisburður þrjátíu ,,inn-
herja“ gæti ráðið úrslitum
haag, ap Þegar Slobodan Milos-
evic kemur fyrir stríðsglæpadóm-
stól Sameinuðu þjóðanna í
Hollandi á morgun, þá munu rétt-
arhöldin ekki síður snúast um
hlutverk dómstólsins sjálfs og
frarntíð hans.
Ákærurnar á hendur Milosevic
eru í 66 liðum. Þær beinast að
stríðsglæpum af ýmsu tagi sem
framin voru í styrjöldunum í
Króatíu, Bosníu og Kosovo. Þar á
meðal er ákæra fyrir þjóðarmorð
vegna fjöldamorða á þúsundum
karlmanna í Srebrenica árið 1995.
Saksóknarar dómstólsins halda
því fram að Milosevic hafi gert
áætlun um að stækka serbneska
ríkið með því ýmist að myrða eða
hrekja nauðuga á brott alla aðra
íbúa þessara svæða en serba.
Búast má við að í’éttarhöldin
standi í meira en ár. Fyrstu fjóra
mánuðina eða svo snúast réttar-
höldin eingöngu um atburðina í
Kosovo.
Flest vitnanna sem kölluð
verða fyrir dómstólin koma úr
hópi fórnarlamba stríðsátakanna.
Saksóknarar segja þó að meðal
vitna við réttarhöldin verði þrjá-
tíu „innherjar", sem svo hafa ver-
ið nefndi. Þar er um að ræða ein-
staklinga úr innsta hring Milos-
evic í Júgóslavíu.
Talið er líklegt að meðal þeirra
séu Zoran Lilic, sem var forseti
Júgóslavíu 1993-97, Vlastimir
Djordjevic lögregluforingi og
Rede Markovic, yfirmaður
leynilögreglunnar.
Búast má við að vitnisburður
þessara innherja ráði úrslitum um
hvort Milosevic verður sakfelld-
ur. Niðurstaða réttarhaldanna
gæti einnig ráðið miklu um fram-
hald stríðsglæpadómstólsins.
„Það yrði hörmulegt ef þeir
töpuðu. Milosevic er það sem allt
snýst um,“ sagði Avril MacDon-
MILOSEVIC Á ENN DYGGA STUÐNINGSMENN
Um helgina komu fimm þúsund stuðningsmenn Slobodans Milosevic saman í Belgrað til
að lýsa stuðningi við hann.
Friðrik Skúlason:
Vélræn
greining
íslenskra
setninga
tölvur Fyrirtækið Friðrik Skúla-
son ehf. hefur fengið 4,5 milljón
króna styrk úr Tæknisjóði íslands
til að þróa kerfi sem tekur inn
setningu á íslensku, skilar út upp-
lýsingum um bygg-
ingu setningarinn-
ar og eiginleika
einstakra hluta
hennar. Þessi vél-
ræna greining
setninga á íslenskri
tungu er sögð vera
nauðsynleg undir-
staða frekari þró-
unar á sviði tungu-
tækni og máltölvunar. Slíkt kerfi
er t.d. hægt að nota við þróun á
vélrænum þýðingarkerfum, leið-
réttingarforritum, talgervlum og
talgreinum.
Þessu kerfi er ætlað að styrkja
undirstöður tungutækninnar hér
á landi. Þetta greiningarkerfi nýt-
ir sér annað kerfið sem þegar hef-
ur verið þróað innan fyrirtækis-
ins um einstök orð, orðflokka og
beygingar. Búist er við að það
muni einnig veita fyrirtækjum og
einstaklingum möguleika til að
þróa afurðir fyrir íslenskan mark-
að á þessu sviði. Þá er ætlunin að
nýta kerfið í framtíðinni við þró-
un á forriti til leiðréttingar á mál-
fræði. ■
ald, lögfræðingur við Asser-stofn-
unina í Haag. „Þetta ræður úrslit-
um, þannig að það er eins gott fyr-
ir þá að ná honum.“
Starfsmenn dómstólsins viður-
kenna að hafa fundið fyrir mikl-
um þrýstingi á sig. Þeir eru hins
vegar fljótir að fullyrða að mál
Milosevic verði rekið á nákvæm-
lega sama hátt og önnur mál, sem
koma fyrir dómstólinn.
Milosevic er eini þjóðarleiðtog-
inn í sögunni sem hefur hlotið
þann vafasama heiður að vera
ákærður fyrir stríðsglæpi meðan
hann var enn við völd. Enginn jafn
háttsettur og Milosevic hefur
þurft að svara til saka fyrir stríðs-
glæpi, að undanskildum þýska
nasistaforingjanum Hermann
Göring. Göring hlaut dauðadóm
hjá stríðsglæpadómstólnum í
Núrnberg eftir seinni heimsstyrj-
öldina. Hann fi’amdi sjálfsvíg
áður en unnt var að framfylgja
dauðadómnum. ■
VIÐSKIPTI
Nær þriðjungs fækkun var, í
desember, á farþegum Flug-
leiða, sem leggja leið sína yfir
Atlantshafið með viðkomu á ís-
landi. Farþegum í millilanda-
flugi Flugleiða fækkaði, í des-
ember, alls um nær 20 prósent
miðað við desember árið á und-
an. Alls fækkaði farþegum í
millilandaflugi um 5,1 prósent
árið 2001.
Þvottavélar
á frábæru verði
H
V'
#
m
49.990 kr.
Amica þvottavél 1000 sn
tekur 5 kg í þvott
Verð áður: 67.970 kr.
52.990 kr.
Tricity Bendix þvottavél 1000 sn
tekur 4,5 kg i þvott
69.990 kr.
Eiectrolux þvottavél 1100 sn
tekur 3 kg í þvott
Verð áður: 79.765 kr.
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is