Fréttablaðið - 11.02.2002, Page 22
22
KÍNVERSKU ÁRAMÓTIN ( KAUPMANNAHÖFN
Á morgun hefst ár hestsins samkvæmt kínversku almanaki. Af því tilefni gengu Kínverjar í
Kaupmannahöfn fylktu liði um götur borgarinnar á laugardaginn, skrautlega klæddir og með
sautján metra langan dreka í fararbroddi. í Danmörku búa um það bil 10.000 Kínverjar.
1FRÉTTIR AF FÓLKI|
Nokkuð hefur bæst í hóp þeir-
ra framsóknarmanna sem
eru nefndir í tengslum við skoð-
anakönnun flokks-
ins um hverjir
skuli skipa efstu
sæti listans á
framboðslista
Reykjavíkurlist-
ans. Þannig mun
hafa verið þrýst
nokkuð á Elsu
Friðfinnsdóttur, aðstoðarmann
heilbrigðisráðherra, um að hún
gefi kost á sér. Þá
hefur nokkuð ver-
ið rætt um að Sig-
ríður Jónsdóttir,
sem situr m.a. í
framkvæmda-
stjórn flokksins,
kunni að gefa kost
á sér á listann.
Dagný Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri Stúdentaráðs,
sem hefur vakið
mikla athygli með
störfum sínum.
Ýmsir horfa til
hennar en óvíst
þykir hvort hún
láti slag standa nú
vegna anna í stúd-
entapólitíkinni.
einstaklingar hafa þegar
gefið kost á sér í skoðanakönnun-
ina. Það eru þau Alfreð Þorsteins-
son, Anna Kristinsdóttir, Guðrún
Jónsdóttir og Óskar Bergsson.
Jafet S. Ólafsson skrapp í kaffi
til Davíðs Oddssonar í Stjórn-
arráðinu eftir rík-
isstjórnarfund sl.
miðvikudag. Ekk-
ert er vitað með
vissu um hvað þar
fór fram en
heyrst hefur
hvíslað að for-
mannsskort
einkavæðingar-
nefndar hafi borið
á góma. Nefndin
hefur lengi verið
gæluverkefni
Davíðs. Það mun
hafa tryggt vina-
böndin milli þeir-
ra þegar Jafet
fékk reisupassann
frá Jóni Ólafssyni á jólaballi
Norðurljósa um árið.
Sennilega voru það skemmtileg
mistök hjá Birni Bjarnasyni,
þegar hann skýrði
mikinn fylgismun
á sér og Ingi-
björgu Sólrúnu
Gísladóttur, með
sundkeppni þar
sem borgarstjóri
væri kominn í
laugina en hann
rétt að fara í skýl-
una. Sigmund hef-
ur greinilega
gripið þessi orð
fegins hendi og
teiknar Björn nú
ávallt á skýlunni,
með sundgler-
augu og það allt.
Vítur forseta Alþingis, Hall-
dórs Blöndal á Ögmund Jón-
asson, hafa vakið
athygli og sitt
sýnist hverjum.
Kristján Hreins-
son, skáldið í
Skerjafirði, hefur
sett saman vísu
um forsetann og
þingmanninn:
Ögmundur Jónasson orðfœr
og reyndur
skal úrskurði forseta hlíta:
Að segja að Halldór sé háttvís
og greindur
er hegðun sem rétt er að víta.
Sjálfstæðismenn í Kópavogi og
Mosfellsbæ kusu í prófkjörum
um helgina. Nýliði vann stórsigur
í Mosfellsbæ, Ragnheiður Rík-
harðsdóttir skólastjóri. Þrátt fyr-
ir að hún hafi ekki áður tekið þátt
í pólitískum slag er henni keppn-
isskap í blóð borið. Ragnheiður er
af Skaganum, en hún er dóttir
eins af betri fótboltamönnum
þjóðarinnar - fyrr og síðar, Rík-
harðs Jónssonar. Til að ljúka stut-
tu ættfræðiágripi frambjóðend-
ans skal á það bent að hún er
móðir Ríkharðs Daðasonar leik-
manns með Stoke City. Ragnheið-
ur hefur um árabil vakið athygli
þeirra sem fylgjast með fótbolta
þar sem hún hefur verið eindreg-
inn stuðningsmaður Fram og
hvatt sína menn hástöfum. Þau ár
sem sonur hennar lék með KR
studdi hún hann og hans félaga.
Ef Ragnheiður er eins fylgin sér í
stjórnmálum og hún hefur verið í
stúkum fótboltavalla má gera ráð
fyrir að hún láti til sín taka í
Mosfellsbæ.
Spennan vegna komandi kosn-
inga vex dag frá degi. Nú er
talað um að Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir og Helgi Hjörvar hafi
komist að samkomulagi um að
bjóða Margréti Sverrisdóttur,
framkvæmdastjóra Frjálslynda
flokkSins, sjöunda
sæti á Reykjavík-
urlistanum, Helgi
Hjörvar neitar að
þetta hafi verið
gert. Heimildir
blaðsins stangast
nokkuð á við neit-
un Helga. Ekki er
vitað hvaða örlög eiga að bíða
Ólafs F. Magnússonar verði þetta
niðurstaðan. Búið er að ákveða
sameiginlegt framboð Ólafs og
frjálslyndra.
Prófkjörsslagur Samfylkingar í
borginni fer af stað með
krafti. Steinunn
Valdís Óskars-
dóttir, hefur
t.a.m. opnað
heimasíðuna:
www.steinunn-
valdis.is. Þar
heldur hún á lofti
verkum sínum og áherslum í
borgarmálunum, en hún er sá
borgarfulltrúa í prófkjörsslagn-
um sem setið hefur einna lengst,
eða átta ár alls. Steinunn sækist
eftir 1. eða 2. sæti í prófkjörinu
og keppir þar við Helga Hjörvar,
Hrannar B. Arnarsson og Stefán
Jón Hafstein.
V. ! S
Sálarrannsóknarfélag íslands
stofnað 1918
Garðastræti 8, Reykjavík.
Miðlarnir og huglæknarnir
Birgitta Hreiðarsdóttir, Bjarni
Kristjánsson, Erna Jóhanns-
dóttir, Guðrún Hjörleifsdóttir,
Hafsteinn Guðbjörnsson, Krist-
ín Karlsdóttir, Lára Halla Snæ-
fells, María Sigurðardóttir,
Rósa Ólafsdóttir, Skúli Lórenz-
son og Þórunn Maggý Guð-
mundsdóttir starfa hjá félaginu
og bjóða upp á einkatíma.
Einig starfar Amy Engilberts
dulspekingur hjá félaginu og
býður upp á einkatíma.
Friðbjörg Óskarsdóttir heldur
utan um mannræktar-, þróun-
ar- og bænahringi.
Upplýsingar og bókanir eru í
s. 551 8130 alla virka daga frá
kl. 9.00 til 15.00 Einnig er hægt
að senda fax, 561 8130, eða
tölvupóst, srfi@isholf.id
SRFÍ.
í spásímanum 9086116 er
spákonan Sirrý og spáir í
ástir og örlög framtíðar.
Einnig tímapantanir fyrir
einkatíma í sama síma.
Andleg leiðsögn, miðlun, tarot, spilaspá,
draumaráðningar og huglækningar.
Leitum lausna við vandamálum.
Verð við frá kl.15-2
i' síma 908-6040. Hanna
Laufey Héðinsd. miðill s-9085050
Tarotlestur, miðlun, draumaráðningar,
fyrri líf, fyrirbænir.
Sími9085050
Spái í bolla og spil
Nútíð og framtíð - 6 ára reynsla
Uppl. hjá Önnu
ís. 587-4376 / 861-1129
Iðnaður
Námskeið
Námskeið í tré og
trérennismíði hefjast í
febrúar, lýkur fyrir páska
Kennari
Þórarinn Þórarinsson
Upplýsingar í síma
894 3715
www. simnet. is/inni
Trévinnustofan ehf
Sími 8958763
fax 5546 1 64
Smið
200
Fulningahurðir .Stigar
Gluggar. Fög . Skrautlistar i
----------------------------1
Flokkaðar
auglýsingar
515 7500
juvegur 1 1 e
Kópavogi
SérsmíSi í aldamótastíl
Iðnaður
Bílar
í handverkið
Tróskurðarjárn
Klukkuverk
Trésmíðavélar
Brennipennar
Steina8lípitromlur
Ostaskerar og önnur áhöld
til að skepta...
Ótal margt annað!
Gylfi
Holfshrauni 7,
220 Hafnarfirði
Sfmi: 5SS 1212 / www.gylfi.com
I
Trooper Tdi árg 09-01, 7 manna
sjálfsk, 35" breyttur ekin 8 þús.,
hvítur glæsilegur jeppi skipti
ath. bílalán. Verð 4.390.000 Stgr.
Uppl í síma 8939918
Alhliða
byggingaþjónusta
Vanir menn og
vönduð vinna.
Meistaraskólagengnir
húsasmíðameistarar.
Sími: 894-9529 og 898 0771
Parketslípun,
Parketviðhald,
Parketlögn
Oólf^mstan
Júlíus Júlíusson
GSM 847 1481
Fagmennska í fyrirúmi
Ábyrgjumst öll okkar verk
Acryl ehf
S: 561 1206 GSM: 8985457
Tökum að okkur alla almenna
málningavinnu.
Stór sem smá verk
Málun erfag
Helgi Gunnlaugsson
löggiltur málarameistari
Alhliða
smíðavinna
Tilboð eða tímavinna
Vönduð vinnubrögð
Húsasmíðameistari
Sími:
8200450 & 5904424
Getum bætt við
okkur verkum.
Vönduð vinna
Tímakaup/Tilboð
Hvað sem er ehf.
Alhliða húsaviðhald og málun
Uppl í síma
895 1404 eða 6987335
Trjáklippingar
Tek að mér að klippa tró og runna
Karl Guðjónsson
skrúðgarðyrkjumeistari
Símar: 551-9361 & 899-7773
Tölvupóstur: kalli@islandia.is
Vefsíða: www.islandia.is/kalli
Hvort sem bíllinn er nýr eða
gamall, beyglaður eða bilaður,
þá getum við lagað hann.
Bílanes,
bifreiðaverkstæði
Bygggörðum 8,
s. 561 1190 og 899 2190
Til sölu
Þessi glæsilegi Ford Thunderbird 1959,
allur sem nýr. Einnig 13 feta viking felli-
hýsi með útdraganlegri hlið árg 2000 og
Ford Focus high series árg 99.
Uppl í síma 5640090 eða 8205207
Bónstöðin
Stormur
Skemuvegur 46 bleik gata
fyrir neðan bifreiðaverkstæði Jónasar
Alþrif á fólksbílum 3.500 kr.
Uppl í síma 557 7462
Ýmislegt
Myndlistakennarar
listamenn
Höfum tekið að okkur einkaumboð
fyrir POTTERYCRAFTS LTD.ENG-
LAND. Eigum til á lager margar
gerðir af leir. Einnig gifs ofna og
rennibekki.Útvegum allar aðrar vörur
frá POTTERYCRAFTS með stuttum
fyrirvara.Gerum einnig við leir-
brennsluofna og önnur tæki.
P.Guðmundsson ehf.,
Sogavegi 146, 108 Reykjavik,
sfmi/fax 5532484, gsm 893-5701.