Fréttablaðið - 06.03.2002, Page 6

Fréttablaðið - 06.03.2002, Page 6
6 FRÉTTABLAÐID 6. mars 2002 MIÐVIKUDAGUR SPURNING DAGSINS Sauðfjárrækt rædd á þingi: Onnur grein ekki orðið verr úti Ferðu mikið á skíði? Það veltur á veðrlnu en óskandi væri að komast hverja helgi. I vetur hef ég bæði farið í Bláfjöll og til Akureyrar, nýja lyftan þar er meiriháttar. Ég ætla þangað aftur um páskana. Ólafur Hálfdánarson, starfsmaður Selecta Greiningardeild Islandsbanka: Spáir mun minni verð- STJÓRNMÁL Gera má ráð fyrir að tekjugrundvöllur sauðfjárbænda sé jafn ótryggur og áður þrátt fyrir stækkun búa sagði Þuríður Bachmann, þingmaður VG, á Al- þingi í gær við utandagskrárum- ræðu um skýrslu Ríkisendur- skoðunar um árangur síðasta bú- vörusamnings. Þuríður lýsti áhyggjum af afkomu bænda og fækkun afurðastöðva. „Fækkun afurðastöðva eigum við að skoða með tilliti til sjálfbærrar þróunar en ekki eingöngu út frá rekstrar- legum grunni einstakra afurða- stöðva." „Það er enginn vafi í mínum huga að á enga atvinnugrein í landbúnaði hefur skollið yfir jöfn hörð kreppa og það var niður- staða um 1990 að klippa á útflutn- ingsbætur með einu handbragði", sagði Guðni Ágústsson og kvaðst ekki hafa viljað vera landbúnað- arráðherrann sem stæði að því. „Það má segja að sauðf járbændur 8 GUÐNI ÁGÚSTSSON Sauðfjárbændur þessa lands eru ein fá- tækasta stétt landsins. séu ekki enn komnir út úr þeirri kreppu." Ástæða væri þó að horfa bjartari augum fram á veginn. ■ Kosið um fóstureyðingar: Irar deila publin írar kjósa í dag um hvort gera eigi breytingar á löggjöf um fóstureyðjngar. Þær eru bannaðar á írlandi. f dag verður kosið um hvort leyfa eigi fóstureyðingar ef sýnt þykir að móðurinni stafi hætta af meðgöngunni. Sú breyting mild- ar bannið sem er stjórnarskrár- bundið. Hart hefur verið deilt um breytingarnar á írlandi. Andstæð- ingar fóstureyðinga eiga mikinn hljómgrunn þar enda margir heit- trúaðir kaþólikkar þar í landi. Fylg- ismenn lögleiðingu fóstureyðinga á írlandi eru reyndar andsnúnir henni, finnst hún ekki ganga nógu langt. Ríkisstjórnin styður hins vegar breytinguna. ■ SKOÐANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS Dla tekið á spillingarmálum bólgu í ár verðþróun Greiningardeild íslands- banka spáir því að verðbólga á þessu ári verði 2,7 prósent eða tæp- ur þriðjungur þess sem hún var á síðasta ári. Óvíst er hvort verðbólg- an nái að hjaðna nógu hratt til að koma í veg fyrir uppsögn kjara- samninga í maí nk. ISB spáir að krónan haldi vel verðgildi sínu á næstu mánuðum. ÍSB segir að það ráði miklu um, hvort forsendur kjarasamninga haldist, hversu hratt og að hvað miklu leyti lækkun á meðalverði er- lendra gjaldmiðla skilar sér í lækk- un vöruverðs á næstu 2 mánuðum. ■ Könnun ASÍ: Brauð létt- ari og dýrari verplacseftiriit ASÍ kannaði verð á brauði í 29 bakaríum á höfuðborgar- svæðinu í febrúar. Munurinn á hæsta og lægsta verði í Reykjavík var 128%. Algengt var að brauð hafi hækkað um 15 til 20 prósent á milli ára. í mörgum tilvikum hafði þyngd varanna einnig minnkað. Meiri verðmunur var á landsbyggðinni. Kökubankinn Iðnbúð í Fjarðar- kaupum er með lægsta verðið í fimm tilfellum af 17. Kaffi Rót á Laugavegi er með hæsta verðið í sjö tilfellum af sautján. Á landsbyggðinni er mestur munur á hæsta og lægsta verði 136%. Valgeirsbakarí í Njarðvík er oftast með lægsta verðið eða í 6 til- fellum af 17. Sigurjónsbakarí og Nýja bakaríið, sem bæði eru í Kefla- vík, eru oftast með hæsta verðið. ■ —♦— Ný James Bond mynd: Líf við Jök- ulsárlón kvikmynpir Um 200 manns dvelja nú á Suðurlandi í námunda við Jök- ulsárlón við tökur á nýjustu James Bond myndinni. Eru flest gistipláss á Höfn upptekin auk þess sem Bret- arnir vilja íslenska bílstjóra. Um 100 bílar þjónusta komufólkið. Myndatökur verða til 16. mars og hefur veðrið verið gott. Tökur eru tveimur dögum á undan áætlun. Nokkuð mikið líf er í kringum gestina. Lítið þorp, sem sam- anstendur af tjöldum og húsbflum, hefur verið reist við lónið. Reiknað er með að starfsmenn verði hér á landi til 20. mars til að taka til á svæðinu eftir tökur. Mikið af heimafólki er í vinnu við aö þjónusta hópinn. Gott veður hefur flýtt tökum og var hópurinn tveimur dögum á undan áætlun. Ef veður spillist geta tökur tafist. Blíð- viðri í upphafi vikunnar eykur mönnum bjartsýni að áætlanir standist. ■ Yfirgnæfandi meirihluti kjósenda er ósáttur við hvernig tekið hefur verið á spillingu í stofnunum og fyrirtækjum ríkisins. Aðeins fimmti hver kjósandi sáttur. Mikill munur á afstöðu stuðnings- manna Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. könnun Fjórir af hverjum fimm kjósendum eru ósáttir við hvern- ig stjórnvöld hafa tekið á spill- ingu í opinberum stofnunum og fyrirtækjum samkvæmt skoð- anakönnum Fréttablaðsins. Mik- ill munur er á afstöðu fólks eftir því hvaða flokk það myndi kjósa. Sérstaka athygli vekur mikill munur á afstöðu kjósenda stjórnarflokkanna. Tvöfalt hærra hlutfall sjálfstæðismanna en framsóknarmanna lýsir ánægju sinni með hvernig hefur verið staðið að málum. Stuðningsmenn Sjálfstæðis- flokks eru ánægðastir með hvernig hefur verið tekið á spill- ingu. Samt sem áður eru tveir þriðju hlutar þeirra ósáttir. Ein- ungis 35% lýsa ánægju með hvernig hefur til tekist. Það er þó tvöfalt hærra hlutfall en mælist hjá stuðningsmönnum Framsóknarflokks. Þar eru ERTU SATT(UR) EÐA ÓSÁTT(UR) VIÐ HVERNIG STJÓRNVÖLD TAKA Á SPILLINGU HJÁ OPINBERUM FYRIRTÆKJUM OG STOFNUNUM? SÁTT(UR) ÓSÁTT(UR) Urtakið í könnuninni var valið úr símaskrá. 600 manns voru spurðir og skiptust þeir jafnt á milli karla og kvenna. Helmingur þátttakenda var úr kjördæmunum þremur á höfuðborgarsvæðinu og helmingur úr lands- byggðarkjördæmunum þremur; Suður-, Norð- austur- og Vesturlands- kjördæmum. 89,8% aðspurðra svöruðu spurningunni: Ertu sátt(ur) eða ósátt(ur) við hvernig stjórnvöld taka á spillingu hjá opinberum fyrirtækj- um og stofnunum? ■ ' ALLIR llll FRAMSÓK- NARFLOKKUR I , ' 'k 19,7% 80,3% 17,1% 82,9% SJALFSTÆÐIS- FLOKKUR 35,0% 65,0% 17,1% sáttir við hvernig hefur verið tekið á spillingarmálum. Stuðningsmenn Frjálslynda koma næst stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokks í ánægju með hvernig hefur verið tekið á spill- ÞJÓÐMENNINGARHUS Almenningi finnst illa tekið á spillingarmálum. Aðeins fimmti hver kjósandi er sáttur við hvernig tekið hefur verið á spillingu. Bæjarstjórn Árborgar: ingu. 28,4% þeirra eru sáttir. Mest er óánægjan meðal stuðningsmanna Samfylkingar. Þar eru aðeins 3,9% sátt við hvernig stjórnvöld hafa brugðist við spillingu. 96,1% eru ósátt. Níu af hverjum tíu stuðnings- mönnum Vinstri-grænna eru ósáttir. 17,9% þeirra kjósenda sem ekki lýsa stuðningi við ákveðinn flokk eru sáttir við tök stjórnvalda á spillingu. Rúmlega fjórir af hverjum fimm eru hins vegar óánægðir. Ekki munar miklu á afstöðu fólks eftir kynferði. 83,1% kven- na eru ósáttar við hvernig hefur verið staðið að málum. Karlar eru litlu ánægðari. 77,7% þeirra eru ósáttir. Ef litið er til búsetu kjósenda kemur í ljós að kjós- endur í Suðurkjördæmi eru óá- nægðastir með hvernig stjórn- völd hafa brugðist við. 84,1% kjósenda þar eru ósátt við fram- göngu stjórnvalda. Minnst er óá- nægjan á höfuðborgarsvæðinu og í norðausturkjördæmi. Þar eru þó innan við fjórðungur kjósenda sáttur við hvernig tek- ið hefur verið á spillingu. ■ I INNLENT I Alykta um Selfossflugvöll SAMCÖNCUR Kristján Einarsson, forseti bæjarstjórnar í Árborg, telur bæjarfulltrúa meðmælta því að flugvöllur verði áfram á Sel- fossi, en unnið er að nýju svæðis- skipulagi. Horft er til þess að Sel- fossvöllur gæti nýst sem snerti- lendinga- og jafnvei kennsluvöll- ur í stað Reykjavíkurflugvallar þegar fram í sækir. „Flugmálastjórn bíður hins vegar eftir niðurstöðum okkar í skipulagsmálunum, en ætlunin er að gera svæðisskipulag fyrir allt svæðið, Selfoss, Eyrarbakka og Stokkseyri, eftir sameininguna. Svo eru menn óþreyjufullir að bíða eftir því þannig að við viljum hraða málinu og fá sem fyrst nið- urstöðu í hljóðmælingar og fleira slíkt,“ sagði hann og vonaðist til að bærinn gæti fljótlega skilað niðurstöðum til flugmálastjórnar. Karl Björnsson, bæjarstjóri í Árborg, sagði litlar fregnir af fiugvalíarmálinu að sinni, en stefnt væri að því að bæjarstjórn álykti um áframhaldandi veru flugvallarins á Selfossi á fundi sínum í næstu viku. ■ ÁFRAM flugvöllur A SELFOSSI? Flugmálastjórn biður eftir niðurstöðum Arborgar I skipulagsmálum Ekkert starfhæft slökkvilið hef- ur verið á Patreksfirði frá því slökkviliðstjóri bæjarins hætti þar störfum um síðustu áramót. Enginn mætti þar á útkallsæfingu Bruna- málastofnunar í fyrrakvöld að því er ruv.is greinir frá. Jón B.G.Jóns- son, forseti bæjarstjórnar Vestur- byggðar, segist taka fulla ábyrgð á því að slökkvilið hafi ekki verið starfandi í bænum. Þjóðleikhúsið og íslandsbanki undirrituðu samning um sam- starf í gærmorgun. Hann felur í sér að Islandsbanki verður aðal- samstarfsaðili Þjóðleikhússins næstu tvö árin og leggur Þjóðleik- húsinu til 10 milljónir króna. Þeim verður einkum varið til að efla fræðslustarf leikhússins.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.