Fréttablaðið - 06.03.2002, Blaðsíða 24
I
FRETTABLAÐIÐ
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSÍr.ÍS Fyrstur með fréttirnar
Einingahús frá
HÚSogheimili
www.husogheimili.is
Bjálkahús ehf sími 511-1818 fax 511-1822
RAFLAGNIR ÍSLANÐS ehf.
VERSLUN - HEILDSALA
FAMI hillukerfi
Hillur fyrir vandláta - Óþrjótandi
möguleikar og sérsmíði. Slétt
yfirborð auðveldar þrif og
umgengni. GOTTVERÐ
Hamarshöfða 1 - Sími 511 1122
www.simnet.is/ris
Bakþankar
I Þráins Bertelssonar
Pennavinir
1. BRÉF: KÆRI kaupmaður. Fá-
einar línur (í trúnaði að segja) um
þitt skítlega gangstereðli. Það sví-
narí að selja ýsuflökin á yfir 12
hundruð krónur kílóið er banatilræði
við okkur sem höfum verið að reyna
að treina í okkur líftóruna á fiski frá
upphafi íslandsbyggðar. Ég hef nú
beðið sóknarprest minn um að reyna
að reka út þá illu Mammonsanda
sem hafa þig á valdi sínu. Ef það
tekst ekki óska ég þér góðrar ferðar
(norður og niður) og langrar dvalar í
þeirri heitu vist sem þín bíður.
—♦—
2. BRÉF: KÆRI skattstjóri. Ég vil
(í fullum trúnaði) segja þér að þínir
útsendarar gerðu mér þann grikk
sér til skemmtunar að ljúga upp á
mig að ég hefði svikið 400 þúsund
krónur undan skatti og gerðu mér að
greiða þá upphæð. Það kostaði mig
ómælda vinnu og 600 þúsund krónur
til endurskoðanda að sanna sakleysi
mitt og fá þessa upphæð fellda nið-
ur. Eruð þið of vitlausir til að rann-
saka alvörufyrirtæki og ríkisbubba
með vinnukonuútsvar og verðið að
leggjast á einyrkja og launafólk?
Eða eruð þið bara svona latir?
—♦—
3. BRÉF: KÆRI veðurstofustjóri.
Nokkur orð í trúnaði. Undanfarna
áratugi hef ég notað spádóma sem
framleiddir eru hjá fyrirtæki yðar.
Ég hef lent í sjávarháska hvað eftir
annað og stórum villum í sömu
andrá og starfsmenn þínir hafa ver-
ið að spóka sig í Sjónvarpinu
gasprandi um sól og vor. Ég er
meira og minna kalinn á öllum út-
limum og get þvi ekki leikið á píanó.
Hrakfarir mínar byrjuðu fyrir
mörgum árum þegar ég fór tjaldlaus
í útilegu um verslunarmannahelgi
og þrjár skátastúlkur björguðu lífi
mínu með heitu kakói (o.fl.) þegar
líkamshiti minn var kominn ofan í
26"C en er venjulega um 37 gráður.
Ég hef ákveðið að una þessari kerf-
isbundnu blekkingastarfsemi ekki
lengur og mun taka málið í mínar
hendur (það sem eftir er af þeim).
P.S. Éttu það sem úti frýs.
í TRÚNAÐI að segja hefur oft
hvarflað að mér að leggja meiri
rækt við þá vanræktu bókmennta-
grein að skrifa hótunarbréf - en ég
hef neitað mér um það af því að ég
tel þroskandi að reyna að hafa hemil
á fólinu sem býr í okkur öllum. (Og
svo er ég hræddur við hefndarað-
gerðir). ■
COMPANY
Sjónvarpskommóða kr. 49.000,- Úrval fallegra baðhandklæða.
Tölvuskápur kr. 109,000,
'Massíf' tekkhúsgögn i úrvali
TekkVöruhús - C
Opið Lau
64 4400
unnuda
.... * •..
Ein mest selda fermingarstæðan þrjú ár í röð!
/ )
, 1 / 2002
Lágmúla 8 * Sími 530 2800
I