Fréttablaðið - 27.03.2002, Page 12
FRÉTTABLAÐIÐ
27. mars 2002 MIDVIKUDACUR
(^rSrP^lfi
3). mors sunnutícrgskvöld MdMtjdvM)
Híynl Íhíw oi ýmsi wngíotw ati «i raato
(Itslo «j fitrimht »agv» fió fyirwra
Xm»kf kvitíural)
Skrium ó nSí aé aatd
) »il striivr
Helgin S.*6. opríl
ftstuJogskviM: Kmookeilvetí
loogoiéogsiívild: HF)5Biííátm
Leður til heimilisprýði
1 tmtiist
LEOURVÖRUDEHD
í púða, dúka
á húsgögn
eða á gólfið
Krókhálsi 3 • 110 Reykjavik • Sími 569-1900 • Fax 569-1901 • hvitlist@hvit/ist.is
Úrslitakeppni Epson-deildar:
Njardvík lagði KR aftur
körfubolti í gærkvöldi fóru fram
tveir leikir í úrslitakeppni Epson-
deildar karla. Þrír sigrar tryggja
liði sæti í úrslitaviðureign keppn-
innar.
í Grindavík fór fram annar
leikur viðureignar Grindavíkur
og Keflavíkur. Keflavík vann leik-
inn 91-86. Keflavík vann síðasta
leik 102-86.
Næsti leikur fer fram í Kefla-
vík á laugardaginn.
í KR-húsinu fór fram annar
leikur viðureignar KR og Njarð-
víkur. Njarðvík vann leikinn 96-80.
Njarðvík vann síðasta leik, sem
fór fram á laugardaginn, 91-90.
Næsti leikur fer fram í Njarð-
vík á föstudaginn. ■
HANDAGANGUR í ÖSKJUNNI
Hart var barist um boltann í KR-húsinu í
gærkvöldi þar sem KR og Njarðvík mætt-
ust öðru sinni.
Beckham og Owen:
Stjörnur á
frímerki
fótbolti David Beckham og Mich-
ael Owen verða í vor fyrstu
„venjulegu" Bretarnir sem verða
þess heiðurs aðnjótandi að
skreyta frímerki í lifanda lífi.
Fram að þessu hefur einungis
tíðkast að prenta eðalborna á
bresk frímerki. Hin konunglega
breska póstþjónusta gefur út frí-
merki á eynni Mön með myndum
af köppunum tveimur. Owen verð-
ur metinn á 26 pens en fyrirliðinn
Beckham á 22 pens, sem vísast
þykja ekki stórar upphæðir í
heimi knattspyrnukappanna. ■
Hitað upp
fyrir HM
Oll landslid nema tvö af þeim 32 sem taka þátt í
HM í Japan og S-Kóreu, spila vináttulandsleiki
í vikunni. Margir leikmenn eru meiddir.
fótbolti Heimsmeistarakeppnin er
handan hornsins og annríki félags-
liðanna er farið að taka sinn skerf.
Mörg liðanna eru í vafa um að fær-
ustu leikmennirnir geti spilað með í
sumar. England hefur áhyggjur
vegna Michael Owen og Steven
Gerrard. Enn er óvissa um hvort Ro-
bert Pires getur spilað með Frakk-
landi. Þýskaland er með næstum því
heilt Iið frá vegna meiðsla. Þar er
fullvíst að Alexander Zicker verður
ekki með í sumar. Rivaldo vantar í
brasilíska liðið, Figo og Rui Costa í
það portúgalska, Roy Keane í írska
og Alessandro Del Piero í ítalska.
Vináttulandsleikirnir í dag áttu að
vera fyrir landsliðsþjálfarana að
fínpússa leikmannahópinn. í staðinn
þurfa þeir að aðlaga sig að meiðslun-
um.
Mörg sigurstranglegustu liða
HM spila leiki í dag. Englendingar
taka á móti ítölum. Heimsmeistarar
Frakka taka á móti Skotlandi, sem
komst ekki á mótið. Argentína, sem
margir spá sigri, spilar við Ólympíu-
meistara Kamerún. Þjóðverjar spila
við Bandaríkjamenn og Brasilía við
Júgóslavíu á fimmtudag. Einnig
mætast Paragvæ og Nígería, Króa-
tía og Slóvenía, írland og Danmörk,
ÍTALSKA LIÐIÐ
Leikmenn Ítalíu á æfíngu fyrir landsleikinn
gegn Englendingum í Leeds í kvöld.
Saudi Arabía og Úrúgvæ og Spánn
og Holland, sem komst ekki í úrslita-
keppnina. Portúgal mætir Finnlandi,
Svíþjóð Sviss, Grikkland Belgíu,
Kosta Ríka Marokkó, Georgía Suð-
ur-Afríku, Senegal Bólivíu, Túnis
Noregi, Eistland Rússlandi og
Ekvador, sem komst á HM í fyrsta
skipti, mætir Búlgaríu á Giants-leik-
vanginum í New York. ■
ÞJÓNUSTA RÉYKJAVÍKURBORGAR
Kjalarnes
! GRUNNSKOLAR
i LEfKSKOLAR
ÍTR
UMHVEfaFtSMÁL
Hverfafundur borgarstjóra
meö íbúum Kjalarness
er í kvöld kl. 20:00 í Fólkvangi
Á fundinum ræðir borgarstjóri áherslur í starfi borgarinnar og helstu framkvæmdir á árinu 2002. Einnig verður
ný hverfaskipting borgarinnar kynnt ásamt ýmsum hugmyndum um samráð íbúa og borgaryfirvalda.
Borgarstjóri