Fréttablaðið - 27.03.2002, Page 24
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20, dreifing@frettabladid.is
VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á WÍSÍi'-ÍS Fyrstur með fréttirnar
Bjálkahús ehf sími 511-1818 fax 511-1822
HUSogheimili
www.husogheimili.is
Þráins Bertelssonar
Kaloríusnauð-
ir málshættir
Nú er svo komið fyrir þjóðinni að
á þessum miklu megrunar- og
heilsuræktartímum eru flestir orðn-
ir of feitir til að leggja sér páskaegg
til munns og verða að láta sér nægja
að japla málshættina í staðinn.
Nema auðvitað þlessuð börnin sem
fara á fætur fyrir allar aldir til að
hesthúsa strútsegg úr sykri og
súkkulaði og hníga svo út af í
súkkulaðivímu eftir ofvirkan dag.
—♦—
MÁLSHÆTTIRNIRhafa þann
kost fyrir kaupendur að engar eru í
þeim kalóríurnar, og það er hagræði
að því fyrir framleiðendur að hægt
skuli vera að nota sömu tuggurnar
ár eftir ár. Börnin hafa líka gaman
af því þegar hneykslaðir foreldrarn-
ir hringja í ömmu til að spyrja hvað
í ósköpunum „betra er að hemja 100
flær á hörðu skinni en píkur tvær á
palli inni“ eigi að þýða og afhverju
svonalagað sé haft fyrir börnum á
páskum eins og það sé ekki nóg
klám í sjónvarpinu?
—$—
í PÁSKAEGGINU frá ríkisstjórn-
inni til þjóðarinnar gæti staðið: „Því
verr gefast heimskra manna ráð
sem fleiri koma saman.“ Og ef Dav-
íð gæfi Halldóri páskaegg mundi
það geyma boðskapinn „Heima er
best“. f staðinn fengi Davíð risaegg
frá Halldóri úr belgísku sælkera-
súkkulaði og málsháttinn: „Heimskt
er heimaalið barn.“
í —♦—
EF ÞJÓÐIN SENDI einstökum
ráðherrum egg fengi landbúnaðar-
ráðherra egg sem væri í laginu eins
og paprikka og í því mætti lesa þessa
setningu úr Njálu: „Af grænmetistoll-
unum skulið þér þekkja þá.“ Dóms-
málaráðherra fengi: „Með pappírs-
löggum skal land byggja." Sjávarút-
vegsráðherra: „Best er að taka pusið
frá LÍÚ í hnakkann." Fjármálaráð-
herra: „5x5 eru simmsalabimm." Iðn-
aðarráðherra: „Norðmenn kenna
naktri konu að spinna." Menntamála-
ráðherra: „Bókvitið verður ekki í
töskuna látið.“ Félagsmálaráðherra:
„Oft verður góður hestur úr gömlum
fola.“ Heilbrigðisráðherra: „Pening-
ana eða lífið?“ Umhverfisráðherra:
„Oft veldur lítil þúfa því að allt er í
hassi.“ Og Sturla greyið fengi ábyggi-
lega eitthvað kvikindislegt eins og:
„Hátt hreykir heimskur sér.“ Eða
„Hér fljótum vér eplin! sögðu tað-
kögglarnir." Hvaða málshætti við hin
fáum kemur í ljós á páskadag. Gleði-
lega páska. ■
Páskaliljur
10 stk.
blómcwal
Páskaliljur í potti og
Mónupáskaegg nr. 2
299
(*á meðan birgðir endast)
kr.
Reykjavík sími 580 0500 • Selfossi sími 480 0800
www.blomaval.is
AF-10/Kit
Fílma og taska fylgir
6.900
................
Komið og lítið á
úrvalið í verslun okkar
í Lágmúlanum
1922 ( jQ 2002
BRÆPURNIR
ORMSSON
Lágmúlo 8 • Stmi 530 2B00