Fréttablaðið - 11.04.2002, Síða 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KJÖRKASSINN
11. apríl 2002 FIIVINITUPACUR
ORÐ ( Tl'MA TÖLUÐ
Tveir þriðju hlutar kjós-
enda á Vísi.is voru
þeirrar skoðunar að yf-
irlýsing stjórnvalda í
gær um (srael væri
tímabær.
Eiga íslensk stjórnvöld að láta
meira að sér kveða um ástandið
fyrir botni Miðjarðarhafs?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Eiga yfirvöld að herða reglur um ávísan-
ir á læknadópi?
Farðu inn á visi.is og segðu I
þina skoðun I
Norska lögreglan grípur
til aðgerða:
Ótti við
hryðjuverk
í Noregi
noregur Lögreglan í Ósló óttast að
ísraelsmenn eða gyðingar þar í
borg verði fyrir sprengjuárás á
næstunni til þess að mótmæla
allsherjarhernaði ísraela gegn
Palestínumönnum. Á sunnudaginn
bárust lögreglunni fréttir af því
að ungir múslimar hafi lýst sig
reiðubúna til að fremja sjálfs-
morðsárásir í Noregi. Upplýsing-
ar komu frá manni, sem hafði ver-
ið viðstaddur fund nokkurra ísl-
amskra leiðtoga í Noregi.
Á þriðjudaginn lokaði lögreglan
götunni, sem sendiráð ísraels í
Osló stendur við. Einnig hefur ver-
ið reistur eins konar varnargarður
framan við samkunduhús gyðinga
í Ósló. Norska dagblaðið Aften-
posten skýrði frá þessu í gær. ■
FINNBOGI SIGURÐSSON
Segir að það sé ekki algengt að foreldrar
óski eftir að sitja í kennslutímum.
Grunnskólinn:
Undantekn-
ing að for-
eldrar fái að
sitja í tíma
SKÓLI Það er undantekning að for-
eldrar nemenda fái að sitja
kennslustundir í grunnskólum.
Grunnskólalögin gera ekki ráð
fyrir að foreldrar hafi aðgang að
kennslustundum. Þetta kemur
fram í áliti lögmanns Kennara-
sambandsins sem unnið var að
beiðni Félags grunnskólakennara.
Finnbogi Sigurðsson, formaður
félagsins, segir að álitið sé mjög
samhljóða því sem fram hefur
komið hjá menntamálaráðuneyt-
inu. Hann segir að í flestum til-
fellum sé það hins vegar ekkert
mál fyrir foreldra að fá leyfi
skólastjóra til að sitja kennslu-
stundir.
Ástæðan fyrir því að félagið
bað um álitið var ágreiningur sem
kom upp í einu sveitarfélagi. Þar
kröfðust foreldrar þess að fá að
sitja í kennslutíma en skólastjór-
inn neitaði því á þeirri forsendu
að honum væri það ekki heimilt. ■
Hætt við ráðstefnuna Siðfræði og lífvísindi:
Siðfræðingar vildu
ekki vera með Kára
ráðstefna Líffræðifélag fslands
og Siðfræðistofnun hafa hætt við
að halda ráðstefnuna Siðfræði og
lífvísindi sem átti vera um næstu
helgi. Samkvæmt tilkynningu Líf-
fræðifélagsins í gær er ráðstefn-
unni frestað „vegna óviðráðan-
legra ástæðna ... um óákveðinn
tíma“.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins er helsta ástæðan að nokkrir
siðfræðingar sem áttu að halda
erindi drógu sig tilbaka vegna síð-
búinnar aðkomu Kára Stefánsson-
ar og deCODE að ráðstefnunni.
Heimildarmaður sem óskaði nafn-
leyndar sagði við blaðið að nafn
Kára hefði nýlega bæst á mæl-
endaskrá. Siðfræðingar hafi sett
spurningarmerki við fræðilegt
inntak ræðu Kára, en samkvæmt
útdrætti átti hún að fjalla á ítar-
legan hátt um starfsemi fyrirtæk-
is hans.
Deildar meiningar voru auk
þess um breytingu á áformaðri
staðsetningu. Upphaflega átti að
halda ráðstefnuna í Hátíðarsal HÍ
KÁRI
STEFÁNSSON
Er sagður hafa
tekið yfir ráð-
stefnu þar sem
siðfræði I vísind-
um átti að vera
til umræðu.
en fyrir nokkrum dögum var
ákveðið að notast fremur við
húsakynni deCODE í Vatnsmýr-
inni.
Salvör Nordal, forstöðumaður
Siðfræðistofnunar, staðfesti að
síðbúin aðkoma fyrirtækisins
hefði haft eitthvað með það að
gera að nokkrir fyrirlesarar
hættu við. Hún sagði að ástæður
frestunar væru margar en vildi
ekki tjá sig nánar um málið. ■
Kemur í bakið á
öðrum fyrirtækjum
Tilkoma nýs lyQaþróunarfyrirtækis deCODE mun valda sprengingu á
vinnumarkaði. Slíkt bitnar á öðrum fyrirtækjum sem sækjast eftir sama
starfsfólki. Tímaskekkja, segir forstjóri Pharmaco, og telur óeðlilegt að
ríkið styðji fyrirtæki sem fer í samkeppni við önnur um starfsfólk.
ríkisábyrgðir „Það er augljóst mál
að þó þetta fyrirtæki sé ekki í
beinni samkeppni við marga hérna
í framleiðslu þá eru þeir að keppa
á sama markaði um sama starfs-
kraftinn sem er af skornum
skammti," segir Sindri Sindrason,
forstjóri Pharmaco. Hann segir að
þó það skapi vand-
* ræði fyrir önnur
„Ég held að fyrirtæki að ný
það sé alveg fyrirtæki komi inn
Ijóst að það á sama markað sé
eru ekki 250 - ekkert við því að
300 manns á segja þegar þau
lausu af hæf- gera það upp á sitt
um starfskrafti eindæmi.
í þessum „En mér finnst
geira heima." mjög óeðlilegt að
___^____ ríkið komi og bakki
menn sérstaklega
upp í þessu. Þetta mun bitna á
mörgum öðrum. Ég held að það sé
alveg ljóst að það eru ekki 250 - 300
manns á lausu af hæfum starfs-
krafti í þessum geira heima,“ segir
Sindri. „Þetta er það sérhæft svið
að þú ert ekki með þúsundir
manna sem ganga um meira og
minna atvinnulausir, sem betur
fer.“
Sindri segir það tímaskekkju
að ríkið komi að rekstri fyrir-
tækja með þessum hætti. „Það eru
hluthafar fyrirtækja sem taka
svona áhættu. Það eru þeir sem
hirða arðinn ef vel gengur. í þessu
tilfelli eru það einhverjir aðrir
sem taka á sig skellinn ef illa
gengur. Ég trúði þessu ekki þegar
ég heyrði þetta.“
„ísland er náttúrulega lítill
ÍSLENSK ERFÐAGREINING
Þegar fslensk erfðagreining hóf starfsemi hér á landi varð sprenging í eftirspurn eftir fag-
fólki. Stofnun lyfjafyrirtækis mun hafa sömu áhrif og hafa bein áhrif á starfsemi annarra
fyrirtækja sem sækjast eftir sama starfsfólki.
vinnumarkaður. Þetta mun klár-
lega hafa áhrif á hann,“ segir Ró-
bert Wessman, forstjóri Delta, en
segir of snemmt að segja til um
hvernig þau áhrif koma fram. Ró-
bert lítur ekki svo á að fyrirheit
um ríkisábyrgðir eigi að beinast
að deCODE einu.
„Við hjá Delta munum að sjálf-
sögðu skoða hvaða tækifæri ligg-
ja í þessu, ef stefna ríkisins er að
styðja myndarlega við bakið á
fyrirtækjum í þessum rekstri,"
segir Róbert Wessman, forstjóri
Delta. Hann segir að svipað sé
gert á Möltu þar sem Delta hafi
starfsemi. „Það er hins vegar mik-
ilvægt að ríkið geri sér grein fyr-
ir áhættunni sem fylgir svona
ábyrgð. Það er alltaf töluverð
áhætta sem felst í frumþróun á
nýjum lyfjum.“
brynjolfur@frettabladid.is
haflidi@frettabladid.is
Heilbrigðisráðherra boðar breytta vinnuferla og bíður dóms Hæstaréttar:
Ovissar afleiðingar
innan ráðuneytis
stjórnsýsla Jón Kristjánsson heil-
brigöisráðherra ætlar að bíða nið-
urstöðu Hæstaréttar áður en hann
ákveður hvaða afleiðingar am-
fetamínsklúðrið hefur innan ráðu-
neytis hans.
„Við lítum þannig á að innflutn-
ingur og meðferð þessa efnis sé
bannaður. Hins vegar var málinu
vísað til Hæstaréttar. Ég ætla
ekki að tjá mig fyrr dómur hans
liggur fyrir,“ segir Jón.
Aðspurður segir Jón að vinnu-
brögðum í heilbrigðisráðuneytinu
hafi verið breytt í kjölfar þess að
það gleymdist að merkja við am-
fetamín sem bannefni í reglugerð.
„Við munum fara yfir alla vinnu-
ferla í þessu,“ segir hann
Jón bendir á að um óvenjulega
reglugerð sé að ræða að því leyti
að hún sé lyfjalisti. Engar sam-
bærilegar veilur hafi fundist í
listanum.
Afleiðingar amfetamíns-
hneykslisins geta orðið alvarleg-
ar. I þessari viku sýknaði Héraðs-
dómur Reykjavíkur mann af
ákæru um amfetamíneign og öðr-
um var sleppt úr gæsluvarðhaldi.
Búast má við kröfum frá þcim
sem sættu gæsluvarðhaldi eða
voru dæmdir á þeim tíma sem
reglugerðin var gölluð. ■
JÓN KRISTJÁNSSON
Heilbrigðisráðherra segir ráðuneytið hafa
litið svo á að innflutningur og meðferð
amfetamíns væri ólöglegur.
Bruni á Ásvallagötu: .
íbúð stór-
skemmdist
bruni Miklar skemmdir urðu á
íbúð við Ásvallagötu 10 síðdegis í
gær. Þegar slökkvilið kom á stað-
inn var talsverður eldur í barna-
herbergi íbúðarinnar sem er á
jarðhæð. Nánast allt sem var inni
eyðilagðist. Um tíma var óttast að
tveir drengir væru í íbúðinni.
Vandlega var leitað en síðar kom í
ljós að drengirnir höfðu brugðið
sér á bókasafn.
Slökkvistarf gekk greiðlega og
var reykræstingu lokið um kvöld-
matarleytið. Talið er víst að eldur-
inn hafi kviknað í eða við sjón-
varpstæki í barnaherbergi. ■
GREININGARSTÖÐIN
Sú viðleitni ráðuneytis að minnka biðlist-
ann með fjárveitingu til fjölgunar starfa
gengur ekki upp, segja starfsmenn.
Greiningarstöð ríkisins:
Vantar
talmeina-
fræðing
kjaramÁl „Við höfum heimildir um
að fólk sem vinnur hjá ríkisspítöl-
unum við samskonar störf og unn-
in eru hjá okkur fái allt að 25%
hærri laun,“ segir Bryndís Hall-
dórsdóttir formaður starfsmanna-
félags Greiningar- og ráðgjafar-
stöðvar ríkisins.
Á fundi starfsmanna með full-
trúum félagsmálaráðuneytisins í
gær um stefnu stöðvarinnar kom
fram að litlar líkur væru á að
vandinn yrði leystur með aukinni
fjárveitingu til ráðningar fjögurra
nýrra starfsmanna. Vegna lágra
launa hefðu sérfræðingar sýnt
auglýstum störfum lítinn áhuga.
Börn sem þurfa greiningu
vegna þroskafrávika bíða nú að
jafnaði í 12-14 mánuði eftir þjón-
ustu. Bryndís segir að stöðinni
vanti til dæmis sárlega talmeina-
fræðing. ■
—♦—
Þj óðhagsstofnunar-
frumvarp:
Deilt fram
eftir degi
alþingi Hart var deilt um frum-
varp ríkisstjórnarinnar um að
leggja niður Þjóðhagsstofnun á
þingfundi í gær. Lítið fór fyrir
stjórnarliðum í umræðunni. Ein-
ungis Halldór Ásgrímsson, starf-
andi forsætisráðherra, og Geir H.
Haarde, fjármálaráðherra, tóku
þátt í umræðunni fyrir hönd
stjórnarliða. Stjórnarandstæðing-
ar gagnrýndu að verið vaeri að
grafa undan sjálfstæðu mati efna-
hagsmála og það fært undir hæl
forsætisráðherra. Fjármálaráð-
herra sagði þá gera úlfalda úr
mýflugu. Verið væri að hagræða
skipan mála. ■
1lögreglufréttir|
-jyrla Landhelgisgæslunnar
■ sótti slasaðan sjómann um
orð í bátinn Hrímni ÁR-51 frá
orlákshöfn síðdegis í gasr. Að
ign vakthafandi læknis á slysa-
eild Fossvogssjúkrahúss reynd-
st höfuðáverkar mannsins ekki
Ivarlegir. Þungt stykki hafði
egist í höfuð hans. Hann fékk
3 fara heim um kvöldmatarleyt-
> í gær að lokinni rannsókn. Til-
ynnt var um slysið um tvöleytið
g lagði þyrlan af stað um 20
línútum síðar.