Fréttablaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
11. apríl 2002 FIMIVITUDACUR
SLÆMT FALL
Hestar:
Heimsmet
bylta Jose Badilla Jr. og hesturinn
Hes My Dasher detta í MBNA
American New Mexico kapp-
hlaupinu sl. sunnudag. í sama
hlaupi settu Kenneth Hart og
hesturinn Kendall Jackson,
hægra megin, heimsmet í 400
metrum, fóru vegalengdina á
20,73 sekúndum. ■
Meistaradeild Evrópu:
Madrid og Man Utd. áfram
FÓtbolti Manchester United og
Real Madrid unnu bæði á heima-
völlum sínum í gærkvöldi. Alls
skoruðu leikmenn United fimm
mörk á móti tveimur mörkum
Deportivo-manna í einvíginu.
3:2 sigurinn í gær gæti þó orðið
United dýr þar sem David Beck-
ham ökklabrotnaði eftir harða
tæklingu Pedro Dusher á 20.
mínútu.
Vonir standa til að Beckham
verði aftur kominn í leikæfingu
fyrir HM í júní. Dusher fékk
gula spjaldið og var síðar rekinn
af velli. Lionel Scaloni hafði þá
einnig fengið rautt spjald. Ole
Solskjaer skoraði tvö mörk og
ÖKKLABROT
Læknar telja að David Beckham verði frá í
átta vikur.
Ryan Giggs eitt. Laurent Blanc,
varnarmaður United, lagaði
stöðuna fyrir Deportivo með
sjálfsmarki rétt fyrir hálfleik.
Lokastaðan í einvígi Real Ma-
drid gegn Bayern Múnchen er
3:2 Spánverjum í hag eftir 2:0
sigur í gærkvöldi. Ivan Helgu-
era og Guti skoruðu mörkin
seint í leiknum.
Úrslitin þýða að núverandi
meistararnir í Bayern eru úr
leik. Figo fékk gult spjald í síð-
ari hálfleik fyrir að veitast að
dómaranum og fær fyrir það
eins leiks bann. Hasan Shali-
hamidzic fékk rauða spjaldið í
lok leiksins. ■
Úrslit í gærkvöldi:
KR tryggði sér
oddaleik
körfubolti KR-stúlkur höfðu sig-
ur gegn stúdínum í fjórða leik
liðanna um íslandsmeistartitil-
inn í körfubolta. Leikurinn end-
aði 63:56.
Liðin mætast í fimmta skipti í
oddaleik á sunnudaginn. KR
skoraði aðeins 11 stig í fyrsta
leikhluta á móti 20 stigum IS en
náði að snúa leiknum sér í hag
fyrir leikhlé, 37:32. Helga Þor-
valdsdóttir var stigahæst með
22 stig. Meadow Overstreet
gerði 17 stig fyrir gestina.
f Reykjavíkurmótinu í fót-
bolta karla skildu Fjölnir og ÍR
jöfn, 2:2. ■
U.S. Masters:
ÍÞRÓTTIR í DAC
18.00 Sýn
Heklusport endurtekið.
18.30 Sýn
NBA-tilþrif.
19.00 Sýn
Heimsfótbolti með West
Union.
19.30 Sýn
Leiðin á HM (Tyrkland og
Kosta Rica).
20.00 Handbolti
Tveir leikir i 4 liða úrslitum
ESSO-deildar kvenna, Hauk
ar-Víkingur á Ásvöllum og
Stjarnan-Crótta KR í Ásgarði.
20.00 Körfubolti
Fyrsti leikur viðureignar
Keflavíkur og Njarðvíkur um
íslandsmeistara titilinn í
Keflavik.
20.00 Sýn
Bandaríska meistarakeppnin
í golfi (Augusta Masters).
20.50 Fótbolti
Kvennalið Breiðabliks og Vals
mætast á Reykjavikurmóti á
gervigrasinu í Laugardal.
22.30 Sýn
Heklusport.
23.00 Sýn
Saga HM (1966 - England).
handbolti Keppnin í átta liða úr-
slitum var æsispennandi og
komu sum úrslit mjög á óvart.
Hvert lið þarf að vinna tvo leiki
til að komast áfram. Á leið sinni
unnu Haukar Fram og Stjarnan
FH í tveimur leikjum. Það sem
fáir bjuggust hinsvegar við var
að Grótta KR næði að vinna bik-
armeistara ÍBV og Víkingur lagði
Val í þremur leikjum.
„Valur var erfiður," segir Stef-
án Arnarson, þjálfari Víkings.
„Þetta tók sinn toll, voru þrír
mjög erfiðir leikir. Liðið er rétt
að skríða fram úr.“ Ekki bíða
þægindi Víkings því liðið mætir
Haukum á Ásvöllum í kvöld.
„Haukar eru feiknasterkt lið,
með marga góða leikmenn.
Heimavöllur þeirra er líka sterk-
ur. Ég man varla hvenær þær
töpuðu síðast leik þar. En við
sáum á móti Val að við getum
þetta,“ segir Stefán. Hann er bú-
inn að þjálfa Víking í þrjú ár í
meistaradeild. Hann þjálfaði
margar af stelpunum í öðrum
flokki og því er hann nánast bú-
inn að þjálfa liðið í sex ár. Liðið
Aðalfundur
karatedeildar Breiðabliks
verður haldinn
miðvikudaginn 17. apríl kl. 19.30
í veisusal Smárans.
1/enjuleg aðalfundarstörf.
Allt getur gerst
í kvöld fara fram fyrstu tveir leikir Qögurra liða úrslita ESSO-deildar kvenna. Haukar mæta
Víkingum og Stjarnan Gróttu KR.
STEFÁN ARNARSON
Þjálfari Víkings segir Hauka vera með
feiknasterkt lið.
VÍKINGUR Á ÆFINGU
Það kom mörgum á óvart að Víkingur skyldi vinna Val í átta liða úrslitum. Enn fleiri undr-
uðust yfir því að Grótta KR skyldi vinna bikarmeistara ÍBV.
varð deildarmeistari fyrir tveim-
ur árum og komst einnig í undan-
úrslit. „Við ætlum að reyna að
fara alla leið. Þegar við erum
komin svona nálægt endanum þá
getur allt gerst,“ segir Stefán.
Svipað er upp á teningnum í
viðureign Stjörnunnar og Gróttu
KR, sem mætast í Ásgarði í
kvöld. Stjarnan er með reynt lið
en lið Gróttu KR er einnig mjög
sterkt. Stefán segir ómögulegt að
spá um úrslit viðureignarinnar.
Fjögurra liða úrslitin áttu að
hefjast í gær. Ástæða þess að
þeim var frestað er að Grótta KR
veðurtepptist í Eyjum eftir odda-
leikinn á mánudaginn.
Samkvæmt Stefáni var ESSO-
deild kvenna í vetur erfið.
Ástæða þess sé að leikirnir hafi
verið fáir á löngum tíma. Það
væri spilað of strjált. Þó að fáir
byggjust við því að Víkingur og
Grótta KR myndu vinna Val og
ÍBV og komast áfram í undanúr-
slitin segir hann liðin samt eiga
það fyllilega skilið: „Þeir sem
komast í undanúrslit eru búnir að
vinna sér það inn. Það þarf að
vinna tvo leiki. Þá eru lið búin að
sanna sig.“ ■
wjtfærðTettíTmynstrim
'fyrin riðlhjá'
Helmingi holanna breytt
golf Á morgun hefst Masters-
golfmótið á Augusta National-
golfvellinum í Bandaríkjunum,
Þar keppa allir bestu golfarar
heimsins um það að klæðast
grænni peysu sigurvegarans.
Margt hefur breyst á Augusta-
golfvellinum. Vellinum er breytt
lítillega árlega en nú var undan-
tekning. Helmingur brautanna
var lengdur, samtals um 260
metra. Verið er að reyna að
sporna við því að þeir sem slá
lengst, þ.á.m. Tiger Woods, hafi of
mikla yfirburði.
Allir eru sammála um það að
Woods sé maðurinn til að vara sig
á. Hann vann mótið í fyrra og get-
ur því orðið þriðji maðurinn, á eft-
ir Jack Nicklaus og Nick Faldo til
að vinna tvö ár í röð. Helstu
keppinautar hans eru David
Duval og Phil Mickelson. Masters
golfmótið er fyrsta sinnar tegund-
ar. Það hefur verið haldið á sama
WOODS ÆFIR 18. HOLU
Tiger Woods vann Masters-golfmótið árið
1997 og í fyrra.
velli 65 sinnum. í fyrsta skipti
verður sjónvarpað frá öllum 18
holunum. Til að útsendingin gangi
betur voru nokkrir eldri vinnings-
hafa beðnir um að taka ekki þátt.
Margir voru óánægðir með þetta.
Þó breytingar brautanna séu
miklar fylgir mótinu fjöldi hefða.
T.a.m. er sagt að nýliði verði með-
al fremstu manna eftir fyrsta
hring en vinni ekki mótið. Þá er
sigurvegari síðasta árs, Woods,
látinn spila með áhugamanna-
meistara Bandaríkjanna, Bubba
Dickerson. Á sunnudagsmorgun
mæta áhorfendur síðan í biðraðir
sex um morguninn til að raða sér
við 18. holuna. Þar kemur í ljós
um kvöldið hver fær græna
peysu. ■