Fréttablaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 6
SPURNING DAGSINS Hlustar þú á talmálsútvarpið Sögu? Nei. Þetta er svo nýbyrjað, en þetta er góð hugmynd. Bergsteinn Björgólfsson. SKIPTAR SKOÐANIR I GARÐABÆ Forseti bæjarstjórnar segir ráðningarsamninginn löglegan. Laun Asdísar Höllu: Samningur löglegur SVEITARSTJÓRNARMÁL Ráðningar- samningur bæjaryfirvalda í Garðabæ við Ásdísi Höllu Braga- dóttur bæjarstjóra og afgreiðsla bæjarstjórnar var í fullu sam- ræmi við sveitarstjórnarlög að sögn Laufeyjar Jóhannesdóttur, forseta bæjarráðs. í Fréttablaðinu í gær sagði Ein- ar Sveinbjörnsson bæjarfulltrúi að samningurinn stangaðist á við lög og að hann hygðist taka málið fyrir á bæjarstjórnarfundi í næstu viku og óska eftir lögfræði- legu áliti á lögmæti samningsins. Laufey, sem sá um samninga- gerðina, sagði fráleitt að halda því fram að um ólögmæta eða óeðli- lega afgreiðslu bæjarstjórnar hefði verið að ræða. ■ —4.— Búferlaflutningar á árinu: Fækkar mest á Sudurlandi fólksflutningar Á fyrsta ársfjórð- ungi þessa árs fjölgaði fólki um 399 á höfuðborgarsvæðinu, sem er ríflega þriðjungi minna en á sama tíma í fyrra. I öðrum lands- hlutum fækkar fólki, nema á Suð- urnesjum þar sem fjölgaði um 6 og á Vesturlandi þar sem fjölgaði um 17. Flestir fluttu frá Suður- landi, eða 50, og frá Norðurlandi eystra, 40 manns. Þá fluttu 257 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Alls skráði Hagstofan 11.859 breytingar á lögheimili einstakl- inga á fyrsta ársfjórðungi ársins. ■ STJÓRNMÁL Samfylkingarfélögin í Reykja- vík hafa stofnað fulltrúaráð sem fer með framboðsmál Sam- fylkingarinnar í borgarstjórnar- og þingkosningum auk þess að vera samráðsvettvangur félag- anna. Alls eiga um 200 manns sæti í fulltrúaráðinu. Páll Hall- dórsson var kosinn formaður stjórnar á stofnfundi fulltrúa- ráðsins. Framsóknarmenn í Kópavogi hafa opnað nýja heimasíðu á slóðinni www.xb.is/kopavogur þar sem er að finna fréttir af starfi flokksins, framboðslista og stefnuskrá flokksins fyrir kom- andi bæjarstjórnarkosningar. FRÉTTABLAÐIÐ 11. apríl 2002 FIMMTUDAGUR Samgönguráðherra segir sífellt krafist styttri ferðatíma: Hraðskreiðari ferjur skoðaðar samcöngur Sturla Böðvars- son samgönguráðherra seg- ir að skoða þurfi að taka upp hraðskreiðari skip í stað Breiðafjarðarferjunnar Baldurs og Vestmannaeyja- ferjunnar Herjólfs. „Sífellt er krafist styttri ferðatíma, og því þarf að skoða möguleika á notkun hraðskreiðari skipa, til að uppfylla sífellt vaxandi kröfur um þjónustu," sagði ráðherra í ræðu á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar á Ak- ureyri í gær. Fram kom í ræðu Sturlu að í þágu byggðanna og ferðaþjónustu VESTMANNAEYJAFERJAN HERJÓLFUR Samgönguráðherra segir sívaxandi kröfur um styttri ferðatíma leiða til þess að skoð- aðar verði hraðskreiðari ferjur við landið. á sunnanverðum Vestfjörð- um væri eðlilegt að endur- meta þjónustu Breiðafjarð- arferjunnar Baldurs: „Ég vil nota þennan vett- vang hér í dag, til að lýsa þeirri skoðun minni að fyrr en síðar þarf að huga að endurnýjun ferja, sér í lagi Herjólfs og Baldurs. Vega- samgöngur við sunnan- verða Vestfirði eru erfiðar. Rétt er að reikna með ferju- þjónustu á því svæði að óbreyttu vegakerfi," sagði ráð- herrann. Fimm ferjur eru starfræktar við íslandsstrendur í dag. ■ ESB-könnun í Noregi: Afstaða Islands mikilvæg EVRÓPU5AMBANDIÐ Um 22% Norð- manna sem tóku afstöðu í nýrri könnun Gallup um aðild að ESB telja að ef íslendingar sæktu um aðild að ESB myndi það hafa já- kvæð áhrif á álit þeirra á aðild. Nils Vibe, sérfræðingur hjá Gallup, segir niðurstöðurnar sýna að ef íslendingar styddu aðild myndi meirihluti Norðmanna einnig gera það. Sem stendur eru örlítið fleiri sem eru andvígir að- ild, eða 43,5%. 42% eru hlynntir því að Norðmenn sæki um aðild. ■ Fimmti hver tölvupóstur óumbeðinn fjöldapóstur Rannsókn netveitunnar Snerpu á ísafirði hefur leitt í ljós að magn ruslpósts í tölvupósti hefur meira en tvöfaldast á hálfu ári. Tölvuþjónustur bjóða í auknum mæli upp á að sía ijöldasending- ar og vírusa úr tölvupósti. tölvur & tækni Magn ruslsendinga í tölvupósti hefur meira en tvö- faldast sl. sex mánuði, samkvæmt mælingum net- veitunnar Snerpu á ísafirði. Þá sýna mælingar að hlut- fall vírusa í tölvu- pósti er mjög hátt en tæplega 8 pró- sent sendinga reynast vera sýkt- ar. Mikið magn vírusa í umferð er talið að rekja megi til þess hversu fáar net- þjónustur eru með vírusvarnir en það mun þó hafa aukist í seinni tíð. Snerpa hreinsar út ruslpóst og vírusa og getur á grundvelli gagna mælt með nokkru öryggi slíkra tölvupósta. BJÖRN DAVÍÐSSON Björn Davíðsson er þróunarstjóri hjá netveitunni Snerpu á ísafirði. Hann hefur orðið var við mikla aukningu ruslpósts á netinu undan- farna mánuði. RUSLPÓSTUR í SÓKN Hlutfall tölvupósts, sem skilgreindur er sem ruslpóstur, hefur stóraukist sl. mánuði.* l-sep-01 7,63% 1-okt-Ol 8,34% l-nóv-01 10,56% 1-des-Ol 12,370/o l-jan-02 13,02o/o l-feb-02 14,23o/o l-mar-02 15,70o/o l-apr-02 18,420/o *Skv. nýjum upplýsingum netþjónustunnar Snerpu ú ísafirði. Þá notar fyrirtækið eigin hugbún- að, INfilter, sem vefgæslutæki, þar sem notendur geta eyrna- merkt óæskilegt efni. Björn Davíðsson, þróunar- stjóri hjá Snerpu, segir trúlega meiri ruslpóst í umferð en mæl- ingar sýna. „Það er töluverður vandi að verjast þessu. Ef varn- irnar eru of öflugar geta þær hindrað póst sem ekki er „spam.“ Við viljum frekar að notendur fái lítinn ruslpóst, en alls engan því ávallt er hætta á að pósti sé hafn- að án þess að vera í raun ruslpóst- ur.“ Björn segir að taka hafi þurft varnarhugbúnaðinn niður um tíma fyrir um ári og hafi þá strax rignt inn athugasemdum. „Þannig að við vitum að fólk tekur eftir þessu, eða öllu heldur þegar það er ekki verndað sérstaklega gegn þessu flóði,“ sagði hann. Björn segir að hérlendis hafi nokkrar umræður orðið um að ís- lensk lög þyrftu að taka betur á tölvuruslpósti. „í raun hefur bara verið hægt að beita lögum um húsgöngu- og fjarsölusamninga, en þau eiga ekki alltaf við,“ sagði hann og vísaði til félagasamtaka sem sent hafi magnpósta án þess að vera í raun að selja nokkuð. „Hins vegar hafa allar netveitur á landinu sett notendum sínum skilmála um að bannað sé að senda óumbeðinn fjöldapóst. Hann er þannig skilgreindur að RUSLPÓSTUR er áberandi Á NETINU Nokkur umræða hefur verið meðal net- verja um góða þýðingu á „spam" sem er enska heitið á ruslpósti og óumbeðnum fjöldasendingum. Bent hefur verið á að „spam" sé í heiti nokkurs konar kjötbúð- ings og því hallast sumir að því að orðið „kæfa" nái vel yfir fyrirbærið. ef sami pósturinn er sendur á fleiri en 10 móttakendur sem sendandi hefur ekki átt í við- skiptasambandi við áður, er um ruslpóst að ræða.“ Björn segir viðbrögð netstjóra yfirleitt þau að loka á frekari sendingar frá notendum sem gerst hafi brotleg- ir með þessum hætti. oli@frettabladid.is Alþjóðleg mótmælahreyfing gengur í endurnýjun lífdaga: Sjálfboðaliðar veita Palestínumönnum skjól mótmælahreyfing Alþjóðleg hreyfing mótmælenda hefur und- anfarin ár látið að sér kveða í tengslum við leiðtogafundi og samkomur alþjóðastofnana. Þessi hreyfing hefur verið laus í reipun- um, lítt skipulögð, en jafnan skot- ið upp kollinum í nýrri og nýrri mynd eftir því sem tilefni þóttu gefast. Eftir 11. september töldu margir að þessi hreyfing hefði sungið sitt síðasta. Ofbeldi hefur viljað loða við mótmæli hennar, þrátt fyrir að flestir mótmælend- urnir kenni sig við frið. Mörgum þótti einnig sem mótmæli hennar gegn alþjóðavæðingu og ofríki Vesturlanda væru einum of skyld þeim boðskap, sem hryðju- verkapaurinn Osama bin Laden vildi koma á framfæri við um- heiminn. Nú hefur þessi lausbeislaða hreyfing hins vegar gengið í endur- nýjun lífdaga í Palestínu, þar sem útsendarar hennar hafa sjálfviljug- ir gegnt hlutverki hlífiskjaldar gegn hemaði ísraelsmanna á hend- ur Palestínumönnum. Þar eru þessir mótmælendur „eins og alltaf, að tala til þeirra sem raunveruleg völd hafa“, segir George Monbiot, dálkahöfundur í breska dagblað- inu Guardian. Sumir þeirra hafa flutt inn á heimili Palestínumanna til þess að ísraelskir hermenn hiki frekar við að beita sér gegn þeim. Hópur þeirra hefur dvalist með Jasser Arafat í einangrun hans í Ram- allah. Og um leið verða þeir vitni að því, sem gerist og geta skýrt umheiminum frá. ■ FRANSKI BÓNDINN JOSE BOVE „Atvinnumótmælandinn" Jose Bove öðlað- ist frægð fyrir mótmæli sín gegn veitinga- húsakeðjunni McDonald's. T síðustu viku hitti hann Jasser Arafat í Ramallah. (sraelsk stjórnvöld ráku hann síðan úr landi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.