Fréttablaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 13
FIIVHVITUDAGUR 11. apríl 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
13
Liverpool andar léttar:
Owen ekki
brákaður
fótbolti Eftir röntgenmyndatöku í
gær var það staðfest að Michael
Owen, markahrókur Liverpool og
enska landsliðsins, brákaðist ekki
á fæti, eins og óttast var. Hann
meiddist þegar lið hans tapaði
fyrir Bayer Leverkusen í átta liða
úrslitum Meistaradeildar Evrópu
á þriðjudaginn. Owen missti af
þremur dauðafærum í leiknum.
Leverkusen vann leikinn 4-2 og
komst áfram í undanúrslit.
Owen mun því spila með Liver-
pool í deildarleik á móti Sunder-
land á laugardaginn. Margir
höfðu áhyggjur af meiðslum hans.
Ef þau hefðu reynst slæm hefði
MICHAEL OWEN
Fékk högg á fótinn á þriðjudaginn en
slapp heill.
hann jafnvel ekki tekið þátt á HM
í sumar. Það þykir Englendingum
öllu alvarlegra. Hann skoraði
þrennu í 5-1 sigri á Þjóðverjum,
sem tryggði Englendingum þátt-
tökurétt á HM og er með öruggt
sæti í byrjunarliði landsliðsþjálf-
arans Eriksson. ■
Michael Schumacher vari sig:
Ralf segist vondi bróðirinn
formúla i Ralf Schumacher varar
stóra bróður sinn Michael við því
að hann sé ekki ljúfur. Hann sé
nógu harður til að vinna heims-
meistaratitilinn. „Michael er bú-
inn að vinna nóg. Ég ætla að ráð-
ast á hann og sigra. Ég get það,“
sagði Ralf.
Schumacher vonast til að
minnka forskot bróður síns með
sigri á Imola-brautinni í San Mar-
ino á Ítalíu á sunnudaginn. Þar
vann hann sinn fyrsta kappakstur
í fyrra. í stigakeppninni er Mich-
ael með 24 stig, Ralf 16 og félagi
hans hjá BMW-Williams, Juan
Pablo Montoya, 14. Michael hefur
sagt Williams-liðið vera hel-
stu hindrunina í því að hann
næli sér í fimmta titilinn.
Bílar þess standast Ferrari
snúning.
Stríðsyfirlýsing Ralfs
þykir greinileg viðbrögð við
gagnrýni eftir kappakstur-
inn í Brasilíu. Síðustu 20
hringina reyndi hann ekki
að komast fram úr Michael og
lenti í öðru sæti. Margir sögðu
Ralf ragan, að blóðböndin væru
sterkari en sigurviljinn. „Ég get
líka verið djarfur. Ég fékk aldrei
gott tækifæri til framúraksturs.
Stundum er gáfulegra að þiggja
það örugga án þess að
hætta á að missa allt,“ sagði
Ralf.
Báðir Schumacher-
bræðurnir gagnrýna
Montoya. Kólumbíumaður-
inn byrjaði fremstur en
tapaði á árekstri við Mich-
ael. Hann lenti í fimmta
sæti. „Ég þigg frekar sex
stig fyrir annað sæti en að reyna
heimska árás sem gæti aldrei
virkað," sagði Ralf. Michael tekur
undir þessi orð þegar hann segir
Montoya ekki nógu reyndan. Ralf
sé hin raunverulega samkeppni
um titilinn. ■
RALF
SCHUMACHER
Barist um úrslitasæti UEFA-bikarsins:
London-maraþon á sunnudag:
Mílcmólidin eiga erfitt
verk fyrir höndum
Ætlcir að slá heimsmetið
FLUGUUÁTÍÐ!
viku vegna meiðsla. „Þetta er ein-
falt. Við verðum að vinna þennan
leik,“ sagði Marco Materazzi hjá
Inter.
Feyenoord setur í kvöld hol-
lenskt met þegar liðið spilar sinn
14. Evrópuleik á leiktímabilinu.
Liðið er fjórum stigum á eftir
Ajax í hollensku deildinni. Vitandi
að úrslitaleikur Evrópukeppninn-
ar verður leikinn á þeirra heima-
velli 8. maí eykur eflaust á vilja
leikmanna í kvöld. „Ef ég næ að
halda hreinu er þetta besti dagur
fótboltaferils míns. Þá komumst
við í úrslit," sagði Edwin
Zoetebier, markvörður Feye-
noord.
RONALDO Á VELLINUM
Brasilíumaðurinn Ronaldo spilaði stutt
þegar Inter Milan tapaði 0-1 fyrir Feyen-
oord. Hann spilar I Hollandi í kvöld.
AC Milan þarf að taka á stóra
sínum til að vinna upp stórsigur
Borussia í síðustu viku. Manuel
Rui Costa er meiddur en í staðinn
er Andriy Schevchenko búinn að
ná sér eftir meiðsli. Cristian
Brocchi miðvallarmaður er ekki
búinn að gefast upp: „Við
hlökkum til. Við munum allir
greinilega eftir því þegar þeir
fögnuðu í lok síðasta leiks. Það
hvetur okkur til dáða.“ ■
HLAUP London-marþon verður
haldið í 22. sinn á sunnudaginn.
Haile Gebreselassie, einn besti
langhlaupari allra tíma, ætlar að
taka þátt. Hann hefur einu sinni
tekið þátt í maraþoni, í Addis
Ababa í Egyptalandi. Þá var hann
15 ára og vildi einungis skoða
borgina.
Af áætlunum Haile að dæma
ætlar hann að slá heimsmetið, 2
klst, fimm mínútur og 42 sek.
„Það er ekkert mál að hlaupa fyrri
helming vegalengdarinnar á
minna en klukkustund," sagði
Haile en slíkt gerist sjaldan. „Það
sem skiptir máli er seinni helm-
ingurinn. Mér líður vel. Ég ætla
að gera eitthvað sérstakt."
Haile hefur unnið fjóra heims-
HAILE GEBRSELASSIE
Hefur aðeins einu sinni hlaupið maraþon
meistaratitla, tvö Ólympíugull og
sett 15 heimsmet. Um 40 Islend-
ingar taka þátt í hlaupinu í
London. Stærstur hluti er úr
Hlaupahópi Grafarvogs. 16 eru að
hlaupa maraþon í fyrsta skipti. n
fótbolti Litlar líkur eru á úrslita-
leik milli Mílanóliðanna í Evrópu-
keppni félagsliða. Það virðist vera
undir Internazionale komið að
bjarga andliti Ítalíu. í kvöld fara
fram seinni leikir fjögurra liða úr-
slita. Ef Mílanóliðin detta út eru
engin ítölsk lið eftir í Evrópu-
keppnum. Feyenoord Rotterdam
og Borussia Dortmund unnu fyrri
leikina í síðustu viku og komu ef-
laust í veg fyrir fyrsta úrslitaleik
milli tveggja liða frá sömu borg.
Feyenoord kom Inter í opna
skjöldu, vann 1-0 á San Siro í
Mílanó. Borussia valtaði 4-0 yfir
AC Milan í Þýskalandi.
Meiri líkur eru á því að Inter
komist áfram. Aftur er Ronaldo
boðaður í byrjunarliðið. Hann
sýndi litla tilburði þegar hann var
inn á í 20 mínútur í síðasta leik. Á
sunnudaginn sat hann á vara-
mannabekknum þegar Inter tap-
aði fyrir Atalanta og missti for-
skotið á AS Roma í deildinni niður
í tvö stig. Einnig þykir líklegt að
kallað verði á Christian Vieri, sem
hefur undanfarið hvílt í miðri
BRASILÍUMENN
Marcio Amoroso og Henrique Ewerthon
fögnuðu innilega 4-0 sigri Borussia Dort-
mund á AC Milan í síðustu viku. Amoroso
skoraði þrennu.
Meðal dagskrárliöa má nefna að KK tekur lagiö, Siggi Fjell og félagar
sýna vöölutiskuna 2002, Bjarni Róbert og Skúli hnýta flugur, Lax-á
veitir upplýsingar um veiðar i Skotlandi og Grænlandi og fleira.
Skemmtilegasta er þó það að veiðimenn hittast í upphafi
tímabilsins og ræða sameiginleg áhugamál sin.
(Zffieuu Allir veiðimenn velkomnir
ÖTlVl'STogVlíIÐI
Síðumúla 11 • 108 Reykjavík • S: 588-6500
Leeds missir leikmann:
Woodgate kjálka-
brotinn í árás
fótbolti Jonathan Woodgate, varn-
armaður enska félagsins Leeds,
mun ekki spila meira með félag-
inu í vor. Ráðist var á hann á
þriðjudagskvöld og hann kjálka-
brotinn.
Stjórnarformaður félagsins,
Peter Ridsdale, talaði við frétta-
menn í gær. Hann staðfesti að
Woodgate, sem er 22 ára gamall,
væri búinn að fara í aðgerð. Hann
myndi elcki spila meira með félag-
inu í vor. Leeds er í sjötta sæti
ensku úrvalsdeildarinnar og er að
reyna að tryggja sér sæti í Evr-
ópukeppni. Það mætir Aston Villa
á laugardaginn.
„Fjölskylda Jonathan Wood-
gate óskar ekki eftir því að koma
með neina yfirlýsingu," sagði
Ridsdale í gær. Woodgate sneri
nýlega aftur af fullum krafti í lið
Leeds. Hann var í fyrra kærður
fyrir líkamsárás í miðborg Leeds í
JONATHAN WOODGATE
Fór í aðgerð í gær. Fjölskylda hans vill ekki
segja neitt um málið.
janúar 2000. í mars sl. var hann
tekinn fyrir of hraðan akstur og
missti prófið í sex mánuði. ■
KERFIS
VEGGIR
© LOFT
Kerfisveggirog kerfisloft opna þér
heim nýrra möguleika í hönnun,
útliti og gæðum.
llsRRTIco
Akralind 1-201 Kópavogi Sími 665 6656 -
Fax 564 0030 Tölvtpóslur arfco@artlco.is