Fréttablaðið - 11.04.2002, Qupperneq 9
FIMMTUPAGUR 11. apríl 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
9
Forstöðumenn elli- og hjúkrunarheimila ósáttir:
Daggjöld ákveðin á til-
viljunarkenndan máta
PACGiðLD Jóhann Árnason, formað-
ur félags forstöðumanna elli- og
hjúkrunarheimila, segir upphæð
og aðferðafræði ríkisins við að
ákveða daggjöld til dvalarheimila
tilviljunarkennda og ekki byggjast
á neinum rökum. Hann og félagar
hans gagnrýna að ekki hafi verið
haft samráð við stofnanir þegar
daggjöldin voru ákveðin. Þau verða
4.515 fyrir árið 2002. Nefnd sem
var skipuð fulltrúum frá Sambandi
íslenskra sveitarfélaga og heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu komst að þeirri niðurstöðu
að gjaldið skyldi vera 5.813 krónur.
Jóhann segir engar athugasemdir
hafa verið gerðar við það gjald.
Samt hafi lægri upphæð verið
ákveðin og það án rökstuðnings. Jó-
hann segir þessa upphæð ekki stan-
da undir þeim kostnaði sem er við
íbúa á dvalarheimilum. Hugsanleg
langtímaáhrif þess séu að dvalar-
heimili leggi upp laupana. Jóhann
segir að segja megi að ríkið sé ekki
að standa við þær skuldbindingar
sem felist í lögum um að tekjur
dvalarheimila dugi fyrir eðlilegum
rekstrarkostnaði. ■
HRAFNISTA
Daggjöld fyrir dvalarheimili eru þau
sömu um land allt, hjúkrunargjöld eru
mismunandi.
Mega fá próf barna sinna
skólamál Menntamálaráðuneytið
telur að foreldrar og forráða-
menn skólabarna eigi almennt
rétt á því að fá afrit eða ljósrit af
metnum prófúrlausnum barna
sinna.
Óskað hafði verið eftir úr-
skurði ráðuneytisins. Það telur
sig ekki hafa úrskurðarvald í
málinu þar sem grunnskólar séu
á forræði sveitarfélaga.
Þrátt fyrir þetta gefur
menntamálaráðuneytið almennar
leiðbeiningar um þær reglur sem
gilda um rétt foreldra til að fá af-
rit af prófúrlausnum. Þar kemur
m.a. fram að samkvæmt reglu-
gerð frá 1996 éigi nemandi og
foreldrar hans rétt til að skoða
prófúrlausn sem hefur verið met-
in. Óska skuli eftir því innan
tveggja vikna frá því mat skólans
á úrlausninni liggur fyrir.
Ennfremur vitnar mennta-
málaráðuneytið til afgreiðslu
AUSTURBÆJARSKÓLI
Menntamálaráðuneytið segir forráðamenn grunnskólabarna eiga rétt á að skoða prófúr-
lausnir sinna barna.
sinnar á sambærilegu erindi er
varðaði aðgang forráðamanna að
trúnaðarupplýsingum um nem-
endur í grunnskólum. í því taldi
ráðuneytið með hliðsjón af
stjórnsýslulögum og upplýsinga-
lögum að almennt mætti gera ráð
fyrir að forráðamenn ættu rétt til
að fá afhent gögn um viðkomandi
nemanda. ■
LYFJAVERSLUN ÍSLANDS H F.
AÐALFUNDUR
Aðalfúndur Lyfjaverslunar íslands hf.
verður haldinn að Lynghálsi 13
fimmtudaginn 18. apríl 2002 og hefst hann kl. 16.00.
DAGSKRÁ
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. gr. félagsins.
2. Tillögur um breytingu á samþykktum.
a) 1. gr. um að breyta nafni félagsins í Líf hf.
b) 2. gr. um að breyta heimilisfangi félagsins.
3. Tillaga stjómar um heimild til að kaupa og/eða eiga
eigin hlutabréf.
4. Önnur mál sem löglega em upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á ffam á aðalfúndi,
þurfa að vera komnar í hendur stjómarinnar eigi síðar
en 7 dögum fyrir aðalfúnd.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins,
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins 7 dögum
fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur fúndargögn verða afhent á
fúndarstað við upphaf fundarins.
Stjóm Lyfjaverslunar íslands hf.
POTTÞETT LAUSN
FYRIR HEIMILIÐ EÐA SUMARBÚSTAÐINN
POTTARNIR ERU KOMNIR
FRÁBÆRTILBOÐ ALLAN MÁNUÐINN BAÐSTOFAN
BÆJARLIND 14, SlMl 564 57 OO