Fréttablaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 11
FIÍVÍIVITUPAGUR 'll. april 2002 FRÉTTABLAÐIÐ 11 Mjólkurbú Flóamanna á Selfossi: STUTT Auknar kröfur í nýju starfsleyfi landbúnaður Auknar kröfur eru um að dregið verði úr frárennsli og skolpi frá Mjólkurbúi Flóa- manna á Selfossi í nýju starfsleyfi búsins sem er til umfjöllunar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. „Þar er tekið á þessum þáttum, en starfsleyfisdrögin eru til umsagn- ar hjá Mjólkurbúinu,“ sagði Elsa Ingjaldsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Mjólkurbúið skilar inn greinar- gerð sinni í dag, en verið er að taka inn í starfsleyfi búsins breyt- ingar á reglugerð varðandi frá- veitu og skolp. Auðunn Hermannsson, for- stöðumaður vöruþróunar og gæðastjórnunar hjá Mjólkurbú- inu, segir að auknum kröfum í nýja starfsleyfinu verði mætt. „Ég sé ekki nein vandkvæði á þessu við fyrstu skoðun, en við erum í raun ekki í neinni osta- gerð, þannig að mysan sem fer út frá okkur er í raun bara úr skyri,“ sagði hann og taldi breytta vinnslutækni hafa breytt hlutum til batnaðar síðustu ár. „í raun er hægt að nýta þetta í fóður eða annað, þótt það sé ekki hag- kvæmt. Ef við höfum ekki leyfi til annars hlýtur það að vera val- kostur." ■ MJÓLK ER GÓÐ Nefnd fulltrúa mjólkurframleiðenda og stjórnvalda kynnti sér í síðasta mánuði fullvinnslu mjólkur á írlandi, þar sem unnin eru prótein og hliðarvörur úr afgangsmysu sem annars væri hellt. Opnuð hefur verið heimasíða á Netinu þar sem vægum dómum í kynferðisbrotamálum hér á landi á undanförnum árum er mótmælt. Hópurinn sem opnaði síðuna kallar sig „Nú er nóg komið“. Á síðunni er skorað á dómsmálaráðherra að beita sér fyrir því að þyngri dómar verði felldir í kynferðis- afbrotamálum. Karlmaður á 48. aldursári var í gær í Héraðsdómi Reykja- víkur dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás á konu. Hann spark- aði m.a. í konuna þar sem hún sat á stól. ENGIN SPRENGJUBELTI Vopnaðir Palestínumenn, sem varist höfðu ísraelsher I Nablus, gáfust upp í gær. Níu létust í Haífa: Israelsher hunsar Bandaríkja- forseta jenín. haífa. ap Að minnsta kosti níu manns fórust þegar Palestínu- maður sprengdi sig í loft upp í al- menningsvagni í borginni Haífa í gærmorgun. Fjórtán manns særð- ust. Hamashreyfingin lýsti ábyrgð sinni á árásinni. Tólf daga hlé hafði verið á sjálfsmorðsárás- um Palestínumanna þangað til í gær. Öryggisráð Israels samþykkti í gær að þessum hernaði gegn Palestínumönnum verði haldið áfram, þrátt fyrir eindregin til- mæli Bandaríkjaforseta um að ísraelsher dragi sig nú þegar í hlé. ísraelsk stjórnvöld segja markmið aðgerðanna vera að upp- ræta hryðjuverkastarfsemi Palestínumanna. Aðgerðirnar hafa notið víðtæks stuðnings ísra- elsmanna, sem eru orðnir lang- þreyttir á sjálfsmorðsárásum. ■ ERLENT Edvvard Lutes, lögreglumaður í New Jersey í Bandaríkjunum, fannst í gær látinn í bifreið sinni. Kvöldið áður hafði hann myrt fimm manns þegar hann gekk berserksgang vopnaður byssu. Ekki eru liðnir þrír mánuðir frá því annar lögreglumaður í New Jersey myrti fjóra með sama hætti. Páfagarður vildi í gær hvorki játa né neita fréttum um að Jóhannes Páll II páfi ætli ekki að fara í ferðalag til Alpafjallanna í sumar, eins og hann hefur gert árlega. Heilsufari páfa hefur hrakað undanfarna mánuði. Hann er orðinn 81 árs. Thomas Borer, sendiherra Sviss í Þýskalandi, hefur ver- ið kallaður heim eftir að myndir birtust í þýskum dagblöðum af konu, sem sagðist hafa átt næturævintýri með sendiherran- um meðan eiginkona hans var fjarverandi. Peter Caruana, aðalráðherra á Gíbraltar, gagnrýndi í gær bæði spænsk og bresk stjórnvöld fyrir þóf sitt í samningaviðræð- um um framtíð þessarar bresku nýlendu. LOKAHELGI ! ÁSKRIFENDUR FRÓÐA, MUNIÐ BÓKAGJAFIRNAR . ENdviiminn,ngar . « © -90» 0 o % OPNUNARTIMAR: f% VIRKA DAGA FRÁ KL 14.00 - 20.00 JÐUNN HELGAR FRÁ KL. 10.00 - 18.00 FRÓÐI hf, Héðinshúsinu, Seljavegi 2, 101 Reykjavík s: 515 5500

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.