Fréttablaðið - 11.04.2002, Page 22

Fréttablaðið - 11.04.2002, Page 22
FRÉTTABLAÐIÐ SAGA DAGSINS , 11. APRÍL Arið 1959 öðlaðist Rannveig Þorsteinsdóttir, þá 59 ára, fyrst íslenskra kvenna rétt til að flytja mál fyrir hæstarétti. Walter Mondale, varaforseti Bandaríkjanna, kom í tveggja daga opinbera heimsókn til íslands árið 1979. Arið 1970 var þriðja Apolló- tunglfarinu skotið upp í geim- inn frá Canaveralhöfða í Banda- ríkjunum. Sprenging í súrefnis- geymi kom þó í veg fyrir að geimfararnir gætu fengið sér göngutúr á tunglinu. Þeir létu sér nægja að fljúga umhverfis það og sneru síðan aftur til jarðar. 22 11. april 2002 FIMIVITUPflCUR Hrörnunin byrjaði við Hallærisplan „Ég er fæddur nokkrum vikum eftir að flugvöllurinn var tekinn í notkun sem hernaðarmannvirki, undir aðfluginu að braut 002,“ segir Örn Sigurðsson. Iiann fædd- ist á Smáragötunni og nú tæpum 60 árum síðar á hann heima í næstu götu, Fjólugötu. Örn var um árabil við nám og störf erlend- is, aðallega í Þýskalandi. Örn segist hafa fengið menn- ingaráfall _þegar hann kom heim árið 1975.1 upphafi vann hann hjá Gesti Ólafssyni arkitekt og eitt fyrsta verkefni hans þar var að vinna við deiliskipulag miðborg- arinnar. „Maður sá þá að það var komið eitthvert drep hér niðri við Hallærisplan og það varð ekki við neitt ráðið. Hrörnunin hefur færst þaðan og er komin upp á Laugaveg núna.“ Samtök um betri byggð voru stofnuð í ársbyrjun 1999. Áður hafði Örn unnið að því hugðarefni sínu að halda lífi í miðbænum á öðrum vettvangi. Samtök um betri byggð hafa, að mati Arnar, náð þeim árangri að vekja fólk til umhugsunar um flugvallarmálið, auk þess sem efnt var til atkvæða- greiðslu unt það. Hann segir nú fullreynt að aðrar stjórnmála- hreyfingar muni taka við sér í þessu máli. „Við höfum alltaf fengið á tilfinninguna að menn skilji alveg um hvað er verið að ræða. Þeir eru bara allir að fórna þessum miklu hagsmunum þjóð- félagsins fyrir sína eigin hags- ________________Persónan Örn Sigurðsson arkitekt er einn aðstand- enda stofnhóps Höfuðborgarsamtakanna sem hyggur á framboð til borgarstjórnar Reykjavíkur í vor.j muni eða flokkshagsmuni. Þess vegna ákváðum við að fara þá leið að fara í framboð," segir Orn en fullyrðir að hann ætli ekki í fram- boð sjálfur. „Ég stend á bak við fé- laga mína og skora á alla að bjóða sig fram hjá okkur. Þetta er þverpólitískt." ■ ÖRN SIGURÐSSON Flutningur flugvallarins frá Reykjavík hefur verið Erni Sigurðssyni hugleikinn síðan hann snéri heim frá námi 1975. TÍMAMÓT Jón Kárason frá Tunsbergi á Svalbarðs- strönd lést 6. apríl. Kristján J. M. Jónsson, Hlff 1, ísafirði, lést 5. apríl. Steinunn Björg Halldórsdóttir lést 3. apríl. Ólafur Bachmann lést I Kaliforníu 26. mars. THkynningar sendist á ritstjorn@frettabladid.is Blöndunartæki með brunavöm Hitastilltu Mora Mega blöndunartækin tyrir bað og sturtu tryggja öryggi og þægindi. Mora Mega er árangur margra ára vöruþróunar og betrumbóta. Mora - Sænsk gæðavara TCflGI Smiðjuvegi 11 * 200 Kópavogur Sími: 564 1038 • Fax: 564 1089 • tengi.is JARÐARFARIR________________________ 13.30 Guðmundur Valtýr Guðmunds- son, Rauðagerði 44, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaða- kirkju. 13.30 Guðmundur Ermenreksson verð- ur jarðsunginn frá Fossvog- skapellu. 13.30 Matthías Laxdal Björnsson frá Fellí í Árneshreppi, Hjallabraut 33, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði. 13.30 Svanhvít Guðmundsdóttir, Skot- húsvegi 15, Reykjavík, verður jarð- sungin frá Dómkirkjunni í Reykja- vík. 13.30 Trausti Friðbertsson, Hraunbæ 103, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju. AFMÆLI______________________________ Hinrík Ólafsson, leikari, er 39 ára í dag. ANDLÁT______________________________ Guðmundur Guðmundsson lést 27. mars. Útför hans fór fram frá Ytri- Njarðvíkurkirkju 5. apríl. Guðrún Blöndal, Sólvangsvegi 1, Hafn- arfirði, lést 29. mars. Jarðarförin hefur farið fram. Páll Ólafsson, Silfurgötu 28, Stykkis- hólmi, lést 9. apríl. FÓLK í FRÉTTUM Þrátt fyrir að enn sé rúmt ár í næstu þingkosningar eru ýms- ir farnir að hugsa sér til hreyf- ings. Meðal þeir- ra sem eru búnir að taka ákvörðun um framboð er Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingar. Þegar hann var beðinn að taka sæti í nefnd á vegum nýstofnaðs fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík sem á að setja reglur um val á framboðslista, hafnaði hann því með þeim rökum að hann hefði tekið ákvörðun um að sækjast eftir þingsæti að ári og vildi ekki taka þátt í því að semja reglurnar sem farið yrði eftir við val á frambjóðendum. Ekki er úr vegi að rifja upp að Mörður hefur verið í fram- boði í síðustu tvennum þingkosn- ingum. 1995 var hann þriðji mað- ur á lista Þjóðvaka í Reykjavík og fyrsti varaþingmaður flokksins í kjördæminu það kjörtímabil. 1999 skipaði hann 6. sætið á lista Samfylkingar. Samfylkingin fékk fimm þingmenn og Mörður hélt sæti sínu sem fyrsti varamaður. Á kosninganótt sagði Mörður reyndar að þetta væri fullreynt og hann færi ekki aftur í framboð en nú hefur honum snúist hugur. Sjálfstæðismenn í Reykjavík eru komnir á fullt í kosninga- baráttu með tilheyrandi auglýs- ingum og greinaskrifum. Eitt- hvað virðast greinaskrifin þó hafa vafist fyrir þeim. Þannig birtist leiðrétting í Morgunblað- inu í gær þar sem kom fram að grein sem birtist á þriðjudag und- ir yfirskriftinni „Ráðleysi R-list- ans“ væri ekki eftir skráðan höf- und heldur annan. Undir þetta skrifaði Helga Guðrún Jónasdótt- ir, varaþingmaður flokksins, sem harmaði mistökin. Þótti mörgum sem þarna mætti greina þann sið stjórnmálaflokka í framboði að láta menn sína skrifa fjölda greina til stuðnings framboðinu og fá svo aðra til að leggja nafn sitt við greinarnar svo stuðning- urinn virðist útbreiddari. Það er ekki bara Sjálfstæðis- flokkurinn sem er kominn á fullt í kosningabaráttu. Björgvin G. Sigurðsson er kominn í frí frá starfi sínu sem framkvæmda- stjóri Samfylkingar til að taka við kosningastjórn flokksins í Ár- borg. Þurfti þá að finna einhvern til að leysa hann af. Fyrst var lit- ið til Ingvars Sverrissonar, fyrr- um framkvæmdastjóra Alþýðu- flokks, en einhverjum í fram- kvæmdastjórn þótti þá sem of mikið væri komið af körlum á skrifstofu flokksins. Þá mun framkvæmdastjórnarmeðlimur- inn Hólmfríður Garðarsdóttir hafa sóst eftir starfinu en niður- staðan varð sú að Aðalheiður Franzdóttir sem hefur haft um- sjón með skrifstofu Samfylkingar leysir Björgvin af. AFMÆLI Hver íslendingur verð- ur að virka eins og fjórir Hinrik Olafsson leikari er 39 ára í dag. Hann mun verja afmælisdegi sín- um með norskum hópi ferðamanna sem hann er leiðsögumaður fyrir. „Ég hef alltaf átt hross og það er mitt jóga,“ segir Hinrik sem ásamt konu sinni er með nokkra hesta í húsi. „Þetta er eitt af mörgum áhugamálum mínum. Við höfum ferðast mikið á hest- um. Þetta er besti ferðamáti sem til er.“ Hinrik var hálfþrítugur þegar hann fór í Leiklistarskólann. „Ég ætlaði eiginlega að verða stór- söngvari," segir Hinrik sem nam söng bæði hér heima og í Vín. Leikarastarfið er aðalstarf Hinriks en hann sinnir ýmsum öðrum störfum samhliða, aðal- lega leiðsögn erlendra ferða- manna en einnig innlestri texta og jafnvel textagerð í auglýsing- um. „Ég segi oft við útlendingana að hver Islendingur verði að virka eins og fjórir. Við búum í svo stóru landi.“ í haust brá Hinrik sér á sjó í tvo mánuði. Hann er kominn af sjómönnum og fannst nauðsyn- legt að öðlast þessa reynslu. Hann segist hafa fengið baktern una í kjölfar töku myndarinnar í faðmi hafsins, sem sjónvarpsá- horfendur fengu að njóta nú um páskana. Kynni Hinriks og leik- stjóra myndarinnar hófust þegar hann var í Leiklistarskólanum. Þeir báðu hann að leika í stutt- mynd og hann sló því til. Upp úr því fór vinnan við handritið að í faðmi hafsins af stað. Handritið fékk verðlaun frá Kvikmynda- sjóði en ekkert fjármagn. „Þá hófst hið virkilega ævintýri. Það hljóp í okkur íslensk kergja. Við ætluðum okkur að framleiða þessa mynd og hófumst handa við HINRIK ÖLAFSSON Hinrik hefur verið hestamaður frá því hann var barn og reynir að nýta þær stundir sem gefast til að fara á bak. að búa til peninga. Með samhentu átaki og vestfirskri elju tókst þetta allt.“ Hinrik segist sjálfur vera mjög ánægður með útkom- una. „Við erum ekki hættir. Við erum með nokkur handrit í hand- raðanum, meðal annars eitt mjög spennandi sem fólk fær senni- lega að sjá í framtíðinni." Hinrik verður í Haukadalnum í dag og segir fínt að verja af- mælisdeginum við Geysi. „Ég held svo smá afmæli um helgina þegar ég kem heim, aðallega fyr- ir strákana mína. Þeir eru meiri áhugamenn um afmælisveislur en ég.“ steinunn@frettabladid.is „Það góða sem maður gerir er fljótt að gleymast." vi/

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.