Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.04.2002, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 18.04.2002, Qupperneq 1
AFMÆLI Aldrei litið á sig sem rithöfund bls 22 Jarðgerðartankur Minna sorp! FUJTNINGATÆKNI Súðarvogi 2, Reykjavík Sími 535 2535 FRETTABLAÐIÐ 74. tölublað - 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 18. apríl 2002 Verð á íslandi og Norðurlöndum alpinci í dag fer fram umræða utan dagskrár á Alþingi um þróun matvæla- verðs á íslandi í samanburði við önnur Norðurlönd. Málshefjandi: Rannveig Guðmundsdóttir, þing- maður Samfylkingar, og verður Davíð Oddsson, forsætisráðherra, til andsvara. Aðalfundur Lyíjaverslunar aðalfundur f dag verður aðalfundur Lyfjaverslunar íslands. Kosið verð- ur í stjórn og er ekki gert ráð fyrir miklum átökum um stjórnarsæti. Grímur Sæmundssen mun kref ja meirhlutann svara um sölu á hluta- bréfum í Delta. Sjá nánar frétt um fundinn bls. 9. IVEÐRIÐ í DAC| REYKJAVÍK Suðaustan 8-13 m/s og skúrir, en 5-10 á morgun. Hiti 5 til 10 stig. VINOUR ÚRKOMA HITI ísafjörður Q 3-8 Skúrir Q 8 Akureyri © 5-8 Þurrt Q9 Egilsstaðir © 5-10 Þokusúld ^5 Vestmannaeyjar © 5-10 Skúrir (£^8 Sorgarviðbrögð karla og kvenna sorg Ný dögun, samtök um sorg og sorgarviðbrögð, halda fund í kvöld kl. 20.00. Yfirskriftin er Fjölskyld- an í sorg. Mismunandi viðbrögð karla og kvenna. Fundurinn er haldinn í Safnaðarheimili Háteigs- kirkju. Veislan frumsýnd leikhús Leikritið Veislan verður frumsýnt á Smíðaverkstæðinu í kvöld. Það er byggt á dönsku kvik- myndinni Festen eftir Thomas Vinterberg og Mogens Rukov. Leikstjóri er Stefán Baldursson. |KVÖLDIÐ í KVÖLDI Tónlist 16 Bíó 14 Leikhús 16 íþróttir 12 Myndlist 16 Sjónvarp 20 Skemmtanir 16 Útvarp 21 MEÐALLESTUR FÖLKS A ALDRINUM 25 TIL 80 ARA A HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT FJÖLMIDLAKÖNNUN CALLUP I MARS 2002. Heilsugæslulæknar í Hafnarfirði segja upp Rúmlega 20.000 manns í Bessastaðahreppi og Hafnarfirði án heilsugæsluþjónustu ef ekki verður gengið að kröfum lækna. Erum í stríði við heilbrigðisráðherra um að fá að opna einkareknar stofur, segir yfirlæknir. Ráðherra tilbúinn með yfirlýsingu á morgun. kiaramál Allir læknar á Heilsu- gæslustöðinni Sólvangi, sem þjónar rúmlega 22.000 Hafnfirð- _ ^, ingum og íbúum ,, .. , . Bessastaðahrepps, „...f'estir þeirra hittu sXj6riœúdm vinna emmg stöðvariJnnar j á emkareknum gærkvöldi og af. stofum þar sem hentu uppsagnar- ■r fa kréf' Að þFÍggí3 tvofaldað mánaða uppsagn- tekjur sínar". arfresti loknum, 1. —ágúst nk., hætta læknarnir störfum. Uppsagnirn- ar munu ganga til baka ef ríkið heimilar þeim að starfa á stofum samhliða vinnu þeirra á stöðinni. Emil L. Sigurðsson, yfirlæknir á Sólvangi, segir að aðeins þannig geti tekjumöguleikar heilsu- gæslulækna orðið sambærilegir við kjör annarra sérfræðinga í læknastéttinni. Hann leggur áherslu á að svonefnt vottorða- mál sé aðeins lítill hluti kjaradeil- unnar, aðalmálið sé að bæta tekjumöguleikana til jafns við aðra í læknastéttinni. Grunnlaun- in eru 270.000 krónur. „Sérfræðingar á sjúkrahúsum eru með sömu grunnlaun og við, það er rétt hjá kjaranefnd. En flestir þeirra vinna einnig á einkareknum stofum þar sem þeir geta tvöfaldað tekjur sínar. Þetta erum við ósáttir við að mega ekki gera.“ I liðinni viku sögðu allir lækn- ar á Heilsugæslustöð Suðurnesja upp. Samkvæmt heimildum blaðsins hafa nokkrir yfirlæknar við heilsugæslustöðvar í Reykja- vík undirbúið uppsagnir og einn í Garðabæ. Emil segir það bæta gráu ofan á svart fyrir heilsugæslulækna í HEILSUCÆSLUSTÖÐ hafnarfjarðar Allir níu læknar stöðvarinnar sögðu upp í gærkvöldí. Hafnarfirði að þeir hafi um ára- bil staðið bakvaktir launalaust. Hann segir að samkvæmt fyrir- mælum frá ráðuneytinu sé lækn- um skylt að standa bakvaktir fyr- ir læknanema sem vinna á stöð- inni. ítrekað hafi verið sóst eftir viðbrögðum frá kjaranefnd vegna þessa, fyrst á síðasta ári, en ekkert borist. „Frá okkar bæj- ardyrum séð brýtur nefndin stjórnsýslulög með því að svara ekki. Þetta er hluti af því að kjaranefnd er leynt og ljóst að reyna að koma heilsugæslunni fyrir kattarnef." Aðgerðirnar setja aukinn þrýsting á heibrigðisráðherra um breytingar á starfsumhverfinu, enda stefnir í óefni fyrir mikinn fjölda skjólstæðinga. Elsa B. Friðfinnsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra, staðfesti við blaðið að Jón Kristjánsson hefði í fyrradag fundað með fulltrúum lækna. Hún sagði yfirlýsingar ráðherra um málið að vænta á morgun þar sem komið yrði að nokkru leyti til móts við kröfur lækna. mbh@frettabladid.is MÓTMÆLI OG ÓEIRÐIR I KAUPMANNAHÖFN Allt logaði ( slagsmálum I kringum Parken í Kaupmannahöfn á meðan vináttulands- leikur Danmerkur og ísraels í knattspyrnu fór fram. Eftir að stuðningsmenn Palestínu höfðu kastað grjóti 1 dönsku lögregluna, í tilraun til að komast inn á leikvöllinn, lét lögreglan til skarar skríða. 150 manns af arabískum uppruna voru handteknir I kjölfar slagsmálanna. Búist var við því að yfirheyrslur stæðu fram á nótt. Lækkun VSK á erlendum námsbókum: Sparar stúdentum 50 milljónir virðisaukaskattur „Þessi hugmynd kemur frá fjármálaráðherra þann- ig að við erum vongóð um að hún nái fram að ganga," segir Brynjólf- ur Stefánsson, formaður Stúdenta- ráðs Háskóla Islands, um fyrirhug- aða lækkun á virðisaukaskatti er- lendra bóka úr 24% í 15%, eða til jafns við innlendar. Stúdentaráð reiknaði það lauslega út að lækk- unin jafngilti 50 milljóna króna lægri útgjöldum stúdenta við HÍ árlega vegna námsbóka. Brynjólf- ur segir því til mikils að vinna að frumvarpið verði samþykkt nú í vor. Algengt er að námsfólk greiði á bilinu 25 - 50.000 krónur fyrir náms- bækur á hverri önn. Að sögn Brynj- ólfs er algengt að um 90% þess fari í erlendar bækur. Samkvæmt þessu spara háskólanemar sér allt að 4.500 krónur næsta haust verði frumvarp ráðherra samþykkt. EFTA-dómstóllinn sendi nýlega frá sér þá ályktun að sérstakur skattur á erlendar bækur umfram innlendar hér á landi stæðist ekki ákvæði EES-samningsins. í því feldist óbein vernd á innlendri framleiðslu. Ályktunin var gerð að beiðni Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem Hörður Einarsson hrl. hafði höfðað mál á hendur stjórn- völdum um lögmæti skattlagning- arinnar. ■ 1 FÓLK Stuttmynd sem heillar SÍÐA | ÍÞRÓTTIR | Bylting ífótboltanum ST0RSYNINGIN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.