Fréttablaðið - 18.04.2002, Page 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KJÖRKASSINN
18. aprll 2002 FIMMTUPACUR
Tæplega tveir þriðju
telja að íslenskukunn-
átta eigi að vera skil-
yrði fyrir ríkisborgara-
rétti hér á landi.
Á íslenskukunnátta að vera
skilyrði fyrir ríkisborgararétti?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Á að lögleiða vændi hér á landi?
Farðu inn á vlsi.is og segðu
þína skoðun
Borgarverkfræðingur:
Mislæg
gatnamót á
vegáætlun
skipulac Borgaryfirvöld vonast
til þess að mislæg gatnamót við
Kringlumýrarbraut og Miklu-
braut komist á vegáætlun í vor.
Stefán Hermannsson borgar-
verkfræðingur sagði að fram-
kvæmdir við þau gætu í fyrsta
lagi hafist árið 2004 eða 2005.
Eins og kom fram í Fréttablað-
inu í gær hafa forsvarsmenn
Kringlunnar lýst yfir andstöðu
við mislæg gatnamót og vilja að
sett verði upp beygjuljós í stað-
inn. Óttast þeir að aðgengi að
Kringlunni muni versna með til-
komu mislægra gatnamóta.
„Það er eðlilegt að þeir vilji
að aðgengi að Kringlunni sé sem
best,“ sagði Stefán. „Við hlustum
auðvitað á þeirra raddir, en mun-
um reyna að útskýra fyrir þeim
að við höldum að þetta sé þver-
öfugt. Að vegna aukinnar um-
ferðar í framtíðinni verði að-
gengið verra ef aðeins verði sett
upp beygjuljós."
Stefán sagði að breskur sér-
fræðingur, sem staddur væri
hérlendis, hefði sagt að það væri
mjög algengt að forsvarsmenn
verslunarmiðstöðva mótmæltu
gerð mislægra gatnamót í ná-
grenni þeirra. Þeir héldu að allir
myndu aka framhjá, en reynslan
hefði síðan sýnt að það mat þeir-
ra væri rangt. ■
1 EFNAHAGSLÍF |
Alan Greenspan, seðlabanka-
stjóri Bankaríkjanna, sagði í
ræðu sinni frammi fyrir þing-
nefnd bandaríska þingsins að enn
væri óvissa með styrk efnahags-
batann. Sagði hann lítinn verð-
bólguþrýsting í efnahagslífinu
þrátt fyrir olíuverðshækkanir.
Því gaf hann skýrt til kynna að
bankastjórn Seðlabankans sæi
ekki ástæðu til að hækka vexti á
næstunni.
--...
Isafoldarprentsmiðja:
Nýir eig-
endur
atvinnulÍf Nýir eigendur hafa
keypt ísafoldarprentsmiðju.
Ólafur Haukur Magnússon, sem
verið hefur framkvæmdastjóri
prentsmiðjunnar, fer fyrir hópi
starfsmanna og utanaðkomandi
fjárfesta sem keypt hafa allt
hlutfé fyrirtækisins. isafoldar-
prentsmiðja er næst stærsta og
elsta prentsmiðja landsins, verð-
ur 125 ára í sumar. „Við teljum
að ísafoldarprentsmiðja hafi
mikil tækifæri til að dafna í kjöl-
far mikillar samþjöppunar á
prentmarkaði á undanförnum
árum. Við horfum björtum aug-
um á framtíðina," segir Ólafur
Haukur, nýr stjórnarformaður
ísafoldar. ■
Samdráttur í einkaneyslu:
Hagkaup lækkar verð
verslun „Við erum að koma til
móts við kröfur neytenda um
lægra um verð,“ segir Finnur
Árnason, framkvæmdastjóri Hag-
kaupa. Hagkaup lækkar í dag
verð um 700 vörutegundum, þar
af um 300 tegundum matvöru.
Matvara lækkar að meðaltali um 8
prósent en aðrar vörur frá 10 og
upp í 40 prósent. Frá áramótum
hefur Hagkaup þá lækkað verð á
um 2000 vörutegundum.
Finnur segir að þessi verð-
lækkun sé til frambúðar og viss
stefnubreyting hjá Hagkaupum.
Undanfarin ár hafi áhersla verið
lögð á aukið vöruúrval og þjón-
ustu. Nú bendi hins vegar allt til
að fólk hafi minna fé á milli hand-
anna en áður. Einkaneysla hefur
minnkað, velta í smásölu dregist
saman og velta greiðslukorta
sömuleiðis dregist saman. Hag-
kaup ætli því að leggja áherslu á
ódýrari vörur án þess þó að draga
úr þjónustu.
„Við reiknum með að þessi
verðlækkun kosti okkur um 60
milljónir króna á ári. Við treyst-
um því að við bætum okkur skað-
ann með aukinni veltu,“ segir
Finnur.
Hagkaup var eitt þeirra fyrir-
tækja sem stóðu að Fríkortinu, en
sem kunnugt er hefur verið
ákveðið að leggja það af. Finnur
STEFNUBREYTING f HAGKAUPUM
Áherslan sett á lægra verð.
segir að þessar tvær ákvarðanir
séu tengdar. Sá kostnaður sem
Hagkaup bar af Fríkortinu sé nú
notaður til að lækka verð til allra
neytenda. ■
Uppnám í Hollandi
|lögreglufréttir|~
Nokkuð var um smærri árekstra
í höfuðborginni í gær án þess
að slys yrðu á fólki. Alls höfðu lög-
reglan í Reykjavík vitneskju um
tólf smærri árekstra undir kvöld í
gær. Ekki taldi lögregla þó að
þyrfti að vera að bensínfótur borg-
arbúa væri að þyngjast með vor-
inu, heldur gæti vætutíð og aðrar
akstursaðstæður ýtt undir smáslys
af þessum toga.
I^Kópavogi var nokkuð um
hraðakstur en átta voru stöðvað-
ir fyrir of hraðann akstur í um-
dæmi lögreglunnar þar. Þá urðu
einnig þrjú minniháttar umferðar-
óhöpp án þess að teljandi meiðsli
yrðu á fólki. Töldu þeir í nágranna-
sveitarfélaginu að víst gæti það
verið að bensínfóturinn væri að
þyngjast með vorinu.
Verkalýðshreyfingin:
Öæskileg
verðhækkun
Árangri í baráttu gegn verðbólgu fagnað:
Verðbólgan niður í 2%
Æðsti hershöfðingi Hollands sagði af sér í kjölfar afsagnar stjórnarinnar.
Hollenska þingið ætlar að fara ofan í saumana á því sem gerðist í Srebr-
enica. Hollenska stjórnarandstaðan vill gera eitthvað fyrir íbúana í
Srebrenica.
haac. ap Ad van Baal hershöfð-
ingi, æðsti herforingi hollenska
hersins, sagði af sér í gær vegna
afdrifaríkra mistaka sem hol-
lenskir hermenn gerðu í Srebren-
ica í Bosníu árið 1995. Van Baal
fylgdi þar með fordæmi ríkis-
stjórnar landsins, sem sagði af sér
á þriðjudag eftir að birt var
skýrsla um atburðina í Srebren-
ica. Mistök hollenska hersins eru
þar sögð hafa orðið til þess að
serbneskar hersveitir myrtu
7.500 karlmenn og drengi í þorp-
inu Srebrenica. Fjöldamorðin þar
eru meðal alvarlegustu stríðs-
glæpa sem framdir hafa verið í
Evrópu.
Þrátt fyrir að bæði ríkisstjórn
landsins og æðsti foringi hersins
hafi sagt af sér þykir í skýrslunni
farið mildum höndum um mistök
hollensku hermannanna í Srebr-
enica. í skýrslunni segir að hol-
lenska stjórnin hafi sent léttvopn-
aða og illa undirbúna hermenn til
þess að framkvæma hið ófram-
kvæmanlega í Bosníu, nefnilega
að verja íbúanna í Srebrenica
gegn árásum Serba. Ábyrgðin sé
þv£ frekar á herðum hollenskra
stjórnvalda en hermannanna.
Stjórnvöld hafi haft mestan áhuga
á því að auka álit Hollands á al-
þjóðavettvangi.
Wim Kok, forsætisráðherra
Hollands, sagði af sér á þriðjudag-
inn aðeins sex dögum eftir að
skýrslan birtist. Þar með tók hann
á sig ábyrgðina af mistökum hol-
lenska hersins í Srebrenica, án
þess þó að taka á sig sökina um
leið. Stjórnin situr þó áfram til
bráðabirgða fram að kosningum,
sem átti hvort eð er að halda í
næsta mánuði. Óvíst er hvaða
áhrif afsögn forsætisráðherrann
á stjórnmálaferil hans. Þetta er í
annað sinn sem stjórn hans segir
af sér.
WIM KOK SITUR FYRIR SVÖRUM
Wim Kok, sem sagði af sér forsetaembættinu i Hollandi, sat fyrir svörum á þinginu í gær
vegna ábyrgðar stjórnarinnar á fjöldamorðunum í Srebrenica árið 1995.
Wim Kok sat fyrir svörum í
hollenska þinginu í gær vegna af-
sagnar sinnar. Ljóst var að sum-
um þingmönnum þótti ekki nóg að
stjórnin segði af sér.
„í Srebrenica var fólk sem
flúði og býr við hörmuleg skilyrði
nú sjö árum síðar,“ sagði Jan
Marijnisse, leiðtogi stjórnarand-
stöðunnar á hollenska þinginu.
„Getum við ekki hjálpað? Getum
við ekki gert eitthvað sem hefur
þýðingu fyrir fólk í Srebrenica?"
í næstu viku verður málið rætt
enn frekar á hollenska þinginu.
Búist er við að þingið láti fara
fram ítarlega rannsókn á málinu
þar sem bæði fyrrverandi ráð-
herrar og herforingjar verði kall-
aðir til vitnis. ■
alþingi Davíð Oddsson, forsætis-
ráðherra, deildi hart á stjórnar-
andstöðuna og Þjóðhagsstofnun, í
utandagskrárumræðu á Alþingi í
gær. Hann sagði að tekist hefði að
ná niður verðbólgu og viðskipta-
halla og hækka gengi krónunnar
þvert á bölsýnisspár manna sem
hefðu talað um að allt væri í rjúk-
andi rúst. Verðbólgan yrði að öll-
um líkindum um 2% á þessu ári.
Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingar, svaraði föst-
um skotum forsætisráðherra og
sagði þau bera vitni um að plástra
þyrfti sært stolt og metnað for-
sætisráðherra. Forsætisráðherra
bæri ábyrgð á því gengisfall
vegna viðskiptahalla hefði leitt til
aukinnar verðbólgu og margfalt
hærri vaxta heldur en þekkjast í
evrulöndum. Það bæri að þakka
verkalýðsforystunni fyrir þann
árangur sem hefði náðst við að
bæta fyrir mistök forsætisráð-
herra.
Vilhjálmur Egilsson, formaður
efnahags- og viðskiptanefndar,
hóf umræðuna og sagði mikinn ár-
angur hafa náðst. Hann vildi taka
til við að sameina ríkisbankana.
Sagði hann það styrkja samkeppni
á bankamarkaði og lækka vexti. ■
FORSÆTISRÁÐHERRA
OG FJÁRMÁLARÁÐHERRA
Það er búið að ná tökum á
efnahagnum sagði Geir H. Haarde
fjármálaráðherra.
hjá Sýn
verðlag Búist er við að forysta ASÍ
mun ræða eftir helgina hvernig
brugðist verður við áformum
Norðurljósa um allt að 14% hækk-
un á áskriftargjöldum á Sýn. Hall-
dór Björnsson varaforseti ASÍ seg-
ir að á miðstjórnarfundi sam-
bandsins í gær hefði komið fram
að þarna væri óæskileg hreyfing
til verðlagshækkunar. Aðrir innan
verkalýðshreyfingarinnar sem
rætt var við óttast það fordæmi
sem kann að skapast fyrir aðra ef
þessi hækkun Norðurljósa verður
að veruleika. Á miðstjórnarfundin-
um kom hins vegar fram almenn
ánægja með árangurinn í barátt-
unni fyrir verðhjöðnun og styrk-
ingu krónunnar. ■
—«—
Jarðamál á þingi:
Vanþekking
og dylgjur
ALÞlNGl Guðni Ágústsson, landbún-
aðarráðherra, sakaði Ástu Ragn-
heiði Jóhannesdóttur, þingmann
Samfylkingar, um að fara með
dylgjur og ræða jarðamál af mik-
illi vanþekkingu í fyrirspurnar-
tíma á Alþingi í gær.
Ásta Ragnheiður hafði spurst
fyrir um hvers vegna ekki væri
samræmi í því hvernig ráðuneytið
tæki á beiðnum bænda um að
kaupa ríkisjarðir sem þeir hefðu
búið á. Þó hefði ráðherra áður
sagt eðlilegt að bændur nytu þess
að hafa byggt upp jarðir með því
að fá fullvii’ðisréttinn.
Guðni sagði málin gjörólík og
ekki sambærileg. ■
Sendinefnd ræðir við
ESA um ríkisábyrgð:
Meirihlutinn
úr röðum ÍE
ríkisábyrgð Af fimm manna sendi-
nefnd sem hélt til Brussel á þriðju-
dag til viðræðna við fulltrúa eftir-
litsstofnunar EFTA (ESA) um hvort
fyrirhuguð ríkisábyrgð á láni Is-
lenskrar erfðagreiningar vegna
uppbyggingar lyfjaþróunarfyrir-
tækis standist EES-samninginn eru
þrír fulltrúar íslenskrar erfða-
greiningar og tveir frá fjármála-
ráðuneytinu. Álit ESA á aðstoðinni
við ÍE ræður m.a. gjaldtöku fyrir
ríkisábyrgðina. Fulltrúar fjármála-
ráðuneytisins eru Baldur Guðlaugs-
son, ráðuneytisstjóri, og Jögfræð-
ingur úr ráðuneytinu. Frá íslenskri
erfðagreiningu fóru Jóhann Hjart-
arson, lögfræðingur, og Þórir Har-
aldsson, lögfræðingur og fyrrum
aðstoðarmaður heilbrigðisráð-
herra, auk þriðja manns. Sendi-
nefndin kom aftur til íslands í gær-
kvöldi en ekki náðist í meðlimi
hennar. Ekki náðist í fjármálaráð-
herra vegna málsins. ■