Fréttablaðið - 18.04.2002, Síða 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
18. aprfl 2002 FIMMTUDACUR
SVONA ERUM VIÐ
SKIPTAR SKOÐANIR UM RÍKIS-
ÁBYRGÐ TIL DECODE
I könnun vefsvæðisins heimur.is sl.
þriðjudag voru viðhorf til ríkisábyrgðar til
deCODE könnuð. Spurt var: Er það rétt
að veita deCODE 20 milljarða króna rík-
isábyrgð? Þrír af hverjum fjórum sem af-
stöðu tóku voru á móti ríkisábyrgðinni.
Mest er andstaðan i Reykjavík eða 83%
en minnst í Norðausturkjördæmi eða
56%. Ekki er marktækur munur á af-
stöðu kynjanna, en 74% karl og 76%
kvenna eru á móti ábyrgðinni.
MEÐ EÐA Á MÓTI
RÍKISÁBYRGÐ
SKIPTING EFTIR KJÖRDÆMUM
Já Nei
Reykjavík 17% 83%
Suðvestur 27% 73%
Suður 37% 63%
Norðvestur 21% 79%
Norðaustur 44% 56%
Heímild: heimur.is
Ný tækni:
Staðsetur
farsíma-
notanda
öryggismál Síminn og Neyðarlín-
an kynntu í gær tækni sem byggir
á því að mögulegt er að staðsetja
þann sem hringir í Neyðarlínuna
úr farsíma með nokkurri ná-
kvæmni. Segja samstarfsaðilarnir
að þetta muni leiða til aukins ör-
yggis borgara sem hringja í Neyð-
arlínuna úr farsímum. Tæknin
nefnist Cell-id og er til þess fallin
að auka öryggi borgara. Hún get-
ur stytt tímann sem tekur að bíða
eftir aðstoð og eykur öryggi á út-
kalli viðbragðsaðila hverju
sinni.ísland er fyrsta þjóðin í
heimi til að taka í notkun staðsetn-
ingartækni í neyðarþjónustu, seg-
ir í tilkynningu. ■
—♦—
Þriðja kynslóðin:
Farsímaleyfí
boðin út
fjarskipti Franska fjarskiptafyrir-
tækið Bouygues Telecom stað-
festi í gær að það ætli að bjóða
rúma 53 milljarða íslenskra króna
í leyfi til að reka net þriðju kyn-
slóða farsíma í Frakklandi. Þetta
er í annað sinn sem frönsk yfir-
völd bjóða út svona leyfi og er
talið að þetta eina fyrirtæki bjóði
í það. ■
VERSLUN
Uppgjör tap verslunarmiðstöðv-
arinnar Smáralindar í fyrra
var 27 milljónir króna. Árið áður
tapaði félagið 14 milljónum. Heild-
artekjur á árinu voru 273 milljónir
og þar af voru leigutekjur 203
milljónir. í árslok voru tæpir fjög-
ur þúsund fermetrar húsnæðisins
ekki í leigu. Það er um 10 prósent
af heildarleigurými Smáralindar.
Smáralind var opnuð 10. október sl.
Breytingar á Aðalskipulagi 2001-2024
Stefnt að vistvænni og
alþjóðlegri
skipulagsmál íþrótta- og útivistar-
svæði á og við fyrirhugaða land-
fyllingu við Ánanaust, nánari
stefnumörkun um landnotkun í
Vatnsmýri og ýmsar betrumbætur
fyrir gangandi, hjólandi og akandi
vegfarendur eru meðal þeirra
breytinga sem gerðar hafa verið á
tillögu að Aðalskipulagi Reykja-
víkur 2001-2024. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borgarstjóri, segir að
með aðalskipulaginu sé leitast við
að styrkja Reykjavík sem um-
hverfisvæna, alþjóðlega höfuð-
borg og því hafi sú tímamótaá-
höfuðborg
kvörðun verið tekin að setja aðal-
skipulagið í umhverfismat. Skipu-
laginu er ætlað að draga úr út-
þenslu borgarinnar og nýta betur
svæði innan ákveðinna jaðra.
Hvað Reykjavíkurflugvöll varðar
gerir skipulagið ráð fyrir að mögu-
legt sé að reka austur-vestur flug-
brautina frá 2016 til loka skipu-
lagstímabilsins en framvinda
málsins alls verði hins vegar að
leiða í ljós hvers konar flugstarf-
semi verður fýsilegt að reka í
Vatnsmýrinni á þessu tímabili eða
hvort hún verði lögð af með öllu. ■
■
REYKJAVÍK
Stefnt er að samkeppni um heildarskipu-
lag Vatnsmýrarinnar á næsta kjörtímabili.
Búnaðarbankinn:
Seldi í Delta
fyrir 3,4
milljarða
viðskipti Búnaðarbanki íslands seldi
í fyrradag hlutabréf í lyfjafyrirtæk-
inu Delta hf. fyrir 3,4 milljarða
króna að söluvirði. Með þessum við-
skiptum gerir Delta upp skipta-
samninga við Búnaðarbankann og
kaupir bréfin úr samningunum að
nafnvirði 48,5 milljónir. Gengi bréf-
anna á VÞÍ í gær var um 70 krónur
á hlut.
Eignarhlutur Búnaðarbanka ís-
lands er nú 5,9 prósetn í Delta en
var áður 28,2 prósent. Af núverandi
eignarhlut eru 417 þúsund að nafn-
virði í framvirkum samningum. ■
Ferðalag Colins Powells
varð árangurslaust
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna tókst ekki að ná neinum af markmiðum ferðar sinnar til Mið-
austurlanda. Sharon fer sínu fram þrátt fyrir kröfur Bandaríkjanna. Arafat reiður að loknum
fundi með Powell.
jerúsalem, kaíró. ap Tíu daga ferð
Colins Powells, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, til Mið-Austur-
landa skilaði litlum sem engum
sýnilegum árangri. Honum tókst
ekki að koma á vopnahléi milli
ísraela og Palestínumanna_. Ilon-
um tókst heldur ekki að fá ísraela
til þess að draga herlið sitt frá
heimastjórnarsvæðum Palestínu-
manna.
Þegar hann hélt frá ísrael í
gær sagði hann að ísraelsk stjórn-
völd hefðu lofað honum því, að
draga herlið sitt til baka innan
viku. „Vopnahlé er ekki á dagskrá
sem stendur,“ sagði hann. Jafn-
framt hvatti hann Jasser Arafat,
leiðtoga Palestínumanna, til þess
að leggja sig harðar fram við að
stöðva hryðjuverk.
Jasser Arafat var hins vegar
reiður að loknum fundi þeirra
Powells í Ramallah í gærmorgun.
Hann sagði augljóst að hernaði
ísraelsmanna á heimastjórnar-
svæðunum væri ekki lokið. „Þeir
eru að koma til baka,“ sagði hann
um nýjust herflutninga ísraels-
manna, sem héldu inn á tvö
byggðasvæði Palestínumanna í
gær.
„Hver getur samþykkt þetta?"
spurði Arafat, og átti við umsátur
ísraelska hersins um höfuðstöðv-
ar hans í Ramallah. „Ég verð að
spyrja alþjóðasamfélagið, ég verð
að spyrja hæstvirtan Bush for-
seta, ég verð að spyrja Sameinuðu
þjóðirnar, er þetta ásættanlegt að
ég geti ekki farið út fyrir þessar
dyr?“
Powell tókst heldur ekki að
EGYPSKT SJÓNARHORN
Egypska skopteiknaranum Ismail M. Effat
finnst samband Bandaríkjanna og (sraels
ekki vera heillavænlegt.
AÐ LOKNUM FUNDI MEÐ POWELL
Jasser Arafat var reiður að loknum fundi sínum með Colin Powell í gær. Hann krafðist
þess að alþjóðasamfélagið bjargaði sér úr herkví.
sannfæra leiðtoga arabaríkja um
að hann gæti haft einhver áhrif á
gang mála í deilu ísraela og
Palestínumanna. Honum varð lítt
ágengt í Sýrlandi og Líbanon, þar
sem hann reyndi að sannfæra
stjórnvöld um að halda aftur af
Hesbollah-skæruliðum sem barist
hafa við ísraelska hermenn undan-
farið. Arabaleiðtogar voru einnig
lítt hrifnir af því, að Bandaríkin
tóku undir hugmynd Aríels Shar-
ons um alþjóðlega friðarráð-
stefnu. Þeir telja þá hugmynd ekki
annað en sýndarmennsku, ætlaða
til þess eins að gefa Sharon meiri
tíma til að beita her sínum á
Palestínumenn.
Powell ætlaði meðal annars að
hitta Hosni Mubarak Egyptalands-
forseta áður en hann héldi heim til
Bandaríkjanna í gær, en Mubarak
aflýsti þeim fundi meðan Powell
var enn að ræða við Arafat. ■
Pentur ehf.
Erum fluttir í glæsilegt
húsnæði á Smiðjuvegi 6
Kópavogi. Bjóðum upp á
gott úrval viðgerðarefna frá Rescon
Mapei. Sími 577-7705, fax 587 1117.
Norsk Hydro og Reyðarál:
Bjóða sumarstörf í álveri í Sunndal
ÁLVER l REYÐARFIRÐl
Þessi sumarstörf eru sogð vera hluti af því að kynna kosti álvers fyrir íbúum
Fjarðabyggðar.
stóriðja Tveimur ungmennum í
Fjarðabyggð stendur til boða að
vinna í sumar í álveri Norsk Hydro
í Sunndal í Noregi. Þetta er annað
sumarið í röð sem Norsk Hydro og
Reyðarál í samvinnu við bæjaryfir-
völd í Fjarðabyggð bjóða upp á
þessa vinnu. Umsækjendur verða
að vera á aldrinum 18 - 25 ára, vera
með bílpróf og geta tjáð sig á
norsku og ensku. Það er einnig
áskilið að umsækjendur hafi áhuga
á að kynnast störfum í áliðnaði með
hliðsjón af áformum um að álver
verði reist í Reyðarfirði. Reyðarál
greiðir allan ferðakostnað auk þess
sem boðið er upp á nánast frítt
leiguhúsnæði. Launin í álverinu
eru sögð vera hátt í 250 þúsund ís-
lenskar krónur fyrir skatta.
Gunnar Jónsson forstöðumaður
stjórnsýslusviðs Fjarðabyggðar,
sagði að í fyrra hefði umsækjendur
verið um 13 talsins. Þá hefðu
starfsmenn verið valdir með úr-
drætti. í byrjun vikunnar hafði
hins vegar enginn sótt um en um-
sóknarfrestur er til 3. maí nk.
Gunnar segir að tilgangurinn með
þessu sé m.a. sá að almenningur í
sveitarfélaginu komist í tengsl við
þessa stóriðju og nánari vitneskju
um þessa atvinnugrein. Enda sé
þetta samstarfsverkefni hluti af
þeirri kynningu sem staðið hefur
yfir um kosti þess fyrir sveitarfé-
lagið og íbúa þess að fá álver í
Reyðarfjörð. Það sé jafnframt hluti
af framtíð unga fólksins á svæðinu.
Þá hefði reynsla þeirra sem fóru
utan í fyrra verið góð og dvölin í
Sunndal verið bæði fræöandi og
skemmtileg. ■