Fréttablaðið - 18.04.2002, Page 22
22
FRÉTTABLAÐIÐ
18. apríl 2002 FIMMTUDAGUR
SAGA DAG5INS
18. APRIL
Hermann Jónasson var kosinn
formaður Framsóknarflokks-
ins árið 1944. Hann tók við for-
mennsku af Jónasi frá Hriflu og
sat í formannsstóli til ársins 1962
eða í 18 ár.
Arið 1997 var
kona í fyrsta
sinn kjörin deild-
arforseti í þá 86
ára sögu Háskóla
íslands. Þetta
var Helga Kress
sem var kjörin
forseti heimspekideildar.
Arið 1521 stóð Marteinn Lúther
uppi í hárinu á ríkisþinginu í
Worms og neitaði að draga gagn-
rýni sína á kaþólsku kirkjuna til
baka, þrátt fyrir að keisarinn
krefðist þess. Næstu tíu mánuði
var hann í felum.
FÓLK í FRÉTTUM
Ymsir hafa haft orð á því að
hið fyrrum frjálsa og óháða
dagblað DV hafi fengið á sig
nokkra sjálfstæðisslagsíðu. Það
þótti því nokkuð skondið að
sömu helgina og DV flutti með
lúðrablæstri í Skaftahlíðina
opnaði Sjálfstæðisflokkurinn í
Reykjavík kosningaskrifstofu í
næsta húsi. Það eru því hæg
heimatökin fyrir DV menn að
sækja fréttirnar.
Hlutur almannatengslafulltrúa
og svonefndra spindoctora í
viðskiptalífi og stjórnmálum er
alltaf að verða stærri og sífellt
fleiri sem ráða til
sín menn til að
lappa upp á
ímynd sína eða
tryggja mikla og
góða umfjöllun.
Þannig hefur
Björn Ingi
Hrafnsson verið
duglegur við að koma Framsókn
á framfæri síðan hann var ráðinn
kynningarstjóri og verið þing-
mönnum lians innan handar í
þinghúsiiiu.
Við umræður á Alþingi í gær
um ræðu forseta á þemaþingi
Norðurlandaráðs
var Björn Ingi
kominn hálfur inn
í þingsalinn þegar
hann var að ræða
við Ólaf Örn Har-
aldsson sem
skömmu síðar
skundaði í ræðustól og tók heils-
hugar undir orð formanns síns og
utanríkisráðherra. Áður hafði
ísólfur Gylfi Pálmason rætt um
málið en sumum þótti spjall
Björns Inga og Ólafs til marks
um að þeim fyrrnefnda þætti
ástæða til að klikkja betur á því
að flokkurinn væri sammála
Halldóri.
Kirkjan á Selfossi er vel búin
Sr. Gunnar Björnsson hefur ver-
ið ráðinn sóknarprestur á Sel-
fossi frá 1. júní. „Það voru sjö
manns, prestar og guðfræðingar
sem sóttu um stöðuna og allt var
þetta mjög hæft fólk,“ segir
Gunnar.
Gunnar er ekki alveg ókunnug-
ur prestakallinu því hann hefur
starfað þar í afleysingum fyrir sr.
Þóri Jökul Þorsteinsson frá 1.
september 2001. Fram að þeim
tíma bjuggu þau hjónin á Berg-
þórshvoli í Vestur-Landeyjum,
þaðan sem Gunnar gegndi störf-
um sérþjónustuprests á Biskups-
stofu. „Eg kunni ákaflega vel við
mig á þessum fræga sögustað,
þarna er mjög fallegt og fjalla-
hringur óviðjafnanlegur. Um-
hverfis prestssetrið er stórkost-
lega gróinn og yndislegur garður,
sem Eddu Carlsdóttur prestsfrú
tókst með mikilli eljusemi að
rækta upp fyrir um 20 árum, þeg-
ar Sr. Páll Pálsson var þarna
prestur." En þar sem um klukku-
stundar langur akstur er á Selfoss
töldu sr. Gunnar og kona hans ráð-
legra að flytja þangað.
Sr. Gunnar lætur vel af aðstæð-
um á Selfossi, „þarna eru fín
starfsskilyrði því kirkjan og safn-
aðarheimilið eru fullkomin hús
með góðum samkomusal og
kennslustofu. Þau eru líka vel
búin hljóðfærum og síðan er
ómetanlegt fyrir hverja kirkju að
eiga góðan organista eins og
Glúmur Gylfason er sannarlega. I
____________Persónan
Sr. Gunnar Björnsson var einróma
valinn sóknarprestur á Selfossi af sjö
valnefndarmönnum.
kirkjunni er messað á hverjum
helgum degi og söngstarf og
barnastarf er með miklum blóma.
Bæði er börnum sinnt sérstaklega
og einnig höldum við annað veifið
svokallaðar fjölskyldumessur."
Sr. Gunnar og kona hans eiga
samtals fimm börn sem öll eru
uppkomin og 9 barnabörn. ■
SR. GUNNAR BJÖRNSSON
Sr. Gunnar er ánægður
með starfsskilyrði á
vinnustað sínum.
AFMÆLI
Hefur aldrei litið á
sig sem rithöfund
Magnea frá Kleifum hefur skrifað 18 bækur um ævina.
„Ég ætla að baka pönnukökur og
þeyta rjóma og taka á móti mín-
um nánustu. Það er löng hefð fyr-
ir því,“ segir Magnea Magnús-
dóttir frá Kleifum sem er 72 ára í
dag. Það er Ijóst að ekki verður
fámenni í afmælisveislunni því
Magnea á 5 börn,16 barnabörn og
4 langömmubörn og búa þau öll á
Akureyri eins og hún sjálf, utan
eitt barnabarn sem er í námi í
Reykjavík. „Þau vilja öll helst
búa hér, þó að þau hafi farið suð-
ur um tíma til náms þá hafa þau
alltaf snúiö jafnharðan aftur.“
Magnea hefur skrifað 18 bæk-
ur um ævina, þrjár fyrir full-
orðna og 15 fyrir börn, og eru
Sossu-bækurnar líklega þekktast-
ar þeirra. Hún hefur þó aldrei
talið sig vera rithöfund. „Ég get
ekki litió á mig sem rithöfund,
skil reyndar ekki hvers vegna
þessar bækur mínar komu út. Ég
er ef til vill góð að skrifa skóla-
stíla.“ Magnea segist vera svo til
hætt að skrifa þar sem stór hluti
á ári hverju fari í erfið veikindi.
Sjúkdómur þessi kallast Hortons
og er afar sjaldgæfur. „Þetta er
mjög kvalafullur sjúkdómur sem
veldur miklum höfuðverkjum. Ég
er því stundum vikum saman á
sjúkrahúsi þar sem ég er stöðugt
á kvalastillandi morfínlyfjum og
gæti ekki hugsað þá hugsun til
enda ef þeirra nyti ekki við.“
Þegar Magnea lítur yfir far-
inn veg og veltir fyrir sér breyt-
ingum sem orðið hafa á þjóðfé-
laginu kemur henni fyrst í hug
auknir möguleikar til náms.
„Þegar ég var ung átti ég mér
þann draum að fara í nám, ég
vildi bara læra. En á þeim tíma
var útilokað að vinna fyrir sér á
sumrin og læra á veturna. Þá
voru engin námslán og engir rík-
ir foreldrar sem gátu fjármagn-
að námið. Það var engin hvatn-
ing úr umhverfinu og kaupið var
mjög lágt hjá konum. Þær áttu
bara að læra að búa til mat og sjá
um heimilið. Sumar voru þó með
bein í nefinu og voru duglegar
en ég var það ekki. Ég gerði til-
raun til að setjast á skólabekk
eftir að börnin urðu uppkomin
en það gekk ekki vegna sjúk-
dóms míns. Ef ég væri ung í dag
myndi ég hiklaust vilja læra sem
mest.“ ■
MAGNEA MAGNÚSDÓTTIR
FRÁ KLEIFUM
Magnea er mikil handavinnu-
kona og lítur á það sem tímasó-
un að glápa á sjónvarp með
ekkert i höndunum.
Margir hafa
verið að
bera auðkennis-
merki R-listans
fyrir þessar kosningar við
merki félagsþjónustunnar, sem
Reykjavíkurborg
lét hanna fyrir sig
á kjörtímabilinu.
Þau þykja keimlík.
Reykjavíkurlistinn
segist ekki notast við auglýs-
ingastofu þó merkið sé fag-
mannlega unnið. Er því velt
vöngum yfir því hvort merki R-
listans og Félagsþjónustunnar
sé unnið af sama aðila og hver
það þá sé.
Netsíða Víkurfrétta, vikur-
frettir.is, í Keflavík hreykti
sér af því að vera vinsælasta
heimasíða Suðurnesja í gær.
Rúmlega 2100 manns heimsóttu
síðuna sem verður að teljast
harla gott. Gárungarnir vilja þó
meina að ef teljari væri settur á
síðu Hafnarsamlags Suðurnesja,
hass.is, myndi hún skjóta öðrum
síðum á Suðurnesjum og jafnvel
landinu öllu ref fyrir rass.
TIL LEIGU
200 fm atvinnuhúsnæði að Smiðjuveigi 11 Kóp, húsnæðið hefur
hýst verslun og heildverslun á undanförnum árum, og er
innréttað miðað við það. Lofthæð 3,2 m. Stórar innkeirsludyr
og 2 gönguhurðir.
Á sama stað er til sölu 100 fm atvinnuhúsnæði með stórum
innkeirsludyrum og lofthæð 3,2 m.
Upplís. 554-5544
TÍMAMÓT
JARÐARFARIR
13.30 Hafsteinn Auðunsson, Glað-
heimum 14, verður jarðsunginn
frá Langholtskirkju.
13.30 Ingibergur Gestur Helgason,
Kóngsbakka 6, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju.
13.30 Sigurður B. Haraldsson, fyrrver-
andi skólastjóri Fiskvinnsluskól-
ans, verður jarðsunginn frá Sel-
tjarnarneskirkju.
13.30 Sóley Ingvarsdóttir, Engjaseli 68,
verður jarðsungin frá Bústaða-
kirkju.
14.00 Aðalbjörg Guðrún Guðmunds-
dóttir, Suðurgötu 8 Vogum, verð-
ur jarðsungin frá Kálfatjarnar-
kirkju.
15.00 Hjördís Bjartmarsdóttir, Selja-
landi 3, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Bústaðakirkju.
15.00 Kristbjörg Löve, Brekkutanga 18,
Mosfellsbæ, verður jarðsungin frá
Lágafellskirkju.
AFMÆLI
Magnea Magnúsdóttir frá Kleifum er
72 ára í dag.
ANDLÁT_______________________________
Baldur Árnason lést 4. apríl. Útförin
hefur farið fram.
Guðni Sigvaldason, Árborg í Manitóba,
Kanada, er látinn.
Benedikt Sigurjónsson, byggingameist-
ari, Hvanneyrarbraut 42, Siglufirði, lést
15. april.
Frida Erna Ottósdóttir, Tryggvagötu 4a,
Selfossi, andaðist 15. apríl.
Gunnlaugur Vignir Gunnlaugsson, Há-
túni 4, Reykjavík, lést 15. aprfl.
Guðrún Héðinsdóttir, Fossvöllum 6,
Húsavík, lést 14. apríl.
Guðmundur Einar M. Sölvason, vél-
stjóri, Skólabraut 3, Seltjarnarnesi, lést
12. apríl.
Magnús Aldan Magnússon, Hrafnistu í
Hafnarfirði, lést 11. apríl.