Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.05.2002, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 15.05.2002, Qupperneq 4
4 FRÉTTABLAÐIÐ 15. maí 2002 MIÐVIKUDACUR SVONA ERUM VIÐ Orkunotkun íslendinga árið 2000 samkvæmt tölum Hagstofunnar: 29,4% 70,6% ÓLAFSFJÖRÐU R Æskulýðs- og tómstundaráðsfulltrúi bæjar- ins segir að fólki sé ekki mismunað um stöður hjá Vinnuskólanum. Það sé því miður ekki hægt að ráða alla sem sæki um. Ráðningar Olafsfjarðarbæjar: Aðeins karl- menn fengu fullt starf ólafsfjörður Einungis karlmenn voru ráðnir í fullt starf flokk- stjóra hjá Vinnuskóla Ólafsfjarð- ar fyrir komandi sumar sam- kvæmt samþykkt bæjarráðs. Þær konur sem hlutu náð ráðsins fengu aðeins hlutastarf. Fjórtán aðilar sóttu um starf flokksstjóra hjá bænum, sjö karlar og sjö kon- ur. Samkvæmt tillögu æskulýðs- og íþróttafulltrúa bæjarins, sem bæjarráð samþykkti, voru fjórir karlmenn ráðnir í 100% starf en sex konur í 50% starf. Páll Guð- mundsson, æskulýðs- og íþrótta- fulltrúi, segir að flestar konurnar hafi sótt um 50% starf. „Þrjár kvennanna sóttu um 50% starf. Þar að auki sóttu tvær um 100% starf en voru tilbúnar að vinna eitthvað minna.“ ■ I STUTT I Borgarráð hefur tekið ákvörð- un þess efnis að kjörskrá vegna borgarstjórnarkosning- anna 25. maí n.k. muni liggja frammi á netinu frá 15. maí. Leit- að var álits Persónuverndar og féllst hún á þessa tilhögun. Alls eru 82.507 kjósendur á kjörskrá. 81.193 atvinnuleysisdagar voru skráðir á landinu öllu í apríl. Það jafngildir því að 3.692 manns hafi að meðaltali verið á atvinnu- leysisskrá í mánuðinum og at- vinnuleysið mælist því 2,6%. Meðalfjöldi atvinnulausra breytt- ist ekki milli mars og apríl en jókst um 63,4% frá apríl í fyrra. Ástandið skánar yfirleitt frá apríl til maí og Vinnumálastofnun tel- ur því líklegt að atvinnuleysið í maí verði á bilinu 2,2% til 2,5%. Reykjavíkurborg og Harpa Sjöfn hf. hafa gert með sér samkomulag um sameiginlegt átak til að sporna gegn veggja- kroti, sem þykir setja miður fal- legan svip á höfuðborgina. Máln- ingarverksmiðjan leggur borg- inni til 2.000 lítra af málningu sem unglingar í sumarvinnu munu nota til að þekja krotið. Talið er að það kosti borgaryfir- völd, húseigendur og fyrirtæki milljóna tugi að hreinsa vegg- jakrot af húsum, mannvirkjum og vegvísum. Stjórnarmyndunarviðræðum slitið í gærkvöldi: Stjórnarmyndun út í sandinn færeyjar Forystumenn Fólka- flokksins, Jafnaðarmanna og Sambandsflokksins gáfust í gærkvöldi upp á tilraunum sínum við að mynda nýja stjórn. Eitt helsta ásteytingsefni í viðræðunum var hver ætti að leiða stjórnina. Anfinn Kallsberg, formaður Fólkaflokksins og nú- verandi lögmaður, og Lisbeth L. Petersen, formaður Sambands- flokksins gerðu bæði tilkall til embættisins. Færeyska lögþingið kemur saman í dag í fyrsta sinn eftir kosningarnar 30. apríl. Ef ekkert óvænt gerist verður þá ekki enn búið að mynda ríkisstjórn. Voru í stjórn: Fólkaflokkurinn 7 þingm. Þjóðveldisflokkurinn Sjálfstjórnarflokkurinn 8 þingm. 1 þingm. Voru í stjórnarandstöðu: Sambandsflokkurinn j 8 þingm. í Jafnaðarflokkurinn Miðflokkurinn 7 þingm. f 1 þingm. Stjórnarmyndunarviðræður hafa verið líflegar undanfarna daga. Gerðar hafa verið ýmsar tilraunir til að mynda nýja stjórn. Enn sem komið er hefur ekkert borið árangur. Eitt er nokkuð ljóst og það er að áformin um sjálfstæði hafa verið ANFINN KALLSBERG Formaður Fólka- flokksins hefur reynt ýmsar leiðir til að mynda nýja stjórn í Færeyjum. Enn hefur ekkert gengið í þeim efnum. Þing kemur saman í dag. lögð á hilluna. Högni Hoydal, leið- togi Þjóðveldisflokksins og ötul- asti talsmaður fyrir sjálfstæði Færeyja, sagðist í viðtali við Sosi- alurin afar vonsvikinn með að Fólkaflokkurinn og Sjálfstjórnar- flokkurinn hafi ákveðið að leggja sjálfstæðisáformin á hilluna. ■ Stjórnarformanni lýst sem lögbrjóti Yfirmennn Byggðastofnunar segjast ekki geta lagt nafn sitt lengur við afgreiðslur sem séu lögleysa eða í besta falli afskræming reglna. Fram- koma Kristins H. Gunnarssonar stjórnarformanns sé fullkomlega óásættanleg. Þeir eru vissir um stuðning iðnaðarráðherra. stjórnsýsla Fimm háttsettir starfs- menn Byggðastofnunar segja Kristin H. Gunnarsson, stjórnarfor- mann stofnunarinnar, vera í herför gegn forstjóranum, Theodóri Bjarnasyni. Kristinn H. segir starfsmenn eiga að setja fram sjón- armið á vettvangi stjórnarinnar. I hópi fimmmenninganna eru forstöðumenn lög- fræðisviðs og Fyllt hafi mæl- rektrarsviðs og inn að Krist- þn'r lánasérfræð- inn hafi reynt jngar á fyrirtækja- að breyta sviði. Þeir segja fundargerð framtíð sína hjá stjórnarfundar Byggðastofnun í í apríl „sér og óvissu: „Teljum við umbjóðend- fullkomlega óá- um sínum til sættanlegt að þurfa hagsbóta." að leggja nafn okk- —+— ar við afgreiðslur sem í versta falli eru lögleysa en í besta falli af- skræming á þeim reglum og við- miðum sem okkur er ætlað að vinna undir,“ segir í trúnaðarbréfi þeirra til Theodórs forstjóra. Bréfið er dagsett 22. apríl sl. Afrit þess var sent Valgerði Sverr- isdóttur iðnaðarráðherra og Guð- jóni Guðmundssyni, varaformanni stjórnar Byggðastofnunar. Starfs- mennirnir segjast þess fullvissir að ráðherrann og meirihluti stjórnar stofnunarinnar styðji for- stjórann. „Þeir hafa báðir minn stuðning KRISTINN H. GUNNARSSON Er sagður sniðganga forstjórann. og hafa hann í lengstu lög. Ilins vegar þurfa formaðurinn og fram- kvæmdastjórinn að geta unnið saman. Markmiðið er friður. Hvernig honum verður komið á hef ég ekki svör við ennþá,“ segir Valgerður Sverrisdóttir. I bréfinu segja starfsmennirnir að starfsumhverfi þeirra sé óá- sættanlegt vegna baráttu um framtíð Byggðastofnunar. Þeir segja Kristin ítrekað hafa stofnað til ágreinings á fundum lánanefnd- ar með háreisti og hafi hótað að ganga af fundi fengi hann ekki vilja sínum framgengt. Fyllt hafi mælinn að hann hafi reynt að VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR Segist ekki hafa svör við því hvernig friði verði komið á í Byggðastofnun. breyta fundargerð stjórnarfundar í apríl „sér og umbjóðendum sín- um til hagsbóta". Kristinn segir starfsmennina verða að láta sér lynda að það sé stjórn stofnunarinnar sem taki ákvarðanir um lán og hlutafjár- kaup. Fullyrðingar þeirra séu slúð- ur sem ekki sé hægt að svara beint. „Athyglisverðast við bréfið er hversu mikil persónuleg heift er í því í minn garð. Það bendir til þess að starfsmenn hafi ekki skrifað þetta bréf sjálfir," segir Kristinn. Theodór segist ekki hafa átt neina aðild að bréfinu. gar@frettabladid.is Utanríkisráðherra Belgíu: Fékk aðsvif á fundi NATO natofundur Louis Michel, utanrík- isráðherra Belgíu, var fluttur á sjúkrahús í skyndingu af fundi NATO í Háskólabíói í hádeginu í gær. Hann hné niður þegar ráð- herralið NATO var að stilla sér upp fyrir myndatöku og var í fyrstu óttast að hann hefði fengið hjartaáfall. Hann mun þó hafa fengið aðsvif og er sagður hafá verið undir miklu álagi undanfar- ið vegna fundahalda og ferðalaga. „Þetta er í fyrsta sinn sem eitt- hvað þessu líkt kemur fyrir | hann,“ sagði belgískur erindreki, s aðspurður um ástand ráðherrans. | Michel mun hafa íhugað að hætta | við að mæta til fundarins vegna ^ þess hve slappur var. „Honum leið | afar illa,“ bætti erindrekinn við, » sem ekki vildi láta nafns síns get- j= ið í viðtali við AP-fréttastofuna. “ „Honum fannst of heitt inni í fundarherberginu og of kalt þeg- ar hann var kominn út undir bert loft.“ ■ RÁÐHERRANN VAR FLUTTUR Á SJÚKRAHÚS Louis Wlichel hefur ferðast mikið undanfarnar tvær vikur. Hann var í Suður-Afríku og Rú- anda áður en hann fór til New York á vegum Sameinuðu þjóðanna á barnaráðstefnu í síðustu viku. Hann kom til landsins seint á mánudagskvöld. Aðalendurskoðandi Enrons: Viðurkennir lögbrot houston. ap David P. Duncan, fyrr- verandi endurskoðandi hjá banda- ríska Arthur Andersen, var varla sestur í vitnastúkuna í gær þegar hann sagði að bæði hann sjálfur og endurskoðunarfyrirtækið væru sek um lögbrot með því að hafa eyðilagt skjöl úr bókhaldi Enron. Gjaldþrot Enron er hið stærsta í sögu Bandaríkjanna. Orð Duncan stangast á við yfir- lýsingar endurskoðunarfyrirtæk- isins, sem heldur því fram að eng- inn starfsmanna þess hafi vísvit- andi eyðilagt skjöl. ■ AF SKEMMTUN SÉRNÁMSBRAUTAR Að sögn munu nemendur af sérnámsbraut útskrifast með grænar húfur í maílok. Borgarholtsskóli í Grafarvogi: Fyrsta út- skriftin af sér- námsbraut skólamál Fjórða árs nemendur á sérnámsbraut Borgarholtsskóla kvöddu skólasystkin sín með við- höfn í gær. Nemendurnir, átta talsins, eru þeir fyrstu sem út- skrifast úr framhaldsskóla eftir fjögurra ára nám á sérnámsbraut. Utskrift fer fram 25. maí, en í dag heldur hópurinn í útskriftarferð til Akureyrar þar sem þau verða fram á laugardag. Guðrún Sigurðardóttir, kennari við brautina, segir sérnám fyrir fatlaða nemendur hafa hafist á vorönn árið 1996. „Flestir nem- endurnir koma úr Öskjuhlíðar- skóla, en það hefur verið að aukast að þau komi úr öðrum skól- um líka,“ sagði hún og nefndi sem dæmi blindradeild Álftamýrar- skóla, sérdeild Hlíðaskóla og sér- deildir grunnskólanna. ■ TILFINNINGAÞRUNGIN STJÓRNMÁL Myndin er tekin við jarðarför Fortuyns i síðustu viku. Þingkosningar í Hollandi í dag: Stjórnin býr sig undir skellinn AMSTERDAM. AP RíkÍSStjÓm Hol- lands býr sig undir stórfellt tap í þingkosningunum í dag. Skoðana- kannanir benda til þess að þing- mönnum stjórnarflokkanna þrigg- ja fækki úr 97 í 58. Til þess að hafa meirihluta á hollenska þinginu þarf stjórn að vera með 76 þing- menn á bak við sig hið fæsta. Kosningabaráttan komst í upp- nám við morðið á hinum umdeilda stjórnmálamanni, Pim Fortuyn, í síðustu viku. Flokkur Fortuyns nýtur góðs af allri athyglinni og verður að öllum líkindum næst stærsti flokkur landsins í dag. Þótt flokkur Fortuyns stefni í að verða næst stærsti flokkur landsins hef- ur hann enn ekki valið sér nýjan leiðtoga að Fortuyn föllnum. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.