Fréttablaðið - 15.05.2002, Blaðsíða 6
SPURNING DAGSINS
Hverjír verða íslandsmeistarar
í fótbolta?
„Fylkir verður íslandsmeistari í karlaflokki
en KR i kvennaflokki."
Óttó Freyr Birgisson
nemi.
AUTT SVÆÐI
Svæðið þar sem hinir gríðarháu World Tra-
de Center-turnar stóðu, er nú orðið nánast
autt. í bakgrunni eru byggingar sem hýsa
World Financial Center.
Rústir World Trade
Genter:
Hreinsun
lýkur á næstu
dögum
árás Á banparíkin Verið er að ljúka
hreinsun svæðisins þar sem áður
stóðu World Trade Center-turn-
arnir í New York. Rúmir átta mán-
uðir eru nú síðan hryðjuverka-
árásirnar voru gerðar á bygging-
arnar. Tæplega 1,5 milljónir tonna
af grjótmulningi og um 200 þús-
und tonn af stáli hafa verið fjar-
lægð af svæðinu. Vonast er til að
búið verða að hreinsa upp allt
svæðið á næstu dögum. Rúmlega
1.000 lík hafa fundist í rústum
bygginganna. 1.800 manns er enn
saknað frá því 11. september. ■
ERLENT
Jarðskjálfti, sem mældist 5,2
stig á Richterkvarða, varð í
San Francisco og nágrenni í gær.
Engar alvarlegar skemmdir urðu,
né heldur meiðsl á fólki.
Laura Bush, eiginkona George
W. Bush Bandaríkjaforseta, er
stödd í París þessa dagana. Hún
hélt af stað í ferðalag um Evrópu
á mánudaginn og kemur við í
Búdapest og Prag áður en hún
hittir eiginmann sinn í Berlín
hinn 22. þessa mánaðar.
Sífellt fleiri Bandaríkjamenn
hafa spænsku að móðurmáli,
enda hefur þeim fjölgað hraðar
en öðrum hópum Bandaríkja-
manna undanfarinn áratug. Nú er
svo komið að rúmlega 35 milljón-
ir Bandaríkjamanna eru af
rómönskum uppruna. Þeir eru
því að verða álíka margir og
Bandaríkjamenn af afrískum
uppruna.
Afjáröflunarráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna í New York
söfnuðust í gær 5,2 milljónir
bandarískra dala, sem verja á til
uppbyggingar í Bosníu og Herse-
góvínu á næstu árum. Periz
Belkic, forseti Bosníu og Herse-
góvínu, sagðist reikna með því að
meira fé fengist til þessa síðar á
árinu.
FRÉTTABLAÐIÐ
15. maí 2002 MIÐVIKUDAGUR
Verðbólga nú 5,9%:
Húsasmiðjan
Rauða strikið hélt velli
VERÐBÓLGA ÞAÐ SEM AF ER ÁRINU:*
Vísitala Prósentustig
Janúar 221,5 9,4%
Febrúar 220,9 8,9%
Mars 221,8 8,7%
Apríl 221,9 7,5%
Maí 221,8 5,9% *upplýsingar fengnar af vef Hagstofu íslands.
efnahagsmál Rautt verðbólgu-
strik aðila vinnumarkaðarins og
ríkisstjórnarinnar hélt, sam-
kvæmt mælingu Hagstofu ís-
lands. Verðbólguvísitalan miðuð
við verðlag í maíbyrjun var
221,8 stig og lækkaði um 0,04
prósent frá fyrra mánuði. Rauða
strikið var dregið við 222,5 stig.
Hefði verðbólga farið yfir þau
mörk hefði verkalýðsfélögum
verið frjálst að segja upp launa-
lið kjarasamninga.
Verðbólguvísitalan án hús-
næðis var 220,7 stig og lækkaði
um 0,05 prósent milli mánaða.
Verðbólga miðuð við síðustu
12 mánuði er nú 5,9 prósent, en
var í síðasta mánuði 7,5 prósent.
Meðal atriða sem vógu þungt
í vísitölumælingu Hagstofunnar
er að verð á nýjum bílum lækk-
aði um 2,3 prósent og verð á mat
og drykkjarvörum lækkaði um
1,4 prósent. Verð á fötum og
skóm hækkaði hins vegar um 1,4
prósent. ■
Gengishagn-
aður raskar
áætlun
uppgjör Húsasmiðjan hagnaðist um
tæpar 60 milljónir á fyrstu þremur
mánuðum ársins 2002. Gengishagnað-
ur á tímabilinu var 93 milljónir króna.
Tekjur voru rúmir 1,8 milljarðar.
Laun og launatengd gjöld voru 21 %
af sölutekjum.
Gert er ráð fyrir að velta Húsa-
smiðjunnar í ár verði 9,7 milljarðar
króna. Hagnaður eftir skatta er
áætlaður 450 milljónir króna. Ef frá
er dreginn gengishagnaður fyrstu
mánuði ársins er þetta uppgjör í
samræmi við rekstraráætlun fé-
lagsins. ■
Stödugleiki og verð-
hjöðnun framundan
Vextir lækka innan skamms. Spár bjartsýnustu manna um efnahagsmál virðast að ganga eftir.
Hagvöxtur er talinn geta aukist hraðar en spáð hefur verið. ASI telur tímabil stöðugleika og
verðhjöðnunar framundan.
efnahagsmál Tilkynningar um
lækkaða stýrivexti er að vænta
frá Seðlabanka íslands innan ör-
fárra daga. Bankinn sagði frá
því í síðustu útgáfu ritsins Pen-
ingamál að frekari vaxtalækk-
ana væri að vænta þegar óvissu
...+.. hefði verið eytt
um hvort launa-
liður kjarasamn-
inga héldi í þess-
um mánuði. Nú
hefur það gengið
eftir fyrst verð-
bólga var undir
222,5 stigum, þar
sem rauða strikið
var dregið, sam-
kvæmt mælingu
Hagstof unnar.
„Við munum
fá hagvöxt,
jafnvel fyrr en
spár gerðu
ráð fyrir," segir
Tryggvi Þór
Herbertsson,
forstöðumað-
ur Hagfræði-
stofnunar Hl’.
-.....♦.....
„Við ætlum nú að skoða þetta al-
veg ofan í kjölinn og taka okkar
ákvörðun fyrir vikulokin,“ sagði
Eiríkur Guðnason, einn
þriggja bankastjóra
Seðlabanka íslands.
„Það gekk eftir að
rauða strikið hélt og
gengið hefur verið að
styrkjast mjög mikið.
Allt þetta gefur Seðla-
bankanum færi á að
lækka vexti mjög hratt
núna á næstu mánuð-
um,“ sagði Tryggvi Þór
Herbertsson, forstöðu-
maður Hagfræðistofn-
unar Háskólans, og
taldi það myndi verða VerðbólgumælinVafa7gbð
til að hvetja efnahags- tíðindi. „Það er Ijóst að
lífið af Stað aftur. „Við þáttaskil urðu með sam-
munum fá hagvöxt komulagi Alþýðusambands-
jafnvel fyrr en spár 'ns °8 Samtaka atvinnulífs-
gerðu ráð fyrir,“ sagði ms' m®.ð aðkomu rikisins,
„„ .„1^; um miðian desember. Eftir-
hann og taldi goðar fy|gnjn tj| þessa dags hefur
horfur fynr efnahags- 5vo ráðið úrslitum um að
lífið. „Meira að segja þetta tókst," sagði hann.
GRÉTAR ÞORSTEINSSON
Forseti ASl segir síðustu
fara hlutabréf að
verða betri kostur
en áður nú þegar
vextir og verðbólga
fara lækkandi."
Tryggvi taldi ólík-
legt að verðbólga
gæti náð sér aftur á
strik. „Opinber fyr-
irtæki, sem eiga í
raun að útvega þjón-
ustu á kostnaðar-
verði, kunna að
þurfa að hækka
gjaldskrár sínar. Á
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Mikil bjartsýni er ríkjandi um þróunina í efnahagsmálum þjóðarinnar í kjölfar síðustu
verðbólgumælingar Hagstofu íslands. Þar kom í Ijós að rautt strik aðila vinnumarkaðarins
hélt og því verði launaliðum kjarasamninga ekki sagt upp.
einkamarkaðnum ætti hins veg-
ar að vera það mikil samkeppni
að ekki sé svigrúm til hækkana.
Svo gefur gengisþróunin frekar
tilefni til lækkana," sagði hann.
Grétar Þorsteinsson, forseti
ASÍ, gerir heldur ekki ráð fyrir
verðhækkunum og segir allar
forsendur vera til áframhald-
andi stöðugleika og lágrar verð-
bólgu. „Ég skil hins vegar
mætavel ótta fólks við þær,“
sagði hann en áréttaði að engar
forsendur væru í efnahagslífi
þjóðarinnar sem gæfu tilefni tii
verðhækkana. „Þvert á móti eru
rökin öll í þá átt að verð eigi að
lækka á næstu vikum,“ sagði
hann.
oli@frettabladid.is
DeCODE fyrstu þrjá mánuðina:
14 milljarðar til ráðstöfunar
UPPGJÖR í lok mars hafði DeCODE
Genetics, móðurfélag íslenskrar
erfðagreiningar, tæplega 13,5
milljarða íslenskra króna til ráð-
stöfunar í handbæru fé.
Heildartap fyrirtækisins
fyrstu þrjá mánuði ársins nam
11,2 milljónum Bandaríkjadala.
Tapið hefur minnkað um 30 pró-
sent á milli ára. Tekjur DeCODE
hafa á sama tíma aukist úr 5 millj-
ónum Bandaríkjadala í 9,5 millj-
ónir. Það eru um 868 milljónir ís-
lenskra króna. Aukningin nemur
um 88 prósentum.
„Þessi mikla tekjuaukning sýn-
ir að við erum á réttri leið og að
þessir nýju samstarfssamningar
eru að skapa okkur umtalsverðar
tekjur á fyrstu stigum samstarfs-
ins,“ segir Kári Stefánson, for-
stjóri, í fréttatilkynningu.
Samningarnir sem Kári vísar
til er nýr samningur við Roche.
Roche mun greiða ÍE næstu tvö
árin fyrir framhaldsrannsóknir á
fjórum sjúkdómum. Hins vegar
er samningur við Pharmacia á
þessu ári um samstarf í erfða-
fræðirannsóknum á hjartasjúk-
dómum. ■
BRÉFUM í DECODE FJÖLGAÐ
I lok fyrsta ársfjórðungs 2002 var heildar-
fjöldi almennra hluta I samstæðu Decode
53,5 milljónir.
Aukið eftirlit
landamæradeildar:
Þrír Litháar
sendir heim
LANDAMÆRAEFTIRLIT Þrír Litháar
voru stöðvaðir á Keflavíkurflug-
velli í fyrrakvöld og fengu ekki að
fara inn í landið. Mennirnir hugð-
ust koma hingað til lands til vinnu
en voru ekki með tilskilin leyfi.
Þeir hofðu millilent í Kaupmanna-
höfn og voru sendir sömu leið til
baka. Eftirlit hefur verið aukið til
muna á Keflavíkurflugvelli vegna
fundar utanríkisráðherra NATO.
Samkvæmt landamæradeildinni
gengur eftirlit vel. Farþegar eru
lengur en venjulega að fara í
gegnum eftirlit en sýna því mik-
inn skilning. ■