Fréttablaðið - 15.05.2002, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 15. mal 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
11
Stöðvaði ekki skróp dætra sinna:
Dæmd í tveggja mánaða fangelsi
LONPON. ap Patricia Amos, rúm-
lega fertug bresk móðir, var í síð-
ustu viku dæmd í sextíu daga
fangelsi fyrir að hafa ekki komið í
veg fyrir að tvær dætur hennar á
unglingsaldri skrópuðu í skólan-
um. Fjölskyldu hennar þykir þessi
refsing hörð og óréttmæt.
Stjórnvöld og skólayfirvöld í
Bretlandi fagna hins vegar dóm-
inum og segja greinilegt að bar-
átta þeirra gegn skrópi sé byrjuð
að hafa áhrif.
Þetta er að öllum líkindum
fyrsta dæmi þess, að dómstólar
beiti heimild frá því í nóvember
árið 2000 til þess að hneppa for-
eldra í allt að þriggja mánaða
fangelsi fyrir að leyfa börnunum
sínum að skrópa.
„Mamma mín hefur ekki gert
neitt rangt,“ sagði Kerry Cowm-
an, elsta dóttir Patriciu Amos.
„Hún lét systur mínar klæða sig
sendi þær í skólann. Það er ekki
henni að kenna að þær skrópuðu."
Cowman er sjálf gift og komin
með tvö börn. Hún sagði að allir í
fjölskyldunni væru sem steini
lostnir vegna dómsins. ■
STJÓRNMÁLAMENN SPJALLA
Tony Blair, hægra megin á myndinni,
tók í gær á móti Jean Chretien, forsæt-
isráðherra Kanada. Blair hefur undan-
farið lagt mikla áherslu á baráttu gegn
skrópi og agaleysi í skólum.
Pakistani búsettur í Bretlandi:
Fordæmir íkveikju
árás á heimili sitt
bretlanp Abdul Aziz Chishti, 65
ára gamall maður sem missti son
sinn, dóttur sína og fimm barna-
börn í íkveikjuárás á heimili sitt
síðastliðinn sunnudag í Hudders-
field á Englandi, fordæmdi at-
hæfið í gær og sagði það „verk
morðingja". Fjórir asískir karl-
menn á aldrinum 19 til 25 ára eru
í haldi bresku lögreglunnar grun-
aðir um aðild að verknaðinum. Að
sögn lögreglunnar var um skipu-
lagðan verknað að ræða þar sem
einbeittur vilji til íkveikju var
fyrir hendi.
Chishti, sem er múslimi og er
fæddur í Pakistan, sagði að hann
og fjölskylda sín hefðu verið and-
lega eyðilögð vegna atburðarins.
„Við erum algerlega eyðilögð
vegna þessarar hræðilegu árásar
sem tók líf sjö saklausra meðlima
fjölskyldu minnar, sérstaklega
vegna dauða ungu stúlknanna
sem áttu allt lífið fyrir sér,“ sagði
hann á blaðamannafundi sem
haldinn var í gær. Stúlkurnar
sem létust voru fimm, á aldrinum
6 mánaða til 13 ára, að þvíer kom
fram á fréttavef Sky. „Ég kom
hingað til að sækjast eftir hjálp
frá pakistanska samfélaginu,
sem ég tel að hljóti að hafa upp-
lýsingar sem hjálpað geta lög-
reglunni við að komast til botns í
málinu," bætti hann við, harmi
HARMI SLEGINN
Abdul Aziz Chishti missti son sinn, dóttur
og fimm barnabörn í íkveikjunni á sunnu-
daginn. Hannn var harmi sleginn á blaða-
mannafundinum sem haldinn var í gær.
Hann komst lífs af úr eldinum ásamt fjór-
um öðrum.
sleginn. Faðir stúlknanna var
væntanlegur til Bretlands í gær
frá Pakistan. ■
Mikið úrval af skóm á ótrúlegu verði!!!
Lagersala á Fiskislóð 73
(úti á Granda), 101 Reykjavík.
Opnunartími:
Miðvikudaga kl:14:00til 18:00
Fimmtudaga kl:14:00 til 18:00
Föstudaga kl:14:00 til 18:00
Laugardaga kl:12:00 til 16:00
Forystumenn F-listans
í málflutnmgi
þeim til handa
eru þekktir fyrir .bI, I 11,JCjJBj
Þeir láta sig varða samborgara sína og
vilja réttlæti
RÉTTLÆTI
Kosningaskrifstofa Aðalstræti 9
s. 552-2600 • wwwxf.is • xf@xf.is
Hægt er að styrkja framboðið í síma 901 5101
(símtalið kostar 1.000 kr.)
Gísli Helgason
Margrét K. Sverrisdóttir
Olafur F. Magnússon